Morgunblaðið - 04.05.1968, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.05.1968, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAI 1968 /1 - POLAR CUP Framhald af bls. 30 samleiksins og er það miður, en vonandi er aðeins um tímabils- erfiðleika að raeða hjá þeim, og víst er að þeir verða erfiðir and- staeðingar í framtíðinni. í^lenzka liðið hafnaði i þriðja sætinu, í fjórða sinn. ísland skip aði sér í það sæti þegar á fyrsta Polar Cup og hefur haldið því síðan. Fyrir mótið voru uppi raddir um að nú skyldu Svíar sigraðir og öðru ' sætinu náð. Fremur hefur verið þar um ósk- hyggju að ræða, en rökstudda von. Reyndin varð sú að Svíar hafa aldrei staðið jafn nálægt sigri í mótinu og nú, og íslend- ingarnir voru mun nær því að sigra Finna en Svía. Ekki ber þó að skilja þetta beinlínis serri mælikvarða á íslenzka liðið. Fyrsti leikur þess var á móti Svíum. Taugar liðsins voru í megnasta ólagi og körfuhittni mjög léleg. Eftir mjög góða byrj- un hvað snerti baráttu og sam- spil, brotnaði kjarkur liðsins þegar knötturinn hvað eftir ann að rambaði á körfubarminum og féll niður utan hringsins, án þess að skapa liðinu stig. Með hittni *ins og liðið sýndi á mótinu í heild, er það töluleg staðreynd að Svíar hefðu verið sigr- aðir með fjögurra stiga mun ef sú hittni hefði náðst einnig gegn þeim. Þetta er grátleg niðurstaða og ekki sízt vegna þess að leiða má rök að því að leikjaröð ís- lenzka liðsins hafi verið rangt upp sett. Liðið bætti sig í reynd, við hvern leik. Þannig að síð- asti leikur liðsins hefði átt að vera vð Svía. En því miður var Jean Dixon ekki með í ráðum og því fór sem fór. íslenzka lið- ið stóð sig með mikilli prýði, sigur yfir Dönum, og það 20 stiga sigur, er ætíð kærkominn og sýnir að þeir tveir leikir ís- lands og Danmerkur á undan- förnum Polar Cupmótum, sero unnist hafa með einu stigi, hafa verið svo jafnir og harðir frem- ur vegna taugaóstyrks og og reynsluleysis íslenzka liðs- ins, heldur en að getumunur liðanna hafi verið svo lftill. ís- lenzka liðið sýndi í þessu móti að það er á uppleið meðal Norð- urlandaþjóðanna í körfuknatt- leik, og er nær því að ná öðru sæti, en að hrapa niður í það fjórða. Þjálfari íslenzka liðsins var að þessu sinni Guðmundur nokkrum árum einn okkar fremsti körfuknattleiksmaður. Getur hann sannarlega verið á- nægður með lið sitt og er á- stæða til þess að óska honum til hamingju með árangurinn í hans fyrstu stórraun sem þjálfari liðs- ins. Því má þó ekki gleyma, að Helgi Jóhannsson sem um árabil hefur fórnað landsliðinu og körfuknattleiknum miklum tíma, á ekki hvað minnstan þátt í getu íslenzka liðsins í dag. Helgi lét af störfum sem lands- liðsþjálfari s.l. vor eftir sex ára látlaust starf. Hann hefur skap- að flesta þá menn sem framúr sköruðu í liðinu í Polar Cup, og þótt hann sé nú horfinn úr sæti þjálfarans má ekki gleyma því starfi sem hann vann, og orð ið hefur til þess að við eigum svo gott körfuknattleikslands- lið sem raun er á. Danska liðið varð mörgum til vonbrigða að þessu sinni. Við komuna til landsins með tíu stig sigur yfir Skotum að baki, voru greinilegar bronsvonir í augum Dana. Hundrað stig gegn Norð- mönnum í fyrsta leik, og góður leikur þeirra gegn Finnum, gerði sannarlega ekkert til þess að vekja vonir áhangenda þeirra um að þeim tækist að sigra ís- lendinga loksins, og hreppa þriðja sætið. En sú von varð að engu þegar á hólminn kom. ís- lenzka liðið var mun betra og sigur aldrei eygður af Dana hálfu. Var eins og liðið brotnaði gersamlega saman við þennan ó- sigur og varð það í ofanálag að þola stórt tap gegn Svíum 88:44, þrátt fyrir það að Svíar beittu ekki sínu sterkasta liði. Samt sem áður er ekki neinn vafi á að miklar framfarir hafa átt sér stað hjá Dönum frá því á síð- asta Polar Cup, fyrir tveimur ár um síðan. Lið þeirra er mun létt- ar leikandi, og leikaðferðir þess hafa tekið stakkaskiptum. Marg ir mjög skemmtilegir leikmenn eru í liðinu, og vil ég nefna tvo sérstaklega, þá Birger Fiala og Ernst Jensen. Báðir mjög leikn- ir og hittnir, og var Fiala stiga- hæstur Dananna á mótinu skor aði 35 stig. Eins og kunnugt er hefur Þorsteinn Hallgrímsson leikið með danska liðinu SISU um nokkurra ára bil, meðan hann dvaldist við nám í Kaup- mannahöfn. Svo mikilli vináttu batzt hann við Dani að þeim fannst nú á Polar Cup að þeir hefðu lánað okkur íslendingum Þorstein og fannst greinilega miður að hafa hann ekki í sínum röðum, en þjálfari danska lands- liðsins Torben Starup Hansen er einmitt Þjálfari SISU. Hjá dön- um kemur greinilega fram sama vandamál og hjá okkur íslend- ingum að tilfinnanlega vantar há vaxna menn í liðið. Bæði til þess að ógna með skotum sínum og til þess að ná fráköstum og verjast sókn risanna í liði and- stæðinganna. Þangað til breyt ing verður á þessu atriði geta Danír hvorki né íslendingar gert sér vonir um að ná í fremstu röð í körfúknattleik, þrátt fyrir mjög góða litla leikmenn, þurfa risarnir einnig að vera með, það er staðreynd í nútímakörfuknatt leik. Norska landsliðið var eins og við er að búast langsízta liðið í mótinu. Það er aS mestu skipað kornungum og um margt efni- legum leikmönnum, en íþróttin er mjög ung í Noregi og vart við miklum árangri að búast á fáum árum. Athyglisvert er að Norðmenn hafa byrjað sinn körfuknattleik algerlega sjálf- stætt, án allra áhrifa frá hand- knattleik. Ef borið er saman við þróunina hjá Dönum, þá var á- berandi allt fram til ársins 1961, að handknattleiksmenn iðkuðu körfuknattleik og bar leikur danska liða þess greinileg merki. Norðmenn hafa hinsvegar eins og áður er sagt byrjað á nýrri íþrótt og blandast hún hvergi inn í handknattleik, og er það vel því stíll þessarra íþrótta- greina er mjög ólíkur þótt hvorar tveggja séu handknatt- leikir. Norðmenn eru gestgjafar á næsta Polar Cup árið 1970, og verður ánægjulegt að sjá framfarir þessarra nánustu frænda okkar að tveimur árum liðnum. TAKIÐ EFTIR teppi ný til vor komu í morgun þau eru falleg þykk og hlý, þau tást með afborgun Alafoss Þingholtsstræti 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.