Morgunblaðið - 16.07.1965, Blaðsíða 22
22
MORGUN BLAÖIÐ
Föstudagur 16. júlí 1965
Landsmótið í golfi:
Magnús hefur 4 högga for-
skot í hálfnaðri keppni
liiisjafn og heldur slakur árar.gur
í miklum vindi í gær
LANDSMÓTINU í golfi var fram
haldið á velli Golfklúbbs Reykja-
vikur við Grafarholt í gaer. Voru
þá leiknar 36 holur í meistara-,
1. og 2. flokki, en 12 holur í
flokkj unglinga. Veður var held-
ur óhagrstætt — allhvasst, svo
kylfingum reyndist á stundum
erfitt að halda langhögrgum sín-
um á brautum vallarins, en tak-
ist það ekki er hætt við að kylf-
ingar lendi í urð og gjótum sem
geta kostað þá mörg högg að
losna frá. Voru slík ,rslys“ alltið
í gær.
SLAKURÁRANGUR
Leiknir voru tveir 12 holu
hringir í gær. Beztum árangri á
slíkum hring náðu í gær þeir
Ólafur Ágúst Ólafsson og Óttar
Yngvason, léku 12 holur í 51
höggi. „Par“ á þessum 12 holum
er 46. En þeir áttu misjafna
hringi, ólafur fór hinn hringinn
í 58 höggum og Óttar í 57.
Jafnbeztum árangri náði Magn-
ús Guðmundsson sem léJt 12 hol-
ur fyrst á 52 höggum en síðan
55.
STAÐAN
Að hálfnaðri keppni hefur
Mggnús Guðmundsson forystuna
með 158 högg en næstir koma
Óttar Ynvason 162, Gunnar Sól-
nes Ak. 163, Hermann Ingimars-
son Ak með 164, Jóhann Eyjólfs-
son Rvík 165 og ólafur Ág ólafs-
son Rvík 168.
Til að sýna efsta mann er hér
taifla yfir 12-holu hringina þrjá
sem lokið er við nú.
son Rvík. Hann fór hringina í
gær á 56 og 58 höggum og tók
forystu að keppninni hálfnaðri
með 160 högg. Hafsteinn I>or-
geirsson er hafði forystu eftir
fyrsta dag er í 2. sæti með 171
högg, Hallgrímur Þorgrímsson
Vestm. þriðji með 175 högg og
Gunnar Þorleifsson Rvik 4. með
177 högg. Þykir sýnt að þarna
verði mikil barátta um efsta
sætið.
Magnús Guðmundsson ..........
Óttar Yn0 . ason.............
Gunnar Sólnes .............
Hermann Ingimarsson..........
Jóhann Eyjólfsson ...........
Ólafur Ág. Ólafsson .........
1 gær kom fram athugasemd
vegna dóms varðandi eitt högg
Óttars Yngvarssonar og var ekki
búið að fella úrskurð um hana.
1. FLOKKUR
1 1. flokki léku menn mjög
misjafnlega en bezt Kári Elías-
•MMMiHtiiiMMiiiiimiiiiiiMtinMiimmMiiiiiiiiiiiniHiiui
Fyrsti Annnar dagur- Samtals
dagur 1. 2.
. 51 52 56 158
. 54 57 51 162
. 53 58 52 163
. 55 J>4 55 164
. 54 58 53 165
. 59 51 58 168
2. FLOKKUR
í 2. flokki var í sérflokki í gær
Páll Ásg. Tryggvason Rvík. Lék
hann hringina á 65 og 60 högg-
um og náði nú 10 högga forystu
að keppni hálfnaðri, hefur 185
högg á 36 holur. Næstur kemur
Geir Þórðarson Rvík með 195
högg, þá Júlíus Snorrason Vestm.
(er hafði forystu eftir fyrsta dag-
inn) með 197 og þórir Sæmunds-
son Golfkl. Suðurnesja með sama
höggafjölda 197.
Unglingar
Unglingaflokkurinn lék 12 holur
í gær og hefur þá lokið 24 holum
af 36. Hans Isebarn hefur náð
þar öruggri forystu. Má reyndar
segja að frammistaða hans í gær
hafi verið það bezta á mótinu
í gær. Hann lék 12 holur í 63
höggum — sem þykir mjög gott
af unglingi. Hann hefur nú 122
högg (eftir 24 holur) Bræðurnir
Björgvin Þorsteinsson og Viðar
Þorsteinsson frá Akureyri koma
næstir með 131 og 136 högg og 4.
er Jónatan Ólafsson Rvík með
139.
Keppni verður fram haldið I
dag og leiknar 24 holur í meist-
ara-, 1. og 2. fl. en unglingarnir
eiga frídag.
| „Viljum fú oð |
■ ■
sjn slóru
Í stjörnurnur" i
■ ■
■ ■
: BRjEZKA stjómin hyggst auka ■
j vemlega fjárveitingar til ;
! íþróttamála, eftir því sem I
• Dennis Howell ráðherra sagði ;
: á blaðamannafundi. Verður •
■ aukning fjárveitinga fyrst og ;
; fremst til þeirra aðila sem sjá S
j um að annast „stór og mikil ;
; íþróttamót með þátttöku beztu i
I manna heims“.
■ — „Við höfum hingað til :
: fyrst og fremst veitt stuðning j
; brezkum íþróttaflokkum, sem :
: farið hafa utan til keppni. En j
j nú viljum við hjálpa aðilum :
: heima fyrir til að stofna til j
j stórmóta. Það er kominn tími ;
: til að enska þjóðin fái að sjá j
j bezta íþróttafólk heims „á ;
; neimavelli", og þetta mun án j
j efa stuðla að því að auka getu ;
: ensks íþróttafólks.
j Þegar hefur verið veitt ;
; samkv. þessu rífleg fjárupp- i
j næð til „Edinborgarleikanna" j
; svonefndu 1970 og við munum i
' heldur ekki skera fé við nögl ■
j ef enska frjálsíþróttasamband- :
• inu tekst að fá heimild til að j
j sjá um Evrópumót í frjálsum :
■ sem fyrst“, sagði ráðherrann. j
„Ég finn ekki formið"
— sagði íslandsmeistarinn í golfi
KYLFINGAR er þátt taka í
landsmótinu í golfi voru heldur
svekktir margir hverjir í gær, og
óánægðir með frammistöðu sína
í keppninni. Urðu margir fyrir
„óhöppum og slysum“ vegna
vindstrekkings, sem þeim tókst
illa að reikna út — og sigra.
— Þetta er slök frammistaða,
sagði Magnús Guðmundsson sem
forystu hefur í keppninni. Vind-
urinn er slæmur og ég finn held-
ut ekki mitt eðlilega form. Ég
bara vona að síðari helmingur
keppninnar verði betri.
1 svipaðan streng tóku fleiri.
En keppendur héldu þó „húm-
ornum" og gerðu að gamni sínu.
Einn sagði: Þetta er nú meiri
leikurinn hjá manni. Ég held ég
gefi nú bara áhöldin min og
hætti.
Allmargir fylgdust með keppn-
jnni, enda var hún skemmtileg
þrátt fyrir allt.
Mdl höfðoð
gegn Liston
PIRMA eitt í London er tekur að
sér að sjá um sýningar og keppn-
ir í hnefaleikum víðsvegar um
England hefur höfðað mál gegn
Sonny Liston. Krefst enska firm-
að 69.815 dollara í skaðabætur
fyrir að Liston hefur ekki treyst
sér eftir tapið í 1. lotu gegn
Clay, að fara sýningarferð til
Englands eins og rætt hafði verið
um.
Bandarískir lögfræðingar vinna
nú að þvi að íá málið ógilt bæði
vegna formsgalla á stefnu, og
eins vegna þess að krafan þykir
í hæsta máta ósanngjörn.
Haukar og Breiöablik
sigruðu í 2. deild
Á miðvikudagskvöldið sl. fór
fram leikur í annarri deild í
Kópavogi. Þá léku Breiðablik og
Víkingur. Breiðablik sigraði með
4:3. Þessi lið. eiga nú eftir einn
leik hvort, við ísfirðinga. Ef
öðru hvoru þeirra tekst að sigra
ÍBÍ aukast líkurnar fyrir því að
aukaleikur þurfi að skera úr um
efsta sætið.
í gærkvöldi léku í Hafnarfirði
Haukar og Reynir frá Sandgerði.
Veður var vont til knattspyrnu-
keppni og bar leikurinn þess
greinilega merki.
Síðast þegar þessi lið léku í
deildinni skildu þau jöfn, en nú
sigruðu Haukar og voru vel að
sigrinum komnir.
Þeir voru mun ákveðnari eink-
um er leið á leikinn. Þó er enn
of mikið af dauðum köflum hjá
þeim. Reynismenn börðust vel
allan leikinn, en vantaði snerpu
til að reka á endahnútinn. Leikur
inn endaði 2:0 fyrir Hauka, en
sanngjörn úrslit hefðu verið 2:1.
Mjög var það bagalegt að línu-
verðir komu ekki, svo fá varð
pilta, sem ekki hafa dómara-
réttindi sem línuverðir. Bæði lið
samþykktu þetta, svo leikurinn
gæti farið fram, og stóðu línu-
verðirnir sig með mikilli prýðL
— R. M.
2. deild
NÆSTU leikir í annarri deild.
Laugardag 17. júlí Melavöllur
Þróttur — Siglufjörður. Laugar-
dag 17. júlí Hafnarfjörður F.H,
— Vestmannaeyjar. Laugardag
17. júií ísafirði Í.B.Í. — Breiða-
blik.
Von á góium
myndum af Mars
Sú fyrsta móttekin í gærkvöldi
□---------------------------□
Sjá einnig grein á bls. 12.
□---------------------------□
Pasadena, Kaliforníu, 15. júlí
(AP-NTB)
ALLT útlit er nú fyrir að
bandaríska geimfarið ,,Marin-
er 4“ sendi til jarðar 20 ljós-
iHyndir af yfirborði reiki-
stjörnunnar Mars." En um
tíma í dag var óttazt að bilun
hefði orðið á segulbandstækj-
um geimfarsins, og að bilunin
yrði þess valdandi, að aðeins
bærust sex myndir af stjörn-
unni.
„Mariner 4“ var laust eftir
hádegið í dag kominn um 200
þúsund kílómetra frá Mars og
stefndi frá stjörnunni með
rúmlega 16 þúsund kílómetra
hraða á klukkustund. En
myndirnar voru teknar í nótt,
og komst geimfarið þá næst
Mars í rúmlega níu þúsund
kílómetra f jarlægð.
Myndirnar sendir „Mariner 4“
til jarðar með sérstökum merkj
um, sem ráðin eru á jörðu með
»hjálp rafeindeheila. Tekur það
8Vz klukkustund að senda
hverja mynd. Merkin, sem
„Mariner 4“ sendir, eru tölum-
ar 0 og 1. Hver sex stafa sam-
stæða merkir einn pimkt í
myndinni. Punktar þessir mynda
svo línur í myndinni, og eru 200
punktar í hverri hnu og 200 lín
ur í hverri mynd. Alls eru merk
in fyrir hverja mvhc! 40 þúsund.
Úr tölunum, sem sendar eru,
ræður rafeindaheilinn lit. Þann-
ig eru litirnir númeraðir frá
núlli, sem er hvítt, upp í 63, sem
er svart. Á milli eru mismun-
andi gráir litir. Samkvæmt upp
lýsingum sérfræðinga þýðir
þannig sendingin 0,1,0,1,0,0, töl-
una 20, sem er frekar ljósgrár
punktur.
Sérfræðingar þeir, sem for-
ustu hafa haft í Bandaríkjunum
varðandi þessa tilraun me3
„Mariner 4“, boðuðu í dag til
fundar með fréttamönnum f
Pasadena. Sögðu þeir að auk
ljósmyndanna hefði geimfarið
sent mjög markverðar upplýs-
ingar til jarðar um aðstæður 1
geimnum-í nágrenni stjörnunn-
ar. Þannig skýrði dr. James A.
van Allen, sem Van Allen geisla
beltin umhverfis jörðu eru
kennd við, frá því að engin
geislabelti hafi fundizt umhverf
is Marz. Er þetta mjög þýðingar
mikið varðandi hugsanlegar
Marz-ferðir einhverntíma 1
framtíðinni. Einnig sagði van All
en að svo til ekkert segulsvæði
væri umhverfis Mars.
Dr. William H. Pickering hef-
ur haft yfirumsjón með tilraun-
inni. Sagði hann fréttamönnum
að merkjasendingar „Marinera
4“ væru mjög skýrar. Höfðu þá
þegar borizt fyrstu 93 línurnar
úr fyrstu myndinni, eða nær
helmingur myndarinnar. Sagði
Pickering að myndin kæmi mjög
vel fram, og bjóst jafnvel við a3
unnt yrði að birta fyrstu mynd-
ina í nótt eða fyrramálið.
V
Jeppaflokkurinn
á Vestfjörðum
ísafirði, 15. júlí.
JEPPAFLOKKURINN er nú &
ferðalagi um Vestfirði og sýnir
gamanleikinn Jeppa á JTjalli eftir
Holberg. Flokkurinn hefur a3
undanförnu sýnt á vestanverðu
Norðurlandi, Snæfellsnesi og nú
síðustu dagana á norðanverðum
Vestfjörðum. Mjög mikil aðsókn
hefur verið að þessum leiksýn-
ingum og undirtektir frábærar.
Hér á ísafirði voru tvær sýning-
ar á leiknum fyrir troðfullu húsi
bæði kvöldin. Jeppaflokkurinn
sýnir næst á sunnanverðum Vest-
fjörðum, en heldur síðan norður
og austur um. — H. T.