Morgunblaðið - 26.06.1965, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Eaugardagur 26. júní 1965
Dómarinn sá ekki er mark
var skoraö með hendi
Danírnlr unnu Keflvlk-
inga verðskuldað 2-1
SENNILEGA munu þess afar fá
dæmi í heiminum að mark í
knattspymuleik sé skorað með
hendi. En þetta skeði á I.augar-
dalsvellinum í gær, og sé þetta
heimsmet, þá eiga Keflvíkingar
það, nánar tiltekið Jón Jóhanns-
son. Sennilega hefur Jón slegið
knöttinm í netið af því hann náði
ekki til hans með kollinum —
og alls ekki gert ráð fyrir að fá
markið viðurkennt. Það sáu einn
ig (að öllum líkindum) allir
nema dómarinn og línuvörður-
inn, hvemig í pottinn var búið.
Og mikil varð undmn fólks er
dómarinai viðurkenndi markið.
Hvað getur dómara ekki yfirsézt
í leik, þegar svona augljósir hlut-
ir fara fram hjá honum?
•fa Dýr „skemmtun“.
Leikur íslandsmeistara Kefla-
víkur og danska úrvalsins, sem
lyktaði með sigri Dananna 2—1,
var vægast sagt lélegur. Það er
dýrt að greiða 125 kr. fyrir stúku
miða fyrir slíka skemmtun. Dan-
irnir voru afgerandi betri og verð
skulduðu sigur — jafnvel þó
stærri hefði orðið en 2—0, sem
sigurinn í raun og veru var.' ef
séð er framhjá mistökum dóm-
arans.
Fyrri hálfleikur leiksins var
afar þófkenndur. Keflvíkingar
komust aðeins einu sinni í færi
©g skutu í hliðarnet (við mikinn
fögnuð velviljaðra áhorfenda),
auk þess sem þeir á síðustu mín
útu fengu gullvægt tækifæri er
Keflvíkingur ^komst í sendingu
rnilli markvarðar og bakvarðar
við útspark, og bjargaði þá hægri
bakvörður Dana; Finn Jensen, á
marklínunni.
Á Mörk SBU og tækifæri
En eina mark hálfleiksins —
og öll marktækifærin voru Dan-
anna. Á 8. mín. skoraði Jörgen
Jörgensen innherji eina mark
hálfleiksins af 17 m. færi fyrir
miðju marki. Skotið hafnaði út
við stöng og Kjartan of seinn að
kasta sér sem oft síðar í leikn-
um — þó ekiki kæmi að sök.
Á 16. mín. átti hægri fram-
vörður John Hansen hörkuskot
að marki ÍBK. Það fór í stöng,
þvert yfir markið og small í
hinni stönginni og út til mark-
varðar. Hvílík heppni.
Á 36. min. bjargaði Sigurvin
á marklínu skoti frá Jörgen Jörg-
ensen.
Þetta voru tækifæri fyrri hálf-
leiks — öll dönsk.
Á 14. mín. síðari hálfleiks
skoraði Jörgen Jörgensen síðara
mark Dana með skalla eftir gott
gegnumbrot og fyrirsendingu
frá Ove Andersen á v. kanti.
Þetta var fallegasta upphlaup
leiksins.
★ Þófið harðnar
Eftir þetta börðust Keflvík-
ingar allvel, en náðu aldrei veru
lega vel saman. En barátta þeirra
skapaði ýmis skemmtileg augna-
blik og þeir sýndu þó að þeir
höfðu vilja, þó getu skorti er
kom að síðasta framkvæmdarat-
riðinu.
Eftir upphlaup á miðjunni og
langsendingu fram á 26. mín. ætl
aði Jón Jóhannsson að reyna að
skalla knöttinn en náði ekki til
hans og sló þá til hans með hend
Yfi: Ermersund
ó ginflösku
ÞAÐ er hægt að fara yfii
Ermarsund á margan hátt. Á
þeirri skoðun er að minnsta
kosti fertugur enskur banka-
starfsmaður, Robert Platten.
Hann lagði af stað yfir sund-
ið sitjandi klofvega á risa-
stórri ginflösku.
Nýlega fór hann yfir Ermar
sund liggjandi í járnrúmi,
sem var útbúið með flotrör-i
Fyrra mark Jörgensen. Skorað
seinn að kasta sér.
inni. Þetta mark viðurkenndu
starfsmenn leiksins sem gilt, öll-
iim viðstöddum til mikillar furðu
að vonum.
Keflvíkingar voru öllu ágeng-
ari síðasta stundarfjórðunginn,
en aldrei náðu þeir að verða
sterkara liðið á vellinum knatt-
spyrnulega séð.
Liðin
Lið Keflavikur var lengst af
máttlaust og það er eins og liðs-
menn séu ætíð fvístígandi varð-
Dani átti skot í stöng — o,g þaðan hrökk boltinn þvert yfir markið og small í hinni stönginni og
út. (Myndir Sv. orm.).
Sandkassi og flautuleikur
Breiðabfik vann ísafjörb 2—1
og Haukar Reyni 1—1
HAUKAR — REYNIR 1:1
f „SANDKASSA" suður í Sand-
gerði háðu Haukar úr Hafnar-
'firði, örvæntingarfulla baráttu,
til að hreppa bæði stigin í leik
í annarri deild við Reyni úr
Sandgerði. Heppnin var sannar-
lega ekki með Haukum þó að
þeir ættu 90% í leiknum .
Það voru heimamenn sem
skoruðu fyrsta markið, eftir
herfileg mistök hjá vörn Hauka.
í síðari hálfleik tókst Haukum
að jafna. Jóhann Larsen einlék
írá miðju inn í vítateig Sandgerð
inga og úr mjög þröngri að stöðu
tókst honum að skora glæsilegt
mark.
1 síðari hálfleik fengu Sand-
gerðingar ekki eitt einasta hættu
legt tækifæri, en Haukar áttu
hvert tækifærið af öðru. Mark-
vörður Sandgerðinga, Gottskálk,
bjargaði liði sinu frá stóru tapi,
hann átti mjög góðan leik, og
hefðu margir honum reyndari
markmenn margt getað lært af
honum í þessum leik. Hægri út-
herji Sandgerðinga átti og góðan
lelk, þar er greinilega efni á
ferðinni.
Það var mikill feill hjá Hauk-
um að setja Magnús Jónsson út
á kant. Honum er tamara að leika
í stöðu innherja eða jafnvel mið
herja, þess vegna lá hann of inn
arlega og kanturinn nýttist ekki
sem skildi.
Leikurinn gat ekki hafizt fyrr
en 30 mínútum eftir auglýstann
leiktíma, vegna þess að búning-
ar beggja liða eru eins. Sand-
gerðingar fengu lánaða búninga
frá Keflavík.
BREIÐABLIK — Í.B.I.
SJALDAN hefur dómari þurft að
nota flautuna eins mikið og í
leik Breiðabliks og ísfirðinga í
gærkvöldi. Voru þetta aðallega
brot þar sem leikmenn notuðu
hendurnar einum of mikið, ann-
að hvort á knöttinn eða andstæð-
inginn.
Breiðablik skorar fyrsta mark
leiksins á 25. mín. fyrri hálf-
leiks. Dæmd var aukaspyrna á
ísfirðinga. Júlíus spyrnti háum
bolta að marki, þar var Grétar
vel staðsettur og skoraði örugg-
lega.
Fimm minútum síðar jafna fs
firðingar. Sending kom frá hægri
sem v. innherji, Gunnar Sigur-
jónsson afgreiddi laglega í netið.
Grétar skoraði annað mark
Breiðabliks eftir gott upphlaup,
en öftustu vörn fsfirðinga brást
herfilega bogalistin í það skipt-
ið.
Ekki er hægt að segja að þessi
leikur hafi boðið uppá góða knatt
spyrnu. Kópavogsmenn voru
heppnir og ísfirðingar mikilr
klaufar að skora.
Dómari í báðum þessum leikj-
um var Guðmundur Guðmunds-
son og dæmdi hann af festu-' og
öryggL — RM,
af 17 m. færi — Kjartan of
andi hvað þeir ætla sér að gera
og samvinna fer fyrir handvömm
oftast út um þúfur.
Danska liðinu er alls ekki hægt
að hrósa fyrir þennan leik. Að
vísu voru þeir allan tímann betra
liðið á vellinum, en þó þeir hafi
átt betri leik en mótherjinn, áttu
þeir ekki góðan leik. Flest eða
öll dönsk úrvalslið, sem hér.hafa
leikið, hafa sýnt jákvæðari og
skemmtilegri knattspyrnu en
þetta Sjálandsúrval. Lang-
skemmtilegasti leikmaðurinn er
Jörgen Jörgensen og reyndar sá
eini sem svip setur á liðið fyrir
áhorfendur.
— A. St.
MOLAR
Búlgaría vann fsrael —0 (
(2—0) á sunnudag í ' \ |
landanna í undan!
I um heimsmeistaratiti
Skozka liðið Hibernian er
I í keppnisferð í Kanada og lék
I við urvalslið Manitoba í gær
(fimmtudag). Skotarnir unnu
með 11—0. Ekkert mark var
skorað fyrstu 25 mínúturnar
en síðan 5 mörk fyrir hlé og
önnur 6 í síðari hálfleik.
Norska knattspyrnuliðið
Skeid — eitt af „stóru félög-
unum“ í Noregi er fimmtugt
á þessu ári. Á miðvikudag
efnir félagið til afmælisleikja.
Er það leikur milli danska
liðsins er vann bronsverðlaun
á OL í London 1948 og norsks
„öldungaliðs“. Danirnir sem
leika eiga 215 landsleiki að
baki en Norðmennirnir sem
leika eiga 284 landsleiki að
baki (þar af Thprbjörn Send-
sen 104). Einnig leikur A-lið
Skeid við danska liðið KB.
Sundlaugin
að Varmá
SUNDLAUGIN að Varmá í Mos-
fellssveit er mikið sótt yfir sum-
armánuðina bæði af heimamönn-
um og fleirum.
Sundlaugin er opin mánudaga
og þriðjudaga kl. 2,30—7 og 8—-
10 e.h., miðvikudaga er lokað,
fimmtudaga opið kl. 2—7 e.h. og
8—10 (sértími kvenna), föstu-
daga kl. 2,30—7 og 8—11.
daga kl. 2,30—7 og 8—-11 e.h,
e.h. og sunnudaga kL 9—12 f.h.
og 1—6 e.h.