Morgunblaðið - 26.11.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.11.1964, Blaðsíða 1
28 s'íSur Tvö barnanna, sem bjargað var úr klóm „þjóðfrelsishreyfingarin nar í Stanleyville“, við komuna til Brussel í gærmorgun. Þau heita James og Dominique Bo.sne. Einn fimm- buranna látinn Ottast um þrjá París, 25. nóv. (NTB) HINN yngsti frönsku fimm- buranna, sem fæddust á mánudag, Jean Luc, lézt seint í gærkvöldi segir í tilkynn- ingu frá sjúkrahúsinu þar sem börnin liggja í sérstök- um hita og súrefniskössum. Mjög er óttazt um líf þriggja barnanna til viðbótar, að því er segir í fregnum frá Paris. í tilkynningu, sem út var igefin af franska heilbrigðis- málaráðuneytinu \ síðdegis í dag, segir að barn nr. 4 í röð- inni, telpan Dominique, hafi í dag þjáðst af óreglulegum andardrætti. Monique, sem fæddist nr. 3, þjáist einnig af óreglulegum andardrætti. Að- eins eitt barnið, telpan Cathe- rine, sem fæddist fyrst, virðist vera í eðlilegu ástandi, sagði í hinni opinberu tilkynningu, en hin þrjú berjast við dauð- ann. Hroðalegar lýsingar gislanita frá Stanleyville: Fólkinu hótað dauða, barsmíð- um og jafnvel mannáti Konui og börn drepin miskunnarlaust — Carlson trúboðs- læknir beið bana er uppreisnarmenn skutu af handahófi Brussel, 25. nóv. — (NTB) — FYRSTA flugvélin frá Stan- leyville með 163 flóttamenn ínnanborðs kom hingað snemma í morgun. Á flugvell- inum tók á móti þeim fjöi- mennt starfslið Rauða Kross- íns, og auk þess Albert Belgíu prins og Paola prinsessa. — Oislarnir komu með Boeing 707 flugvél frá belgíska flug- félaginu Sabena. Baldvin kon ungur og Fabiola drottning komu heim rétt eftir að flóttamannaflugvélin lenti, en þau hættu heimsókn sinni í Iran vegna atburða síðustu daga. — Af fyrrgreindum 163 flóttamönnum voru 76 karl- menn, 49 konur og 38 börn, þar af nokkrir hvítvoðungar. Starfsfólk Rauða Krossins, margt með tárin í augunum, hlúði að fólkinu með ullar- Rússar mótmæla að- gerðunum í Kongó — Segja mannúðina hafða að yfirvarpi til að klekkja á ,.ÞjóðfrelsishreYfingunni“ Moskvu, 25. nóv. — (AP) UTANRÍKISRÁÐUNEYTI Sovétríkjanna gerði í dag boð fyrir sendimenn Bandaríkj- anna, Bretlands og Belgíu, og var þeim lesin mótmælayfir- lýsing Sovétstjórnarinnar, þar sem segir að sending fallhlífa- hermanna til Stanleyville hafi verið „frekleg, vopnuð íhlutun í innanríkismál Kongó“. 1 yfirlýsingu sinni hafnar Sovétstjórnin þeirri skýringu Vesturveldanna að fallhlífarmennirnir hafi verið sendir til Stanleyville til að bjarga hvítum gislum úr höndum uppreisnarmanna. Yfirlýsing Sovétríkjanna seg- ir að þetta hafi verið haft að yfirskini „til þess að brjóta á bak aftur þjóðfrelsishreyf- inguna“ í Stanleyville. '5'camhald á bls. 2 teppum. Fólkið hafði engan farangur meðferðis, og fyrir marga voru börnin það eina, sem þeir áttu eftir í þessum heimi. Hver hafði sína sögu að segja um það, sem gerzt hafði, um dauða, barsmíðar, og jafnvel hótanir um mannát. Margir töl- uðu hlýlega um hugrekki banda- ríska trúboðslæknisins Paul Carlsons. Hann var dæmdur til dauða, en hugsaði ekki um sjálfan sig, heldur var ætíð reiðubúinn að hjálpa þeim, sem þurftu á aðstoð að halda. Fólk- ið sagði frá því, hvernig Carl- son var drepinn, er uppreisnar- menn í Stanleyville skutu á hóp gisla er þeir urðu varir belgísku fallhlífarhermannanna. MORÐ Á MORÐ OFAN Paola prinsessa, eiginkona Alberts ríkiserfingja, huggaði kvenfólkið, sem kom með flug- vélinni, en brast síðan sjálf í grát. Baldvin konungur og drottning hans komu hinsvegar aðeins of seint til að geta verið viðstödd komu gislanna, sem langflestir eru belgískir. Hin 14 ára gamla telpa Chantal Brinkmann er ein þeirra, sem um sárt eiga að binda. Hún missti bróður sinn og 10 ára gamla systur sína, Soniu. Þau voru bæði sklotin til bana af uppreisnarmönnum. Faðir hennar, sem er belgískur, særðist á höfði og liggur nú í sjúkrahúsi í Leopoldville. Ástand hans er talið alvarlegt. Chantal var leidd úr véiinni af franska prófessornum Réne Marcott og 15 ára dóttur hans, Christiane. Prófessorinn og dóttir hans báru sig vel, and- stætt við flesta hina flótta- mennina. Utanríkisráðherra Belgíu Paul Henry Spaak sagði í dag, að þeir síðustu gislanna, sem voru í Stanleyville, séu nú farnir það- an. Búizt er við að tvær flugvél- ar til viðbótar muni koma með flóttamenn til Brússel á morgun, fimmtudag. MARTRÖÐ — HÓTANIR l'.M MANNÁT Einn gislanna, hinn 27 ára gamli verkfræðingur Max Debuisson, sagði að dvölin í Stanleyville hefði verið sann- kölluð martröð. Hann kvaðst aldrei mundu fara aftur til Kongó. Aðrir flóttamenn sögð- ust hinsvegar mundu fara þang- að aftur þegar þeir hefðu hvílt sig, þar sem lifibrauð þeirra væri þar. Debuisson sagði að uppreisn- armenn hefðu margoft hótað þá þrjá mánuði, sem þeir höfðu fjölskylduna í haldi að drepa hann og fjölskyldu hans. Hann sagði að síðustu þrír dagarnir hefðu verið verstir. Ung kona féll í öngvit í sama mund og hún steig út úr flug- vélinni í morgun. Þeir, sem kunnugir voru henni meðal flóttamannanna sögðu að upp- reisnarmenn hefðu drepið eigin- mann hennar og þrjú börn á meðan á björgunaraðgerðum stóð í Stanleyville. Náföl 12 ára telpa var borin Framh. á bls. 27 Skothríð heyrist enn í Stanleyville Kommúnistar og ýmis Afríku- og Asíuríki mótmæla aðgerðum þar Leopoldville og Washington, 25. nóv. — NTB — AP. SKOTHRÍÐ heyrðist af og til í Stanleyville í dag, bæði í borg- inni sjálfri og í nágrenni flug- vallarins. Lítur út fyrir að stjórn arherinn muni þurfa 2—3 daga til þess að brjóta alla andspyrnu á bak aftur. í dag skutu upp- reisnarmenn á fjórar bandarísk- ar flugvélar, sem fluttu gisla frá Stanleyville, en alvarlegar skemmdir urðu ekki á vélunum og enginn meiddist. í kvöld höfðu um 1000 flótta- menn verið fluttir til Leopold- ville en enn átti eftir að flytja um 400 manns þangað. Ekki eru allir hvítir menn á Stanleyville svæðinu fundnir. Meðal þeirra, sem týndir eru, er Adolf Martin Bormann, sonur Martins Bor- manns, hins illræmda stríðs- glæpamanns og eins heizta að- stoðarmanns Hitlers. Bormann yngri er kaþólskur prestur, og fór til Kongó 1061 „til þess að bæta fyrir syndir föður míns“ eins og hann orðaði það. Framh. á bls. 27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.