Morgunblaðið - 25.01.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.01.1964, Blaðsíða 1
24 siður 51. árgangur 20. tbl. — Laugardagur 25. janúar 1964 Prentsmiðja Morgunbla^fins Góöur árangur af för Kennedys til Asíu Sukarno hefur íioðoð vopna/i/é, og \ ' l'ikur eru nú fyrir friðsamlegri lausn London, 24. jan. — (NTB) DÓMSMÁLARÁÐHERRA -» Bandaríkjanna, Robert Kenn edy, kom í dag til London, eftir för sína til Asíu. Mun hann nú gefa brezku stjórn- inni skýrslu um árangur ferð- •r sinnar. Megintilgangurinn var að koma í kring nýjum umræðum, er leitt gætu til samkomulags milli ríkjasam- bandsins Malaysía og þeirra aðila, sem mest hafa haft á móti stofnun þess. Kennedy bar á móti því, að Sukarno, Indónesíuforseti, hafi ákveðið að láta af and- stöðu sinni við ríkjasamband- ið. Mun sá misskilningur stafa af því, að Sukarno til- kynnti í gær, að hann hefði fyrirskipað vopnahlé á Norð- ur-Borneo. Kennedy lýsti því yfir, er hann kom á flugvöllinn við London, að hann vonaðist til þess, að Bretar og EBE taka sameigin- lega oistöðu London, 24. janúar — AP BRETLAND og lönd Efna- hagsbandalags Evrópu, sem saman mynda V-Evrópu bandalagið, gáfu í 'dag út yfir lýsingu, þar sem kveðið er á um nánari samvinnu þessara sjö ríkja. Yfirlýsingin var gefin út, að loknum fundum bandalags sins, en þeir hafa staðið London, undanfarna tvo daga. Tilkynning þessi hefur vakið nokkra athygli, vegna viðræðna þeirra um tollamáf, sem framundan eru. Vitað er, að sjónarmið Breta og ann- arra EFTA-landa varðandi þau mál hafa verið ólik sjón armiðum Efnahagsbandalags-i ins. f lok mánaðarins eru fyr- irhugaðar viðræður um ójafna tolla beggja vegna’ Atlanshafsins, og í Evrópu, en í maí hefjast þær viðræður, ,sem ganga undir nafninu „Kennedy-viðræðurnar". Sukarno myndi sýna samnings- vilja er komið yrði saman til frekari viðræðna. Síðar í dag átti Kennedy við- ræður við R. A. Butler, utanrík- isráðherra Breta, og ræddu þeir þá nánar niðurstöður viðræðna þeirra, sem Kennedy hefur tékið þátt í, undanfarna daga. Auk hans og Sukarnos tóku Tunku Abdul Rahman, forsætisráðherra Malaysíu og Macapagal, forseti Filippseyja þátt í þeim. Tilkynningin um vopnahlé á Norður-Borneo vakti mikla á- nægju í London. Nokkuð dró úr henni, er Sukarno birti nýja yfir- lýsingu, þar sem sagði, að „bar- áttuaðferðir“ kynnu að hafa breytzt, rn í grundvallaratriðum væri afstaðan til Malaysíu ó- breytt. Kennedy skýrði hins vegar frá því, að Sukarno hefði fallið frá allri beitingu valds og vopna, þar til fram hefði komið, hvers væntai mætti af frekari viðræð- um deiluaðila. Dómsmálaráð- herrann skýrði ennfremur frá því, að hann væri þess fullviss, að ráðamenn í Indónesíu hefðu fullan hug á að leysa þau- vanda- mál, sem að steðjuðu, á friðsam- legan hátt. Á morgun, laugardag, ræðir Kennedy við Sir Alec Douglas Home, forsætisráðherra Breta, og Duncan Sandys, nýlendumála- ráðherra. BJARNI BENEDIKTSSON, forsætisráðherra flytur ræðu sina á Alþingi í gær. (Ljósm. Mbl. Ól.K.M.) Hagkvæmasta og almenningi hollasta aiferðin til þess ai firra vandræðum Söluskattsaukningin mun valda 1,4% verðhækkun Fargjaldasam- þykkt IATA • *. , Montreal, Kanada, 24. jan. í Einkaskeyti frá AP. IATA, Alþjóðasamband flug- félaga, hefur samþykkt ný farmgjöld í flugi. Hér er þó aðeins um að ræða sameigin- afstöðu meðlima til til- Framh. á bls. 17 Ræða forsætisráðherra, Bjarna > •» Benediktssonar, á Alþingi í gær Á FUNDI neðri deildar Al- þingis í gser mælti Bjarni Benediktsson, forsætisráð- herra, fyrir framkomnu frum varpi til laga uin ráðstafanir vegna sjávarútvegsins o. fl. Forsætisráðherra kvað flesta gera sér þess ljósa grein, að hinar miklu kaup- hækkanir á síðasta ári hljóti að hafa svo mikil áhrif á efna- hagslíf íslenzku þjóðarinnar, að brýn nauðsyn sé skjótra gagnráðstafana, ef komast á hjá hreinum vandræðum. -jk- Haldgóð órræði fáist hins vegar ekki, nema uni þau sé víðtækt samkomulag. Því sé æskilegt, að svigróm gef- ist til þess að íhuga allt frá rótum, og stjórnvöld og full- tróar helztu atvinnustétta reyni til þrautar að koma sér saman um framhóðarráðstaf- anir. Það svigróm er fyrir hendi vegna hinna ríflegu gjaldeyrisvarasjóða. -^- Hinar fyrirhuguðu ráð- stafanir eiga að létta byrðar togara og frystihósa, sem þau fengju ella ekki und- an risið eftir hinar gífurlegu launahækkanir, sem yfir hafa dunið á skömmum tíma. NATO-floti ekki í vegi tyrir dreifingarbanni — segir Tsarapkin — Frakkar yrðu að eiga aðild að sliku banni, segir fulltrúi USSR Genf, 24. jan. — (NTB) — AÐALFULLTRÚI Sovétríkj- anna á afvopnunarráðstefn- unni í Genf, Seymon Tsarap- kin, lýsti því yfir í lok um- ræðna í dag, að hann hefði aldrei sagt, að Sovétríkin vildu ekki ræða um bann við frekari dreifingu kjarnorku- vopna, nema Bandaríkin hyrfu frá hugmynd sinni um kjarnorkuflota Atlantshafs- bandalagsins, NATO. Sagði Tsarapkjn, að Sovét- ríkin væru þess albúin að ræða slíkt hann. Gjarnan mætti ræða kjarnorkuflotann samtímis, þó væri það ekk- ert skilyrði. Fulltrúi Rúmeníu, V. Dimi- trescu, og fulltrúi Búlgaríu, Karlo Lukanov, héldu því fram í dag, að næsta skrefið í áttina til frek- ara samkomulags á ráðstefnunni yrðu Vesturveldin að stíga. Lukanov vék að tillögu Krús- jeffs, forsætisráðherra Sovéj- ríkjanna, um bann við valdbeit- ingu í landamæradeilum. Taldi hann, að ekki bæri eins mikið á milli Sovétríkjanna og Banda- ríkjanna í þessum efnum, og margir teldu. Eftir fundi ráðstefnunnar I dag, skýrði Tsarapkin fréttamönnum svo frá, að það, sem mestu máli skipti í afvopnunarmálunum, væri, að V-Þýzkaland fengi ekki í hendur kjarnorkuvopn. _ SÍÐUSTU FRÉTTIR: Síðar í kvöld var haft eftir öðrum sovézkum fulltrúa á ráðstefnunni, að samningur um bann við frekari dreifingu kjarnorkuvopna yrði að und-' irritast af Frökkum, ásamt öðrum, — en Frakkar telja, að svo lítils árangurs sé að vænta af ráðstefnunni, að þeir eiga þar enga fulltrúa. -^- Aukning söluskattsins mun sennilega valda u.þ.b. tveggja stiga vísitöluhækkun, en raunverulega ekki hækka verðlagið nema um 1.4%. -^- Forsætisráðherra rakti rækilega tilefni og tilgang lagafrumvarpsins og sagði að lokum: „Það, sem nó liggur fyrir, er að taka verkefnin raunhæfum tökum, — með raunhæfum ráðstöfunum, leysa þau eins og þau liggja fyrir, og það er ótvírætt, að hvort sem mönnum líkar bet- ur eða verr, — og enginn gleðst yfir því að þurfa að gera tillögur um verulega skattþyngingu —, þá er sú skattþynging, sem nú er bor- in fram tillaga um, að lang- samlega mestu leyti afleiðing af þeim orsökum, sém þegar eru orðnar, og ef menn vilja ekki, að orsakirnar skapi enn þá meira tjón og glundroða, þá er þetta í bili hagkvæm- asta og almenningi hollasta aðferðin, til þess að firra vand ræðum af afleiðingum orsak- anna.“ Ræða torsætisráðherra fer hér á eftir: Ótvírætt er, að hinar miklu kauphækkanir, sem urðu á sL ári, hljóta að hafa margvísleg áhrif á efnahag okkar íslendinga. Þessi áhrif verða misskjótvirk og munu lýsa sér með mismunandi hætti. En flestir munu hafa gert sér grein fyrir því, að viðbúið sé, að verði ekki gagnráðstafan- ir gerðar, sé líklegt, að til hreinna vandræða horfi. Hins vegar er æskilegt að þessi áhrif fái lýst sér í framkvæmd, svo að allir aðilar geti áttað sig á þeim og mönnum gefist færi á að íhuga, hver úrræði séu líklegust til þess Framh. á bls. 8. /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.