Morgunblaðið - 02.06.1964, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 02.06.1964, Blaðsíða 21
<"> 'lfc'. Þriðjudagur 2. júní 1964 MORGUNBLAÐIÐ 21 Rannsóknarleiðangui „Ægis“ HINN 1. júní legg-ur varðskipið Ægir af stað í hinn árlega síldar- og hafrannsóknaleiðangur. Rann sóknir þessar eru einn þáttur í sameiginlegum athugunum íslend inga, Norðmanna og Rússa, á ætis göngum síldarinnar á hafsvæð- unum vestan, norðán og austan Islands. íslenzki leiðangurinn rannsak- ar þannig svæðið út af Vestur- og Norðurlandi austur á móts við Þistilfjörð. Norski leiðangur- inn rannsakar svæðið út af Aust ur- og Norðurlandi allt til Jan Mayen, og rússnesku ransóknar- Sinntu ekki kalli bilaðs báts 1UPP ÚR miðnætti aðfaranótt^ imánudags bilaði vél í vb. Þóri/ frá Reykjavík, sem var á; humarveiðum á venjulegu} veiðisvæði 6—7 sjómílur und- an Eldey. Skipverjar báðu þegar um aðstoð, en þótt ifjöldi báta væri á veiðum allt um kring, svaraði enginn kallil þeirra. Voru þar t. d. bæðii Reykydkingar, Hafnfirðingar/ otg Keflvíkingar. Loftskeyta- stöðin náði sambandi við 'Slysavarnafélagið, en Land- helgisgæzlan mun ekki hafa haft aðstöðu til þess að útvega bát, sem farið gæti til hjálpar. \ð lokum tókst tryggingar- félagi bátsins að útvega bát um morguninn. Var það vb. íslendimgur II., sem fór frá Reykjavík. Mun hann hafa komið að vb. Þóri um kl. 18i í gær, og 'hafði hann þá velkzt í reiðileysi og rekið undan 'í veiðarfærum allan tímann. I/Vb. fslendingur II. var svo Ivæntanlegur til Reykjavíkur nótt með vb. Þóri í eftir l dragi. skipin rannsaka hafsvæðin norð an og austan þeirra svæða, sem íslenzku og norsku leiðangrarnir gera rannsóknir ú. Auk athugana á göngum síldar innar verða gerðar umfangsmikl ar sjó-, plöntu- og dýrasvifsrann sóknir. Gert er ráð fyrir, að hinum sameiginlegu leiðöngrum ljúki með fundi á Seyðisfirði, dagana 22. og 23. júní. Þátttakendur í Ægisleiðangrin um eru eftirtaldir starfsmenn Fiskideildar: Jakob Jakobs&on, leiðangursstjóri; Ingvar Hall- grímsson, fiskifræðingur; Dr. Svend-Aage Malmiberg, haffræð ingur; Birgir Halldórsson; Árni Þormóðsson og Guðmimdur Sv. Jónsson. Skipstjóri á Ægi er Guðmund- ur Kjærnested. Rétt er að geta þess, að leið- angur Ægis hefst 11 dögum síðar en ætlað var, vegna þess, að asdic-tæki skipsins eyðilögðust fyrr í vor, og ekki reyndist unnt að koma nýjum tækijum fyrir í skipinu fyrr en nú. Leitarskipið Pétur Thorsteins- son mun leggja af stað í síldar- leit norðanlands og austan ein- hvern næstu daga. (Fréttatilkynning frá Fiskideild). I Álftahjónin á Tjörninni með ungana sína tvo. Kvenfuglinn 1 þeirra reyndust fúlegg. — Ljósm. Mbl. Sv. Þ. á að vísu á sjö eggjum, en fimm Áróður KrabbameSnsfé- lagsins ber góðan órangur en félagið tapar við það helming af sígarettutekjum sínum að reykingar hafa minnk- ÁRÓÐUR Krammabeinsfélagsins fyrir því að menn hætti að reykja sígarettur hefur komið heldur betur niður á félaginu, því ágóð inn sem það hafði af sígarettum hefur minnkað um helming við það að. Þessar upplýsingar fékk blað- ið hjá Halldóru Thoroddsen, rit- ara Krabbameinsfélaganna. Hún sagði að Krabbameinsfélagið Flugvél hlekkist á LAUST FYRIR kl. 11 á laugar- dagsmorgun hlekktist lítilli flug- vél af gerðinni Air Cub á í flug- taki á Sandskeiði. Skemmdist vélin nokkuð en flugmaðurinn slapp ómeiddur. Flugmaður þessi er flugnemi, og hafði lokið sóló-prófi, en hafði hinsvegar ekki öðlast skírteini einkaflug- manns. Er menn hafa lokið sóló prófi mega menn fljúga einir í næsta nágrenni við Reykjavíkur flugvöll undir eftirliti kennara. Má ekki fara lengra en að Korp úlfsstöðum og Álftanesi. 1 Einhverra hluta vegna fór um ræddur flugnemi út fyrir þetta svæði, og lenti á Sandskeiði. Er hann hugðist hefja vélina til flugs á ný, varð ójafna fyrir nef hjóli vélarinnar með þeim afleið ingum að það brotnaði. Við það rakst skrúfan í jörðu og brotnaði einnig. Er vélin nokkuð skemmd. Landskunnir skipstjórar í aflahæstu sveitinni Sjóstangaveiðimótið tókst mjög vel FIMMTA alþjóðastjóstangaveiði- mótinu, sem haldið var í Reykja- víka að þessu sinni er lokið. Því var slitið með hófi í Sigtúni á sunnudagskvöldið. Þar voru af- hent verðlaun af formanni dóm- nefndar, Páli Þorbjarnarsyni, en að lokum sleit Birgir Jóhannsson, sem verið hefur formaður félags- ins sl. 2 ár, mótinu með kveðju- ræðu. Sjóstangaveiðin er að verða mjög vinsæl íþrótt á íslandi, enda er hún holl íþrótt. Þátttakend- urnir komu af veiðunum sólbrún- ir og sællegir og þess má geta að allir nýir þátttakendur gengu í félagið að loknu mótinu. Gaman er líka að veita því at- hygli að í aflahæstu sveit móts- ins eru tveir landskunnir skip- stjórar^ og aflamenn, þeir Har- aldur Ágústsson og Gunnar Guð- mundsson. Veitt var í þrjá daga, föstudag, laugardag óg sunnudag, en til veiðanna voru notaðir 9 bátar. 1. afli 2. 3. dagur, keppendur 45, 653 fiskar = 753.9 kg. dagur, keppendur 46, afli 1049 fiskar = 1973.6 kg. dagur, keppendur 47, afli 1697 fiskar = 2868.8 kg. Afli alls á mótinu 3399 fiskar = 5596.3 kg. í sveitakeppni varð sveit nr. 7 hlutskörpust, hana skipuðu: Kol- beinn Kristófersson læknir, Har- aldur Ágústsson skipstjóri, Hann- es Þórarinsson læknir og Gunn- ar Guðmundsson skipstjóri. Afli sveitarinnar varð 680 kg. Bezt aflaðist á bát nr. 2, Ás- björgu, skipstjóri Símon Guðjóns son, eða 200.67 kg. á mann. Næstur varð bátur nr. 8, Jón Bjarnason, skipstjóri Halldór Bjarnason, eða 179.7 kg. á mann. Þriðji varð bátur nr. 7, íslend- ingur II, skipstjóri Jóhannes Guð jónsson, eða 164.86 kg. á mann. Þessir höfðu mestan afla: Halldór Snorrason, 255.4 kg. Magnús Valdimarsson 205.9 kg. Ómar Konráðsson, 196.7 kg. Mestur afli á föstudag: Halldór Snorrason, 92.5 kg. Laugardag: Halldór Snorrason, 122.4 kg. Sunnudag: Ómar Konráðsson, 126.7 kg. Flesta fiska dró Halldór Snorra son, 156 stykki. Stærstu lúðuna dró Ómar Kon- ráðsson, 2.8 kg. Stærsta þorskinn dró Haukur Clausen, 14.2 kg. Stærstu ýsuna dró Luðv. Nord- gulen, 4.5 kg. Stærstan ufsa dró Ómar Kon- ráðsson, 1.9 kg. Stærstu löngu dró Rolf Johan- sen, 1.2 kg. Barn skaðbrennist í GÆR skaðbrenndist barn á Hvammstanga, þegar það kippti taug úr hraðsuðukatli, svo að sjóðandi vatn helltist yfir það. Sjúkraflugvél frá Birni Pálssyni sótti barnið norður. Barnið mun vera mjög illa brennt. Stærstu keilu dró Hákon Jóh., 4.8 kg. Stærsta steinbít dró Sveinn Magnússon, 2.2 kg. Stærstan karfa dró Sveinn Magnússon, 2.4 kg. Stærstu lýsu dró Jón B. Þórð arson, 2.0 kg. Mestur afli konu, Edda Þórz, 123.1 kg. Næst mestan afla, Steinunn Roff, 86.5 kg. Stærsta fisk konu, Steinunn Roff, 6.9 kg. væri búið að fá 25 aura af hverj- um heldum sígarettupakka í hálft annað ár, síðan fyrsta janúar 1963, og á þiem tíma hefði sala á sígarettum minnkað svo mjög að nú væri þessi tekjuliður orðinn helmingi minni á hverjum mán- uði en þegar mest var. Þessi skattur á íúgarettunum hefur komið sér vel, því sígarettutekj- urnar hafa verið drjúgar þegar útgjöldin hafa verið mikil við húsakaupin í Suðurgötu og upp komu leitarstöðvar fyrir leg- krabba í kjallara hússins. — En þetta sýnir að áróður okkar hef- ur borið árangur, jafnvel þó við vitum að eitthvað af reykinga- fólki hafi farið yfir í pípu og nef- tóbak, sagði Halldóra. Mest hefur hrapið orðið í sölu Camel sígaretta, enda þær lang- hæstar, gáfu t.d. í janúar í fyrri 6 sinnum meiri tekjur til Krabba meinsfélagsins en næsta tegund á eftir. Yfirleitt hefur minnkað mest salan á Camel og Chester- field, en eitthvað komið í staðinn af filtersígarettum, en í heild hef ur seldum pökkum af sígarett- um fækkað um helming og tekj- ur Krabbameinsfélagsins af þeim því minnkað um helming. Unglingar ræna móður- silungi á Laxalóni Ferjaðir til Luxemborgar vegna viðgerðar á flugbraut UM þessar mundir fer fram við- gerð á hluta af flugbraut á Lux- emborgarflugvelli, þar sem flug- vélar Loftleiða hafa daglega við- komu. Lagfæringa var þörf á fhluta af þeirri braut, sem íslenziku flugvélarnar nota aðallegsi, og hafa þær staðið yfir í þrjá mán- uði. Af þessum sökum hafa Loft- leiða-vélarnar orðið að hafa við- komu á flugvöllunum í Brússel og Amsterdam til þess að fylla eldsneytisgeyma, áður en lagt hefur verið af stað vestur um haf. Magnús Guðmundsson, flug- stjóri hjá Loftleiðum, tjáði blað- inu í gær, að yfirvöld á Luxem- borgarflugvelli hefðu gert ráð fyrir að þessari viðgerð yrði lokið nú um mánaðamótin, er hin nýja flugvél Loftleiða lenti þar fyrsta sinni, en á viðgerðinni hefðu orð- ið tafir og lýkur henni sennilega ekki fyrr en eftir tvær vikur. Flugbraut þessi er mun lengri en lengsta braut Reykjavíkurflug vallar og hafa létthlaðnar Cloud- master-vélarnar getað notað hana auðveldlega þrátt fyrir að við- gerð sé framkvæmd á hluta henn ar. Öðru máli gegnir þó um nýju flugvélina Leif Eiríksson. — í Brússel verður hún að skilja eftir hluta farþeganna, sem verða síð- an ferjaðir til Luxemborgar í smærri flugvélum. Leifur Eiríksson fer fyrstu á- ætlunarferðina yfir Atlantshaf í dag. Var hann væntanlegur til Keflavíkurflugvallar í morgun frá New York og heldur þaðan til Luxemborgar með viðkomu í Brússel. Á LAXALÓNI við Grafarvog skammt frá Reykj avík fer fram ræbtun og uppeldi á regnboga- silungi og eru fiskurinn og seyð in geymd í sérstökum tjörnum. Nú hefur það gerzt að ungling- ar hafa farið að heiman frá sér í bænum með véiðistengur, og stolizt til að veiða í tjörnun- um móðurfiskinn, sem ræktað er undan. Geta þeir eyðilagt mikil verðmæti á skömmum tíma með því að stela þessum fiski. Skúli Pálsson á Laxalóni sagði við Mbl. að þetta sé eins og ef drepnar væru ær bæmda að vor- iniu, því þarna er um að ræða móðurfiskinn, sem hrognin eru Slys í Þorlákshöfn Þorlákshöfn, 1. júní: — BENEDIKT Thorarensen, fram- kvæmdastjóri Meitiis h.f., slasað- ist hér í Þorlákshöfn á laugar- dag, þegar verið var að setja nýtt steinker í höfnina. Slóst vir í annan fót Benedikts, svo að hann hlaut opið beinbrot rétt of- an við ökla. Einnig fór öklinn úr liði. Þetta var þriðja kerið, sem sett er við þessa bryggju, sem nú er orðin 15 metra löng. Næsta ker verður sett niður eftir hálf- an mánuði, og gengur verkið nú ágætlega. Sex ker eru nú tilbúin til að fara í sjóinn, og Efrafall er að steypa fleÍEj. 15 ker verða við Suðurvarar- bryggju. en 34 við Norðurvarar- bryggju. — M. Bj. tekin úr. Sé þessi fiskur svo van ur mönnunum sem fæða hann að ekki þurfi nema setja fingur á vatnið til að haim komi. Það var lögregluþjónn, sem varð var við strákana, sem höfðu komið með poka og stengur til að ræna fiski. Sagði Skúli að eftirleiðis yrði tekið mjög strangt á þessu, ef unglingar stælu fiskinum. Og ættu foreldr ar að fylgjast með hvert dreng- ir ætluðu’ etf þeir færu með stöng að heiman, því að fara í tjarnirnar sé ekki betra en að brjótast inn og hirða verðmæti í húsum. jRockefeller jeignast son ^New York, 31. maí (AP) — MARGARETTA (Happy) | Rockefeller, kona Nelsons Rockefellers ríkisstjóra í New 1 York, ól á laugardag 14 | marka son. Er það fyrsta | barn þeirra hjóna, en bæði , eiga þau börn úr fyrri hjóna- J böndun-,. Rockefeller komi Iflugleiðis til New York frá | Kaliforniu á laugardagsmorg- ! , un til að vera hjá konu sinni, ’og kom skömmu áður en son- ) urinn fæddist. Ríkisstjórinn |hélt síðan aftur til Kali- iforniu á sunnudagskvöld til I 'að halda þar áfram baráttu ) sinni fyrir kjörmannakosn- (ingarnar á þriðjudag. Móður l og syni líður vel. Syninum 1 , var gefið nafnið Nelson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.