Morgunblaðið - 21.03.1967, Blaðsíða 32
Lang stœrsta
og fjölbreyttasta
blað landsins
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1967
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Maöur beið bana á
Höfn í Hornafirði
Stór fiskikassi féll ofan á hann
BANASLYS varð í Fiskaðgerðar-
húsi Kaupfélags A-Skaftfell-
Inga aðfaranótt sl. sunnudags.
Þar varð Sigurður Vilhjálms-
son frá Flatey á Mýrum fyrir
fiskikassa, sem féll af vörulyft
ara. Fiskikassar þessir eru um
800 kg. og var verið að tæma
Fjársöfnun
undir röngu
yfirskini
hann í fiskaðgerðarkarið er slys
ið varð. Sigurður missti þegar
meðvitund og andaðist hann
stuttu síðar.
Sigurður var 38 ára að aldri,
sonur hjón-anna Guðnýjar Jóns
dóttur og Vilhjálms Guðmunds
sonar frá Gerði. Þau hjón
misstu einnig annan son sinn
fyrir tæpum tveimur árum af
slysförum. Sigurður var uppal-
inn í Flatey hjá afa sínum og
ömmu og bjó nú í félagi við
fósturbróður sinn, Guðjón Jóns
son í Flatey.
— Gunnar.
Sem kunnugt er fékk Gullfaxi frá Norðfirði á sig brotsjó út af Ingólfshöfða aðfaranótt föstu-
dagsins, og komst sjór í vélarrúm. Varð báturinn að biðja um aðstoð og kom Óðinn á vett-
vang. Dró varðskipið bátinn til Vestmannaeyja. Myndin var tekin er verið er að setjt taug
um borð, en það var nokkrum erfiðleikum bundið, þar sem mj ög hvasst var á þessum slóð-
nm. (Ljósm.: Adolf Hansen).
ALLMIKIL brögð munu vera að
þvf, áð gengið sé í hús hér í bse
með samskotalista til styrktar
vangefnum. Hafa skrifstofu
Styrktarfélags vangefinna borizt
fyrirspurnir vegna þessarar fjár-
söfnunar, og hefur hún beðið
Mlbl. að koma því á framfæri, að
slík fjáröflunarstarfsemi er alls
ekki á vegum félagsins, og að
það hafi aldrei aflað fjár með
þessum hætti. Vill félagið beina
þeim tilmæluim til fólks, að það
kynni sér hverjir standi fyrir
slí'kum fjársöfnunum áður en
það lætur fé af hendi rakna til
þeirra.
Kappræðu
fundi frestað
KAPPRÆÐUFUNDI FUJ í
Reykjavík og Heimdallar,
sem halda átti í kvöld, er
frestað til þriðjudagsins 4.
apríl og fer fram í Sigtúni.
Ríkisstjórnin leggur tram trv. um breytingu á stjórnarskránni:
Kosningaaldur lœkka&ur í 20 ár
Fimm ára busetuskilyrði fellt niður
RÍKISSTJÓRNIN lagfti i gær
fram á Alþingi frumvarp til
stjórnskipunarlaga, um breyt
ingu á stjórnarskrá lýðveldis-
ins íslands þess efnis að
kosningaaldur verði lækkað-
ur í 20 ára. Þá er ennfremur
gert ráð fyrir að fella niður
stjórnarskrárákvæði um 5
ára búsetuskilyrði í landinu,
sem sett var meðan réttar-
staða íslands var önnur en
nú er og á ekki lengur við.
Þar sem hér er um að ræða
frumvarp um breytingu á
stjómarskránni verður það
að samþykkjast á þessu þingi
svo og á þingi því sem saman
kemur að loknum alþingis-
kosningunum í vor.
Frumvarp þetta er samið af
nefnd, sem kosin var á Al-
þingi hinn 5. maí 1966 og
varð nefndin sammála um að
leggja til, að kosningaaldur
yrði lækkaður í 20 ár.
Hér fer á eftir greinargerð
frumvarpsins ásamt yfirliti
um kosningaaldursákvæði á
hinum Norðurlöndunum:
Hinn 22. april sl. samþykkti
Alþingi svo hljóðandi þingsálykt
un:
„Alþingi ályktar, að gerð skuli
athugun á því, hvort ekiki sé
tímabært og æs'kilegt að lækka
kosningaaldur, og að jafnfrarrvt
verði endursikoðaðar aðrar ald-
urstalkmarkanir laga á réttind-
um unga fóliksins.
Nefndin skal skila áliti svo
snemma, að unnt verði að leggja
niðurstöður hennar fyrir reglu-
Framhald á bls. 31
Litlafell í hrakning
um á Breiðafirði
Þrjár lægöir fóru yfir
landið um helgina
Ollu miklu ofviðri — Rafmagnstruflanir
og bilanir á símalínum — Ekki vitað
um stórskaða
Á LAUGARDAG9KVÖLDIÐ
kom upp eldur í bragga við bif-
reiðaverkstæðið Vísi á Akra-
nesi, en í þessum bragga voru
bílar, sem gereyðilögðust.
Slökkviliðið var kvatt á stað-
inn kl. 21,15 og var bragginn þá
alelda. Brann hann upp og í hon-
um tveir fólksbílar, Moskvitz og
Ohevrolet, af eldri gerðum.
Stýrisútbúnaður þess bilaði — Þorkell
Máni með skipið í toai á leið til R.víkur
LITLAFELL, olíuskip SÍS, lenti
í talsverðum hrakningum í gær-
morgun á Breiðafirði. Bilaði
stýrisútbúnaður skipsins er það
var statt um 10 mílur suður af
Skor, og rak það stjórnlaust í
10—11 vindstigum og miklum
Nýtt skip tit
Neskaupstaðar
ÓVEÐUR var mn allt land núna
nm helgina, enda hafa þrjár stór-
ar lægðir gengið yfir landið frá
þvi á föstudag með rúmlega sól-
arhrings miilibili. Hefur þeim
fylgt mikið hvassviðri með élja-
gangi, sem olln nokkrum raf-
magnstruflunum og bilunum á
nmalínum. Ennfremur lá allt inn
anlandsflug niðri um helgina þar
til í dag, að aftur var byrjað að
Innbrot upplýst
BROTIZT var inn í Félagsheim
ilið í Kópavogi aðfaranótt
fimmtudagsins, og þaðan stolið
26 vínflöskum. Þrír piltar 16-17
ára voru handteknir, grunaðir
um þjófnaðinn og hafa þeir nú
játað á sig innbrotið. Út frá þessu
innbroti hafa einnig upplýstst 10
■— 15 innbrot bæði í Reykjavík
og Kópavogi, sem tveir þessara
pilta hafa í flestum tilfellum átt
aðild að. Mun þýfi það, sem
piltarnir hafa haft á brott með
sér af innbrotsstöðum skipta tug-
um þúsunda.
fljúga. Á hlnn hóginn hafa Mbi.
ekki borizt neinar fregnir af stór
sköðum af völdum veðursins, né
slysum á mönnum.
Páll Bergþórsson, veðurfræð-
ingur, tjáði Mbl., að fyrsta lægð-
in hefði gengið yfir landið á
föstudag og með miklum hraða.
Rétt rúmum sólarhring síðar
kom önnur lægð og snerisf áttin
þá í vestur. Urðu þá víða 10 vind
sfig hér sunnan lands og fylgdi
rokinu éljagangur og milkið salt-
rok. í fyrradag gekk svo þriðja
lægðin yfir og var áttin þá enn
af vestan. Komst veðurhæðin t.d.
upp í 11 vindstig, á Breiðafirði,
í gærmorgun og í gær kl. 2 voru
10 vindstig á Egilsstöðum. Síðari
hluta dags í gær var lægðin að
ganga niður yfir Suðurlandi, en
gert var ráð fyrir að hennar
myda gæta eitthvað áfram á
Norðurlandi. t.d. var búizt við
stormi á miðum fyrir norðan og
austan. Páll gat þess að von væri
á nýrri lægð og búist við austan
átt og úrkomu í nótt.
Sem fyrr segir urðu talsverðar
truflanir á rafmagni, t.d. varð
Framhald á bls. 31
f GÆR kom til Neskaupstaðar
nýr bátur, Magnús NK-72. Bát-
urinn er 274 brúttólestir að stærð,
smíðaður í Risör í Noregi. — I
bátnum er 750 ha Rustonvél og
gekk báturinn 12 milur í reynslu
ferð.
Allar vistarverur áhafnar, þ.e.
Stokkseyri 20. marz.
STOKKSEYRINGUM hefur nú
tekizt að fá tvo báta leigða í
stað þeirra tveggja, sem ónýtt-
ust, er þá rak á land í briminu
mikla á föstudag sl. Er annar
þeirra frá Hafnarfirði, en hinn
frá Þingeyri.
Bátarnir tveir, sem mönnum
tókst að bjarga, verða báðir að
fara í slipp. Enn sem komið er,
hefur ekki verið viðlit að koma
fyrir 16 menn, eru aftur í skip-
inu, og eru rúmgóðar og hinar
vistlegusfu. — Á heimleiðinni
hreppti skipið hið versta veður
en reyndist traust og gott sjó-
skip. Skipstjóri á Magnúsi er Jón
Ölversson, en eigandi Ölver Guð
mundsson. — Ásgeir.
bátunum úf úr höfninni hér
vegna brims, en þeim verður
siglt til Vestmannaeyja við fyrsta
tækifæri.
V.b. Bjarmi frá Dalví’k virðist
bafa sloppið allvel frá briminu,
en báturinn hefur nú borizt um
15 metra frá flæðarmálinu og
upp á land. Björgunarmenn eru
þó enn vongóðir um að takasf
megi að bjarga skipinu.
— FréttaritarL
sjó. Þegar voru gerðar ráðstaf-
anir til að fá skip til aðstoðar,
og um eitt leytið í gær hafði
togarinn Þorkell máni tekið skip-
ið í tog. Ætlaði hann með skipið
áleiðis til Reykjavikur.
Neyðarkall barst frá Litlafelll
um kl. 8. Suðvestan stormur var,
og óttaðist áhöfnin að skipið
kynni jafnvel að reka upp á
grynningar í Breiðafirði. Slysa-
varnafélagið kannaði hvaða skip
væru á nálægum slóðum, og kom
í ljós að tveir brezkir togarar
voru næstir. Áttu þeir um
klukkustundar siglingu að skip-
inu. Togarinn Þorkell máni var
staddur út af Breiðafirði og til-
kynntL að hann ýrði kominn að
skipinu um hádegisbilið.
Vegna ofviðris voru allar ferð-
ir á sjó ákaflega erfiðar, en Þor-
kell máni var kominn að skipinu
um kl. eitt í gærdag. Mbl. átti þá
samtal við loftskeytamanninn á
Þorkeli mána, og sagði hann m.a.
— Þegar við komum að Litla-
fellinu var það statt 11 mílur
frá Höskuldsey og 13 mílur frá
Búlandshöfða. Okkur tókst strax
að koma taug í það, og erum nú
með það í togi út af Grundar-
firði. Talsverður sjór er ennþá,
en veður fer heldur lygnandi.
Við ætlum að sigla með skipið
til Reykjavíkur, en ógjörningur
er að segja, hvenær við verðum
komnir þangað, því að við förum
mjög hæst. — ekki nema 3—4
mílur á klst.
— Við erum búnir að tala við
þá á Litlafelli, og er mér ekki
kunnugt um annað, en þar sé
allt í lagi, og munu engin óhönp
eða slys hafa orðið um borð
Stokkseyri:
Tveir bátar leigðir