Morgunblaðið - 19.11.1966, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.11.1966, Blaðsíða 30
30 MORGU HBIAÐÍÐ Laugardagur 19. nóv. 1966 Ecndknaltleibar um helginn Steve Chubin Leikur KR og Evrópumessfarana: Kolbeinn var stigahæstur Simmefhal vann 90 — 63 í GÆRKVÖLDI Iéku í Iþrótta- höllinni í Laugardal KR og ítalska liðið Simmethal, í Evr- ópubikarkeppni meistaraliða í körfuknattleik. Eins og við var búist sigruðu ítálarnir í þess- ari viðureign, en ekki með eins gífurlegum yfirburðum eins og óttazt var. KR-liðið sýndi lofs- verða baráttu og eftir að hafa verið óstyrkir og hálfhræddir í fyrri hálfleik náðu þeir góðum köflum í seinni hálfleik, og var munurinn á liðunum í seii.Li hálfleik ekki nema 9 stig, en Simmenthal hafði mun meiri yfirburði í þeim fyrri og var munurinn þá átján stig, þannig að lokatölur urðu 90—67 hinum ítölsku núverandi Evrópumeist- urura í vil. Fjólmargir áhorf- endur hvöttu KR-ingana óspart og var góð stemmning í Höll- inni í gærkvöldi. Italarnir náðu betri byrjun og komast í 4:0, áður en Einar Bollason konj KR á blað með fallegu skoti. ítalarnir sækja fast og fyrr en varði er staðan orðin 24:6 KR-ingar ná þó smám saman tökum á leiknum og tekst að halda í horfinu það sem eftir var hálfleiksins, þannig að staðan í hálfleik var 44:26. Var leikur Simmenthal mjög skemmtilegur og skiptust á vel uppbyggð hraða upphlaup og fallegur samleikur og leikfléttur sem oftast enduðu með skoti frá hinum geysihá- vöxnu miðherjum undir körf- unni, eða hnitmiðuðum lang- skotum utan af velli, sem flest smullu beint í körfunetinu án þess að KR liðið gæti þar rönd við rejst. KR ingar voru aftur á móti mjög óheppnir með sín skot og dansaði boltinn hvað eftir annað á brún körfunnar án þess að vilja ofaní. Var greinilegt a'ð hræðsla við mótherjana háði þeim og er þeirn ekki láandi þar sem ítalarnir höfðu á að skipa þremur mönn- uim yfir tvo metra á hæð. Síðari hálfleiikur var mun betur leik- inn af KR-inga hálfu og var eins og þeir 'hefðu öðlazt meiri kjark, enda höfðu ítalarnir skipt alger- Evröpu- keppnin Evrópubikarinn: (Fyrri leikir). Inter-Milan (Ítalíu 2, Vasas (Ung verjalandi) 1. Vojvadina (Júgóslavíu) 3, Atleti- co Madrid (Spáni) 1. Dukla Prag (Tékkóslóvakiu) 4, Anderlect Belgíu) 1. TSV Múnchen (V-hýzkalandi) 1 Real Madrid 0. Real madrid, sem eru Evrópu- meistarar 1966, töpuðu að vísu íyrir hinu ágæta Múnchenarliði TSV í fyrri leiknum, en það er þó ekki talið nægja til áfram- halds í keppninni, því almennt er búizt við að Spánverjarnir jafni metin — og meira til — í síðari leik þessara liða í Madrid á næstunni. / kvöld TVEIR leikir körfuknattleiks- mótsins fara fram að Háloga- landi í kvöld. í 1. flokki karla keppa ÍR og KR og strax á eftir Ármann og KFR í sama flokki. lega um lið og sett inn á sína reyndari menn, sem ekki voru þó eins hávaxnir og þeir sem léku fyrri há'lfleikinn. Um miðj- an hálfleikinn fór að bera á þreytu hjá KR-liðinu og komst ítalirnir á tíma í 77:41, eða 36 stiga mun. En endasprettur KR var mun betri en menn hefðu þorað að vona og tókst þeim með hörku og baráttugle’ði að rétta hdut sinn að mun eða í 27 stiga mun, 90-63, ag mega þeir vel við una. Liðin Simmenthal sýndi eins og við mátti búasit, mj'öig góðan körfu- knattleik ag var hittni þeirra, leikskipulag og hraði slík að unun var á að horfa. Þeir nýta mj'ög vel sína stónu menn og skoruðu þeir meira en helm- ing stiganna í fyrri hálf- leik. Leikreynsla þessara manna er einnig miklu meiri en KR-ing- anna, og hafði liðið samtals 329 landsleiki að baki, sem vel sýnir hverjir garpar eru 'hér á ferð. Úthald liðsins er frábært og var ekki þreytu að sjó á nokkrum manni þrátt fyrir mikinn hraða í upphlaupum þeirra. -- XXX ----- KR-liðið sýndi góðan keppnis- vilja og baráttu og áttu í síðari hálfleik skínandi leik bæði í sókn og vörn. Var það reyndar einn maður, sem bar af í liði þeirra en það var hinn smávaxni en eld snöggi bakvörður KR-liðsins og fyrirliði landsliðsins, Kolbeinn Pálsson, sem með hraða sínum og skotöryggi kom ítölunum hvað eftir annað á óvart og gerði usla í vörn þeirra og truflaði ó- tal sóknir Simmenthal með því að stela knettinum frá þeim. Má með sanni segja að þar hafi átzt við Davíð og Golíat, því Kol- beinn, sem er ekki nema 179 cm á hæð stökk hvað eftir annað í gegn um vörn hinna hávöxnu mótherja. í eitt skipti var hann umkringdur af tveimur tveggja metra mönnum en skoraði samt og sýnir það nokkuð kraft hans. Hann skoraði flest stig allra í leiknum eða 25. Einnig átti Ein- ar Bollason ágætan leik og skor- aði 17 stig. Aðrir KR-ingar' stóðu sig einnig mjög vel og börðust af hörku og dugnaði. Dómarar í leiknum voru frá Svíþjóð og írlandi og voru skipt ar skoðanir um dóma þeirra. Reykjavíkurmótinu í hand- knattleik verður fram haldið sunnudagipn 20. nóv. og hefst kl. 14 í íþróttahöllinni í Laugar dal. Leikið verður í eftirtöldum flokkum: 3 flokkur karla KR — Ármann 3flokkur karla Fram — Valur 3 fl. karla Þróttur — Víkingur 1 flokkur kvenna Fram — KR Mfl. flokkur kvenna Fram — KR Mfl. fl. kv. Víkingur Ármann 2 fl. karla Víkingur — Fram 2 flokkur karla Valur — IR 2 ’flokkur karla KR. — Þróttur í leikskrá stendur að 2. flokk ur kvenna eigi að leika en þar á að standa mfl. kvenna. Sunnudagskvöldið 20. nóv. kl. 20,00 verður svo leikið í mfl. karla: Valur — Ármann KR. — Víkingur ÍR. — Þróttur. H. K. R. R. Island mætir Spáni tvisvar í knattspyrnu fyrir 1. júli undankeppni ÓSympíuleikanna ISLENDINGAR leika landsleik við Spánverja í upphafi Olympíu keppninnar í knattspyrnu. Hef- ur Mbl. nú borizt vitneskja um það, hvernig undankeppninni er hagað, en eins og fram hefur komið var útilokað að löndin í riðlunum léku öll við eitt og eitt við öll. Leikjum Islendinga og Spánverja heima og heiman á að vera Iokið fyrir 30. júní nk. og sigurvegarinn mætir ítölum í 2. umferð og þá leika einnig Bret- land og V-Þýzkaland (sami rið- ill). Þeim leikjum á að vera lok ið fyrir árslok 1967 og sigurveg- arar þeirra mætast svo í úrslita leikjum fyrri hluta 1968. Evrópuriðlarnir 5 verða þann ig: A-riðill: Sovét — Albanía í 1. umferð. 2. umf. Sigurvegarar úr þeim leik gegn Póllandi og Tékkóslóvakía — Júgóslavía. B-riðill: 1. umferð A-Þýzka- land — Grikkland. 2. umf. Sigur vegarinn móti Rúmeníu; Tyrk- land — Búlgaría. C-riðill: 1. umf. Finnland — Holland. T. umf. Sigurvegarinn móti Frakklandi; Sviss ■— Austur ríki. D-riðill: 1. umf. ísland —• Spánn. 2. umf. Sigurvegarinn móti Ítalíu og Bretland móti V-ÞýzkalandL Eins og áður hefur verið sagt frá verður síðari leik landanna framlengt um 2x15 mín. verði stigatala og markatala jöfn eftir tvo leiki. Verði þá enn jafnt ræð ur hlutkesti úrslitum. England Wales 5-1 ENGLAND — WALES 5-1 Ensku heimsmeistararnir sigr- uðu welska landsliðið í knatt- spyrnu, léttilega s.l. miðviku- dagskvöld, með fimm mörkum gegn einu. Þetta er þriðji leik- urinn síðan liðið vann heims- meistaratitilinn þann 30. júlí f sumar. Þeir hafa sigrað N-írland í Belfast 2-0, gert jafntefli við Tékkóslóvakíu 0-0 og nú síðast stórsigur á Wembley. Alf Ramsey stjórnandi enska liðsins tefldi fram sömu mönn- um sem léku gegn Vestur-Þjóð- verjum í úrslitaleiknum. Geoff Hurst 2, bræðurnir Bobby og Jackie Charlton og Terry Hennessey (eigið mark) skoruðu fyrir England og Wyn Daviea fyrir Wales. Áhorfendur voru 76 þús. SKOTLAND — N-ÍRLAND 2-1 Skozka landsliðið átti í tölu- verðum erfiðleikum með írana, á Hampden Park, Glasgow. írar skoruðu fyrsta markið á 8. mín. og var Nicholson að verki. Eftip 14 mín. jafnaði Murdoch fyrip Skota, en hann átti mjög góðan leik og rétt fyrir lei'khlé bætti Lennox öðru við. Staðan í hálf- leik var því 2-1 og hélzt hún óbreytt til leiksloka, þó írap væru nálægt með að jafna rétt fyrir leikslok. Hin árlega knattspymukeppm atvinnulandsliða á Bretlandseyj um er í ár raunverulega „tvö- föld“ keppni þar sem sigur í áp gefur áframhaldandi keppnis- rétt um Evrópubikar þjóða 1067 —68. Staðan er nú þessi: L U J T M S England 2 2 0 0 7-1 4 Skotland 2 110 3-25 Wales 2 0 112-61 N-írland 2 0 0 2 1-4 0 Sigurhöggið HÉH ERU síðustu augnhlik kappleiksins milli Cassiusar Clay og Cleveland Williams á dögunum er Clay vann í 3. lotu. Efst vinstra megin má sjá höggið hæfa varnarlaus- an, gleiðstandandi og úttaug- aðan áskorandann. Hann fell ur á kaðlana og liggur í gólf- inu. Leikurinn var þá stöðv- aður. Clay keppir næst við Ernie xciiciij ydim vi iiciiHijjdiH" bandið viðurkennir sem lieims meistara. Clay hefur sagt að hann gæti liugsað sér að hætta eftir þann leik. En flestir telja það orðagjálfur eitt. Hann hefur auðgazt vel í ár. Tekj- ur hans af 6 leikjum hans á árinu nema yfir 90 millj. ísL króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.