Morgunblaðið - 06.06.1968, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.06.1968, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR Robert F. Kennedy liggur á gólfinu í Ambassador-hótelinu nokkrum sekúndum eftir banatilræðið. Tilræðismaðurinn arabískur, fæddur í Jerúsalem: „Nauðsynlegt að myrða Kennedy fyrir 5. jtíní“ — skrifaði hann í vasabók sína Los Angeles, 5. júní. AP-NTB 0 Maðurinn, sem skaut Kennedy var gripinn á staðn- um. Tveimur þrekvöxnum svertingjum, lífvörðum þing- mannsins, tókst að ná af hon- um byssunni, 22 cal. skamm- byssu, og halda honum, unz lögreglan kom á vettvang og flutti hann hurt undir öflugri lögreglufylgd. 0 Tilræðismaðurinn fékkst ekki til að segja til nafns og bar engin skilríki á sér. Seint í gær var úr því skorið, að hann væri Sirhan Sirhan, 24 ára að aldri. Var það byssan, sem kom lögreglunni á spor- ið en hún var þó ekki skráð á hans nafn. Sömuleiðis hafði lögreglan fingraför hans í skrám sínum, síðan hann sótti um atvinnu fyrir nokkru og loks gaf bróðir hans sig fram við lögregluna, þegar birt hafði verið mynd af honum. 0 Seint í gærkvöldi til- kynnti borgarstjóri Los Ange- les, Sam Yorty, að fundizt hefði á heimili ódæðismanns- ins vasabók, þar sem skrifað Framh. á bls. 23 ÞEGAR Morgunblaðið fór í prentun í nótt, lá banda- ríski öldungadeildarþingmaðurinn, Robert Kennedy, milli heims og helju í sjúkrahúsi Miskunnsama Samverj- ans í Los Angeles, eftir banatilræðið, sem honum var sýnt í gærmorgun. í síðustu tilkynningu lækna hans, sem birt var laust fyrir kl. 1 í nótt að íslenzkum tíma, sagði, að þeir hefðu af því iniklar áhyggjur að hann * hefði engin batamerki sýnt frá því skurðaðgerðin var gerð á honum Blaðafullírúi Kennedys, Frank Mankie- wicz, sagði fréttamönnum þá, að mjög væri ennbá tví- sýnt um líf hans. 0 Læknar hafa lítið viljað segja um lífs- og batamögu- leika Kennedys, en vitað er, að einn af læknum hans hef- ur látið í ljós ótta um, að hann muni ekki lifa þetta til- ræði af og þótt hann lifi sé hugsanlegt, að heilaskemmd- ir hafi orðið það alvarlegar, að hann kunni að bíða var- anlegt tjón af, þó sennilega ekki á greind og persónu- leika. Taldi læknirinn, þrátt fyrir allt, veika von um, að hann næði bata. 0 Miklum óhug sló á bandarísku þjóðina, svo og fólk um allan heim, þegar fréttin af tilræðinu barst út. Lyndon B. Johnson, Banda- ríkjaforseti, sagði, að engin orð megnuðu að lýsa þessum skelfilega harmleik og marg- ir spurðu „hvað er að gerast meðal vor.“ Johnson fyrir- Framh. á bls. 10 Harmur móðurinnar, frú Kennedy, leynir sér ekki er hún gengur úr kirkju eftir að hafa beðið fyrir syni sín- um. Ódæðismaðurinn var gripinn á staðnum. Hann heitir Sirhan Sirhan, 24 ára. Hér leiða lögreglumenn hann á brott frá Ambassador-hótelinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.