Morgunblaðið - 31.07.1964, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.07.1964, Blaðsíða 8
8 MORGU N BLAÐIÐ Föstudagur 31. júlí 1964 Baráttan gegn hungri og fávizku — Verðugt verkefni LÖNGUM hefur verið litið á stríð og erjur manna og þjóða á milli, sem grimmasta óvin mannkynsins. Vart verður um það deilt, en hins vegar á mannkynið sér annan óvæginn og öllu mannskæðari óvin, þar sem hungrið er og þær þján- ingar, veikindi og dauðsföll, sem af fæðuskorti leiða. Kann- sóknir sýna að á 7. tugi tuttugstu aldarinnar, öld aukinna tengsla og samhjálpar þjóða á milli, er þó eigi lengra komið en svo að 1.500 milljónir manna í hinum vanþróuðu lönd- um líða alvarlega af jafnvæigsleysi í fæðisneyzlu hvar af talið er að 500 milljónir þjáist átakanlega af hungur sökum. Af öllum þeim þjáningum, sem leiða af sulti og vannær- ingu, eru þó skelfilegastar afleiðingarnar, sem bitna á milljónum barna — saklausra barna — sem verða fórnar- dýr fátæktarinnar, og — í flestum tilefllum — fávizkunnar. í vissum hlutum heims deyr annað hvort barn, skömmu eftir fæðingu og af u.þ.b. 800 milljónum barna í vanþróuðu ríkjunum, þjáist meira en helmingur af skorti á eggjahvítu- efnum og öðrum mikilvægum næringarefnum. Milljónir barna bíða þess aldrei bætur, þótt þau kunni að lifa þjáningar sultarins af. Matvæla- og landbúnaðarstofnunin (FAO) og Barna- hjálparsjóður Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hafa unnið mikið starf á þessu sviði og orðið nokkurs ágengt. Starf þessara samtaka hefur m.a. verið fólgið í að fá ríki, sem vel eru á veg komin tæknilega, efnalega og menningarlega, að vinna að því að vekja athygli og skilning fólks á barátt- unni gegn sulti og hvetja til þátttöku í þeirri baráttu. í framhaldi af því getur það ekki talizt samræmanlegt stolti og oft stórhug okkar íslendinga að láta smæð okkar sé sam- anburð við stærri og voldugri þjóðir draga úr okkur kjark né hefta okkur í aðgerðum við að leggja hönd á plóginn til aðstoðar þeim, sem minna mega sín. Við Islendingar erum þess vel megnugir að senda hóp ungra, sérþjálfaðra manna til að taka þátt í því víðtæka og göfuga starfi að kenna og hjálpa vanmáttugum að hjálpa sér sjálfir. — !>ó svo að sú hjálp sé vanþróuðu ríkjunum hvað mikilvægust og undirstöðumest, gæti íslenzkur æsku- lýður að sama skapi áorkað miklu með víðtækum söfnun- um undir kjörorðinu „herferð gegn hungri“, því að hevr er svo innrættur að hann vilji ekki leggja hönd á plóginn þegar um er að tefla líf eða dauða lítilla, saklausra barna, þó af öðrum litarhætti séu og í fjarlægum löndum búi. Hér er um að ræða verðugt verkefni hinna skipulögðu æskulýðssamtaka í landinu, sem bundizt hafa böndum í heildarsamtökum sínum, Æskulýðssambandi fslands. Með þvi að eiga frumkvæðið á þessu sviði og með virkri þátttöku í þeirri samhjálp, sem stöðugt færist í aukana þjóða á milli getur íslenzk æska sýnt hvað í henni býr og án nokkurs vafa, mikils áorkað. i K. Kj. MEIRA en helmingur mann- Uynsins þjáist af skorti á mik- ilvægum næringarefnum o* um 500 milljónir líða af hung- ur sökum. Sl. 10 ár hefur bandaríska þjóðin gefið til hinna vanþróuðu þjóða meira en 120 milijón tonn af mat- vælum, svo og gífurlegt magn af lyfjum. Hugmynd hins fallna Banda ríkjaforseta, John F. Kennedy, um friðarsveitir er nú orðinn að veruleika. Þúsundir Banda ríkjamanna, sér í lagi ungt fólk, starfa nú meðal íbúa vanþróuðu ríkjanna miðlandi af sérþjálfun sinni og kunn- áttu undir kjörorðinu: „Hjálp- um þeim að hjálpa sér sjálf- ir“. Hugmynd Kennedy hefur víða haft áhrif og er vitaff að þegar hafa friðarsveitir verið stofnaðar eða hafizt handa um stofnun þeirra i Noregi, Bretlandi, Ástraliu, Japan, Þýzkalandi og Kan- ada. Myndirnar tvær sýna meff- Jimi friðarsveitanna að starfl og leik. ÍJ V W0Í mm- Hver vill ekki leggja hönd á plóginn til hjálpar þessum börnum?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.