Morgunblaðið - 19.02.1965, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.02.1965, Blaðsíða 28
B KELVINATOR KÆLISKAPAR Júkls. LAUGAVEGI / Flugvél frá Vestan- flugi stakkst á nefið eítir lendingu á ReYkjavíkurflugvelli I GÆR, þegar flugvél Vestanflugs, tveggja hreyfla Piper Apache vél, var að lenda á Reykjavíkurflugvelli, fór nefhjól flugvélar- innar upp eftir lendinguna nieff þeim afleiðingum að flugvélin stakkst á nefið. Fjórir farþegar voru í flugvélinni og sakaði þá ekki né heldur flugmann. Flugvél Vestanflugs, sem stakkst á nefið eftir lendingu á Reykjavíkurflugvelli. Eldey dæmd 1,2 millj. kr. björgunarlaun frá Kötlu DÓMUR gekk í fyrrakvöld í máli vb. Eldeyjar frá Vestmanna eyjum á hendur Eimskipafélagi Reykjavíkur og Almennum trygg ingum vegna björgunar á Ms. Kötlu í Keflavíkurhöfn hinn 31. jan. 1964. Sjódómur í Keflavík Ikomst að þeirri niðurstöðu, að um björgun hefði verið að ræða og dæmdi Eldey og skipsmönn- um björgunarlaun ag áætlað aflatjón að upphæð 1.200.000,00 kr. Kröfur Eldeyjar voru samtals 10. 626.000,00 kr. Tildrög málsins eru þau, að Ms. Katla var að leggja frá bryggju í Keflavík, er vél skips- ins stöðvaðist og það rak upp að kiettum undan vindi. Eldey var með vél í gangi við bryggju í höfnínni og hélt þegar til að- stoðar Kötlu. Er dráttartaug hafði verið komið milli skip- anna tókst Eldey að draga Kötlu affcur á bak úr fjörunni og snúa skipinu við. Fór vél Kötlu nú í gang og skipið var þar með úr hættu. Um Eldey er það hinsvegar að segja, að dráttartaugin flæktist í skrúfu bátsins, svo að hann gat ekki athafnað sig og rak í átt- ina til lands. Vb. Vilborg kom þá á vettvang og dró Eldey að bryggju. Tveir stefna Eigendur og skipsmenn Eld- eyjar VE 37 kröfðust nú bæði björgunarlauna og bóta fyrir aflatjón, en bátinn hafði þurft að setja í dráttarbraut til við- gerðar. Þá var einnig lögð fram meðalgöngustefna frá vb. Vil- borgu á hendur Kötlu og Eld- eyjar vegna aðstoðar hennar, að upphæð 1 millj. kr. Sjódómur úrskurðaði sem fyrr er sagt, að hér væri um björgun að ræða og dæmdi stefndu til að greiða Eldey 875 þús. kr. í björg- unarlaun og 325 þús. vegna afla tjóns, auk 7% ársvaxta frá 31. jan. 1964 og 110 þús. kr. í máls- kostnað, Einnig var stefnanda til- dæmdur_ sjóveðréttur í Ms. Kötlu. í meðalgöngusök voru stefndu hins vegar sýknaðir og málskostnaður látinn niður falla. Alfreð Gíslason, bæjarfógeti í Keflavík, kvað upp dóminn, en meðdómendur hans voru Árni Þorsteinsson 9kipstjóri og Hösk- uldur Þórðarson, vélstjóri, Páll S. Pálsson flutti mál Eldeyjar- manna, Einar B. Guðmundsson mál Eimskipafélags Reykjavíkur og Almennra trygginga og Þor- valdur Þórarinsson meðalgöngu- stefnanda, Vilborgar. Framhald á bls. 27. Netjaveiöar að hef jast BÁTAR á Suðvesturlandi eru nú í þann mund að hefja veiðar fyrir alvöru. Hingað til hafa ver- ið stundaðar línuveiðar frá flest- um verstöðvum, en nú fara »eta- veiðar að hefjast og eru menn víðast hvar að undirbúa þær. Reytingsafli hefur verið á flest- um bátum, en enginn hefur feng- ið mikinn afla. Kenna menn það loðnu, sem gengur nú á fiski- miðin. Veðrátta hefur verið mjög misjöfn að undanförnu og bátar víða legið inni af þeim sökum. Flugvélin kom frá ísafirði og lenti á suður-norður brautinni á Reykjavíkurflugvelli laust fyrir kl. 2. Á brautinni fór nefhjólið upp, hefur ekki farið í lás, eins og það á að gera af sjálfsdáðum eftir að þvi hefur verið hleypt niður. Stakkst flugvélin þá, og skrúfurnar skullu í jörðu, og skemmdust, en aðrar skemmdir munu vera litlar á flugvélinni. Fjarlægja þurfti flugvélina af brautinni fljótlega, því flugvél Flugfélags íslands, sem var að fara til Danmerkur með fulltrúa af Norðurlandaþingi, beið. Þegar gengið var á litlu vélina til að ýta henni út af brautinni, fór annað hjólið upp. Sjómaður týnd- ist í Cuxhaven UNGUR sjómaðúr hvarf af tog- aranum Skúla Magnússyni, er hann var í söluferð í Cuxhaven í Þýzkalandi á fimmtudaginn í síðustu viku og hefur ekkert til hans spurzt þrátt fyrir leit lög- reglunnar á staðnum í viku. Pilturinn er um tvítugt, Jón Pétursson að nafni og frá Hólma vík. Hann kom ekki til skips á fimmtudaginn, er togarinn skyldi sigla heim. Var beðið eftir hon- um á áðra klukkustund. En síðan var hvarf mannsins tilkynnt umibdðsmanni skipsins og ræðismanni íslands í Cuxhav- en. Gerði 'hann lögreglunni að- vart og hefur verið leitað síðan, án árangurs. Sjópróf fara fram í dag. Kópavogur SPILAKVÖLD Sjálfstæðisfélag- anna í Kópavogi verður í kvöld kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu. Mbl. spurðist fyrir um orsakir þessa hjá loftferðaeftirlitinu. Sig- urður Jónsson sagði, að þegar þeir komu á vettvang hafi fram- hjólið virzt bögglað undir vélinni og sést að skrúfur námu við jörðu. Af hverju þetta gerðist sé ekki vitað, en hjólaútbúnaðurinn verði rannsakaður. Telpa slasast alvarlega í Keflavík KEFLAVÍK, 18. febrúar. — í dag kl. 4 varð alvarlegt slys hér í Keflavík. Stór, fullhlaðmn vörubíll ók eftir götunni fyrir framan húsið Lyngholt 9. Lítil telpa, Ása Ingþórsdóttir, 6 ára gömul, varð fyrir bílnum og meiddist alvarlega. Var telpan flutt á sjúkrahúsið og voru læknar þar yfir henni fram á kvöldið. Telpan mun ekki hafa lent undir bílnum heldur slegist á einhvern hátt utan i hann án þess að bílstjórinn yrði þess var. En komið hefur fram að hann ók mjög hægt, enda fullhlaðinn 8 tonna bíll. — hsj. Háskólafyrir- lestur U tanríkisstef na Bandaríkjanna PRÓFESSOR Charles O. Lerche frá American University í Was- hington í Bandaríkjunum flytur almennan fyrirlestur í Háskóla íslands föstudaginn 19. þ.m. kl. 5 e.h. Fyrirlesturinn nefnir próf- essorinn: Utanríkisstefna Banda ríkjanna. Öllum er heimill aðgangur. Stærri og dýrari bátar fái meira í sinn hlut af aflanum Framkvæmdir verður að byggja á rann- sóknum á skólaþörf Umræður um menntaskóla í borgarstjóm Greinargerð fró Landssambandi ísL útvegsmanna Nokkrar deilur urðu um mál- efni menntaskóla í Reykjavík á borgarstjornarfundi í gærkvöldi. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks ins töldu tvo menntaskóla í Reykjavík alls ekki fullnægjandi, en borgarfulltrúar Framsóknar- flokksins lögðu hart að fuiltrú- nm að samþykkja áskorun um samþykkt frumvarps á Alþingi, sem felur í sér lögbindingu á tveimur menntaskólum í Reykja- vík, ásamt heimild til stofnunar tveggja menntaskóla úti á landi. Þórir Kr. Þórðarson og Auður Auðuns sýndu fram á það, að bygging eins menntaskóla til við- bótar í Reykjavík mun aðeins fullnægja þeirri þörf, sem þegar sé fyrir hendi og varla það. Sé þá ekki séð fyrir framtíðinni, sem krefjist stóraukins rúms fyr ir menntaskólanemendur. Nýr skóli muni rétt geta rúmað þá offjölgun nemenda, sem þegar er í gamla skóianum við Lækj- argötu. Framhald á bls. 27. BLAÐINU hefur borizt greinar- gerð frá Landssambandi ís- lenzkm útvegsmanna um nýaf- staðið verkfall bátasjómanna í verstöðvum við Faxaflóa og Breiðafjörð. í greinargerð LÍÚ um kjaradeiluna er því m.a. haldið fram, að hin stóru og full komnu fiskiskip, sem komið hafa til landsins á undanförnum árum, hafi fært sjómönnum meiri kjara bætur t n nokkur önnur stétt þjóð félagsins hafi fengið í sinn hlut. Þá er og á það bent, að hin nýja veiðitækni hafi haft í för með sér stóraukinn útgerðarkostnað, og því sé eðlilegt að aðrar reglur gildi um hlutaskipti en áður var. Greinargerð LÍU hljóðar svo: „Að loknu sjómannaverkfalli, sem staðið hefur í 34 daga, þykir Landssambandi ísl. útvegsmanna rétt að skýra nokkuð frá efni iþessarar deilu, ekki hvað sízt vegna ámæla, sem útvegsmenn hafa orðið fyrir, þar sem þeir hafa verið ásakaðir fyrir að hafa ekki reynt til hins ítrasta að leysa deiluna, áður en til verk- falls kæmi. Útvegsmenn töldu hins vegar ekki rétt að ræða efnislega um deiluna á meðan samningar stóðu yfir. Samkvæmt þeim samningum, sem áður giltu, þurfti sá aðili, sem vildi segja samningunum upp, að gera það fyrir 1. nóvem- ber, miðað við að samningamir væru úr gildi á áramótum. Að öðrum kosti framlengdust þeir um eitt ár. Þann 24. október áttu fulltrúar sjómanna og útvegsmanna við- ræðufund, að beiðni sjómanna- fulltrúanna, um breytingar á eldri samningum án uppsagnar. Kröfur sjómanna á þessum fundi voru innan iþeirra takmarka, sem útvegsmenn töldu sér fært að ræða, og virtust þá horfur á sam komulagi ekki slæmar. Buðu þá útvegsmenn 5% hækkun á kaup- tryggingu og aðra kaupliði og orlof 7% í stað 6%, hvorttveggja í samræmi við júnísamkomulag- ið. Var nú áætlað að nota tím- ann til mánaðarmóta til þéss að ná samkomualgi, án þess að til upsagnar kæmi, en þá brá svo við, að fulltrúar sjómanna höfðu Framhald á bls. 10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.