Morgunblaðið - 01.02.1964, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.02.1964, Blaðsíða 24
iaugavegi 26 simi 200 70 26. tbl. — Laugardagur 1. febrúar J964 jm BRAUÐ 'srfr/?. t '-5 ' v •» ♦ Efri myndin sýnir Eldey draga Kötlu afturábak frá landi. Á neðri myndinni er Vilborg að draga Eldey að bryggju í Keflavík eftir að dráttartaug in hafði flækzt í skrut'unni. — Ljósm. Sævar Kristjánsson. Dró ms. Kötlu frá klettum í Keflavík Drdttartaugin ílæktist í skrúfu aðstoðar- skipsins Á MILLI kl. 11 og 12 á hádegi var ms. Katla að leggja frá Eryggju hér í Keflavík, Er nokkuð var komið frá bryggj- unni stöðvaðist vél .skipsins af einhverjum orsökum og rak það upp í kletta norðan við Fiskiðj- una, undan snarpri austanátt. Mb. Eldey var við bryggju í Keflavík með vél í gangi, og uirnu skipsmenn að því að taka beitu. Sáu þeir hvað fram fór, og sigldi Eldey þegar til aðstoð- ar Kötlu. Dráttartaug var komið fyrir á milli skipanna, og tókst Eldey að draga Kötlu afturábak i úr fjörunni, og snúa skipinu við, þannig að stefni þess vissi út Missti etherglas á heitan rafma^ns- ofn SELFOSSI, 31. jan. — 1 gær var slys á sjúk*raihú.sinu. Soffía Niels- dóttir, hjúkrunarkona var að vinna með etherglas um tvö leytið og var svo óheppin að missa ,glasið ofan á rafmagns- ofn. Eterinn í loftinu varð sam- stundis logandi og blossaði upp að henrtf, svo kviknaoi í fötum hennar. Soffía var í nælonundir- kjól, sem umsvifalaust blossaði upp, en utanyfir var hún klædd lóreftsslopp. Læiaiirinn kom henni til hjálpar og slökkti í föt- um hennar. Hún hafði brennzt illa á handleggjum og höndum og liggur á sjúkrahúsinu. — Ó. J. úr höfninni. Þegar hér var kom- ið sögu tó'kst Kötluimönnuim að koma vél skipsins í gang. Slepptu þeir þá dráttartauginni, og. héldu áleiðis til Akiraness. Svo slysaleiga tókst til að drátt- artaugin flæktist í skrúfu Eldeyj ar, og gat báturinn ekki athafn- að sig. Rak hann nú í átt til lands. í Keflavíkurhöfn var einnig annar bátur með vél í gangi, mb. Vilborg. Fór báturinn til að- stoð'ar, bg tókst að draga Eldey að bryggju. Froskmaður kafaði síðan og skar taugina frá skrúf- unni, en þá kom á dagihn að skemmdir höfðu orðið á henni, og verður Eldey nú að fara í dráttarbraut ,til frekari athug- unar og viðgerðar. — HSJ. Frosthörku ger- ir a Fjollum 27 stiga gaddur í Möðrudal og á Grímsstöðum f GÆR gerði Veðurstofan lands- mönnum kunnugt að mesta frost væri á landinu í Möðrudal á Fjöllum oe Grímsstöðum, 27 stig, og þótti irörgum talsverð tíð- indi eftir hiýindin að undan- fömu. Mbl. átti í gær tal við fréttaritara sinn í Grímstungu á. Fjöllum, Benedikt Sigurðsson, svo og við Svein Vilhjálmsson, bónda í Möðrudal. Benedikt í Giýmstungu sagði að enda þótt frostið hefði kom- izt í 27 stig hefðu menn yfir engu að kvarta á Fjöllum. Hann sagði að janúarmánuður hefði verið óvenju mildur, en heldur hefði tekið að kólna og snjóa fyrir nokkrum dögum. Færð hefði verið furðu góð. Játnðu landliel^isbrot Veistm.eyjuim 31. jan. SKIP'STJÓRARNIR á Ökúla fógeta og Björgvin komu fyrir rétt hjá bæjarfógéta í morgun, vegna kæru um landhelgisbrot. En Ægir hafði kært þá fyrir ólöglegar botnvörpuveiðar. Ját- uðu báðir á sig brot sitt. Dómur verður væntanlega uppkveðinn ijim eða eftir helgi. —r Bj. Guðm. Islendingar vilja leigja báta sína til Grænlands Þykir fiskverðið þar of lágt til að gera út sjálfir FULLTRÚAK Grænlands- verzlunarinnar dönsku, þeir G. P. Svensgaard, framkvstj. framleiðsludeildarinnar, og J. Engelbrektsen, fiskimála- ráðunautur, sem er Norð- maður, hafa nú lokið erindi sínu hér, og ætluðu að halda heimleiðis í morgun. Hafa þeir rætt við ýmsa útgerðar- menn og samtök þeirra, og við opinbera aðila um mögu- leika á því að íslenzkir fiski- hátar verði sendi'r til Græn- lands til veiða fyrir fiskiðju- ver Grænlandsverzlunarinn- ar. Ræddu fulltrúarnir við fréttamenn í gær um árang- urinn af heimsókninni. Er Sjólistæðislólk! Varðarkaffið í Valhöll kl. 3—5 ■ dag hann sá að verðið, sem greitt er í Grænlandi er of lágt, en hins vegar líkur fyrir því að íslenzkir bátar verði teknir á leigu eða jafnvel keyptir til Grænlands. ' Fulltrúarnir sögðu að margir íslenzkir útvegsauenn. hafi leit- að ti'l þeirra eftir nánari upplýs- ingum um Grænlandsveiðarnar. Fljótlega koim þó í Ijós að verð- ið, sem Grænlandsverzlunin greiðir fyrir innlagðan fisk, er mun lægira en greitt er hér á landi, eða hæst 50—53 aurar danskir fyrir hvert kíló af fyrsta flokks fiski (ísl. kr. 3,12—3,30 pr. kg.). Skildú fulltrúarnir vel ^ð ekki væru íslenzkir fiskimenn sólgnir í að fiska á Grænlands- miðum fyrir lægri kjör en hér heíma. * Hins vegar kom fljótlega í ljós áhugi meðal útgerðarmanna á að leigj'a Grænlandsverziuninni báta, 'og sögðu þeir Svensgagrd Hetmdallur Klúbbur verður í Sjálfstæðis. búsinu í dag kl. 12.30. Félgar fjölmennið. . og Engelbrektsen að þeim hefði borizt fjölmörg leigutilboð. — Fara þeir nú heim með tilboð- in þar sem þau verða könnuð nánar, einnig með tilliti til leigu tilboða frá norskum útgerðar- mönnum. í>á segja fulltrúarnir að þeim hafi borizt nokkur til- boð um að fá keypta báta hér, og það mál yrði einnig kannað nánar. Kváðust þeir ánægðir Framh. á bls. 23 Aðeins nok'krir daigar værj síðan að bílar fóru yfir Möðrudalsfjall garð, og væri slí'kt næri eins- dæmi, ef frá er skilinn sl. vetur, sem var óvenju mildur. Hefði þá verið svipað mea veðurfar, en janúar í fyrra þó verið ,kaldari en nú. Frost hefðu verið meiri í fyrra, einkum í Möðrudal. „En okfeur bregður nú við, því veðurfar hefur verið gott að undanförnu. Snögg'lega skipti um, en við höfum ekiki yfir neinu að kvarta.“ Sveinn Vil'hjálmsson, bóndi í Möðrudal, tjáði Mbl. að mikið frost hefði verið í fyrrinótt og gærmorgun, en væri nú farið að minnka. Snjór væxi ekki mik ili og stafalogn. Fé hefði að undanförnu verið látið út, en vegna frostsins hefðf því verið hætt. „Það er góð upphitun hér á bænum og það væsir ekki um okikur“, sagði Sveinn. Hann bætti því við að Jón í Möðru- dal lsegi nú sjúkur í Fjórðungs- sjúikrahúsinu á Akureyri. Fiskiþing að hefjast FISKIÞING verður sett í dag kl. 10.30 í nýja Fiskifélagshúsinu. Mættir eru til þings 23 fulltrúar Utan- af landi og úr Reykjavík. Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri, setur þingið. ppg -y ■ ’ 'Jí Guðmundur Fálmason. Guðmundur nærri titli alþjöðaskákmeistara EF GUÐMUNDUR Fálmason, , sem haf'ur staðið sig mjö'g vel á Skákmóti Reykijavíikur og t. d. gert jafntefli við Mikail Tal, vinnur Svein Johannes- sen í elleftu og síðustu um- ferð fnótsins á morgun, sunnu dag, hefur hann helmings þess árangurs, sem hafa þarf til þess að öðlast alþjóðlegan skákmeistaratitil. Heppnist honurn þetta, þarf hann að- eins sama árangur á öðru B-móti til að fá titilinn. Reykjavíkurmótið er að flokk un Alþjóðasikáksaimibandsins B-mót, en að öðrum kosti mundi Guðmundur hljóta rétt indi þessi, ef hann sigrar Jo- hannessen. Ingi R. Jóhanns- son slfýrði MorgU'niblaðmu svo frá í gær, að mót þetta vsari þó miklu erfiðara, en þessi flokkun gefur til kynna, þar sem stórmeistarar þeir% er í hlut eiga, eru að meðaltali mun sterkari en tíðkast á flestum alþjóðamótuim. Til þess að fá réttindi al- þjóðaskákmeistara_ á mótum í A-flokki, þarf að ná 30 % árangri í hlutfalli við stór- meistarana, 50 % miðað við aLþj óðaskákmeistara og 70 % í hlutfalli við Almenna kepp- endiur þyrfti því Guðmundur að fá 7,1 vinning, þ. e. a. s. 7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.