Morgunblaðið - 28.07.1965, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.07.1965, Blaðsíða 2
MORGUN*' ***IÐ MiðviTojdagur 28. Júlí 1965 Bí’slys í Ljósa- vatnshreppi yr Akureyri, 27. júlí. VW-bíll frá Reykjavík gjör- iónýttist í dag, er hann ók á Ibrúarstöpul við Djúpá í Ljósa- vatnshreppi nokkru eftir hádegi. Færri kokteiSboð London, 27. júlí (AF). IÞEKKTUR brezkur læknir, sir George McRcibert, hefur lagt til að allar þjóðir sameinist um einn þjóðhátíðadag. Tilgangur- inn með þessari tillögu er að fækka þjóðhátíðadögum og þar af leiðandi boðum til síðdegis- drykkju, sem lseknirinn segir að fari illa með heilsu ■ sendiráðs- manna og annarra diplómatá. Sir George bendir á þetta í foréfi, sem hann ritaði brezka folaðinu „The Times“. Segir hann að fréttamenn hafi verið sam- mála um að Adlai Stevenson, sem nýlega lézt í London, hafi þjáðst af því að þurfa að sækja of margar veizlur. „Hann þoldi auðveldlega fundarseturnar og viðræðurnar, en ekki þessi si- felldu kokteilboð", segir sir Ge- orge. Og hann bendir á að í London séu nú starfandi um sex þúsund fulltrúar erlendra ríkja, og hver þeirra boðinn að meðal tali í tvær veizlur á dag. Það er ekki óalgengt að sami maður inn fái 10—12 heimboð sama daginn. Tveir menn, sem í bilnum voru, hlutu nokkur meiðsli, en litil telpa slapp ómeidd. Billinn hafði farið frá Akur- eyri í morgun á austurleið og í honum tveir karlmenn, þrjár konur og fimm ára teipa. Þegar komið var austur úr Ljósavatns skarði, bilaði þakgrmd á bíln- um, og var þá ákveðið að snúa við til Akureyrar, til þess að fá hana lagfærða eða kaupa nýja. Urðu konurnar þrjár eftir og ætluðu að bíða þarna í móanum í góða veðrinu. .Karlmennirnir tveir og litla stúlkan fóru hins vegar í bílnum. Ekki- höfðu þau farið nema nokkra tugi metra, þegar komið var að Djúpá. Austan við hana er hóll, og beygir vegurinn á háhólnum og liggur niður stutta brekku að brúnni. Staðurinn er viðsjárverður ókunnugum, og þarna hafa oft orðið bílslys. Á hólnum eða í. brekkunni ofan að brúnni missti ökumaður vald á bílnum, sem rann til-'-á veg- inum, skall út í brúarstólpann með vinstri hlið aftanverða síðan aftur yfir í handriðið hægra megin og stöðvaðist á miðri fcrúnni. Höggið var geysimikið, og er bíllinn allur tættur og tabnn ónýtur. Ökumaður hlaut heilahristing og skrámur og var flutíur í sjúkrahús á Akureyri. Féiagi hans fékk einmg höfuð- högg og minni háttar áverka, en telpan slapp ómeidd. — Sv. P. Ágæff veður en lítil sáld eystra ÓHAGSTÆTT veður var á sildarmiðunum undan Austfjörð um og Suðausturlandi fram eft’ir a’ðfaranótt þriðjudags. Þá fór veð ur að batna, og var komið gott veður í gærmorgun. I gærmorg- un var ekki kunnugt um afla nema eins skips. Hafði Gullberg NS fengið 1300 mál við Hrollaugs eyjar. Einnig varð vart við síld nálægt Tvískerjum, sem eru á milli Hrollaugseyja og Ingólfs- höfða. ( Farið yfir Þrö>skuld milli Þjófadala og Hveravalla. Ferðafélagar munu fara norður þessa leið, j gegnt því, sem lestareiðin kemur. llrðu að fara norðan Vonarskarðs Ferð hestamanna frá Austurlandi norðan Vatnajökuls E I N S og frá hefur verið skýrt hér í blaðinu, eru ferðamenn á leiðinni frá Egilsstöðum suður milli Vatnajökuls og Hofsjökuls og ætla sömu leið og Árni Odsson fór forðum einhesta til Þingvalla. Nú lögðu ferðamennirnir upp með 25 hesta og voru 5 saman. Síðast, er til fréttist voru þeir komnir vestur yfir Kverk á og á leið til Hvannalinda. í gær átti Mbl. tal við Sverri Scheving Thorsteins- son, sem er einn af þeim ferða félögum. Samtalið átti sér stað kl. rúml. 21.00, og voru hestamennirnir þá að koma að bækistöð skíðamanna í Kerl- ingafj öllum. Þeir hestamenn höfðu þá ver ið í Nauthaga í fyrrinótt og haft þangað sæmilega góða ferð. Þeir urðu að halda norð ur í Ódáðahraun til að kom- ast fyrir kvíslar Jökulsár á Fjöllum, sem féll úr Vatna- jökli í 50 kvíslum, svo að hefir ekki verið um neitt smá vatn að ræða. Leiðin vestur um Vonarskarð var þvx von- laus og héldu þeir félagar norður fyrir Tungnafellsjökul og í Jökuldal og Gæsavötn. Þaðan var haldið í Nauthaga undir Hofsjökli og síðan í Kerlingafjöil, þar sem blaðið náði sambandi við þá í gær- kvöldi. Ferðin hafði gengið vel ut- an það, að þeir félagar höfðu misst frá sér þrjá hesta * í Hvannalindum, sem fram komu síðar að Brú á Jökuldal. Á leið sinni vestur með Vatnajöfcli fengu þeir einn heybagga við Urðarháls, en 4 bagga í Jökuldal, og var það heyfóðri'ð fyrir 21 hest úr Hvannalindum í Nauthaga. í gærkvöldi hugðust þeir félagar halda í Þjófadali, en þar eru góðir hagar, síðan norðan Langjökuls í Fljóts- drög, niður að Arnarvatni, í Álftakrók og að Kalmans- tungu. Þar hyggjast þeir vera eftir 2—3 daga. I gær var ágætt veður fyrir Austurlandi. Nokkrir bátar voru þá um 120 sjómílur austur af Langanesi, en þar lóðaði Hafrún ÍS á smátorfur og fékk nokkrar torfur af gó'ðri síld. Síldin var mjög stygg og dreifðist fljótt. Manila, 27. júlí (NTB). — Fundizt hefur brak flutninga- flugvélar, - sem saknað hefur verið frá því á sunnudag. Var þetta vél af gerðinni C-47, og fannst brakið efst uppi í fjalls tindi um 400 kílómetra fyrir suðaustan Manila. Ekkert lífs- mark var að sjá hjá brakinu, en með vélinni voru 36 manns, þeirra á meðal fjögur börn. SKULI SKULASON, ritstjóri, varð 75 ára í gær. Mikili fjöldi fólks heimsótti hann og konu hans, þar sem þau dvelj- ast nú um si'nn á heimili dótt- ur og tengdasonar, en þau . hjón hafa átt heimili í Noregi* . síðan 1936. Afmæliskveðjur Íbárxist Skúla víða að. Skúli Skúlason var fyrir mörgum árum kjörinn heið- ursfélagi í Blaðamannafélagi íslands, en fyrir það félag og fyrir samtök blaðamanna hef- ur hann unnið ómetanleg störf. Brot af því rifjaði sr. Emil Björnsson, form. Blaða- mannafélagsins upp í ræðu, er hann hélt þeg- ar stjórn B. 1. heimsótti af- mælisbarnið í gærmorgun. Við það tækifæri var myndin tekin. Á henni eru frá vinstri: ívar H. Jónsson, sr. Emil Björnsson, form. B.Í., Skúli skúlason, Bjarni Guðmunds- >on, blaðafulltrúi, Tómas Karlsson og Atli Steinarsson. Breytlngum í 99Þorstelni Þorskabít64 að Ijúka EINS og kunnugt er af fyrri hvert skipið verður síðan sent. fréttum, er nú verið að gera Fer það að sjálfsögðu eftir því, breytingar um borð í bv Þorsteini hvar síldin vefðist, og hefur jafn- aðrSv,anbítf.mf- Ve' komið U1 tals að ^nda pað á að hann flytjx ísvarða soltpnar- .... ._ TT. ,,, , . síld af miðum eystra til hafna á miðln vlli Hjaltland, ef áfram- Norðurlandi. Verkinu er nú að kal<1 verður á veiðum þar og úld Ijúka, en ekki er enn afráðið, in verður söltunarhæf. Bankarán í Svíþjóð Stokkhólmi, 27. júlí (NTB). EITT mesta bankarán Sviþjóðar var framið í Stokkhólmi í morg- un. Komst þjófurinn undan með um 560 þúsund sænskar krómur (um 4,7 millj. ísl. kr.) frá útibúi Göteborgsbanken í höfuðborg- inni. Þjófurinn var einn af viðskipa- vinum bankans, sem hafði fyrir nokkru tekið bankahólf á leigu undir nafninu Claus Bourgeau, en það er bersýnilega tökunafn. Hann kom í bankann snemma í morgun, og kvaðst þurfa að kom- ast í bankahólf sitt í sérstakri hvelfingu niðri í bankanum. Kona, sem er einn af gjaldkerum bankaútibúsins, fylgdi mannin- um niður, en skildi hann svojxar eftir. Skömmu seinna fór svo gjaldkerinn niður í hverfinguna til að ná í peningakassa ,sinn þar, en þá var gesturinn horfinn og kassinn einnig. í honum voru um 650 þúsund sænskar krónur í peningum, en þjófurinn hafði skilið eftir nokkra útlenda pen- ingaseðla, sem hann virtist ekki hafa kært sig um að hirða. Starfsmenn bankaútibúsins gátu gefið lögreglunni góða lýs- ingu á þjófnum, en hann hafði dulbúið sig, svo ekki er a8 vita að hvaða gagni lýsingin kemur. Hann talaði ágæta sænsku, en með útlendum hreim, sem gæti bent til að maðurinn sé dansk- ur. Einnig getur verið að maður- inn hafi gert sér upp þennan út- lenda hreim. Þjófurinn mun vera 30—35 ára, 180—185 sentímetra hár og með stuttklippt, dökk- brúnt hár. Hann var með yfir- skegg og barta, sem hvorttveggja gæti verið gervi. Hann bar glófa á höndum, og skildi því ekki eftit nein fingraför. Dráttarvél og tengivagni stolið f GÆR var lýst í útvarpi eftir dráttarvél og átta metra löngum tengivagni, sem stolið hafði verið nóttina áður inni í Bolholti. Vél- in og vagninn fundust svo um hádegið fyrir utan mjölgeymsl- una hjá Köllunarkletti, og virtist hvort tveggja óskemmt. Mun einhver hafa brugðið sér á far- artækjunum milli bæja um nótt- ina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.