Morgunblaðið - 09.12.1965, Blaðsíða 10
10
MORGU N BLAÐIÐ
Fimmtudagur 9. des. 1965
Hf utverk þeirra er að selja og
dreifa frystum fiski
á bandarískum markaði
Ross
félög í
fluttar í pokum til íslands til
stórskaða fyrir þjóðina. Hitt er
tiltölulega nýtt, að malaðar fóð-
urvörur séu fluttar á sama hátt.
Nú er orðið algengt, að mjöl úr
bómullarfræi, copra, smára o. s.
frv. sé flutt laust í skipum landa
á milli.
Til þess að hægt sé að flytja
malaðar fóðurvörur lausar í skip-
um, er nauðsynlegt að móta þær.
fyrst í harða köggla, til að forð-
ast að hitni í þeim í skipunum
eða við geymslu í landi.
Kögglarnir eru vanalega sívaln
ingar frá V2 til 2 cm langir og frá
4 til 13 mm í .þvermál. Kögglarn-
ir eru myndaðir í þar til gerðum
vélum við háan þrýsting. Til að
létta fyrir samloðnun kögglanna
er notuð gufa, svo að mjölið hitni
og vatnsinnihald þess aukist áður
en kögglarnir eru mótaðir. Það
vatn, sem þannig er bætt í mjöl-
ið, hverfur að mestu aftur við
kælingu kögglanna.
Ef fituinnihald mjölsins er
mjög mikið, vilja kögglarnir
stundum ekki loða nógu vel sam-
an og er oft bætt efni í mjölið
eins og t.d. Dura-Bond eða Orzan
til þess að bæta úr því.
íslenzkt síldarmjöl er stund-
um því miður nokkuð feitt og
vv óttast að kögglar úr því
myndu ekki loða saman, ef fitu-
innihald mjölsins væri meira en
9%. Þessi ótti er, sem betur fer,
ástæðulaus. Við tilraunir hefur
það sýnt sig, að heilmjöl loðir
vel saman í kögglum þótt fitu-
innihald þess sé hátt. Líklegt er
að soðkjarninn virki sem bindi-
efni. Næstum allt íslenzkt síldar-
mjöl er heilmjöl.
Síldarmjöl hefur ennþá ekki,
svo vitað sé til, verið flutt laust
í skipum landa á milli, en Perú
hefur hafið undirbúning að því.
Síldarverksmiðjur ríkisins sýndu
í ár þá lofsamlegu framtakssemi
að hefja í tilraunasky'ni fram-
leiðslu á kögglum úr síldarmjöli.
Eftirfarandi lauslegur útreikn-
ingur gefur hugmynd um, hvað
myndi sparast við að hætta að
setja mjölið í poka og í stað þess
flytja það laust í kögglum á mark
aðinn. Útreikningarnir eru mið-
aðir við verksmiðju, sem vinnur
Jón Gunnarsson
5000 mál á sólarhring og fær alls
200000 mál síldar af hráefni á
ári.
Sparnaður
Pokar um kr. 900000 00
Vinnulaun (við að
setja mjölið í poka
og stafla þeim) um — 3000000,00
Útskipun og farm-
gjöld um — 1500000,00
Kr. 5400000,00
kr. 80000,00
— , 130000,00
— 10000,00
— 90000,00
— 30000,00
Kr. 340000,00
Nettósp. á ári um kr. 5060000,00
Þegar mjölið er sett í köggla
Framhald á bls. 11.
Aukin útgjöld
Vextir af stofn-
kostnaðinum
Afskriftir
Viðhald
Bafmagn
Gufa
JÓN Gunnarsson, verkfræðingur,
hefur skrifað merka grein í
Tímarit Verkfræðingafélags ís-
lands, sem hann nefnir: „Kögglar
úr síldar- og fiskimjöli“. Morg-
unblaðið hefur fengið góðfúslegt
'k' ■? X*
leyfi Jóns til að birta greinina
og fer hún hér á eftir:
Ómalað hveiti, maís, rúgur o. s.
frv. hefur um langan tíma verið
flutt laust í skipum landa á milli,
þó að þessar vörur séu ennþá
Kögglar úr síldarmjöli
stofnar sölu-
Bandaríkjunum
ROSS Internation.il, sú deild
Ross-fyrirtækjasamsteypunoiar
brezku, sem annast sölu og dreif-
ingu á erlendum mörkuðum, hef-
ur tilkynnt að mynduð verði tvö
sölufélög fyrir Bandarikjamark-
aðinn.
Þessi tvö nýju fyrirtæki, sem
nefnast Ross New York Ltd. og
Ross California Ltd., munu fyrst
og fremst hafa það verkefni að
annast sölu og dreifingu á fryst-
ym humar og rækjum frá fyrir-
tækjum móðurfélagsins í Ástra-
líu og Miðausturlöndum.
Hið nýja sölufélag í New York
mun annast söluna á austur-
strönd Bandaríkjanna og mið-
vesturríkjunum* Ross California
mun hafa bækistöðvar í Los
Angeles og annast söluna á vest
urströndinni.
Ross fyrirtækjasamsteypan
áætlar, að sala fyrirtækisins í
Bandaríkjunum muni nema 5
milljónum dollara, eða 215 millj.
ísl. króna árið 1966 og hún mun
aukast verulega árið 1967, eftir
því sem Ross færir út kvíamar
í Ástralíu og Miðausturlöndum.
Árið 1967 mun fyrirtækið einn
ig senda frystan fisk á Banda-
ríkjamarkað frá Ross-Steers fyrir
tækinu í St. Johns á Nýfundna-
landi.
Ágætt verð erlendis
— en aflinn lítill
TOGARINN Marz seldi afla sinn
í Bremerhaven s.l. mánudag.
Var hann með 115 tonn, sem
seldust fyrir 129 þúsund mörk.
Er þetta ágæt sala.
Egill Skallagrímsson seldi s.l.
þriðjudag í Cuxhaven. Var hann
með 159,8 tonn af ísaðri síld,
sem seldust fyrir 117.555 mörk,
og 50,4 tonn af öðrum fiski, sem
seldust fyrir .72.525 mörk, eða alls
190.080 mörk. Er þetta hvort-
tveggja afbragðsverð.
í gærmorgun seldi Kaldbakur
í Grimsby 98 tonn fyrir 10.878
sterlingspund og er það einnig
ágætisverð.
t dag, fimmtudag, selja þrír
islenzkir togarar í Bretlandi og
einn í Þýzkalandi.
Hið eina, sem skyggir á þess-
ar sölur, er hve aflamagn tog-
aranna er lítið, enda hefur afli
þeirra verið fádæma lítill að
undanförnu.
íslenzku togararnir eru nú all
ir á veiðum á heimamiðum. í
langan tíma hefur aðeins einn
islenzkur togari reynt fyrir sér
á fjarlægum miðum. Það er
Marz, sem var um tíma að veið-
um við Hvarf á Grænlandi í
vondu veðri og litlum fiski.
Norðurstjarnan sendir framleiðslu sína á erlendan markað. King Oscar Kippers Snacks skipað
um borð í Eimskipafélagsskipí Reykjavík. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
NORÐURSTJARNAN HEFUR FRAM-
LEITT LIÐLEGA MILLJÚN DÚSIR
Um 525 þúsund dósir hafa þegar verið sendar
á bandarískan markað
NORÐURSTJARNAN h.f. í
Hafnarfirði hefur þegar fram-
leitt liðlega eina milljón dósa af
niðursoðinni síld, svonefndri
kippers snack. Langmestur
hluti framleiðslunnar er flutt-
ur út, eingöngu til Bandaríkj-
anna.
Að því er Andrés Pétursson,
framkvæmdastjóri, hefur skýrt
Morgunblaðinu frá eru nú 80
manns í vinnu hjá verksmiðj-
unni og er soðið niður í 20—30
þúsund dósir á dag. Einnig er
unnið að flökun og frystingu
síldar til að safna birgðum til
þess tíma er síld veiðist ekki.
Annars er soðin niður ný síld.
þegar hún er fáanleg.
Um 30 þúsund dósir hafa
verið sendar á innlendan mark-
að og hefur feitari síldin líkað
mjög vel. Fyrsta síldin, sem
soðin var niður, var mögur og
þótti ýmsum hún of þurr.
Norðurstjarnan hefur þegar
flutt út um 525 þúsund dósir til
Bandaríkjanna undir vörumerk-
inu King Oscar Kippers
Snacks. Norska fyrirtækið Chr.
Bjelland í Stavanger sér um
sölu og dreifingu á síldinni í
Bandaríkjunum og hefur hún
til þessa verið send til New
York, Portland, Seattle, Los
Angeles og San Fransisco.
Fyrsta sendingin fór utan 6.
nóvember sl., en sú næsta og
fjórða fer n.k. laugardag. Það
verða um 200 þúsund dósir.
Þar sem svo stutt er frá þvi
framleiðsla fyrirtækisins var
send á erlendan markað heíur
Norðurstjarnan ekki enn feng-
ið skýrslu um, hvernig hún feil-
ur bandarískum neytendum í
geð.
Milljónasparnaður með því að flyIja
síldar- og fiskimjöl í kögglum