Morgunblaðið - 01.11.1966, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.11.1966, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 1. n8v. 1966 MORCUNBLADID 23 t- Púll Erlendsson söngstjóri — Minning F. 30. sept. 1889. D. 17. sept. 1966. „Þó leið þín sem áður þar liggi hjá, er lyngið um hálsa brumar, mörg höndin, sem kærast þig kvaddi þá, hún kveður þig ekki í sumar.“ Þ. V. BJARTAN hásumardag fyrir rúmum aldarfjórðungi riðum við Páll Erlendsson djúpar moldar- göturnar norðan Hofsár í átt til Hofsóss. Við létum hestana lötra. Veðrið var eins og það getur fegurst orðið í Skagafirði. Og Páll hafði frá mörgu að segja. Niður árinnar var eins og undir- leikur við lága og hlýja rödd hans. Ég átti þá að baki tæpan tug ára, hann fimm sinnum fleiri tugL Og hann lauk upp fyrir mér sögu kynslóðanna við hið yzta haf; hann skýrði fyrir mér tengsl þjóðar og lands á þann hátt, að síðan hefir hóglát orðræða hans ekki fallið mér úr minni. Harðtroðnar reiðgöt- urnar, sporaslóðir fólks og fén- aðar, vallgróinn bær í túni, sól- eyjar í vaipa, tóftarbrot eyði- býlis: allt þá þetta líf og lit af frásögnum hans. Þær frásagnir nemur nú enginn framar. Páll Erlendsson er allur. Páll Erlendsson var fæddur á Sauðárkróki 30. september 1889. Porelddar hans voru Erlendur Pálsson, þá bókhaldari á Sauð- árkróki, síðar verzlunarstjóri í Grafarósi og Hofsósi, og kona hans, Guðbjörg Stefánsdóttir. — Erlendur var sonur Páls bónda að Hofi í Hjaltadal, Erlendssonar á Yxnhóli í Hörgárdal, og konu hans, Guðrúnar Magnúsdóttur, sem var dótturdóttir sr. Gama- líels á Myrká Þorleifssonar á Hraunum í Fljótum Kárssonar. — Guðbjörg, móðir Páls, var dóttir Stefáns Ólafsson, bónda að Pjöllum í Kelduhverfi, og konu hans, Önnu Guðmundsdóttur Sveinssonar á Hallbjarnarstöð- um á Tjörnesi. Foreldrar Stefáns voru Ólafur Gottskálksson Páls- sonar hreppstjóra í Nýjabæ og kona hans, Kristín Sveinsdóttir frá Hallbjarnarstöðum. Voru því foreldrar Guðbjargar systkina- börn. — Guðbjörg missti móður sína ung og var síðan alin upp á Siglufirði hjá föðursystur sinni, Margréti Ólafsdóttur, konu Snorra verzlunarstjóra Pálsson- ar. Þar var Erlendur um skeið við verzlunarstörf, og mun hann þar hafa kynnzt konu sinni. — Systur Páls Erlendssonar voru Anna, Guðrún, Margrét og Stefanía, og eru þær allar látnar. Bróðir hans er Vilhelm, fyrr póst- og símstjóri í Hofsósi og Blönduósi, nú búsettur í Reykja vík. Páll Erlendsson ólst upp með foreldrum sínum á Sauðárkróki og í Grafarósi. Hann stundaði nám i Lærða skólanum í Reykja- vík 1904 til 1908, en hvarf þá frá skólanámi og gerðist verzl- unarmaður hjá föður sínum í Grafarósi. Við þau störf var hann til 1914, en varð þá um eins árs skeið ráðsmaður að Hólum í Hjaltadal. Síðan er hann eitt ár bóndi að Hofi á Höfðaströnd. Árið 1916 kvæntist Páll Hólm- fríði, dóttur Rögnvalds bónda Jónssonar að Á í Unadal og konu hans, Jónínu Kristínar Björns- dóttur bónda í Gröf á Höfða- strönd Jónssonar. Það sama ár hófu þau búskap á Þrastarstöð- um á Höfðaströnd og bjuggu þar rúma tvo áratugi eða til 1940. Þá fluttust þau til Siglufjarðar og áttu þar heimili síðan. Páll Erlendsson og Hólmfríð- ur Rögnvaldsdóttir eignuðust fjögur börn, sem öll eru á lífi. Þau eru: Guðbjörg, húsfreyja í Reykjavík, gift Jóni Árnasyni skrifstofumanni; Erlendur, gjald- keri bæjarfógetaembættisins í Hafnarfirði, kvæntur Sigfried Á. Bjarnason; Jón Ragnar, banka- stjóri á Sauðárkróki, kvæntur Önnu Pálu Guðmundsdóttur; og Guðrún handavinnukennari, hús freyja í Reykjavík, gift Finni Kolbeinssyni lyfjafræðingi. — Barnabörn Páls og Hólmfríðar eru nú 11. Meðan Páll Erlendsson bjó á Þrastarstöðum gegndi hann fjöl- mörgum trúnaðarstörfum fyrir sveit sína, var m. a. kennari við "barna- og unglingaskóla í Hofs- ósi lengi vel, í stjórn búnaðar- félags og sjúkrasjóðs, skóla- nefndarmaður, skattanefndar- maður og formaður sóknar- nefndar Hofskirkju um árabil. Á Siglufirði vann Páll Erlends son ýmis störf. Hann hafði löng- um á hendi bókhald fyrir ýmsa aðilja, var umboðsmaður Happ- drættis Háskóla íslands, ritstjóri Siglfirðings, prófdómari við Barnaskólann og endurskoðandi bæjarsjóðs. Og er þá ótalið það, sem lík- lega mun ýmsum minnisstæðast, en það eru fjölþætt og merk störf hans að söngmálum. Páll hafði notið nokkurrar tón- menntunar, meðan hann var við skólanám í Reykjavík, og sú menntun reyndist honum drjúg, enda var hann óefað gæddur ríkri tónlistargáfu og smekkvís og listfengur með afbrigðum. — Árið 1916 stofnaði hann karlakór í Hofshreppi, og var kórnum gefið nafnið Þrestir. Stjórnaði Páll kórnum á þriðja tug ára, og má nærri geta, hve erfitt slíkt hefir verið í fámennu sveitar- félagi, jafnvel þótt söngglaðir Skagfirðingar hafi þar átt hlut að máli. Að sjálfsögðu var Páll einnig kirkjuorganisti að Hofi og Felli um það bil tvo tugi ára og stjórnaði söng við ýmsar kirkju- legar. hátíðir heima á Hólum Og þeir munu nú ófáir, gömlu Höfðstrendingarnir, sem minnast óeigingjarns menningarstarfs Páls Erlendssonar með virðingu og hlýju þakklæti. Á Siglufirði kenndi Páll Er- lendsson söng í Barna- og Gagn- fræðaskólanum og var söngstjóri og organisti í Siglufjarðarkirkju. Einnig leiðbeindi hann karla- kórnum Vísi um skeið. — Löng- um var á orði haft norðanlands, hve vel og fagurlega væri sung- ið í Siglufjarðarkirkju, enda tón skáldið sr. Bjarni Þorsteinsson þar prestur fyrsta þriðjung þessarar aldar og öllu lengur þó. Ekki mun reisn eða listfengi kirkjukórsins hafa sett ofan, er Páll Erlendsson tók við stjórn hans, nema síður væri. Minnast margir frábærs söngs kórsins við fjölmörg hátíðleg tækifæri, svo sem á aldarafmæli sr. Bjarna Þorsteinssonar haustið 1961. Hér hefir þá fátt eitt verið tíundað af fjölþættum störfum Páls Erlendssonar. Öll voru þau unnin af einstakri smekkvísi og trúmennsku. Aldrei var spurt um gjald eða gróða. Og líklegt þykir mér, að þær vinnustundir Framh. á bls. 25. Einbýlishús Höfum til sölu einbýlishús bæði við Smáragötu og Langholtsveg, bílskúr fylgir. Húsin eru laus nú þegar. Einnig höfum við til sölu við Sunnuflöt í Garðahreppi glæsileg einbýlishús. Húsin seljast í fokheldu ástandL íbúðir í Árbœjarhverfi óskast Höfum ávallt kaupendur að 2, 3, 4 og 5 herbergja íbúðum í Árbæjarhverfi. íbúðirnar mega vera fokheldar, tilbúnar undir tréverk eða lengra komnar. FASTEIGNA SKRIFSTOFAN BJARNI BEINTEINSSON HÐL JÓNATAN SVEINSSON LÖGFR. FTR. AUSTURSTRÆTU7 (HÚS SILLA OG VALDA) SÍMI 17466 Bókhald BréSaskrlftir - Innheimta Tökum að okkur bókhald, bréfaskriftir á Norður- landamálum og ensku, innheimtu launaútreikninga og ýmsa aðra þjónustu við smærri fyrirtæki. Enn- fremur þýðingar á ofangreindum málum. Upplýsingar virka daga kl. 1:00 — 4:00 í síma 17559. Halldór Laxness hefur einniy leyst íslenzkan leikhússmekk ur álöyum „Dúfnaveizlan“ eftir Halldór Laxness, bókin sem ieyst hefur íslenzkan leikhússmekk úr álögum hinnar rómantísku skrýtlu, er kominn í bókaverzlanir um allt land. Af hinum síðari leikritum Halldórs Laxness hefur Dúfnaveizlan hlotið beztar viðtökur í leikhúsi. Hún er fyndin, auðtekin, ná- læg. En eins og önnur Ieikrit Halldórs skilur þetta verk eftir ásækna tilfinningu þess, að ekki er allt sem sýnist. Öðrum þræði er Dúfnaveizlan árétting langreynds höfundar á þeirri staðrey nd, að listin er ekki hið sama og lífið, hversu mikið sem hún kann að koma því við. Allt verkið er samfelld listileg einföldun nútímalífs. Samt er það fyrst og fremst tilbúinn veruleiki leik- sviðsins. Og hann er einmitt sérstaklega tii þess fallinn að opinbera þann skilning, sem höfundurinn leggur í líf vort í dag. Þess vegna er Dúfnaveizlan afburða leikhúsverk. — Heimur Dú ínaveizlunnar er vissulega tilbúinn veruleikL Fylgist með því sem hinir vitru menn segja um bókina: Halldór Laxness höfundur mánaðarins í „Bókin útheimtir einveru — og einvera frá glym múgmenn- Skandinavíu. Höfum gefið út nær 30 bækur ingarinnar er ein af þörfum nútímans. Lesandi maður, einn efur H. L. og 23 þeirra fást nú. Þetta eru auð yfir bók sinni, .hefur einatt meiri og betri félagsskap en sá, vitað bækur mánaðarins hjá okkur og sjálf- sem situr mcð þúsund áhorfendum öðrum“. Ó. J. kjöinar jólabœkur. Fást allar í Unuhúsi. En í þessum heimi fer hins vegar ekki milli mála, hvar vér erum staddir. Ef til vill mætti kalla þetta leikrit heimspekilega skopstælingu á samtímanum, þar sem aðalpersónan er peningar, hin sjálfstæða, viðmiðunarlausa höfuðskepna í lífi voru í dag. Að sama skapi og veruleiki Dúfnaveizlunnar er fullkom- inn í sjálfum sér, kemur í ljós óraunveruleiki þess lífs, sem vér lifum. Með leikritum sínum hefur skáldsagnahöfundurinn Halldór Laxness gert merkilegt átak til þess að leysa íslenzkan leikhússmekk úr álögum hinnar róman- tisku skrýtlu — og hinnar raunsæilegu skáldsögu. — Það er óhugsandi að átta sig til fulls á þessu margslungna, stórfyndna verki nema gera hvort tveggja, lesa það í einrúmi og sjá á leiksviði. — Lesið það áður en þér farið í leikhús og eftir að þér hafið séð það — og þér munuð ekki sjá eftir. Dúfnaveizlan fæst í öllum bókabúðum og UNUHÚSI. HELGAFELLSBÓK.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.