Morgunblaðið - 02.06.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.06.1965, Blaðsíða 1
Árangursríkur fundur landvarnaráðherra NATO-ríkja París, 1. júní (AP-NTB). 1 DAG lauk í París fundi land- varnaráðherra rikja Atlanzhafs- gandalagsins. í sameiginlegri yfir (ýsingu, sem gefin var út að fundinum loknum, sagði, að fund tirinn hefði verið hinn gagnleg- nsti og að samstaða rikti með V>andalagsrikjumim. Sérstaka at- hygli vöktu ummæli franska landvarnaráðherrans eftir fund- inn, þar sem hann sagði, að þetta hefði „alls ekki verið lélegur fundur". Á fundinum hir landvarna- ráðherra Bandaríkjanna, Mc- Namara fram þá tillögu, að þátt- tökuriki bandalagsins tækju þátt i sameiginlegum kjarnorkuvörn- um bnndalagsins, með þvi að valdir yrðu í nefnd, sem ákvörð- unarrétt hefði um kjarnorkuvopn bandalagsins, landvarnaráðherr- •r frá fjórum eða fimm banda- (agsrikjanna. McNamara skýrði frá því á fundinum, að Bandaríkin ynnu að því að tvöfalda kjarnorku- vopnabirgðir sínar í Vestur- Evrópu í því skyni að efla varn- armátt bandalagsins í löndum þess í Mið-Evrópu. Sagði ráð- herrann, að um þetta leyti raesta ár myndu birgðir Bandarikjanna af kjarnaoddum í Evrópu. vera tvisvar sinnum meiri, en þær voru 1961. McNamará skýrði frá þessu i því skyni að vísa á bug orðrómi, sem komizt hefur á kreik, um að Bandaríkin hygðust flytja kjarn- orkuvopn sín burt frá Evrópu. Sagði ráðherrann að þessi orð- rómur ætti við engin rök að styðjast. Tók hann það fram, að frá því í janúar sl. hefðu Banda- ríkin aukið kjarnorkuvopna- birgðir sinar í Evrópu um einn tíunda hluta. Bondorískir hermenn kvnddir frn Dóminíknnskn lýðveldinu Washington, 1. júní (AP). LYNDON B. Johnson, Banda- rikjaforseti, hélt fund með fréttamönnum í Hvíta húsinu í dag. ilkynnti hann þar aS ákveð- ið væri að kalla heim frá Dóm- inikanska lýðveldinu tvö þúsund hermenn úr landgönguliði flot- tns. Um síðustu helgi fóru 3.4Ó0 bandarískir hermenn frá Santo Domingo. Forsetinn sagði að enn væri hættuástand í Dóminikanska lýð- veldinu, en hinsvegar hefði dvöl hermanna frá Ameríkurikjunum dregið mjög úr starfsemi komm- únista þar. Og væru því yfir- menn erlendu hersveitanna sam- mála um að óhætt væri að fækka Hvítra gisla leitað i Kongo Leopoldville, Kongó, 1. júní (NTB) HEBSVEITIR Kongóstjórnar tóku í dag bæinn Buta norð- arlega í Kongó úr höndum uppreisnarmanna. Vonazt hafði verið til að í bæ þessum næði stjórnarherinn um eitt hundrað Evrópubúum, sem tal ið er að uppreisnarmenn hafi haldi. En í bænum fundust aðcins fimm hvítir menn. Fyrr í dag bárust fréttir um að ein hersveit stjórnarinnar hefði fundið lík 10 hvítra manna skammt frá Buta og hjá þeim átta særða hvíta menn. Höfðu hinir látnu ver- ð stungnir til bana með spjót um. Dokasóknin til Buta var gerð frá tveimur hliðum, oig ^tjórnuðu hvítir málaliðar sókninni. Áður höfðu þeir skorað á uppreisnarmenn að Igefast upp, en þeirri áskorun var ekki sinnt. Lítið hefur bor zt af fregnum frá bardögun- ® Framlhal d á bi s. 27 í bandarísku sveitunum. Eftir þessa brottflutninga eru enn um 16 þúsund bandarískir hermenn í höfuðborginni Santo Domingo. Á fundinum skýrið forsetinn einnig frá því að hann hyggðist fara til San Francisco og sitja þar hátíðafund Sameinuðu þjóð- anna 24., 25. og 26. júní nk., en þá eru tuttugu ár liðin frá því samtökin voru stofnuð þar í borg. Mun Johnson ávarpa þing- ið. t •f 'a y ' '• ' ' V X' 0 &' : dttazt að á þriðja hundrað manns hafi farizt Gassprenging í kolanámu i Japan Tókíó, 1. júní (AP-NTB) GASSPRENGING varð í dag í Yamano-kolanámunni í Suð- ur-Japan, og er óttazt að rúm- lega tvö hundruð námumenn hafi beðið bana. í kvöld höfðu fundizt 160 lík, en nærri 100 manna er enn saknað. 552 námumenn voru að störfum niðri í námunni þeg- ar sprengingin varð klukkan 12.40 eftir staðartíma (kl. 3.40 að nóttu eftir ísl. tíma) 457 metrum fyrir neðan yfir- borðið. Við sprenginguna lok- uðust um 250 námumenn inni í göngunum, og er talið að lítil von sé um að nokkur þeirra náist lifandi út. Mikið eiturloft er í námunni, og er óttazt að þeir, sem ekki fór- ust í sprengingunni, izt af þess völdum. hafi lát- Sueiehi Araiki, einn námu- mannanna sem bjargaðist, segir svo frá: „Ég var að vinnu um 100 metrum frá námuopinu þegar sprengingin varð. Kastaðist ég utan í námuvegginn og rotaðist. I>egar ég rankaði við mér sá ég til . þriggja félaga minna. Ein- hvern veginn komumst við út. Við gátum varla andað. Ég hélt við værum allir dauðadæmdir Framhald á bls. 27 EINS OG Mbl. hefur skýrt frá eru nú nokkrir íslending ar staddir í Skotlandi á veg- um Siglingaklúbbsins Óðins, sem fest hefur kaup á segl- skútu. Skúlunni, sem skírð hefur verið Stormsvalan, sigla íslendingarnir siðan heim, ogí hafa e.t.v. viðkomu í Fær- eyjum. Ráðgert var í gær, að lagt yrði upp í Islandssigl- inguna í dag, miðvikudag. — Hér á myndinni blaktir is- lenzki fáninn í fyrsta sinn á Stormsvölunni í reynslusigi- ingu á Ciydefirði. — Sjá fleiri myndir á bls. 15. Fimmtíu iestum af spreugjum varpað á N-Vietnam Saigon, 1. júní (AP-NTB) BANDARÍSKAR þotur gerðu í dag sex loftárásir á stöðvar í Norður-Vietnam. Vörpuðu þær um 50 lestum af sprengj- um niður á vegi, brýr, ferjur og vopnabúr. Tvær flugvél- anna voru skotnar niður, en öðrum flugmanninum tókst að bjarga. Einnig réðust bandarískar flugvélar og vélar úr her Suð- ur-Vietnam á stöðvar Viet Cong skammt frá Quang Ngai, þar sem harðir bardag- ar geisuðu um helgina. Ekki er enn vitað með vissu um mannfall í bardögunum vi*. Quang Ngai, en álitið áð iim 500— 600 hafi fallið úr hvoru líði. Erf- itt er að segja um mannfall Viet Cong, því þeir höfðu særða og fallna á brott með sér. Banda- rískar flutningaflugvélar og þyrl ur hafa verið sendar til Quang Ngai til að flytja á brott særða. Segja flugmenn að aðkoman hafi verið hroðaleg. Á hæð einni voru lík 107 hermanna úr sveitum Suð- ur-Vietnam og tveggja banda- rískra hermanna. Voru mörg lík- anna mjög illa leikin eftir mis- Framhald á bls. 27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.