Morgunblaðið - 04.06.1965, Blaðsíða 3
[ Föstudagur 4. júní 1965
MORGUNBLADID
3
Fegurðardrottningin
krýnd í kvöld
Vírarnir
höggnir
Þór kominn með
vörpuna, sem líklegl
talið að tilheyri
R.ldershot
' ' VAKÐSKIPIÐ ÞÓR kom til
Reykjavíkur um kl. 8 í gærmorg-
iin og hafði meðferðis botnvörpu
þá, sem skipsmenn slæddu upp á
þeim slóðum, er Landhelgisgæzl-
an taldi brezka togárann Alder-
ehot frá Grimsby hafa verið að
óiöglegum veiðum á. Eins og
menn minnast, hélt skipstjóri tog
arans, Leslie Ciunby, því fram
íyrir rétti í Neskaupstað, að hann
hefði misst vörpuna, er skipið
var að veiðum út af Langanesi,
cg var sýknun hans af ákæru um
eð hafa brotið íslenzka fiskveiði-
lögsögu m.a. byggð á þeirri stað-
hæfingu hans. Vírarnir um borð
í togaranum voru hins vegar
greinilega höggnir í sundur, og
gaf Cumby þá skýringu á því, að
hann hefði ætlað að splæsa við
vírinn og setja upp nýtt troll.
Ekki var þó benzlað fyrir vír-
endana, eins og gert er jafnan til
að/koma í veg fyrir að þeir rakni
upp.
Fréttamaður og ljósmyndari
Mbl. fóru um borð í varðskipið
t>ór í gærmorgun og skoðuðu
vörpuna. Á öðrum hlera hennar
mátti greina síðari hluta nafns
togarans, -shot. Þá var og greini-
legt, að varpan hafði ekki slitnað
irá togaranum heldur verið
höggvin frá. Jón Jónsson, skip-
herra á Þór, kvað vörpuna hafa
verið slædda upp um eða innan
við fiskveiðitakmörkin út af
Digranesi, milli Bakkaflóa og
Vopnafjarðar, en togarinn Alder-
ehot hafði einmitt verið grunaður
um að hafa verið að ólöglegum
veiðum á þeim slóðum. Jón skip-
herra sagði, að varðskipsmenn
hefðu verið um sólarhring að ná
vörpunni, en það tafði fyrir
þeim, að þeir festu hvað eftir
annað í alls konar drasli. Kvað
hann vörpuna verða athugaða í
gær af dómkvöddum mönnum,
©g að vírar hennar og möskva-
etærð yrðu borin saman við þær
ethuganir, sem gerðar voru fyrir
austan, er rannsókn málsins fór
fram.
Leslie Cumby var dæmdur í
undirrétti fyrir að hafa veitt
varðskipinu Þór mótþróa. Áfrýj-
aði hann þeim dómi, og sömu-
leiðis áfrýjaði Saksóknari ríkis-
ins sýknudómi yfir skipstjóran-
um fyrir landhelgisbrot
'í GÆRKVÖLDI fór fram 1
Súlnasal Hótel Sögu fyrri
h.luti hinnar árlegu fegurðar-
samkeppni. Kjörnar voru
Ungfrú íslands 1965 og Ung-
frú Reykjavíkur 1965.
f kvöld verða úrsljtin ger'ð
heyrinkunn og mun Rósa
Einarsdóttir krýna fegurðar-
drottningarnar.
Fimm stúlkur taka þátt I
keppninni að þessu sinni. Áð-
ur en stútlkurnar koma fram í
gærkvöldi fór fram tízkusýn-
ing, og auk þess voru skemmti
atriði. Sýndu stúlkur úr Tízku
skólanum h.f. nýjustu kvenn-
fatatízkuna.
Stúlkurnar, sem taka þótt í
fegurðarsamkeppninni að
þessu sinni heita: Bára
Magnúsdóttir, Reykjavík, Jó-
hanna Ósk Sigfúsdóttir, Rauf
arhöfn, Sigrún Vignisdóttir,
Akureyri, Guðný Guðjónsdótt
ir, Reykjavík og Hertha Árna
dóttir, Reykjavík.
Stúlkurnar komu tvisvar
fram í gærkvöldi, fyrra skipt-
ið kjólklæddar og síðar um
kvöldið í báðfötum.
Stjómandi keppninnar var
Sigursteinn Hákonarson.
í dómnefnd sátu Jolhn Barry
sendifulltrúi, Brian Holt sendi
fulltrúi, Guðmundur Karlsson
blaðamaður, Jón Eiríksson,
læknir og frú Sigríður Gunn-
arsdóttir forstjóri Tízkuskól-
ans h.f., en hún hafði allan
veg og vanda af fegurðarsam
keppninni.
í kvöid fer fram krýningar
hiátíð, sem fyrr segir, og munu
allar stúlkurnar þá koma
fram. Verður ungfrú ísland
krýnd á miðnætti.
Allar stúlkurnar hljóta að
verðlaunum utanfer'ð og
snyrtivörur.
siAKsmwn
Stytting vinnutímans
t ritstjórnargrein Vísis i fyrra-
dag er rætt um yfirborganir
verkamanna, styttingu vinnutím-
ans og kauphækkanir. Þar segir
m. a.:
„Þjóðviljinn kaliar það skamm
sýni og þrjózku hjá atvinnurek-
endum, að fallast ekki möglunar-
laust á kauphækkanir. Rök blaðs
ins eru einkum þau, að „eftir-
sókn eftir vinnuafli sé mjög mik-
U, og menn leiti beinlinis burt frá
þeim vinnustöðum þar sem kaup-
ið sé lágt“, og þeir, sem ætla að
halda mönnum í vinnu, verði að
yfirborga þeim. Þetta má rétt
vera, a.m.k. er það vist, að til-
finnanlegur skortur er á vinnn-
afli í flestum greinum. En held-
ur ritstjóri Þjóðviljans að kaup-
hækkanir mundu leysa þann
vanda? Ekki fjölgar hinum vinn-
andi höndum þótt greitt sé hærra
kaup, þegar allir vinnufærir
menn eru þegar í störfum.
Gerum ráð fyrir, að falliat
yrði á þá ,lausn“ Þjóðviljans, að
hækka kaupið og stytta jafn-
fram vinnutimann, eins og lika
er krafizt. Halda ritstjórar Þjóð-
viljans að yfirborganir væru þar
með úr sögunni? Atvinnurekend-
ur vita vel, að svo yrði ekki.
Þeir mundu í fjölmörgum tilfell-
um þurfa að yfirborga eftir sem
áður, tU þess að fá nauðsynleg-
ustu verk unnin. Það er líka
harla undarleg kenning hjá Þjóð-
viljanum, að stytting vinnutím-
ans mundi draga úr eftirvinnu.
Staðreyndin er sú, að menn verða
oft að láta vinna í eftirvinnu
störf, sem ekki þola bið og vegna
þess, að ekki er hægt að fá nógu
margt fólk í dagvinnu. Og dett-
ur ritstjórum Þjóðviljans í hug,
að verkamenn mundu hrinda
hendinni á móti eftirvinnu, þótt
þeir fengju einhverjar kauphækk
anir? fslenzkir verkamenn eru
yfirleitt vinnufúsir og neita ó-
gjarnan vinnu, þegar þeim býðst
hún. Auk þess eru margir þeirra
gæddir svo mikilli ábyrgðartil-
finningu, að þeir telja sér skylt
að leggja hönd að verki, þegar
um er að ræða störf, sem ekkl
má fresta."
Efling
landbúnaðarins
1 ritstjórnargrein Suðurlands
fyrir nokkrum dögum er getið
nokkurra mála, sem Alþingi af-
greiddi í vetur. Þar er bent á,
hvernig rikisstjórnin vinnur
markvisst að því að efla atvinnu-
vegi þjóðarinnar, bæta samgöng-
urnar út um landsbyggðina, auka
rafvæðingu landsins o. s. frv. Um
stórátökin í landbúnaðinum segir
m.a.:
„I»á samþykkti Alþingi ýms
mérk lög, sem snerta landbún-
aðinn. Má þar nefna ný jarð-
ræktarlög með margvíslegum
umbótum í þágu landbúnaðar-
ins, ræktun er stórlega efld og
stefnt að þvi að allir bændur
komi sér upp súgþurrkun. Þá
voru einnig samþykkt lög um
landgræðslu og gróðurvemd og
ekki hvað sízt ný búfjárræktar-
lög auk hýrna girðingalaga. Þá
voru samþykkt lög um stóraukn-
ar rannsóknir í þágu landbún-
aðarins og annarra atvinnuvega.
Þá er og unnið að eflingu bún-
aðarfræðslunnar, ný bygging á
Hvanneyri fyrir framhaldsdeild
ina, sem verður efld og aukin
og gerð að 3ja ára námi í stað
2ja áður, bygging nýs skóla-
húss fyrir Garðyrkjuskólann að
Reykjum stendur yfir og ný-
bygging verður reist fyrir Hús-
mæðraskóla Suðurlands að Laug
arvatni. En þessir skólar heyra
undir landbúnaðarráðherra og
bygging þeirra hafin fyrir for-
göngu hans“.
Frá vinztri: Herta Áraadóttir, Guðný Guðjónsdóttir, Sig-
rún Vignisdóttir, Jóhanna Ósk Sigfúsdóttir og Bára Magnús-
dóttir. — Ljósm.: Sveinn Þormó
Átak í málefnum aldraðra í borginni
íbúðir — aðstoð í heimahúsum
— hjúkrunarheimili
BORGARSTJÓRN samþykkti
í gær í einu hljóði samhljóða
tillögur borgarráðs um mál-
efni aldraðs fólks i borginni.
Tillöguraar eru byggðar á nið
urstöðum og tillögum Vel-
ferðarnefndar aldraðra og
gerði formaður nefndarinnar,
Þórir Kr. Þórðarson, grein
fyrir þeim á síðasta borgar-
stjórnarfundi.
1 samþykktinnl er m.a. gert
rað fyrir byggingu 60 íbúða
fyrir aldrað fólk, undirbún-
ingur hjúkrunarheimilis fyrir
aldraða með 48 rúmum o.fl.
Samstaða um málið
Borgarstjóri gerði stutta
grein fyrir tillögunum, sem
hann kvað byggða á starfi
velferðarnefndarinnar og
þakkaði hann nefndinni sér-
staklega fyrir merkt starf.
form. hennar Þóri Kr. Þórðar--
syni, og félagsmálastjóra borg
arinnar Sveini Ragnarssyni.
Kvaðst harln vænta þess að
nefndin héldi áfram störfum
og frá henni kæmu fleiri til-
lögur og ábendingar.
•
Borgarstjóri sagði þessar
tillögur vera um 'byrjunar-
framkvæmdir og verði haldið
áfram á sömu braut, eftir
þeirri stefnu, sem nefndin
hefði markað.
Guðmundur Vigfússon (K)
sagði i umræðunum, að öll
atriði tillagnanna væru hin
merkustu og Kristján Bene-
diktsson (F) sagði flokk sinn
telja málið hið gagnmerkasta
og vera sammála þeirri stefnu,
sem mörkuð hefði verið. Krist
ján sagði borgarstjóra mega
reikna með stuðningi Fram-
sóknarmanna við að hrinda
tillögunum í framkvæmd.
Tillöguraar
Tillögurnar eru á þessa
leið: \
1. Þeim tilmælum er beint
til ríkisstjórnarinnar, að end-
urskoðuð og samræmd verði
öll félagsmálalöiggjöf, sem
snertir málefni aldraðra, eink
um 1. nr. 78/1936, um sjúka
menn og örkumlaða, og fram-
færslulög nr. 80/1947.
2. Stofnuð verði deild vel-
ferðarmála aldraðra í skrif-
stofu félags- og framfærslu-
mála Reykjavíkurborgar.
Deild þessi skal annast vistun
á hælí og sjúkrahús, aðstoð
við aldraða í heimahúsum,
starfa og önnur velferðarmál
upplýsingaþjónustu, útvegun
aldraðra. Auk þess skal unn-
ið að eflingu og samræmingu
á starfi frjálsra félaiga.
3. Hafinn verði undirbún-
ingur að byggingu íibúða, sér-
staklega ætluðum öldruðu
fólki. Samþykkir borgarráð
að ákvarða lóð undir 60 íbúð-
ir í þessu skyni við Klepps-
veg, og sé í því sámbandi at-
hugað samstarf við Dvalar-
heimili aldraðra sjómanna.
4. Hafinn verði undirbún-
ingur að byggingu hjúkrunar-
heimilis fyrir aldraða, sem
þurfa sérstakrar umönnunar
við. Heimili þetta rúmi 48
sjúklinga.
5. Bongarstjóra er heimil-
að að skipa nefnd þriggja
manna til þess að semja ná-
kvæma áætlun um stærð,
byggingarkostnað, byggingar-
framkvæmdir og rekstur
stofnana, sem um getur í 3.
og 4. lið.
6. Lagt er til við stjórn
Heilsuverndarstöðvar Reykja
víkur og sjúkrahúsnefnd, að
hluti húsnæðis þess, sem losn
ar við opnun Borgarsjúkra-
hússins, verði nýttur sem
hjúkrunarheimili pg lang-
legudeild fyrir aldraða sjúkl-
inga.
Jafnframt er þeim tilmæl-
um beint til ríkisstjórnarinnar
að hraða verði byggingu
sjúkradeilda fyrir langlegu-
sjúklinga og ellitruflað fólk.