Morgunblaðið - 15.12.1965, Blaðsíða 8
8
MORGU N BLAÐIÐ
Miðvikudagur 15. des. 1961
Fjárlagafrumvarpið samþykkt
sem lög frá Alþingi
í FYRRAKVÖLD var framhaldið
þriðju umræðu um fjárlagafrum-
varpið og tók þá fyrstur til máls
Gisli Guðmundsson (F), sem
gerði einkum hafnarmálin að
umtalsefni. Ásgeir Bjarnason
mælti síðan fyrir tillögu er hann
var flutningsmaður að um að
veitt yrði 250 þús. kr. til bryggju-
gerðar í Búðardal. Tillögu þessa
dró Ásgeir svo til baka, er til
atkvæðagreiðslu kom í gær.
Lúðvík Jósefsson (K) kvaðst
vilja leita upplýsinga hjá fjár-
imálaráðherra varðandi framlög'
til hafnarframkvæmda, og þá sér
staklega framlög
til bygginga
dráttarbrauta á
vegum Hafnar-
sjóðs. — Einnig
kvaðst hann
óska eftir upp-
Iýsingum varð-
andi framlög til
sjávarútvegsins.
— Hann kvaðst
telja það fullvíst, að ríkisstjórnin
reiknaði með því að verða að
greiða á næsta ári, ekki minni
fjárhæð en á þessu ári, til stuðn-
ings sjávarútveginum, og spyrja
mætti að því hvernig ríkisstjórn-
in hugsaði sér að mæta þessum
útgjöldum.
Magnús Jónsson, fjármálaráð-
herra, sagði að engin stefnubreyt-
ing hefði orðið hjá ríkisstjórn-
inni um að leysa vandamál við
dráttarbrautagerð, jafnvel þótt
engar sérstakar fjárveitingar
væru í fjárlögum til að mæta
þeim vanda. Ræddar hefðu verið
ákveðnar leiðir til þess að mæta
þessum vanda. í sumum tilfell-
um hefði verið um nokkra söfn-
■wn fjármuna í þessu skyni, vegna
\ fjárveitinga á
lundanförnum ár
| um, en þeir fjár-
I munir mundu
’’ . ekki draga langt
||með svo dýr
ímannvirki og
fyrði þar af leið-
landi að gera ráð
Istafanir til þess
lað afla fjár með
öðrum hætti. — Dráttarbrautir
þyrftu að komast upp á skömm-
*m tíma og vitanlega væri úti-
lokað að taka fjárveitingar til
þeirra að fullu jafnóðum í fjár-
t&g, heldur yrði að dreifa þeim
•ða hluta ríkissjóðs í þeim fram-
kvæmdum á miklu lengri tíma.
Ekki væri hægt um það að segja,
á þessu stigi málsins, hver yrði
endanleg niðurstaða í þessum
•fnum, en undirstrika mætti það,
að engin breyting hefði orðið á
því viðhorfði ríkisstjórnarinnar
að unnið yrði að dráttarbrautum
með þeim eðliiega hraða sem rætt
hefði verið um sl. ár.
Varðandi síðari fyrirspurnina
•agði ráðherra m.a. að gert væri
ráð fyrir því, að slíka aðstoð til
■jávarútvegsins þyrfti að veita.
Hins vegar væri það í senn svo,
að þessi aðstoð hefði verið veitt,
að segja mætti utan fjárlaga,
þannig að hún hefði verið ákvörð
tið með sérlögum, en ekki í fjár-
lögum fyrir árið í ár og takmark-
aðist algerlega við árið í ár, og
ennfremur hitt, að það væri ó-
*mögulegt á því stigi, þegar fjár-
lög væru undirbúin, að gera sér
grein fyrir því, hvað kynni að
verða framhald þessara mála. Það
væri þá ekkert vitað um afkomu
bátaútvegsins né hraðfrystihús-
anna á þessu ári. Að þessum at-
hugunum hefði síðan verið unnið
og færi að nálgast endalok þess
•ð menn fengju heildarmynd af
þessum vanda, en ennþá væri
•kkert um þetta vitað og því jafn
•rfitt nú að taka einhverja upp-
hæð í fjárlög til þess að mæta
þessum væntanlegu útgjöldum.
Hins vegar hefði rikisstjórnin lát
ið fara fram athuganir á því
hvernig mæta ætti þessum vanda.
Hugsanlegt væri, að mæta vand-
anum, ef ekki yrði um nein auka-
útgjöld að ræða í þessu skyni, án
þess að þurfa að grípa til nýrra
skattahækkana. Yrði hinsvegar
um einhverjar verulegar fjárhæð
ir að ræða til viðbótar, skapaðist
nýtt viðhorf, sem að sjálfsögðu
yrði þó að horfast í augu við,
þegar þar að kæmi og íhuga úr-
ræði til þess að mæta þeim
vanda.
Einnig tóku til máls þeir Skúli
Guðmundsson og Jón Árnason,
formaður fjárveitingarnefndar,
sem gerði samanburð á f járfram-
lögum til hafnarmála og til
læknisbústaða og sjúkrahúsa nú
og 1958, á dögum vinstri stjórn-
- arinnar. — Kom
þar m. a. fram
|að 1958 voru
| veitlar 2 millj.
| kr. í hafnarbóta-
I sjóð, en nú 40
millj. kr. og til
I læknisbústaða
\ og sjúkrahúsa
annarra en ríkis-
sjúkrahúsa, voru
þá veittar 3,3 millj. kr. á móti
18,3 millj. kr. nú. Sagði Jón allar
þær tölur er hann nefndi, bæri
að sama brunni, því að allar fjár-
veitingar nú væru miklu ríflegri
en á dögum vinstri stjórnarinnar,
þrátt fyrir að tekið væri tillit til
þeirra hækkana er orðið hefðu.
í gær kom svo fjárlagafrum-
varpið til atkvæðagreiðslu eftir
þriðju umræðu og var það sam-
þykkt með þein. breytingum er
fjárveitinganefnd gerði að tillög-
um sínum og þannig afgreidd
sem lög frá Alþingi.
— Rusk
skilning í sambúð sinni við Vest-
urveldin undanfarið, en áður
var. Taldi hann, að sovézkir ráða
menn hefðu undanfarið sýnt árás
arhneigð, sem ekki hefði borið á,
um alllangt skeið.
V-þýzka stjórnin hefur undan-
farna daga bent á nauðsyn þess,
að hún fái hlutdeild i stjórn fyrir
hugaðs kjarnorkuhers Atlants-
hafsbandalagsins. Ekki er gert
ráð fyrir, að nein endanleg á-
kvörðun verði tekin um þáð mál,
á þessum fundi.
- „Preludin"
Framh. af bls. 1
undirlagi Aspling, félagsmála
ráðherra, að sérfræðinga-
nefnd, á vegum heilbrigðis-
málaráðuneytisins, taki málið
til sérstakrar athugunar, og
verði á næsta ári lagt fram
sérstakt frumvarp í sænska
þinginu, sem miði að því að
stöðva neyzlu eiturlyfja, og
hættulegra, örvandi lyfja 1
landinu.
Revell og Airfix
Skipamodel
Flugimodel
Fjölbreytt úrval
BOKAVERZLUN SlGFUSAR EVMUNDSSONAR
Austurstrœti 18 - Sími 13135
Framhald af bls. 1.
bæði hvað snerti beinar
greiðslur, herafla og annað
framlag.
• Dean Rusk fór fram á, að
bandalagsríkin veittu Bandaríkj
unum aukna aðstoð, vegna styrj-
aldarinnar í Vietnam. Þó fór
hann ekki fram á hernaðarlegan
stuðning, en sag'ði hins vegar, að
mikil þörf væri í Vietnam á
læknum, tæknimenntuðum
mönnum, verkfræðingum og
kennurum.
• Viðræðurnar á ráðherra-
fundinum í dag snerust fyrst og
fremst um styröldina í Vietnam,
og afstöðu Sovétríkjanna til
Vesturveldanna, í því sambandi.
Gerði einn brezku fulltrúanna,
Sir Poul Gore-Booth, sérstaka
grein fyrir því máli, sem talið
er, að byggist að mestu á skoð-
unum Michael Stewart. Hann
ræddi, eins og kunnugt er, ný-
lega við æðstu leiðtoga Sovét-
ríkjanna, sérstaklega um skoð-
anir þeirra á fyrirhugu'ðum kjarn
orkuher Atlantshafsbandalagsins,
og stefnu Bandaríkjastjórnar í
málefnum Vietnam. í þeim við-
ræðum lagði Stewart sérstaka
áherzlu á að skýra fyrir ráða-
mönnum Sovétríkjanna, að þa'ð
væri hvorki ætlan stjórnar
Bandaríkjanna né Bretlands að
veita þeim ríkjum, sem ekki
ráða nú yfir kjarnorkuvopnum,
rétt til að ákveða, hvenær þeim
væri beitt.
• Ýmsir aðrir ráðherrar tóku
í dag til máls, m.a. utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, Gerhard
Schröder. Lagði hann áherzlu á,
áð Sovétríkin hefðu sýnt minni
Nýkomið frá Ungverjalandi
m mmmmm m wmmmmmm
BORÐSTOFUHÚSGÖGN í HEPPLEWHITE
DIPLOMAT-SKRIFBORÐ með stól
SÓFABORÐ — SKRIFBORÐ — SKÁPAR
Kristján Siggeirsson hf,
Laugavegi 13 — Sími 13879—17172.
Tveggja herbergja ibúðir
Þessar skemmtilegu tveggja herbergja íbúðir í einu nýju hverfanna,
eru til sölu, og seljast tilbúnar undir tréverk og málningu. Þær eru ca 55
fermetrar að stærð, stofa, svefnherbergi, bað og eldhús. Allt sameigin-
legt er frágengið og húsið málað að utan. Þetta eru tilvaldar íbuðir fynr
einstaklinga eða litlar fjölskyldur.
Hagstætt verð og greiðsluskilmálar.
FASTEIGNASKRIFSTOFAN
Austurstræti 17 — 4. hæð
(Hús Silla og Valda) sími 17466.