Morgunblaðið - 27.09.1967, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 27.09.1967, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. SEPT. 1967 3 Þing S. Þ. mun ræða tillögu um rann sókn auðæf a á sjávarbotni Utanríkisráðherra ávarpar þingið 4. okt. — Rœtt við Hannes Kjartansson, einn af varaforsetum Allsherjarþingsins MORGUNBLAÐIÐ átti í gær símtal við sendiherra íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, Hannes Kjartansson, sem ný- lega var kosinn einn af vara- forsetum Allsherjarþingsins, og spurðist fyrir um helztu mál, sem það tekur til með- ferðar að þessu sinni. Hann.es Kjartansson sagði: — Almennar umræður eru rétit að hefjast á Allsherjar- þinginu og þær munu vafa- laust standa yfir í 2 —3 vik- ur til viðhótar. Nefndir munu samt ef til vill taka til starfa fyrr, t. d. bélt laganefnd fyrsta fund sinn í dag. — Aðalmál All'sherjarþings ins nú eru fyrst og fremst deilur ísraels og Araba, af- vopnunarmálin, nýlendumál- in og flestir þeir, sem tala á þinginu koma inn á Víet- namstríðið í ræðum sínum, þótt hún sé ekki á dagiskrá þingsins. Annars eru dag- skrárliðir yfirleitt þeir sömu og undanfarin ár. — Það kiemur ekki í ljós fyrr en umræðum er lokið Hannes Kjartansson á Allsherjarþinginu, hvaða stefnu málin taka. Arabar sækja það nú mjög fast, að ástandið í Miðausturlöndum verði tekið fyrir strax og samtímis hinum almennu um ræðum. — Emil Jónsson, utanrikis- ráðherra, er kominn hingað til New York til að sitja þing ið um tíma, svo og öll ís- lenzka senidinefndin nema Þórarinn Þórarinsson, rit- stjóri, sem kemur á morgun (miðvikudag) og Kristjón Albertsson, sendiráðunautur í París, sem er væntanlegur síðar í vikunni. — Utanríkisráðherra mun ávarpa Allsherjarþingið og mun hann fflytja ræðu sína þann 4. október n.k. — Tillaga mín um rann- sókn á auðæfum hafsins, sem samþykt var á Allsherjar- þinginu í fyrra og fslending- ar áttu aðild að, er til með- ferðar í sérstakri nefnd. Hún á að skila áliti á næsta ári, þ. e. á 23. Alisherjarþinginu. fslendingar eiga fulltrúa í þeirri nefnd, Jón Jónsson, for stöðumann Hafrannsóknar- stofnunarinnar. Vinnur nefnd in enn að rannsóknum sín- um. Rétt er að benda á, að tillagan fjallaði um auðævi hafsins almennt, en kemur ekkert inn á iandhelgismál. — Nýtt mál hefur verið tekið á dagskrá þingsins nú að frumkvæði Möltubúa. Það er tillaga um rannsókn á áuðæfum á sjávarbotni og undir honum, hverjir eigi að nýta þessi auðæfi og hverjir eigi rétt til þeirra. Hér er fyrst og fremst um að ræða hagnýtingu málma, gass o. s. frv. Það tekur vafalaust mörg ár áður en þetta mál kemst í höfn. — Allsherjarnefnd skipar máium í nefndir, en það hef- ur ekki enn verið ákveðið, hvaða nefnd fær þessa til- lögu til meðferðar, líklega verður skipuð undirnefnd til að fjalla um hana. — Sem einn af varafOrset- unum á ég sæti í Allsherjar- nefndinni, og' hef því höfuð- aðstöðu til að fylgjast með afgreiðslu þessarar til- lögu. Það hefur ekki ennþá verið ákveðið, hvort fslend- ingar eigi að fara fram á að eiga fulltrúa í þessari nefnd, þar sem tillagan kemur ekk- ert inn á fiskveiðar. — Núna er gert ráð fyrir því, að Allsherjarþinginu ljúki 19. desember næstkom- andi. En miklar umræður eru fyrirsjáanlegar, svo þetta kann að breytast. Um 200 þúsund lestum minni afli nú en í fyrra Saltað í 8.210 tunnur í sl. viku f YFIRLITI Fiskifélags íslands um síldveiðarnar norðanlands og austan, vikuna 12.—23. septem- ber, segir að veður hafi verið fremur hagstætt á síldarmiðun- um sl. viku fram á föstudag. Þá gerði brælu og varð ekki veiðiveður fyrr en á laugardags kvöld. í vikubyrjun var veiði- svæðið um 72° n.br. og 4° a.l. en færðist til suðvesturs þannig, að í vikulok var það um 71°30‘ n.br. og rétt vestan við 0° lengd arbauginn. í vikunni var landað 16.966 lestum síldar. Saltað var í 8.210 tunnur, 89 lestir frystar og 15.679 lestir fóru í bræðslu. Auk þess lönduðu færeysk skip 322 lestum bræðslusildar, en land- anir erlendra skipa eru ekki teknar með í aflaskýrslum okk- ar. Hagnýting sumaraflans er á þessa leið: Lestir í salt samtals 1.446 (9.907 upps. tn.) í frystingu samtals 120 í bræðslu samtals 207.653 Útflutt alls 6.650 Samtals er þetta 215.859 Afli erlendra skipa er 322 Á sama tíma í fyrra var afl- inn þessi: Lestir í salt fór 53.322 (365.221 upps. tn.) í frystingu 1.698 í bræðslu 359.126 Alls 414.146 Landanir erl. skipa 4.456 Löndunarstaðir eru þessir: Lestir Reykjavík 22.080 Bolungavík 985 Siglufjörður 44.684 Ólafsfjörður 826 Dalvík 730 Krossanes 5.023 Húsavík 1.789 Raufarhöfn 34.807 Þórshöfn 1.627 Vopnafjörður 11.968 -') Seyðisfjörður 51.283 2) (auk þess frá erl. skipi) 60) Neskaupstaður 19.751 3) Eskifjörður 8.518 x) (auk þess frá erl. skipi) (262) Reyðarfjörður 2.141 Fáskrúðsfjörður 1.015 Stöðvarfjörður 1.135 Breiðdalsvík 394 Djúpivogur 461 Færeyingur 2.675 Hjaltlandseyjar 1.584 Þýzkaland 2.199 Síldveiðamar sunnan lands til 23. september 1967. Engin síld hiefur veiðzt síðan 18. ágúst. Leiðrétting hefur bor- izt á aflamagni, þannig að heild- araflinn mun vera 47.027 lestir, en á sama tíma í fyrra var afi- inn 42.135 lestir. Kjölur að fyrsta stálskipi á Seyðisfirði Seyðisfirði, 26. september. HÉR á Seyðisfirði var fyrir skömmu lagður kjölur að fyrsta stálskipinu, sem hér er smíðað. Hér er um að ræða 40 lesta fiskibát, sem smíðaður er hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar. Vél- smiðjan rekur slipp, en ekki hefuir hún haft mikið að gera við nýsmíði skip hingað tiL Gert er ráð fyrir að hér rísi í framtíðinni fullkomin dráttar- braut, en framkvæmdir við hana hafa ekki hafizt enn, SIAKSTEIMAR Óvandaður tillöguflutningur Þess gætir of oft í tillögu- flutningi minnihlutaflokkanna í borgarstjórn að kastað er fram vanhugsuðum tillögum, sem litt hafa verið undirbúnar og oft efnislitlar. Að vísu má segja, að tillaga sú, sem einn borgar- fulltrúi Alþbl. flutti í borgar- stjórn sl. fimmtudag um skóla- mál hafi verið efnismikil á sína vísu en þó er hún dæmi- gerð um tillöguflutning minni- hlutaflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur. Borgarfulltrúar niinnihlutaflokkanna kvarta oft undan því á borgarstjórnar- fundum, að meirihlutinn sé lítið gefinn fyrir að samþykkja til- lögur þeirra, en sannleikurinn er sá, að þær eru yfirleitt þannig úr garði gerðar, að slíkt er nánast óhugsandi. Heiðar- legar undantekningar eru þó til en þær eru því miður sjald- gæfar. j Að „skólahald fari sem bezt úr hendi" x Fyrri hluti þeirrar dæma- lausu tillögu, sem einn borgar- fulltrúi Alþbl. flutti í borgar- stjórn sl. fimmtudag hljóðaði svo: í tilefni af gagnrýni, sem m. a. hefur nýlega komið fram á íslenzk skólamál. lýsir borg- arstjórn Reykjavíkur því yfir, að það er eindreginn vilji henn- ar að stuðla að þvi fyrir sitt leyti, að skólahald fari sem bezt úr hendi og sé í samræmi viS kröfur nútíma þjóðfélags". Nú! hljóta menn að velta því fyrir sér, hvort nokkur skynsamleg ástæða sé til þess fyrir borgar- stjórn að samþykkja slíka yfir- lýsingu. Er ekki augljóst að það er „eindreginn vilji borgar- stjórnar að stuðia að því fyrir sitt leyti að skólahald fari sem bezt úr hendi og sé i samræml við kröfur nútíma þjóðfélags“. Erfitt er að sjá hvaða málefna- legum ávinningi borgarfulltrúl Alþbl. hefur ætlað að ná með slikri viljayfirlýsingu. Hér er sjálfsagt mál sett fram með al- mennu orðalagi. En þetta er því miður ekkert einsdæmi um til- Iöguflutning minnihlutaflokk- anna í borgarstjórn. Að kanna „rétt- mæti framkominnar gagnrýni" Siðari hluti þessarar furðu- Icgu tillögu er svohljóðandi: „Borgarstjórnin felur fræðslu- ráði að kanna gaumgæfilega réttmæti framkominnar gagn- rýni og gera rökstuddar tillögur um endurbætur og breytingar, sem nauðsynlegar reynast." Til- lögumaður leggur sem sagt til, að Fræðsluráð taki að sér það verkefni, sem eðlilega á að vera í höndum ríkisins og það hefur tekið að sér með stofnun skóla- rannsókna sem er að undirbúa heildarendurskoðun á fræðslu- kerfinu en það er það sem í þessari síðari málsgrein tillög- unnar felst. Nú munu menn velta því fyrir sér hvaða vit væri í því að eitt fræðsluhérað í landinu tæki að sér slíkt verk- efni og jafnframt hvort ástæða sé til að dreifa starfskröftum svo, að tveir eða fleiri aðilar vinni við þetta verkefni hver i sínu þorpi. Tillöguflutningur sem þessi þjónar engum skyn- samlegum tilgangi en er því miður næsta dæmigerður um starfshætti minnihlutaflokkanna í borgarstjórn. 4T

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.