Morgunblaðið - 01.06.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.06.1965, Blaðsíða 1
S-Vieloam : Miklir bardagar um helgina Framsokn Viet Cong hrundið en mannfall mikið í liði beggja Saigon, 31. maí, NTB, AP. . MIKL.IR bardagar hafa geisað I norðurhéruðum S-Vietnam um helgina, einkum þó við bæinn Quang Ngai, sem er um 530 km, norðaustan við höfuðborgina. ! Veittí stjórnarhernum ver fram- ■ n af, eða allt til þess er handa- rískar orustuvélar komu á vett- vang í morgun og létu til skarar fikríða. Urðu þá skjót umskipti og *r siðast fréttist voru tvær til þrjár herdeildir norðan manna á undanhaldi norður á bóginn. Cunnanmenn segja yfir 300 fallna ■f andstæðingunum en segjast Rjálfir hafa misst a.m.k. 400 menn. Sunnanmenn segja að þeir hafi þarna ekki átt í höggi við skæruliða Viet Cong eina heldur hermenn úr liði N-Vietna,m og segjast hafa fyrir því órækar sannanir, er sendar hafi verið suð ur til Saigon til frekari rannsókn ar. Þá staðfestu sunnanmenn einn ig fyrri fréttir um að hermenn frá N-Vietnam hefðu áður verið teknir höndum í bardögum á svæðinu milli flugstöðvarinnar í Da Nang og borgarinnar Hué. Bandariskar orustuvélar flugu inn yfir N-Vietnam í dag og í gær og gerðu mikinn usla. í gær fóru þær norðar en nokkru sinni I tfyrr, eða allt að 72 km. sunnan Hanoi og réðust þar á vopnabúr eitt, en í dag var rá'ðist á annað vopnabúr nokkru sunnar og vestar og á brú eina 112 km. sunnan Hanoi, sem varð ekki eyðilögð. Vélarnar sem réðust á vopnabúrið í morgun sögðust hafa séð til ferða fjögurra flug- véla N-Vietnammanná af MIG- gerð og hefðu þær snúið norður hi'ð bráðasta og ekki lagt till orustu. Bandarísku flugvélarnar voru 24 talsins. Fréttastofa Nýja Kina segir eina bandardska orustuvél af gerð inni F-105-d. hafa verið skotna niður yfir N-Vietnam í morgun. Dean Rusk, utanrikismálaráð- herra Bandaríkjanna, ítrekaði í Framhald á bls. 27 1 Hvar er IVffao ? Þráláttir orðrómur um að Peking, 31. maL — AP-NTB — t UM helgina hefur verið uppi þrálátur orðrómur um, að Mao-Tse-tung, leið- togi kínverskra kommún- ista, sé veikur og það jafn- vel alvarlega. í gær neitaði talsmaður kínverska utan- ríkisráðuneytisins að svara nokkrum spurningum þar að lútandi, á þeirri for- sendu að þá væri sunnu- dagur — en í dag var sagt í ráðuneytinu, að orðrómur inn ætti ekki við nein rök að styðjast. Mao væri við ágæta heil.su. Ekki fékkst þó upplýst, hvar hann héldi sig, en hann hefur ekki sézt opinberlega frá hann sé því um miðjan apríl. Það var sl. laugardag, að brezka utanríkisráðuneytinu bárust óstaðfestar fregnir frá sendiráðsritaranum brezka i veikur Peking og sendiherra Bret- lands í Moskvu, um að Mao Tse-tung væri veikur, hefði e.t.v. fengið slag. Flaug þá þegar fiskisagan, því að áður höfðu borizt slíkar tilgátur frá Hong Kong, Formósu og víð- ar. í Peking þafa sendimenn ýmjssa þjóða staðfest, að Mao hafi ekki sézt opinberlega frá því um miðjan apríl sl. en enginn þeirra kvaðst vita til þess, að heilsu hans væri svo ábótavant. Lítið hefur verið um Mao talað í kínverskum blöðum að undanförnu, og nær ekkert frá því 20. maí sl., er hann var sagður hafa sent komm- únistaflokki Indónesíu heilla- skeyti vegna tíu ára afmælis hans, fyrr en í gær, að Mao og aðrir ráðamenn voru sagð- ir hafa sent kyeðjur til Mon- góla í tilefni þess, að fimmtán Framhald á hls. 27 Emil Jónsson, sjávarútvegsmála ráðherra, er nú sem kunnugt er í opinberri heimsókn í Sovétríkj unum. Mynd þessa tók ljósmynd- ari frá fréttastofu Tass, er Emil gekk á fund kollega síns, A.A. Ishkov, í Moskvu fyrir nokkrum dögum. FRAKKAR EKKI MEÐ í FALLEX Paris, 31. mai (NTB-AP) VARNARMÁLARÁÐHERRAR Atlantshafsbandalagsríkjanna komu saman til fundar í Paris í da,g og snerust viðræður þeirra einkum um það, hversu mæta skyldi hugsanlegri árás á V- Evrópu, hvort gripa ætti til kjarn orkuvopna þegar í stað eða beita öðrum vopnum í fyrstu lotu. Frakkar eru ákafir talsmenn kjarnorkuvopna-gagnárásar en Bandaríkin vilja fara hægar í sakimar og eru flest aðildarrík- in heldur á þeirra bandi. Fyrir fundinn var frá því skýrt að Frakkar hygðust sitja hjá við mikilvægustu heræfing- ar bandalagsins í ár„ „Fallex“- æfinguna, vegna þess að heræf- ingar þessar byggðu ekki á sömu forsendum og áður um allsherjar kjarnorkuárás til andsvara hverri þeirri árás sem gerð kynni að vera á V-Evrópuríki. Pierre Mes- mer, varnarmálaráðherra Frakka skýrði ekki nánar þá ákvörðun stjórnar sinnar að taka ekki þátt i heræfingunum, en talsmaður tfrönsku stjórnarinnar lét þess getið, að sk^anir Bandaríkja- manna og Frakka væru mjög ó- líkar á því, hversu myndi bezt að snúast við hugsarvlegri árás. Alexandre Sanguinetti, vara- formaður hermálanefndar franska þingsins, var opinskár við blaðamenn um ágreining Frakka og Bandaríkjamanna í málinu. Sagði Sanguinetti að varnarmála ráðherra Bandaríkjanna, Robert McNamara, væri þeirrar skoðun- ar, að ef til styrjaldar kæmi í Evrópu myndi þess skammt að bíða að hún breiddist út. Það væri því skiljanlegt að Banda- ríkjastjórn væri á báðum áttum um að nota allan sinn kjarnorku vopnaforða til varnar Evrópu ef hún ætti þá á hættu að New York yrði lögð í eyði, sagði Framhald á bls. 27 K y nþáttaóeirðir í IJSA Bogalusa, Lousiana, 31. maí. — NTB, AP — TIL kynþáttaóeirða kom á laug- erdag í Bogalusa, Lousiana og í Selma, Alabama, er blökkumenn mótmæltu misrétti á vinnumark- eðnum. 1 Bogalusa beitti lögregl- «n táragasi til að dreifa mann- tfjöldanum og tók höndum sjö hvíta menn og tíu blökkumenn. í Selma í Alabama voru teknir fcöndum alls 99, mjög margir kornungir. í dag voru aftur teknir hönd- «m 15 menn í Bogalusa, bæði hvitir, og blakkir, fyrir óspektir é almannafæri Höfðu blökku- menn farið um götur eins og á laugardag með spjöld sín og orð- ið fyrir aðkasti hvítra manna, en lögreglan skarst í leikinn. Peter Hallberg: Kenningar dr. Lönnroths um áhrif evrópskra miðaldabókmennta á ísl. fornbókmenntir ekki á rökum reistar ÉG tel, að kenningar dr. Lars Lönnroths um áhrif evrópskra miðaldabókmennta á íslenzkar fornbókmenntir séu ekki á rökum reistar, sagði Peter Hallberg í við- tali við Morgunblaðið í gær. Þau dæmi, sem dr. Lönnroth benti á máli sínu til stuðn- ings, mætti vel skýra á ann- an og nærtækari hátt. Eins og kunnugt er, varði Svíinn Lars Lonnroth doktors ritgerð við háskólann í.Stokk hólmi, fyrir skömmu, sem fjallaði um íslenzkar fornbóik menntir. Voru þar settar fram skoðanir, sem mjög stangast á við álit fræðirilanna al- mennt til þessa. í ritgerð sinni sem nefnist „European Sources oí Icelandic Saga writing“ þeirri skoðun fram, að í íslenzkum fornbókmennt un væri að finna miiklu djúp- tækari áhrif, en hingað til hef ur verið talið frá evrýpskum miðaldabókmenntun og þá einkum latneskum, en latína var þá ritmál víðast hvar í Evrópu. Þá hélt dr. Lönnrotih því enn fremur fram, að ýmsir þeir, sem til þessa hefðu verið taldir höfundar hinna ís- lenzku fornbókmennta svo sem Snorri Sturluson og Sturla Þórðarson, væru ekki hinir raunverulegu höfundar þeirra, heldur hefðu þeir látið aðra skrifa þessar bækur fyr ir sig og einungis sagt þeim fyrir um, hvað það væri, sem þeir vildu, að fært yrði í let- ur þ.e.a.s. þeir hefði verið eins konar ritstjórar við samn ingu ritanna, en ekki skrífað sjálfir. Þeir, sem væru hinir Dr. Lars Lönnroth raunverulegu höfundar forn- bókmennta íslendinga hefðu ur þ.e.a.s. þeir hefðu verið klausturmunkar eða prestar, því að það væru þeir, sem fært hefðu þær í letur. Framh. á bls. 27.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.