Morgunblaðið - 13.12.1964, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.12.1964, Blaðsíða 18
18 MORCU N BLAÐIÐ Sunmpdagur 13 »1es. 1&64 Þórður Þórbarson, fyrrv. símstöðvarstjári, Súgandafirði HINN 23. nóvember s.l. andaðist að heimili sínu, Suðureyri í Súg- andafirði, í>órður Þórðarson, fyrr um símstöðvarstjóri og hrepp- stjóri, 89 ára að aldri. Með hon- um er hniginn í valinn einn af elztu borgurum byggðarlagsins og sá þeirra, sem einna drýgst- an þátt átti í menningarlegri mót un hinnar ört vaxandi byggðar á Suðureyri fyrstu tugi þessarar aldar. Þórður fæddist í Vatnadal í Súgandafirði 8. nóvember 1875, sonur hjónanna Helgu Sigurðar- dóttur og Þórðar Þórðarsonar, er þar bjuggu. Þórður fór ungur til Helga Andréssonar, skipstjóra í Önund arfirði, og lærði hjá honum sjó- mannafræði, en Heigi var einn af hinum fyrstu skipstjómar- lærðu mönnum á Vestfjörðum og kenndi mörgum sjómannafræði. — Hóf Þórður fyrst sjómennsku 14 ára að aldri og lagði þá í há- karialegu á þilskipi. Var hann upp frá því sjómaður milli 30 og 40 ár, þar af formaður yfir 25 ár. Gerðist hann ungur skipstjóri á þilskipinu Gunnari. sem var í flota Ásgeirsverzlunar á ísa- firði. Vegar vélbátaútgerð hófst á Vestfjörðum, iét Þórður smíða vélbát, er hann nefndi Frey, og stjómaði jafnan síðan, þar til ‘hann lét af sjómennsku árið 1925. Jafiiframt sjósókninni frá Suðureyri, hafði Þórður á hendi margskonar ábyrgðarstörf. Hann var hreppstjóri Suðureyrar- hrepps um 20 ár, rak bókaverzl- un, var einn af stofnendum Spari sjóðs Súgfirðinga og lengi í stjóm hans, og slmstöðvarstjóri var hann nálega 30 ár. Þórður kvæntist 20. sept. 1897, Sigríði Einarsdóttur, bónda Jóns sonar í Skálavík í N ísafjarðar- sýslu, og Kristínar Þorkelsdóttur konu hans. Sigriður er enn á lífi og höfðu iþau Þórður á þessu hausti verið ©7 ár í hjónabandi. Sigríður hefur verið mikil ágæt- is kona, hjarfagóð, hjálpfús og gjafmild. Var beimili þeirra Þórðar og Sigriðar á Suðureyri, mikill vettvangur gestrisninnar. Þar stóðu opnar dyr fyrir gest og gangandi, hvaðan sem að bar. Virtist það vera mikil lifsnautn Sigríðar að iáta sem fiesta njóta greiðasemi sinnar og hjálpsemi. — Þau eignuðust 7 börn og kom- ust 6 þeirra til fullorðins ára. Af þeim em nú 3 á lífi: Ágústa, gift Gísla Maríassýni, véistjóra í Súg andafirði; Helga, gift Kristjáni B. Eiríkssyni, trésmið, nú búsett í Reykjavík, og óskar, húsgagna- smiður í Reykjavík, kvæntur Laufeyju Guðmundsdóttur. Lát- in eru: Þórður, er var elztur barnanna, lézt tæplega tvítugur úr spönsku veikinni 1918; Einir, verkamaður á Suðureyri, er var kvæntur Kristínu Jespersdóttur, og Asta, símamær, er var ógift. Þórður var gagnmerkur maður, greindur og hagsýnn, félagslega þenkjandi og góðviljaður. Hann var ekki hávær í dagfari, en hverjum manni glaðari við störf, hógvær og háttprúður, bjargfast ur unnandi átthaga sinna og hér aðs. Hann var trúmaður í kristn um sið í góðri merkingu þess orðs, arftaki gamalla siða, en leitandi á andiegum sviðum og hneigðist snemma að kenningum spiritista. Haraldur Nielsson var hans ástfólgni predikari. Ræðu- safn Haraids prófessors, Árin og eilifðin, var að vissu leyti hans veganesti um langt skeið. Þórð- ur sást oft með þessa bók undir hendinni á götum úti. Var hann þáá leið með hana til kunningja sinna, til þess að lána hana til lestrar. Þannig var hann, svo vitt sem 'það náði, boðberi þeirrar stefnu, sem hann aðhylltist. En þess má gjarnan geta hér, að kostnaðarmaður þessarar bókar til útgáfu, var nágranni Þórðar, Pétur Oddsson kaupmaður í Bol- ungarvík. Só, sem þetta ritar, var sína fyrstu vertíð háseti Þórðar á vél- bátnum Frey, og minnist þeirra daga með virðingu og þökk til Þórðar fyrir menningarlega sam- veru. Það var um páskaleytið, að við fórum í fyrsta róðurinn á þeirra vertíð. Hafís var fyrir iandi, ísrek á miðunum og jaka- hröngl á stangli inni á fjörðum. Norðaustan slampandi hafði ver ið þá um nóttina, en með morgn ínum deifðist golan. Hásetar höfð- ust við á framþiljum og skyggnd ust um eftir jökum, en við stýrið sat miðaldra maður, dökkur á hár og skegg, hýreygur og reykti pípu og söng. Milli vélaskellanna mátti greina orð og hendingar, því að söngmaðurinn var í dill- andi skapi, þótt hann yrði að renna vökulum augum að hætt- unni og sveigja í króka og beygj ur innan um ísinn. Það var kol- beinslag eftir Stephan G. Step- hansson. sem hann söng, og var þar í flokknum, er kölski og Kol beinn kveðast á: Ef er gálaust af að má eins manns blóð úr lífsins sjóð, hvað mun þá að hyggja á heillar þjóðar erfiljóð. Við vorum á lóðaveiðum þetta vor, en um sumarið á handfæra- veiðum. Þórður var jafnan glað ur og reifur — og lesandi, þegar færi gafst. Hann hafði með sér bækur, geymdi þær undir olíu- stakknum á bekk í lúkarnum og leitaði til þeirra, þegar færi gafst, einkum ef við lágum í vari og gátum ekki aðhafzt við veið- arnar. Og meðan við dorguðum eða drógum þann gula var talað um bækur og skáldskap, sögu- persónur ræddar, ljóð kveðin og þulin. Guðmundur Friðjónsson, Stephan G. Stephansson, Einar H. Kvaran, Sigurður Breiðfjörð, Bólu-Hjálmar og Haraldur Niels son voru Þórðar menn. Þetta lýsti Þórði vel. Hann var vaxinn af kyngóðum stofni og þjóð- rækni í blóð borin. Það var því harla gott fyrir ungling, sem var opinn fyrir þessum hlutum, að vera samvistum við hann. Þórður hafði ríkan áhuga fyrir þjóðmálum. Það var einhverju sinni í þingbyrjun, að hann stofn aði félag með nokkrum mönnum í plássinu, þeim, sem vildu fylgj ast með landsmálum og gjörðum Alþingis. Þórður skrifaði svo fregnir þser, er hann fékk sím- leiðis, í nokkrum eintökum, er félagsmenn fengu. Sagði þar fyrst frá kosningum forseta, nefndaskipunum og síðan frá mál unum, eftir því, sem þau komu fram. Þess má og gjaman minnast, að það var Þórður í sinni hrepp- stjóratið, sem leysti skáldið á Þröm, — Magnús Hj. Magnús- son, — úr útlegðinni. Magnús hafði frá unga aldri verið mik- ill hrakningamaður, hafði sökum sjúkleika og slysa orðið að þiggja af sveit, en gat ekki goldið sveit arskuldina. Þegar hann festi sér konu, fékk hann ekki að kvænast henni, sökum þess að hann var með sveitaskuldina á baki, og þar eð hann var ekki kvæntur, fékk hann ekki neins staðar jarð næði eða sveitfesti. Þannig hrakt ist hann með fjölskyldu sína úr einum stað í annan og fékk Otto Andersen: Studier í Musik och Follklore. Svenska Litlera tursallesikapet í Finitand. Abo 1964. Tuttuigasta og sjöunda apríil í vor á'tti Ottó Andersom áttiatíu og fimm ára afmæili. Á þeim degi færðu vinir hianis honium, forskeren, spelmannen, vánnen, þessa miklu bók í heiðursskyni. Meðal heiðrenda voru Sænsika bókmenmt atfélagið í Fín,nl andi, félagið Brage og úrklippuverk þess , Ka'lievalafétlagið og fjöldi söngfélaiga í Finmlandi. Auk þeiss miargir einsaklingar á Norð urlöndum og jafnvel ísilandi. Það sem vinir hans færðu hornum á þessu merkisafimæli hians var úrval af hans eigin gneina og ýtarleig skrá yfir ritstörf hans. Kemiur þar í ijós, að hann hefur skrifað tuttugu bækur og yfir 580 greinar. Kann virðist haif.a verið ámóta afkastamikill og Vilhjálmur Stefá.nsson. Af bók- um hans má nefna: Bogahörp- uma kiapituia úr sögu hiljóðfær- anna (1923), Sænsikan þjóðkveð- skap Finnlands V, Fóilkvisur 1, Eldri fólkivisur 2., Músík og 'hOjóð færi. Nordisk kultur XXV (1935) Sænskum þjóðkveðskap Finn- landfi VI, þjóðda.ns, Instrumiental músiík (1956), Sænskum þjóð- kveðskap Finniands IV, þjóð- dans. Brullaupsslætti. Frú Alfhild Torslin, sem safn að hefur efni í bókaskrána, seg- ir írá þvi, að frá þvi að Otto Andersison, fimim.tán ára, sendi fyrsta bréfið frá Vardö til bliaðis- ins Áland (1895), hafi pemni höf- undar ekki hætt að skrifia. Segir frúin, að ekki sé ávaflt auðvelt að fylgjia einkum mafnlausum greinum, er hann skrifaði fýrir og um aldamótin úr byggðunum, þar sem hann var að safna þjóð- lögum, standa fyrir þjóðlegum söngmótum og að stofna þjóð- þrifafélagið Brage. Það var stofnað með það fyrir augum að safna cUurn fróðleik sem hægt var um Svía í Finnlamdi, Þetta var um svipað leyti og Ólafur Daviðsson og Bjami Þor- hvergi heimilisfesti nema skamma stund í senn. Þannig fluttist hann 14 sinnum á nokkr- um árum milli héraða. Þegar verst stóð á fyrir Magnúsi, sótti hann um til Þórðar hreppstjóra að mega setjast að í Súganda- firði. Þórður sendi honum þegar játandi svar og breyttist eftir það allt til betri vegar. Þórður braut þannig hina gömlu og rangsnúnu hefð, en sú ráðabreytni mun ekki hafa orðið neinum til meins. — Þetta einarðlega drengskapar- bragð Þórðar hafði síðan víðtæk áhrif til hins betra. Þessa manns mun minnst með virðingu samferðamanna. G.M.M. I steinsson voru að Ijúka við að i siafna oig gefa út hin ómetan- legu ísfeinzku söfn sín. Engin slík söfn voru til í Finnilaimdi er Otto hóf sma star9emi, að safna sænsk um þjóðlö'gum. En hann lét sér ekki nægja það, heldur vildi hann safna öllu um sænska þjóð arbrotið í Finnlandi. Og hvernig var það hægt. Með þvi að gera úrklippur úr öi J um sætnskum blöðum og raða safninu eftir efni. Til þess þurfti hann að fá öll sænsk blöð í Finmlandi í tveim eintökum. Það var féJag- ið Brage sem tók að sér að gera þetta af sænsk-finnlenzkri ætt- jarðarást. Úrklippusiafnið var j hafið skömmu eftir aldaimót, i því var ekki hægt að leita í því j að elztu greinum Anderssons. 1 Ekki var heldur hægt að finna j það seim hann skrifaði nafniaust í Finsk musikrevy. Tidning för musik, Hembygden 1910-1911 og Brages árskrift I-XX, því að hiann var meðútgefandi þessara tímarita. En ef Otto Andersson vildi skrifa grein um Sibaius, og í þessu afmælisriti hans eru þrjár greinar um Sibelius, þá þurfti hann ekki eins og Kristján Albertsson að lesa öll blöð urm Hannes, heldur fletta aðeins upp í úrklippuisafniniu. Með úrklippu- safni þessu skapaði Otto Anders son sér og öllum sænskum fræði mönnum Finnlands sönn.u skil- yrði og Vilhjálmur Stefánsson, hinn mikii fyrirlesari vestan hafs skóp sér með spjaildskrá bókasafns síns. Ég m.un oftar en einu sinni hafa bent íslending- um á, hvílíkur búhnykkuir þarna væri að því að eigia úr- klippucafn á borð við Brage-safn ið, eða að minnsta kosti spjald- skrá aílra þeirna 'hluta er í blöð um birtast. Ekki veit ég til að riokkurt isJenzkt blað eigi spjald sikrá yfir efrii sitrt, nerna kannski Lesbók Morgunblaðisins. Hinsveg ar veit ég að ýmisl.egt úr efni blaða er skráð í spjaildiskrár Landsbókasaifnisins. Þegar ég var að safna efnd í bókrmennta- sögu mdna, einkum á síðari öld varð ekki gert nema mieð því að gera sér fulilikomna skrá yfir greinar í tímaritum og eins mik- ið og ég gat skrifað upp um skáld, rithöfunda, leiki og leik- list úr blöðum. Tímaritaskrá mín er á spjald- skrá á að gizika um 10,800 miðar. Útdræfti rnína úr blöðurn, á stærri blöðum, marger tiilvitn- anir á hverju baði, þarf að skrifia hverja tilvitnun á miða jafnstóra tímaritamiðunum og raða síðan hverjum (höfund í sína skrá. Ætti þarna að vena allt sem Einar H. Kvaran hefur skrifað um sina dagia eða Indr- iði Eiinarsson og ekki mjöig erf- itt vemk fyrir ættingja að skrifa upp þessar skrár, sem líkjast Þarna brosir Ringo Starr, trommuleikarinn Bítlanna brezku við einu konunni sem hann hefur látið sér verulega títt um til þessa, móður sinni, frú Elsie Starkey, sem kom að heimsækja son sinn á sjúkrahúsið um daginn. Aðdáendur Bítlanna þurfa engu að kvíða um sjúkrahúss- vist Ringos, þvi tilefnið var ekki annað en það, að hann þurfti að láta taka úr sér háls- kirtlana, og er nú sagður á góðum batavegi. ' skrám þeim, er ég roeð ættinigj- j unum hef gert um Guðmund Friðjónsson og Jón Trausta. Um Halldór Kiljan og Þórberg hafði ; ég auðvitað eins góðar skrár og ég giat gert, nema hvað ég gaíot upp við að lesa Þjóðviljann eft- ir að hætt var að binda hann. Þetta safn er auðvitað alls ekki eins gotit og úrklipp'usafn Otto Anderssons. Þó gæti prent pappírinn í því verið farinn að líta upp á landið eins og nokkrar úrk ippur í minu safni hafia gert. En eftir þeniman útúrdúr um Bragie og æskiieg söfn á íslandi er bezt að venda sinu kvæði í krosis og skrá greinar afimæ’lis- bókarinmar. Fyrst er „Sagia hljóð færa sem vísindi", „Orgeil og organistar í Ábo dómkirkju til loka 17. aldar“, „Jóhannes Sai menius og músik í Abo d n- kirkjuskólia á 17. öld“. „Bern- hard Henrik Cruseil". „Sibelius och Kajanus“, „Jean Sibelius och den Svenska Theatern“, pá Sibelius 90 ársdiag, „Kring Sibe lius fjárde Symfone" „Om musik hörandet (u.m að heyna miúsik)“, „Músik í Ábo við upphaf 19. ald ar“, „Finlands svensk Musikodl- , ing“. Þá er annar partur bókar með rrtgerðum Otto Aniders'nns: „Vástsibirisk rimgsámg ooh nord- j isk ringdans“, „Upprepning och | paraJIelism", „Upprepningsstrof. en“, „Sjöng Varjagerna svensika fo!kvisor“ „Framsades ellers s ön gos de jslanska rimoma?" „Nágna sárdnag í rimiaimelodi- ema“, „Bröllopsmiusik pá sack- pipa“, „Du gamla du fria“ „I Fin land“, „Adolf Ivar Arvidsgon och de Svenska foiiksSnger“, „KaJe- vaúia meter Fljrnyrdeslaig", „Fram förandet av Kailevalairunoima“. 1 mæstsnðuistu ritgerð er það í fyrsta sinn sýnt og séð að Fimn- ar muni hafa haft háttinn fná norrænu.m mönnium. Greinannar um end.urtekningamar eru stór- merkiJegar. Stefán Einarsson. ’ Málflutningsskrifstofa Sveinbjörn Dagfinss. hri. og Einar Viðar, ndi. Hafnarstræti 11 — Simi 19406 BIRGIR ISL GUNNARSSOJV Málflutningsskrifstofa Lækjargötu 6 B. — II. hæð GUSTAF A. SVEINSSON hæstaréttarlögmaður Þórshamri við Templaraaund Simi 1-11-71

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.