Morgunblaðið - 28.07.1965, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.07.1965, Blaðsíða 24
Lano jíærsta og íjolJbreytlasta blað londsins 168. tbl. — Miðvikudagur 28. júlí 1965 Helmingi 'útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað Óknyttir í land- legu á Norðfirði Neskaupstað, 27. júlí. ENGIN síld hefur borizt hing- að í nokkra daga, og sildarverk- cuniðjan hefur lokið við að bræða alla þá síld, sem þangað hafði toorizt. En þótt dauft sé yfir síldveið- unum, er nóg að gera í landi, afskipanir eru mjög örar, og í dag voru hér fjögur fluttninga- 6kip. í landlegunni undanfarið hafa legið hér mörg síldveiðiskip og mannskapurinn skemmt sér á kvöldin við dans og vin. Mikið hefur borið á ölvun, og lögreg'l- an hefur haft nóg áð starfa. Sum ir hafa viljað fá sér bað í sund- lauginni á nóttunni, synt þar um berir, en verið ónáðaðir af lög- reglunni og fengið fria gistingu í fangageymslunni. Aðrir hafa gerzt fingralangir, t.d. brauzt einn inn í prentsmiðj- una hér um daginn, og er starfs- menn hennar komu til vinnu sinnar kl. sjö næsta morgun, blasti við þeim ófögur sjón. Úti- hurð hafði verið sprengd upp, og er inn kom, sáu starfsmennirnir, hvar náungi einn lá þar víndauð ur með peningakassa fyrirtækis- ins í fanginu og skrúfjárn í hendi en hann hafði ekki haft þrek til þess að klára verkið. Þeir gerðu lögreglunni þegar aðvart, og fór hún með hinn víndauða mann. Ýmis önnur spellvirki hafa verið unnin hér að undanförnu. I nótt gerðist það, að ölóður ung- lingur gerði sér lítið fyrir og læddist um borð í einn síldarbát- inn, sem hér lá við bryggju. Fór hann í brú bátsins og réðist þar á ýmis tæki, svo sem ratsjá, dýpt armæJa, sjálfstýringu og asdic- tæki. Skemmdi hann öll þessi tæki mikið. Mun taka nokkurn tima að koma þeim í stand. Svona er nú lífið hér í síldinni um þessar mundir. Lögreglan er allt of fáliðuð, því að íbúatala bæjarins tvöfaldast eða jafnvel þrefaldast yfir síldartímann. — Á. 1>. Bárður Daníelsson, verkfræðingur, einn af eigendum vélarinnar, tekur á móti henni á Reykjavíkurflugvelli af J. Sacandy, amer- iska fiugmanninum, sem fluttihana til landsinis. Ný einkaflugvél af Mooney-gerð 1 FYRR.AKVÖLD fengu nokkrir islenzkir einkaflugmenn nýja fjögra sæta flugvél til landsins. Er hún af gerðinni Mooney Super 21, en hún er ein hinna vinsælustu meðal einkaflug- manna í Bandaríkjunum nú. — FJugvélin getur dregið upp hjól- in og hefur mikinn flughraða, Síldveiði undan Jökli AKRANESI, 27. júlí. — Vb. Ól- aíur Sigurðsson fékk 420 tunnur af síld í nótt vestur undir Jökli. Síldin var hraðfryst. Húni II. kom og með síld af vesturj^þð- um, 320 tunnur og landaði í bræðsiu. — Oddur. Suðurnesja- vegur fullgerður í september UM miðjan september verður lokið við að gera hinn nýja Suðurnesjaveg og gera á hann varanlegt slitlag. Hann verður 37 kílómetra langur; 33 km eru steyptir, en fjórir malbikaðir. Maibikaði kaflinn verður gerður síðast en hann nær frá Fitjum á milli Innri- og Ytri-Njarðvíkur og Keflavíkur. eða um 300 km á klst. Á henni er einn 200 hestafla hreyfill. Þetta er eina flugvélin af Mooney gerð, sem til er hér á ísiandi. Amerískur flugmaður, J. Sac- andy flaug véiinni til ísiands um St. Pierre á Nýfundnaiandi. Flug vélin var búin aukatönkum undir eldsneyti og hafði um 20 klst. flugþol. Flugtíminn til Reykja- víkur frá St. Pierre var 10.50 klst. UNDANFARIÐ hafa staðið yfir framkvæmdir við nýtt hús hjá sundiauginni í Hveragerði. Er það steinhús með búningsklefum, baðí og fleiru. Frágangi er ekki alveg lokið, en samt er synt af krafti. (I.jósm. ]\1bl. Georg) Síldveiðin vlð Hjaltland Sterlingspundið komið í 140 krónur í Leirvik MORGUNBLAÐIÐ átti í g ær- morgun tal við Tyyggva Gunn- arsson, skipstjóra á vélbátnum Sigurði Bjarnasyni frá Akureyri, sem er á síldarmiðunum við Hjaltiand ásamt um 25 öðrum ís- lenzkum skipum. Kvað hann bezta veður hafa verið undan- farinn sólarhring, en búið að spá 5 til 6 vindstigum og nokkuð far- ið að hvessa þegar. Gjðldheimtu- skráin á föstudag GJALDHEIMTUSKRÁIN í Reykjavík („skattskráin") kemur út á föstudagsmorgun. Þar eru skráð öll opinber gjöld Reykvikinga, en þau eru nú fimmtán talsins. Eitt hef- ur bætzt við síðan í fyrra; er það launaskattur, sem at- vinnurekendur greiða. I fyrrinótt voru íslenzku skip- in meðal norskra, franskra og hollenzkra skipa á víð og dreíf um 16 til 30 mílur SSA af Leir- vík á Hjaltlandi. Á 2. hundrað norskir bátar eru þarna að veið- um að sögn Tryggva. í GÆR færðu íslenzku skipin sig og voru þá út af fyrir sig um 15 til 18 mílur SV af Leir- vík. Voru þau að veiðum en ekki var Tryggva kunnugt um aflann, þegar samtalið fór fram. Hins vegar höfðu skip fengið afla um nóttina og var verið að fylla síld- arflutningaskipið Polana. Átti að fara að lesta Dagstjörnuna. SKIPIN, sem fengu afla undan Hjaltlandi frá mánudagsmorgni til þriðjudagsmorguns, voru þessi (aflinn í málum); Snæfell i V 1200, Helga Guðmundsdóttir I V 1000, Jón Kjartansson SU 1100, Rifsnes RE 700, Þórður Jón asson EA 1000, Sólrún ÍS 500, Lómur KE 500, Sigurður Bjarna- son EA 400, Garðar GK 700, Jör- undur II. RE 600 og Heimir 400. Auk þess hafði Siglfirðingur SI fengið einhverja veiði. TRYGGVI kvað íslendinga hafa komið öðru hverju til Leir- víkur í brælunni undanfarna daga. Þeir hefðu ekki haft með- I sér brezkan gjaldeyri, svo að þeir urðu að fá íslenzkum krónum skipt í sterlingspund í Leirvík. Fyrst kvað Tryggvi sterlings- pundið hafa verið selt á 122 ísL krónur, en nú væru Hjaltlend- ingar teknir að hækka verðið, svo að pundið gengi nú á 140 krónur. íslendingarnir þyrftu því að fara að fá gjaldeyri að heim- an, ef vel ætti að vera. Sprengisandsleið færö til vegna villu mælingamanna í fyrra? Hellu, 27. júlí. I GÆR kom hingað veghefiil og flokkur vegagerðarmanna af Holtamannaafrétti, en þar unnu þeir að vegagerð. Hefl- aður og lagfærður var vegur frá kláfferjunni á Tungnaá inn Búðarháls, austan Kjalvatna, vestan við llugaver, yfir Þver öidu, austan við Svartárbotna og norður fyrir Skrokköldu. Leiðin, sem hefluð var, er 82 kílómetrar frá kláfferjunni. ' Vegur þessi liggur mun austar en hin forna Sprengi- sandsleið, en hún iiggur vest- an við Kjalvötn, inn með Þjórsá, um Þúfuver og Eyvind arhreysi, móts við Sóleyjar- höfða og Biskupsþúfu. Margir eru óánægðir með að Sprengi sandsleið var ekki lagfærð, því að hún er eftirsótt af ferðamönnum. Ástæða fyrir þessu er mér sögð sú, að vegagerðarmenn að norðan, er áttu að merkja Sprengisandsleið í fyrrasum- ar, viiltust af réttri leið, en stikur þeirra síðan þá voru látnar ráða staðsetningu veg- arins. Þykir mönnum það kynd- ugt fyrirbæri, að villa vega- gerðarmanna skuli vera látin ráða því, að ekki var lagfærð hin aldagamla Sprengisands- leið, þar sem kunnugir telja, að hún sé bæði fallegri og greiðfærari en hinn nýi viilu- mannavegur. — J.Þ. Bráðkvaddur á viiinustað Akranesi, 27. júlí: — JÓN Guðmundsson, trésmíða- meistari, Kirkjubraut 23, varð bráðkvaddur í morgun, er hann var nýkominn á vinnústað. Hann var á 58. aldursári (fæddur 24. desember 1907). Jón var kunnur athafnamaður og hamhleypa til vinnu. Hann lætur eftir sig konu og fimm börn. — Oddur. Sáttafund r FUNDUR sá, sem sáttasemjari hóf með aðiljum deilunnar um kaup og kjör farmanna klukkan 14 á mánudag, stóð til Iklukkan þrjú á þriðjudagsmorgun, án þess að árangur næðist. Annar fundur hafði ekki verið boðaður i gær. Sáttasemjari hafði boðað fund með aðiljum vinnudeilunnar í Vestmannaeyjum kl. 15 í gær. Ekkert varð af fundinum, þar eð fulltrúar verkalýðsfélaganna í Eyjum mættu ekki til fundar. Annar fundur hefur verið boðað- ur kl. 14 í dag. í dag kl. 17 hefur sáttasemjari boðað fund með byggingariðn- aðarmönnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.