Morgunblaðið - 27.07.1965, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 27.07.1965, Blaðsíða 21
ÞrlSjudagur 27. JtSlí 1965 MORGUNBLAÐIÐ 21 réðust, eins og Friðsteinn orð- aði það. í>eir unnu 12—14 tíma á sólarhring hverjum, eins og sjá má af afköstunum. Yfir- smiður var Jón Guðmunds- son, málarameistari Ingvar Sörensen, rafvirki Tómas Guð mundsson úr ólafsvík og_ Gunnar Kristófersson pípu- lagningarmaður, það verkefni þurfti einnig að leysa að ná í meira vatn fyrir hótelið, sem gert var með yfir 3 km langri plastleiðslu. Hótelið á Búðum er venju- lega opnað 17. júní ár hvert og lokað um viku af sept., en eftir það hafa oft verið þar eitt eða tvö mót eða fundir. í>etta er of stuttur tími fyrir hótelrekstur. — Ef við getum lengt tímann í 90 daga á ári, er ekki útilokað að þetta geti staðið almennilega undir sér. 60 dagar er of lítið, segir Frið- steinn. En hvers vegna íslend- ingar ekki ferðast nema í júlí og ágúst, veit enginn vel. Júní mánuður hefur a.m.k. um und anfarin ár verið einhver bezti tíminn hvað veður snertir. Til að geta haft opið meiri hluta Hótelii á Búðum stækkai ársins, þyrftum við líka að hafa aUa jörðina, svo við gæ-t- um haft íhlaupafólk af búinu yfir mesta annatímann segir Friðsteinn ennfremur. Nú er hægt að taka á móti 43 gestum í sjálfu hótelinu og hýsa 11 í viðbót í öðru húsi. Lóa segir okkur að undanfarin sumur hafi verið mikil að- sókn meðan hótelið var opið. Sömu gestirnir koma ár eftir ár. Fjölskyldur dvelja nokkra daga og leyfa börnunum að leika sér í fjörunni og baða sig í sjónum á góðviðrisdegi, ferðafólk hefur þar bækistöð og ekur á daginn til að skoða hina ýmsu fallegu staði, sem stutt er í. Og mikið kemur af erlendum náttúrufræðingum, grasafræðingum til að skoða jurtir í Búðahrauni, jarðfræð- ingum til að skoða hraun- myndanir, því þarna má sjá heila jarðmyndunarsögu á ýmsum stigum, og fuglafræð- ingar og fuglaskoðarar til að sjá hið auðuga fuglalif með ströndinni. Nú og dagana sem blaðamenn voru þarna, voru þar m. a. leikarar að sækja sér endurmæringu og nóbels- skáld að fá sér vinnufrið. Snæfellsnes tók vel á móti blaðamönnum á föstudaginn. Sólin skein á hvítan jökul- skallann, rauða gíghólana, ljós an sandinn á Löngufjörum og misgróin hraunin. Það var líka vel tekið á móti okkur á Búð- um, svo sem öðrum gestum, er þar koma. Að kvöldinu er þær jafnan heitur réttur og kalt borð, sem var mjög gott og mikið af íslenzkum réttum. Margir koma líka og tjalda við Búðir, til að geta komið og keypt þar aðalmáltíð dags- ins. Og um morguninn var ek- ið kringum jökul og skoðaðir fallegir staðir. Verst þykir mér þegar gestir eru búir að aka kringum jökulinn, þegar þeir koma hingað og hafa af ókunnugleika ekkert séð af því sem Snæfellsnes hefur upp á að bjóða, ekki farið að Hellum, ekki Arnarstapa, ekki að Lóndröngum, . . segir Lóa. Hún er góður fulltrúi Snæ- fellinga á Búðum. Við bygggingin við hóteiið að Búðum. ☆ SNÆFELLSNES er smækkuð útgáfa af íslandi. Þar má finna á einum stað allt sem aðrir staðir hafa upp á að bjóða. Það er mikið til í þess- um ummælum, sem ég hefi einhvers staðar lesið. í augum ferðamannsins er Snæfellsnes hreinasta Gósenland. Það hef- ur upp á að bjóða tignarlegan jökul, fjöll með margbreyti- legu formi, allar tegundir af hraunmyndunum, fjörur og sérkennilegar víkur með kyn- legum dröngum og löngum fínum baðströndum. Og allt er þetta blessunarlega lítið útbíað af mannfólkinu. Það er ekki að undra þó fólk sæki á fyrlr aukinn ferðamannastraum þennan stað, til að ferðast og kynnast landinu, bæði Islend- ingar og útlendingar. Enda er Snæfellsnes að verða einhver mesti ferðamannastaður á ís- landi. En ekki dugir manninum fegurðin ein, hversu mikil sem hún er. Honum þarf helzt að líða vel, til að geta notið henn ar. A Snæfellsnesi er því þörf á góðu hóteli og þar er það líka á sumrin, Hótel Búðir. 1 undanfarin 10 ár hefur Lóa Kristjánsdóttir rekið sumar- hótelið með góðri aðstoð manns síns, Friðsteins Jóns- sonar veitingamanns, og gert það á þann hátt að þangað þykir öllum gott að koma. Það er mikill hugur í þeim hjónum að bæta allar aðstæð- ur á Búðum. Og nú í sumar hefur verið byggð þar við hús ið ný álma, auk þess sem anddyri og snyrtiherbergi hafa verið gerð upp og nýjum bætt við og gamla húsið mál- að og snyrt. Viðbótarbygg- ingin var tekin í notkun á föstudag, en þá var blaða- mönnum boðið vestur til að skoða hana og fagna góðu og skjótunnu verki með þeim hjónum, arkitektinum Hall- dóri Hjálmarssyni og iðnaðar- mönnum þeim, sem unnu verkið. Miðhlutinn af hótelbygging- unni er gamalt hús, jafnvel talið að það sé 148 ára gamalt. Það var á sínum tíma íbúðar- hús Finnboga Lárussonar, sem rak útgerð, verzlun og búskap á Búðum meðan þar var um- svifamestur staður á þessum slóðum. Síðan farið var að reka þar gistihús hefur verið byggt ofan á og við húsið. Frá Búðum á Snæfellsnesi. Félag Snæfellinga og Hnapp- dæla reyndi að halda þar uppi gistihúsrekstri. Og þegar leit út fyrir að það ætlaði ekki að ganga, tóku nokkrir snæfellsk ir athafnamenn sig saman, mynduðu hlutafélagið Hótel Búðir og fengu Lóu og Frið- stein til að taka hótelið að sér. við hótelið. — Þar eru 10 tveggja manna herbergi, snyrtiherbergi, steypiböð og ný setustofa. — Herberg- in eru björt og snotur með fallegum teakhúsgögnum. Og. úr setustofunni, sem er með stórum gluggum, blasir við bæði Snæfellsjökull og árós- Halldór Hjálmarsson, arkitekt, Lóa Kristjánsdóttir og Frið'- steinn Jónsson. Lóa er Snæfellingur, frá Dals- mynni í Eyjahreppi, og ber hag staðarins ekki síður fyrir brjósti en aðrir af því nesi. í ræðum, sem fluttar voru við vígsluhátíð nýju byggingarinn ar, var oft minnzt á að hún hlyti að hafa fengið talsverð- an skammt af hinni frægu snæfellsku „þrjósku“ í vöggu- gjöf. Annars hefði ekki verið stækkað svo á Búðum og hald ið svo vel í horfinu, sem raun ber vitni. Nýja álman er austan megin inn, sem er svo mikil prýði á Búðum. Þessi álma er tengd gamla húsinu bæði um matsal inn og anddyrið, sem er einn- ig upp gert og ber mikið á viði þar úti og inni. Bygging þessa húss hefur aðeins tekið 40 daga, og hefði mátt draga 10 daga þar frá, ef ekki hefðu verið verkföll í Reykjavík annan hvern dag þegar mest á reið. Þeir voru ekki komnir til að sofa á sunnudögum vest- ur á Snæfellsnesi iðnaðar- mennirnir, sem til þessa verks Sigríður Ingimundardóttir liiinningarorð A VEGAMÓTUM lífs og dauða þegar við kveðjum kæra vin- konu og mágkonu er margs að tninnast og margt að þakka. Sigríður giftist ung bróður mínum, Emil Berndsen — og þar af leiðandi áttum við marga ánægjustund saman og líka sorg arstundir, því Emil sálugi varð ekki langlífur. Þau voru gefin saman 22. júní 1933 og hann lézt 11. janúar 1939, svo árin voru fá, sem þeim auðnaðist saman að vera, því síðasta árið var hann á sjúkrahúsi sárþjáður. Þau ár voru Sigríði skiljanlega mjög erf ið — sjálf var hún ekki heilsu- hraust og hafði fyrir ungu barni þeirra að sjá. Allt þetta bar hún með stakri hugprýði og þolin- mæði, og þar við bættist að efn- in voru ekki mikil, og því oft úr litlu að spila. En þrátt fyrir allt lét hún aldrei bugast. Það var ávallt ánægjulegt að heimsækja Sigríði, hún hafði svo sérstaka ánægju af að taka á móti vinum sínum. Árið 1945, 21. júlí giftist hún eftirlifandi manni sínum Guð- jóni Eyjólfssyni, ágætis dugnað- armanni, sem reyndist syni henn ar sem bezti faðir. Var hjóna- band þeirra mjög til fyrirmynd- ar. Hann lét heldur ekki sitt eftir liggja að gera heimilið vist legt og skemmtilegt að heim- sækja. Þrátt fyrir að síðustu ár in væri heilsa hennar alveg að þrotum komin, lét hún ekki bug ast, heldur brosti í gegnum tárin. Hún andaðist 21. júlí á 20 ára giftingardegi hennar og Guðjóns, brúðkaupsdagurinn varð minnis stæður, honum verður fagnað seinna. Synir hennar tveir, Birgir Berndsen og Rúnar Emil Guð- jónsson, syrgja hana ásamt eig- inmanni hennar og biðjum við þeim blessunar guðs í sorginni. Við hjónin kveðjum þig með hjartans þökk fyrir samfylgdina. Drottinn veiti þér eilífa hvíld og láti hið eilífa ljós lýsa þér. Mágur «c vinur. Aflkomubátar landa hér síld Akranesi, 23. júlí. TVEIR aðkomubátar lönduðu hér í dag síld, Bergur frá Vest- mannaeyjum 1000 tunnum og Sigfús Bergmann frá Grindavík 780 tunnum. Síldin fór í bræðslu. Fiskaskagi landaði i dag 680 kg. af humar og 3 flýðrum, sem samtals vógu 180 kg. Svanur landaði 600 kg. af humar og Reynir 500 kg. Hvor hinna tveggja síðartöldu höfðu 4,5 tonn af fiski. Þilfarstrillan Haddur kom í morgun og landaði 8 tonnunít af færafiski, skakaði vestur á Breiðafirði, 5 manna áhöfn. — Oddur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.