Morgunblaðið - 16.04.1966, Blaðsíða 8
8
MORCU N BLAÐIÐ
Laugardagur 16. apríl 1966
Landshöfn í Þorlákshöfn
í GÆR var lagt fram á Alþingi
stjrónarfrumvarp um landshöfn
í Þorlákshöfn. Er með því frum-
varpi gert ráð fyrir að ríkis-
stjórninni heimilist að gera samn
ing við eigendur hafnarmann-
virkja í Þorlákshöfn um að rík-
issjóður taki við eignum og
skuldbindingum hafnarsjóðs Þor-
lákshafnar og láti síðan starf-
rækja og auka hafnarmannvirki
í Þorlákshöfn á sinn kostnað.
Tii greiðslu kostnaðar, er af
þessu Ieiðir gerir frumvarpið
ráð fyrir að ríkisstjórninni heim
ilist að taka lán fyrir hönd rík-
issjóðs, allt að 100 millj. kr.
Að öðru leyti greiðist kostnað-
urinn úr ríkissjóði, eftir því sem
fé er veitt til þess á fjárlögum.
Hafnargjöld á hverjum tíma skal
miða eftir því sem fært þykir,
við það, að tekjur hafnarinnar
nægi til þess að greiða vexti og
afborganir að 2/3 hlutum stofn-
kostnaðarins, auk árlegs rekstr-
arkostnaðar.
Frnmvarpið gerir ráð fyrir að
í stjórn hafnarinnar eigi sæti
fimm menn, kosnir af sameinuðu
AJþingi. Ráðherra sá ,sem fer
með hafnarmál, skipar formann
hafnarstjórnarinnar úr hópi
stjórnarmanna.
í greinargerð er fylgir frum-
varpinu kemur m.a. eftirfarandi
fram:
Þegar núverandi framkvæmd-
ir hófust í Þorlákshöfn, var þar
ein 140 m. löng bátabryggja, svo-
nefndur Norðurgarður, með dýpi
meira en 2 m. yztu 25 m. og
einnig brimbrjótur, svonefndur
Suðurgarður um 200 m. langur,
með dýpi yfir 2 metra á yztu
85 m. og var þar rúm fyrir eitt
lítið flutningaskip.
Að undangengnum undirbún-
ingsrannsóknum á vegum vita-
málaskrifstofunnar, var stækkun
Þorlákshafnar boðin út á árinu
1961. Tekið var tilboði Efrafalls
s.f. og hófust framkvæmdir um
mitt ár 1962. Árið 1963 var svo
gerður viðbótarsamningur og
var með honum ákveðið að verk-
sali skyldi hafa lokið Suður-
garði eigi síðar en 1. janúar 1965
og Norðurgarði eigi síðar en 1.
janúar 1966. Af tæknilegum á-
stæðum var ákveðið að auka
breidd Suðurgarðsins úr 12,5 m.
í 14,5 m. strax í upphafi og síð-
ar var legu Norður- og þver-
garðanna breytt, breidd þeirra
einnig aukin 1 14,5 m. og Norð-
urgarður lengdur í 115 m. og
þvergarður í 95 m. og hafnar-
svæðið stækkað þannig um
2000 ferm. Var sú breyting gerð
með tilliti til breytinga þeirra,
er orðið höfðu á bátaflotamrm
hin seinni ár.
Var Suðurgarður orðin not-
hæfur fyrir skip 10. marz 1965
og formlega afhentur hafnar-
stjórn í nóvember sama ár. —
Einnig var það sumar hafizt
handa með byggingu Norður-
garðs, og var ákveðið að fram-
lenging á 1. áfanga skyldi vera
53 metrar.
Byggingarkostnaður 1. desem-
ber 1965 nam tæplega 50 millj.
kr. að frádregnu seldu efni. Það
væri því mikil verkefni óleyst
við hafnarframkvæmdir í Þor-
lákshöfn og kostnaður við þær
skiptu tugum milljóna króna.
Að ljúka þeim áfanga, er boð-
inn var út 1961 telur vita- og
hanfarmálastjóri að muni kosta
um 30 millj. kr. miðað við nú-
gildandi verðlag.
Það hefði reynzt heimamönn-
um ofviða að standa undir
greiðslum vaxta og afborgana af
þeim lánum, sem tekin hefðu
verið til byggingarinnar. Þannig
hefðu verið greidðar af ríiksfé
afborganir og vextir vegna eldri
framkvæmdanna, sem næmu lið-
lega 10 millj. kr. og vegna síðari
áfangans 19,7 millj. kr. ýmist
með sérstökum fjárveitingum
eða úr ríkisábyrgðasjóð. Eftir-
st.öðvar þeirra lána, sem þegar
hefðu verið tekin næmu nú lið-
lega 32 millj. kr. og með vöxt-
um til greiðsludaga mundu
greiðslur þessar vera um 40
millj. kr. Væru þá ótalin þau
lán, sem taka þyrfti til að Ijúka
hafnargerðinni. Af þessu væri
Ijóst, að byggingarmál Þorláks-
hafnar yrðu ekki leyst, nema
fyrir atbeina og beina forgöngu
ríkisvaldsins og þætti því rétt
að gera Þorlákshöfn að lands-
höfn.
—Alþingi
Framhald af bls. 1
aðeins í eitt ár. Þá er einniig lagt
tit með frumvarpinu að í verð-
lagsgrundvelli skuli tilfæra árs-
vinnutíma bóndans, skylduliðs
hans og hjúa á búi af þeirri
stærð, sem miðað er við hverju
sinni, og virða vinnutíma til sam
ræmis við kaupgjald verka-
manna, sjómamia og iðnaðar-
manna, eins og það er við upp-
haif hvers verðlagstímabils. Eigi
skal þó taka til viðmiðunar
ákvæðisvinnu verkamanna og
iðnaðarmanna né aflahlut sjó-
maxuia. Til kaupgjalds teljast
hvers kona'r samningsbundin
friðindi.
Þá koma einnig nýjar greinar
inn er lúta að því, að Búreikn-
ingaskrifstofa ríkisins skuli afla
árlega rekstursreikninga frá
bændum og skulu þeir vera til
afnota fyrir Hagstofu íslands og
Sexmannanefnd.
Sexmannanefnd getur og á-
kveðið að efna til sérstakra ranin
sókna í því skyni að fá betri
npplýsingagrundvöll fyrir þau
atriði, er máli skipta fyrir verð-
lagningu Iandbúnaðarafurða, svo
sem framleiðslu- ©g dreifingar-
kostnað vinnutíma og fl. Skal
nefndin í því efni leita samstarfs
við Hagstofu íslands, Búreikn-
ingaskrifstofu ríkisins og aðrar
opinberar stofnanir, að því leyti
sem rannsóknir þessar snerta
srtarfssvið viðkomandi stofnana.
Eins og kunnugt er var starf
sexmannanefndar þeirrar er
ákvað verðlagsgrundvöll land-
Ibúnaðarvara gert óvirkt í fyrra
sumar, er Alþýðusamabnd ís-
lands afturkallaði fulltrúa sinn
úr neíndinni. Þar sem verðlags-
grundvöllur til ákvörðunar af-
urðaverði gildir frá byrjun hvers
verðlagsárs 1. sept. reyndist óhjá
kvæmilegt að skipa þessu máli
xneð bráðabirgðalögum s.l. haust.
Við umræður um þau bráða-
birgðalög á Alþingi lýsti land-
búnaðarráðherra, Ingólfur Jóns-
som, því yfir að það væri vilji
ríkisstjórnarinnar að aftur yrði
komið á samstarfi milli framleið
enda og neytenda um verðlagn-
ingu landibúnaðarafurða og í
íramhaldi af því skipaði ráóherra
7 manna nefnd í nóv. s.l. með
það verkefni að leita eftir sam-
komulagsgrundvelli milli fram-
leiðenda og neytenda, sem af-
urðasölulöggjöfin yrði byggð á,
og koma fram með tillögur í því
efni. Var prófessor Ólafur Bjöme
son skipaður formaður nefndar-
innar, en aðrir nefndarmenn
voru tilnefndir af samtökum
framleiðenda og neytenda. 1 þess
ari sjö manna nefnd náðist ekki
samkomulag um sameiginlegar
tillögur um breytingar á lögum
um framleiðsluráð og fl. í febrú-
ar s.l. sendi nefndin landbúnaðar
ráðuneytinu tillögur sínar í frum
varpsformi, en Hannibal Valdi-
marsson stendur ekki að þeim til
lögum sem aðrir nefndarmenn
hafa gert um skipan og störf
Sexmannanefndar, og hefur hann
samið sérálit um afstöðu sína og
tillögur. Er fruimvarp það er
lagt var fram á Alþingi í g@er
að mestu samhljóða frumvarpi
sjö manna nefndarinnar.
Eins og áður segir gerir frum-
varpið ráð fyrir því að á ný verði
skipuð sexmannanefnd sem í eigi
sæti fulltrúar tilnefndir af sam-
tökum framleiðenda og neytenda.
Skal nefnd þessi ákveða afurða-
verðið til framleiðenda og verð
landbúnaðarvara í heildsölu og
smásölu. Af hálfu framleiðenda
hefur stjórn Stéttarsamibands
bænda rétt til þess að tilnefna
tvo menn, en Framleiðsluráð
landbúnaðarins einn rnaim, en
af hálfu neytenda hafa Alþýðu-
samband íslands, Landsamband
iðnaðanmanna og Sjómannafélag
Reykjavíkur hvert um sig rétt
til að tilnefna einn mann. Ef ein
hver aðili notar ekki rétt sinn til
tilnefningar skal landbúnaðarráð
herra tilnefna í stað þeirra sam-
taka framleiðenda sem ekki not-
ar rétt sinn, en félagsmálaráð-
herra á sama hátt í stað samtaika
neytenda. Þá skulu og Hagstofu-
stjóri og forstöðumaður búreikn-
ingaskrifstofunnar vera nefnd-
inni til aðstoðar.
Sexmannanefndin skal síðan
leitast við að ná samkomulagi
um verðlagsgrundvöll, þar sem
kveðið verði á um framleiðslu-
kostnað og magn afurða og um
verð til framleiðenda á einstök-
um land'búnaðarvörum. Náist um
slíkan verðlagsgrundvöll sam-
komulag, er stutt er af meiri-
hluta nefndarmanna, sikal verð
það til framleiðenda sem í hon-
um felst, gilda við verðlagningu
Iandbúnaðarvara frá byrjun við-
komandi verðlagsárs.
Þegar rætt er í nefndinni um
álagningu á búvöru í smásölu,
ebr að gefa fulltrúum Kaup-
mannasamtaka Islands kost á að
sitja fundi nefndarinnar með
málfrelsi og tillögurétti.
Náist ekki meirihluti í Sex-
mannanefnd varðandi ákvörðun
verðlagsgrundvallar, eða varð-
andi verðlagningu söluvara skal
vísa ágreiningnum til sáttasemj-
ara ríkisins. Skal hann leitast við
að finna málamiðlun í ágreinings
atriðum og leggja fram tillögur
þeim til úrlausnar. Beri sáttaum
leitasnir ekiki árangur, skal sikip-
uð yfirnefnd er felli fulinaðar-
úrskurð.
Blaðburðarfólk
vantar í eftirtalin hverfi:
Laugav. frd 33 - 80 Laugarteig
Hverfisg. 1 frd 4 - 62.
Þingholtsstræti Skólayörðustígur
r *
Arni Kristjánsson
IMinning
ÁTTUNDA apríl, föstudaginn
langa, lézt Árni Kristjánsson frá
Bræðraminni á Bíldudal. Andlát
hans bar brátt að og óvænt, þótt
hann hefði kennt lasleika nokkra
hríð.
Árni var fæddur að Bræðra-
minni 7. nóvember 1901, fimmta
bam hjónanna Rannveigar Árna
dóttur og Kristjáns Jónssonar og
hið fimmta sem fer héðan af
þeirra tíu barna hóp. Árni ól
allan sinn aldur á Bíldudal, að
undanteknum nokkrum vertíð-
um, sem hann var á togurum hér
syðra.
Árni kvæntist Guðrúnu Snæ-
björnsdóttur frá Tálknafirði og
eignuðust þau 14 börn, af þeim
lifa 13 föður sinn, hið yngsta
tæpra tíu ára. Eru þau öll hin
mannvænlegustu, dæturnar ó-
venju fríðar og vel af Guði gerð-
ar, synirnir hraustir og dugleg-
ir. Tveir þeirra hafa þegar lokið
prófi frá Sjómannaskólanum og
sá þriðji stundar þar nám.
Árni var hin góða forsjá barna
sinna og heimilis. Engin orð ná
að lýsa umhyggju Árna er börn
hans og eiginkona áttu í hlut.
Frístundir átti hann fáar, hann
stundaði alla þá vinnu er verka-
manni bauðst og rak bú að
Bræðraminni að auki. Limd hans
var létt og vinnugleðin takmarka
laus og líf hans þrátt fyrir þungt
heimili, hamingjusamt. Átti kona
hans ekki minnstan þátt í því,
enda mat hann hana að verð-
leikum.
Með Árna er genginn góður
drengur, elskaður og virtur af
ættingjum og vinum og öllum
sem við hann kynntust. Nýtur
þegn, sem skilað hefur þjóð
sinni góðum arfi er horfinn í
sjónarsviðinu. Eljumaanni er
unnað hvíldar að erfiði loknu.
Hans er minnst með þakklæti og
sárt saknað, sárast þó af eigin-
konu og börnum, sem aldrei
máttu missa hann, en eigi má
sköpum renna.
Fjölskyldu hans vottum við
dýpstu samúð, megi minningin.
um elskulegan eiginmann og
föður létta harm þeirra. Guð
blessi ykkur öll.
Eiríkur Einarsson.
Skrifstofuaðstoð
Lítið iðnfyrirtæki í Holtunum óskar eftir skrif-
stofuaðstoð hálfan daginn. Nokkur bókhaldskunn-
átta, annars almenn skrifstofustörf. — Tilboð send-
ist afgr. Mbl. fyrir 25. apríl, merkt: „Vandvirkni —
9048“.
Bókarastaða
Opinber stofnun óskar eftir að ráða bókara nú þeg-
ar. Nokkur vélritunarkunnátta nauðsynleg. —
Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra starfs-
manna. Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist afgr. Mbl. fyrir 20.
apríl nk., merktar: „Framtíð — 1966“.
Bifreiðaeigendur
á Suðurnesjum
Bifreiðaverkstæði okkar að Vesturgötu 12, Keflavík,
tekur að sér ljósastillingar á bifreiðum. Verkstæðið
verður fyrst um sinn opið, sem hér segir:
Mánudaga til fimmtudaga kl. 7,30—12 og kl. 1—7 e.h.
Föstudaga kl. 7,30 til 12 og kl. 1—3 e.h.
Sérleyfisbifreiðir Kefiavíkur
Sími á verkstæði: 1782.
Riiðstöðvarofnar til sölu
165 el. notaðir miðstöðvarofnar eru til sölu í Landa-
kotsspítala Stærð á elem. er lmx22cm — Seljast
mjög ódýrt, ef samið er strax.
Sendiferðabfll U.S. Ford
1959 til sölu og sýnis við Slökkvistöð Reykjavíkur.
Tilboð sendist Reykjavíkurdeild R.K.Í., pósthólf 872.