Morgunblaðið - 13.08.1965, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.08.1965, Blaðsíða 12
MORCUNBLAÐIÐ Föstudagur 13. ágúst 1965 FRUMHLAUP GRIKKJAKUNUHGS KBEPPA sú, sem Konstantín Grikkjakonungur hefur leitt yfir þjóð sína með þeirri ákvörðun að víkja Papan- dreou, forsætisráðherra, frá störfum, var óþörf. Þó var ekki um óviljaverk að ræða af hálfu konungs. Papandreou var í góðri að- stöðu til að stjóna landiny, og engin ástæða er til að efast um, að hann hefði ekki getað bælt niður sanosæri vinstri manna innan hersins og sam- særi hægri manna, sem notað var sem ástæða til að víkja honum frá. Brottvikning Papandreou einkenndist af ábyrgðarleysi, því að stjórn hans var allt annað en öfgasinnuð, og túlk aði vilja meirihluta Grikkja, án þess að skipta sér of mikið af öfgasinnum til hægri og vinstri. Almenningur í Grikklandi lætur stjórnmál mjög til sín taka, eins og forfeður þeirra. í»essi áhugi er hluti af lífs- viðhorfi Grikkja, sem_er þjóð góðum gáfum búin. Þessi sér- staki áhugi fyrir stjórnmálum er þó ekki með öllu hættu- laus, ekki sízt nú þegar allir minnast enn borgarastyrjaldar innar, sem geisaði í Grikk-" landi eftir síðari heimsstyrj- öldina. Papandreou hélt ein- ingu meðal þjóðar sinnar, og hafði unnið gott starf. Það athyglisverðasta við brottvikninguna var hve heimskuleg hún var, því að þar var gengið í berhögg við vilja meirihluta þjóðarinnar. Konungsdæmið er ekki gam- alt í Grikklandi, aðeins 132 ára. Þá er þetta í fimmta skipti, sem krúnan snýst gegn þjóðinni, og afleiðingarnar nú eru þær sömu og í fjögur Papandreou (t.v.); Konstantín konungur og Anne Marie drottninig. Myndin er tekin við skirn skips, skömmu áður en Anne Marie ól manni sinum bam. Nokkru seinna krafðist konungur þess, að Papandreou segði af sér, og skipaði Novas í embætti hans. eftir Arnold Toynbee fyrri skiptin. Atburðarásin er alltaf söm. 1 upphafi leitar krúnan til upp burðarlítilla manna, sem njóta stuðnings minnihluta þjóðar- innar, og þannig tekst um stund að kúga vilja meirihlut- ans. Þó kemur óhjákvæmilega að því, þegar svo virðist, að krúnunni hafi tekizt að koma fram vilja sínum, að spreng- ing verður á stjórnmálasvið- inu, og almenningur kemur vilja sínum fram. Það er furðulegt, þegar fyrri dæmi eru höfð í huga, og þær við- varanir, sem þau fela í sér, að krúnan skuli „ekkert hafa lært, og engu gleymt". Fyrsti konungur Grikkja, Otto, fékk tækifæri til að stjórna á friðsamlegan hátt eftir byltinguna 1843—44, en þó varð hann að fara frá í byltingunni 1860—62. Hann hafði sér þó til afsökunar, að hann lifði á tímum nýrra stjórnarhátta, sem fylgdu í kjölfar frönsku stjórnarbylt- ingarinnar. Eftirkomandi Ottos, Georg konungur, sem var af dönsku bergi brotinn, lét sér fyrri reynslu að irénningu verða. Hann var við völd í hálfa öld, reyndi ekki að kúga vilja þjóðarinnar, og varð því ekki fyrir neinum skakkaföllum. (Hörmulegur dauðdagi hans — hann var ráðinn af dögum — eftir sigur Grikklands yfir Tyrklandi í Balkanstríðinu, átti ekkert skylt við stjórn- málaöngþveiti. Morðinginn réð hann af dögum af persónu legum ástæðum, sem reyndar áttu ekki við nein rök að styðjast). Það er því þeim mun einkennilegra, að sonur Georgs konungs, Konstantín I skyldi ekki hafa lært af reynsl unni, ekki reynslu föður síns, heldur reynslu Ottos. Konstantín I gékk í berhögg við vilja leiðtoga grísku þjóð- arinnar, Eleftherios Venizelos, tvisvar sinnum. Fyrst 1014— ’16, og aftur 1020—’22. í bæði skiptin urðu afleiðingarnar jafn slæmar fyrir krúnuna. Því miður leiddi þetta einnig í. bæði skiptin til hörmunga fyrir grísku þjóðina. Elzti son ur hans, Georg II, varð að lifa í útlegð á árunura 1023— 1935, en til lýðveldis var stofn að þann tíma. Aftur varðjiann að fara í útlegð 1941—’46. Það vildi svo til, að ég var staddur í Grikklandi frá 11. júlí til 1. ágúst. Eina viku dvaldist ég á grísku eyjunum, Og aðra viku í Aþenu. óróinn á stjórnmálasviðinu gat ekki farið fram hjá neinum. Ferða mannastraumurinn var í há- marki, í Þessalíu var kornupp skerunni nýlokið. Á himni stjórnmálanna var þó ófriðar- blika, og reynslan benti til þess, að deila sú, sem risin var, myndi aðeins fá einn endi. Á meðan Papandreou var við völd, hafði lögreglunni verið haldið í skefjum. Ég var í Aþenu, þegar lögreglan lét til skarar skríða gegn stúd- entum, og það var ekki skemmtilegt á að líta. Lög- reglumennirnir virtust una sér illa, en þó hafa fullan hug á því að láta til sín taka. Þeir virtust óvopnaðir, en reyndust þó allir bera gúm- kylfur innan klæða. Grikkir meta frelsið, því að þeir hafa oft misst það. Þeir hafa þjáðst undir áþján er- lendra þjóða, sem herleitt hafa þá — Tyrkja, ítala og Þjóðverja. Hverju sinni hafa þeir endurheimt frelsið með miklum fórnum. Þessar fórn- ir hafa þeir ekki fært til þess að glata frelsinu í hendur eig in ráðamanna. Þótt mikil ó- vissa ríki nú um framtíð Grikklands, þá virðist óhætt að spá því, að til þess komi, fyrr eða síðar, að gríska þjóð- in fái þeim vilja sínum fram- gengt að verða herra í sínu eigin húsi. Sérhver, sem reyn- ir að svipta hana þeim rétti, verður að gera það á eigin ábyrgð. (Observer — öll réttindi áskilin). Almenningur mótmælir skipun Novas í embættl forsætisráð- herra, eftir brottvikningu Papandreou. Novas studdist við minnihluta, en varð að fara frá eftir stuttan tima. Uppboð Uppboð verður haldið í samkomuhúsinu (Krossin- um), Ytri-Njarðvík, laugardaginn 14. þ.m. og hefst kL 2 e.h. Seldar verða m. a. ýmiss konar skrautvörur, postulín, borðbúnaður, fatnaður, leikföng og notuð verzlunar-innrétting. Greiðsla við hamarshögg. Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli, 10. ágúst 1065 Björn Ingvargkv. Mý verzlun á Hvamms- tanga NÝ verzlun er tekin til starfa á Hvammstanga og hóf hún starfsemi sína síðastliðinn föstu dag. Það er SÍgurður Tryggva- son kaupmaður sem er eigandi verzlunarinnar. Ber hún nafn hans. Verzlunin sem hefur á boðstólum hvers konar matvör- ur, álna vörur og smávörur er í því sama verzlunarhúsi og Guð mundur Gunnarsson rak sína verzlun. ' Hefur Sigurður látið endurbaeta og endurnýja verzl- unarplássið. Sigurður var verzl- unarstjóri við verzlun Sigurðar Pálmasonar þar á Hvammstanga um sex ára skeið. Umboð Morgunblaðsins á Hvammstanga verður eftirleiðis í verzlun Sigurðar Tryggvason- ar, og hjá Sigurði Davíðssym svo sem verið hefur um langt ára- biL Matráðskona óskast vegna sumarleyfa. — Upplýsingar í síma 23851 eftir kl. 7. GUSTAF A. SVEINSSON liæstaréttarlögmaður Laufásvegi 8, Reykjavík. Magnús Thorlacius hæstaréttarlögmaður. Málflutningsskrifstofa. Aðalstræti 9. — Sími 1-1875.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.