Morgunblaðið - 08.07.1965, Blaðsíða 1
24 SC&4LII
B2. áTgamgwir.
151. tbl. — Fimmtudagur 8. júlí 1965
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Liðsauki til
S-Vietnam
sjéliðar á land nærri Da
— er meirí hátfar árás
Viet Cong fyrir dyrum?
Da Nang, S-Vietnam, 7. júlí
— AP —
UM 8000 bandarískir sjóliðar
gengu á iand í dag við Dr
Nang í S-Vietnam. Er hér um
að ræða enn einn liðsauka til
þessa' þýðingarmíkla staðar í
S-Vietnam.
Það voru skip úr sjöunda
fiotanum bandaríska, sem
ajóliðana fluttu. Fyrir í Da
Nang munu hafa verið um
S500 sjóliðar.
Opinber talsmaður banda-
ríska hersins skýrði frá þess-
um iiðsflutningum í morgun,
en ekki vildi hann segja neitt
um, hvers vegna þessir liðs-
fiutningar ættu sér stað nú,
eða, hver verkefni biðu sjó-
jiðanna. Gert er þó ráð fyrir,
að þeir eigi að gæta flugvall-
arins við Da Nang.
I vikunni, sem leið, réðust
ekæruiiðai* Viet Cong inn á flug-
völlinn, þrátt fyrir, að banda-
riskir hermenn stæðu á verði
*dit umhverfis hann. Skærulið-
nnum tókst þá að eyðileggja
þrjár herfiugvélar.
• Þessir siðustu liðsflutning-
ar eru óvenju miklir, eti alls
munu hafa verið fyrir í S-Viet-
nam um 15.500 bandarískir sjó-
liðar. Eru þeir m.a. staðsettir við
Hue-Phu Bai, Chu Lai og Qui
Nhon.
• Ekki er enn ljóst, hvaða
herflokkar það Voru, sem gengu
á land í dag, en haft er eftir á-
reiðanlegum heimildum, að
bandarískar og s-víetnamskir
herstjórnarmenn óttist, að fyrir
dyrum standi meiri háttar árásir
Viet Cong. Kunni markmiðið
jafnvel að vera gjöreyðing sjálfs
flugvallarins við Da Nang.
Vart hefur orðið við mikla
liðsflutninga hermanna komm-
únista á þessu svæði undanfarna
daga. Á mánudag réðust þeir á
borgina Ba Gia, um 120 km frá
þeim stað, þar sem bandarísku
sjóliðarnir stigu á land í morg-
un. í bardögunum á mánudag
létu um 30 stjórnarhermenn líf-
ið, 42 særðust og saknað er enn
um 110. Árásina gerðu hermenn
kommúnista með bandarískum
105 mm fallbyssum, sem þeir
náðu á sitt vald óskemmdum (sjá
mynd). Hafa þeir einnig u»dir
höndum mikið magn skotfæra.
Slík vopn eru skæð, og gætu
valdið miklu tjóni, ef þeim yrði
beitt gegn flugvellinum við Da
Nang.
Bandarískar fallbyssur við Da Nang, en hluti þeirra er nú í höndum Viet Cong (sjá frétt).
er stjórn Wilson
bíöur ósigur á þingi
andstaðan þrívegis í meirihluta við
atkvæðagreiðslu um íjárlög — Wilson
segir hana haía beitt brögðum, og um
vantraust sé því ekki að ræða
London, 7. júlí — AP
STJÓRN Harold Wilsons, for-
sætisráðherra Rreta, beið
Ekkert miðar í sam-
komulagsátt innan EBE
þrisvar sinnum ósigur í at-
kvæðagreiðslu um f járlög rík-
isins í umræðum í neðri mál-
stofunni sl. nótt. Þetta er í
fyrsta skipti, sem til slíks kem
ur í umræðum um fjárlögin
að þessu sinni, og er meiri-
hluti stjórnarandstöðunnar
(13, 13 og 14 atkvæði) talinn
ntikill álitshnekkir fyrir
stjórn Wilsons.
íhaldsmenn í neðri málstof-
unni kröfðust þess í nótt, að
Wilson segði af sér, en í dag
lýstu talsmenn Verkamanna-
flokksins og stjórnarinnar yf-
ir því, að slíkt kæmi ekki til
greina. Hefðu íhaldsmenn
beitt brögðum við atkvæða-
greiðsluna, falið þingmenn
sína meðan á umræðúm stóð,
en látið kalla þá að í skyndi,
er að þeim kom. Hefðu rnargir
Framh. á bls. 10
Frakkar gera einhliða
ráðsfafanir í eigin
landbúnaðarmálum
París, Brússel, 7. júlí
— AP — NTB —
ÞAÐ var tilkynnt af opin-
berri hálfu í París í dag,
að Frakkar myndu ekki að
sinni taka þátt í neinum
umræðum um tolia á land-
búnaðarvörum innán Efna
hagsbandalagsins.
Alain Peyrefitte, upplýs-
ingamálaráðherra frönsku
stjórnarinnar, skýrði frá
því á blaðamannafundi,
sem haldinn var að loknum
ráðuneytisfundi í dag, að
afstaða franskra ráða-
manna til bandalagsins
væri óbreytt
Það >ar sl. fimmtudag,
að iranska stjórnin til-
kynnti, að hún myndi ekki
taka þátt j neinum nýjum
umræðum bandaíagsríkj-
anna.
• Fréttamenn beindu mörg-
um spurningum að Peyrefitte
í dag. Ein þeirra var á þann
veg, gegn hvaða skilyrðum
Frakkar myndu á ný taka upp
viðræður. Ráðherrann vildi
ekki svara. Hann brást á svip-
aðan hátt við fleiri spurning-
um. „Tilkynningin, sem gefin
var út í sl. viku, var mjög ná-
kvæm“, sagði hann. „Þar er
engu við að bæta. Ekkert nýtt
hefur komið fram“.
Þó vék Peyrefitte lítillega
að óskuni Austurríkismanna
um nánara samstarf við lönd
bandalagsins, og sagði, að inn-
taka nýs ríkis myndi ekki
verða til þess að auðvelda
lausn þeirra vandamála, sem
nú væri glímt við.
• Á fundinum í Briissel í sl.
viku, þar sem allar viðræður
fóru út um þúfur, var árang-
urslaust reynt að komast að
samkomulági um fjármál land
búnaðar aðildarríkjanna,
grundvöll þess, að hægt sé að
koma á sams konar tollakerfi
fyrir landbúnaðarvörur, og
gilt hefur innan bandalagsins
um iðnaðarvörur.
• Peyrefitte upplýsti í dag,
að franska stjórnin hefði hins
vegar tekið ákvarðanir um
ýmsa nýskipan landbúnaðar-
mála í Frakklandi. Það væri
ætlun stjórnarinnar, að sjá til
þess, að mistök í skipulagn-
ingu landbúnaðarmála ann-
arra bandalagsrikja bitnuðu
ekki á frönskum bændam.
Fulltrúar bandalagsríkja
EBE í Briissel voru heldur
vondaufir í dag, þótt fæstir
fáist til að trúa því, að Frakk-
ar hafi í hyggju að ganga úr
bandalaginu. Þeir hafa kvatt
fulltrúa sinn hjá EBE í Brús-
sel heim, og tilkynntu strax,
að þeir myndu ekki taka þátt
í fundi fastaráðsins í dag, sem
kvatt var til í gær. Fundurinn
var þó haldinn i dag, en án
þátttöku Frakka. Þeir, sem til
fundarins mættu, munu hafa
forðazt að taka neinar ákvarð-
anir, sem orðið gætu til þess
að gera erfiðará fyrir um sam
komulag. Lítillega mun hafa
verið rætt þar um fjarlog ráð-
herranefndar bandalagsins.
30 farast í flug-
slysi nærri Suez
Kairó, 7. júlí — AP
EGYPZK herflugvél, byggð í
Sovétríkjunum og með sov-
ézkri áhöfn, hrapaði til jarð-
ar nærri Suez í morgun.
30 menn, sem í flugvélinni
voru, létu lífið. Sovézk vél-
byssuskytta, sem með vélinni
var, náði þó að stökkva í fall-
hlíf. Var hann sá eini, sem af
komst.
Flugvélin, sem fórst, var þung
herflutningaflugvél, og var á leið
frá flugvelli nærri Suez til Yem-
en. Flak vélarinnar dreifðist yfir
stórt svæði. Var það allt sundur-
tætt, og brunnið.
Skyttan, sem af komst, gat
gengið til næstu bústaða, og til-
kynnt um slysið. Er aka átti hon-
um til sjúkrahúss, beiddist hann
þess hins vegar, að sér væri ekið
til sovézka sendiráðsins, svo að
hann gæti gefið þar skýrslu um
málið.
Fiak vélarinnar liggur nærri
alfaraleið milli Kairó og Suez.
Var svæðið þegar umgirt her-
mönnum. Fréttamenn segja, að
egypzkir og sovézkir sérfræðing-
ar séu önnum kafnir við rann-
sóknir, en fátt heillegt mun vera
eftir af flugvélinni, ef frá eru
taldir tveir hreyflar. — Engin
myndataka hefur verið leyfð, og
af egypzkri hálfu hefur því verið
lýst yfir, _að engar frekari fréttir
verði birtar um slysið, eða til-
drög þess.
Langir samningafundir
SAMNINGAFUNDUR
verkalýðsfélaganna í Rvík
og Hafnarfirði og atvinnu-
rekenda hófst kl. 14.00 í
gær og stóð sá fundur fram
eftir degi. þar til matarhlé
var gefið. Fundurinn hófst
aftur kl. 21.00 í gærkvöldi
og stóð enn er blaðið fór í
prentun laust eftir mið-
nætti. Var þá gert ráð fyr-
ir, að fundurinn stæði fram
eftir nóttu.