Morgunblaðið - 28.07.1965, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.07.1965, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLADID Miðvikuctagur 28. júlí 1965 f gó’ða veðrinu á föstudag- inn brugðum við okkur i Skólagarða Reykjavíkur til þess að rabba við krakka, er þar vinna. Þetta var rétt um hádegið og sólin haest á lofti, steikjandi hiti og logn. Krakkarnir voru misfljótir, eins og gengur að tínast úr mat, enda ekki skylda að sækja garðana eins og skóla eða vinnu. Það bar þe$s vegna vel í vei'ði, því að við vor- um einmitt í leit að dugleg- um og áhugasömum krökk- um. Þegar við gengum niður Bræðurnir Bryngeir Guðjón og Yiðar Guðmundssynir. Yngstu skólakrakkarnir aö leik og starfi sem heitir Helgi, honum finnst svo gott blöðrukál, að hann settist einu sinni nið- ur hjá mér og byrjaði að borða. — >ú hefur víst ekki verið hrifinn af því? — Nei ekkert mjög, segir hann um leið og vi'ð kveðjum þá bræður. — Við höldum nú norðar í garðinn og hittum þar tvær litlar stöllur sem eru að raka með hrífum. — Hvað heitið þið?, spyrj- um við. — Steinunn Árnadóttir, segir 11 ára yngismær. — Ertu búin að vera hér lengi? — Já, ég var hér líka í fyrra, segir hún um leið og vinkonu hennar ber áð. Hún segist heita Björg Sveinsdótt- ir, og vera 9 ára, en þetta er fyrsta árið hennar í görðun-e um. — Hvað ertu að gera manni? segir all snaggaraleg- ur strákur, sem seglst heita Halldór Kolbeinsson. — Hvað kostar þessi mynda vél?, heldur hann áfram fulil- ur áhuga. Þegar hann hefur fengið svar við spurningu sinni, rek- Heimsókn I skólagarða Rvíkur í garðinn, en hann er í slakk- anum fyrir neðan Hringbraut ina á móts við Landsspítalann, hittum við fyrst að máli tvær unglingsstúlkur þær Aníku Berndsen og Þuríði Davíðs- dóttur. — Eruð þið verkstýrur hér?, spyrjum við. — Já, segja þær og brosa af nafngiftinni. — Og er ekki gaman áð fást við börnin?, höldum við áfram. — Jú, jú, segja þær báðar. — Þurfið þið ekki að vera heilmiklar mömrnur við þessi litlu grey?, spyrjum við, en þær brosa bara. — Það er gaman að þessu, er það ékki?, spyrjum við enn. — Jú, þegar gott er veður eins og í dag, segir Aníka. — Eru krakkarnir ekki allt af þægir? segjum vi’ð. — Stundum geta nú strák- arnir verið anzi erfiðir, segir Þuríður og kímir. — En þegar rignir, ekki eruð þið þá hér? — Nei, þá við rekurn krakkana heim, en vinnum þá sjálfar inni við, við ýmis störf. * — Mæta krakkarnir vel?, spyrjum við. * — Það er nú misjafnt, sum- ir mæta daglega, aðrir ver, segir Þuríður um leið og vi’ð snúum okkur að lítilli hnátu, sem situr á stórri fötu og er að lú reitinn sinn. — Hvað heitir þú, litla mín?, segjum við. — Sigríður Magnea Njáls- dóttir, segir hún og lítur upp. — Hvað ræktar þú?, spyrj- um við. — Salat, spínat og radísur, segir hún og heldur áfram að lú. — Ætlarðu svo að borða alla uppskeruna? Stöllurnar Björg Sveinsdóttir og Steinunn Árnadóttir. ■ Jóann Kristjánsson, Stefán Ingi Guðmundsson, Halldór Kol- beinsson og Pálmar Wium. — Ég veit þáð ekki, segir hún og lítur niður í feimni. Þær Aníka og Þuríður standa þarna skammt frá og nú kemur skyndilega lítill kútur hlaupandi, angistarfull- ur á svip. — Aníka, það er dáið hjá miér kornblóm, segir hann mæddur. — Það var leiðinJegt, segir Aníka,- og svo flýtum við okk- ur á vettvang, til þess að huga að hinu dauða blómi. — Æ, hvað það var leiðin- legt, segir Aníka og vi’ð tök- um 0*11 undir það, er við sjá- um dauða blómið. — Það var lifandi í gær, segir eigandinn Viðar Guð- mundsson og stumrar. yfir blóminu. — Þetta er allt í lagi, segir þá enn minni snáði, sem reyn- ist bróðir Viðars og heitir Bryngeir Guðjón. Hann á reit við hliðina- á bró’ður sínum og þeir segjast hjálpast að við ræktunina. — Finnst ykkur gott kál?, spyrjum við. — Já, já, en vinur minn, ur hann upp stór áugu og horfir lotningarfullur ■ á myndavélina. — Vaá, segir hann, ég á bara eina á fjögur hundruð. Og nú kemur kunningi Halldórs með hreðkur í poka og vill endilega bjóða okk- Sigríður Magnea Njálsdóttir áð lú garðinn sinn. ur eina. Hann segist heita Stefán Ingi Guðmundsson. — Eru þær ekki beizkar? spyrjum við. — Þær eru vóða góðar segir Stefán og tyggur í ákafa. — Mínar eru stærri, segir strákur, sem heitir Jóhann Kristjánsson og Pálmar Wi- um samsinnir honura. — Sumir selja uppskeruna 1 búðir, segir Halldór, en ég et alla mína. — Finnst ykkur ekki gaman að hafa stelpurnar svona í námunda við ykkur?, spyrj- um við og lítum til stelpn- anna, sem staðið hafa þar skammt frá. — Nei, þær trufla bara vinnugleðina, segir Halldór og tvístígur borginmannlega. — Ætlið þið ekki að svara þessu, stelpur, segjum við. — Nei, segja þær ákveðnar. Þeim finnst þetta augsýnilega ekki svaravert. — í dag ætlum við að lú og taka upp. Við þurfum ekki að vökva, því að það ringdi svo mikið í nótt, segir Hall- dór um leið og við göngum burt. Það er svo sannarlega ó- maksins vert að stanza stund- arkorn í Skólgörðum Reykja- víkur og sjá, hve krakkarnir njóta vinnunnar sem þeim er veitt tækifæri á að fá þar. Það lá vi’ð að við vildum vera orðnir litlir aftur og mega annast þar blómgaðan jurta- garð. Verkstýrurnar Anika Berndsen og Þuríður Daviðsdóttir. Bnrna- og Mlðsko'li Hverogerði BARNA- og Mi’ðskólanum í Hveragerði var slitið laugardag- inn 29. maí s.l. Skólastjórinn, Valgarð Runólfsson, flutti skóla- slitaræðuna og sr. Sig. K. G. Sigurðsson, sem var prófdómari við barna- og unglingaprófið, naælti nokkur orð til nemenda. S.l. vetur stunduðu 247 nem- endur nóm við skólann, 170 við barnaskólann og 77 við miðskól- ann. Starfsdagar í mi’ðskóla voru 182 en 152 í barnaskólanum. - Hæstu einkunn á barnaprófinu hlaut Lilja Ruth Michelsen, 9,10 Önnur varð Guðrún Eiðsdóttir með 8.87 og þriðja varð Ingi- björg Björnsdóttir með . 8.62. Á unglingaprófinu varð Hall- dór Gunnarsson hæstur með 9.05, Auður Aðalsteinsdótfir hlaut 8,66 og Gerður Helgadóttir 8,41. Hæsta einkunnin yfir allan skólann varð áð þessu sinni 9,57, en hana hiaut Ester Hjartardótt- ir í I. bekk miðskólans. Undir almennt miðsikólaþróf III. bekkjar gengu 11 nemend- ur og stóðust allir. Undir landspróf miðskóla gengu 10 nemendur og stóðust 9 þeirra prófið, þar af fengu 7 framhaldseinkunnina 6 eða hærra. Fastir kennarar voru 10, stundakennarar frá áramótum 4, og forfalilakennarar 2. Alls störf- uðu því 16 kennarar vi’ð skólann s.l. vetur. Við sikólaslitin afhenti skóla- stjóri verðlaun þeim nemendum, sem skarað höfðu fram úr í nokkr um námsgreinum, en verðlaun- in gáfu félög og fyrirtæki í Hveragerði og Ölfusi. í skólaslitaræðu sinni greindi skólastjóri frá því, að skólanefnd in hefði þegar samþykkt, að IV. bekkur, Þ.e. gagnfræðadeild,ð verði starfræktur við skólann næsta vetur, ef leyfi fræðslumála stjórnarinnar fæst til þess.. Kennsilufyrirkomulag þeirrar deildar svo og III bekkj ar, þ.e. hinnar alm. miðskóladeildar, verður reynt að sámræma sem bezt kröfum verzlunardeilda Reykjavíkurskólanna. Utanhéraðsfólki, sem hyggst stunda nám við skóiann næsta vetur verður útvegað fæði oig húsnæði á einkaheimilum. Öllum umsækjendum um nám í III. og IV. bekk gagnfræða- stigsins er bent á að senda um- sóknir sínar sem fyrst til skóla- stjóra eða formanns skólanefnd ar. Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.