Morgunblaðið - 03.09.1968, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.09.1968, Blaðsíða 1
28 SIÐUR 190. tbl. 55. árg. ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins Einróma stuöningur við Dubcek á fundi miðstjórnarinnar í Pra? Sovétríkin draga saman ógrynni liös við landamœri Rúmeníu Prag, 2. sept. (AP-NTB). • Miðstjórn kommúnistaflokks Tékkóslóvakíu kom saman til fundar í Prag um helgina, og var á fundinum kosin ný forsætis- nefnd miðstjórnarinhar, skipuð 21 fulltrúa. Meirihluti fulltrú- anna fylgir Alexander Dubcek flokksleiðtoga að málum, og að- eins tveir fulltrúanna eru taldir leiðitamir yfirvöldunum í Mosk- vu. • Sovétríkin hafa dregið saman mikinn her á landamærum Tékkó slóvakíu og Rúmeníu, og er haft eftir áreiðanlegum heimildum í Pra.g að hér sé um a'ð ræða rúmlega milljón manna lið auk þeirra sex hundruð þúsunda, sem eru í hernámsliðinu í Tékkósló- vakíu. Þessi liðssamdráttur hefur valdið ótta við yfirvofandi innrás í Rúmeníu, en sendiherrar Sovét ríkjanna í París og Washington hafa gengið á fund þarlendra yfirvalda og fullvissað þau um að innrás sé ekki fyrirhuguð. • Á fundi miðstjórnarinnar í Prag var einróma samþykkt yfir ! lýsing um stuðning við flokks- leiðtogana, sem stóðu a'ð samn- ingaviðræðum í Moskvu við so- vézka ráðamenn í fyrri viku Einnig lýsti miðstjórnin því yfir að Tékkóslóvakía væri áfram aðili að Varsjárbandalaginu, og ekki kæmi til greina að lýsa yfir hlutleysi landsins. Þá fól mið- stjórnin nýkjörinni forsætisnefnd að vinna að undirbúningi 14. flokksþingsins, sem frestað hef- ur verið um óákveðinn tíma, og að vinna að því að erlendur her verði sem fyrst fluttur úr landi. Dubcek flokksleiðtogi skoraði á alla landsmenn að styðja lög- leg yfirvöld landsins. Sagði hann miðstjórninni að Tékkóslóvakía [ verði að sýna Sovétríkjunum að I verið sé að reyna að standa við | gerða samninga. í framhaldi af þessari áskorun i leiðtogans var brýnt fyrir öllum nemendum við æðri skóla lands- ins að sýna stillingu og forðast árekstra við setuliðið. Frantisek Hamouz aðstoðarforsætisráð- herra ávarpaði stúdenta í út- varpsræðu í dag, og bað þá að efna ekki til mótmælaaðgerða né hópfunda. Hann sagði að ef þeir vildu skoða ummerki í borginni og minnast látinna félaga sinna, þá yrðu þeir að gera það „hljóð- lega, og í smá-hópum“. Einnig voru verkamenn fullvissaðir um það að þeir fengju bætur fyrir Jaunamissi vegna „atburðanna", einnig fyrir allsherjarverkfallið, sem efnt var til í því skyni að mótmæla innrás Sovétríkjanna á dögunum. Er í fréttum jafnan talað um „atburði" og ,,erlent Úerlið" í stað innrásar og her- námsliðs, og er þar að sjá fjrrstu Frh. á bls. 27 Alexander Dubcek flokksleiðtogi (til vinstri) og Oldrich Cerniik forsætisráðherra á fundi miðstjórnar kommúnistaflokks Tékkó- slóvakiu á sunnudag. I Mynd þessi var tekin í rústum þorpsins Kakhk í norð-austurhlu ta Irans eftir jarðskjálftana þar á laugardag og sunnudag. Sýnir hún móður reyna að hugga bam sitt eftir öll ósköpin. Matvœli flutt til BIAFRA þrátt fyrir hótanir Lagosstjórnar um að skjóta flugvélarnar niður Genf og Lagos, 2. sept. ALÞJÓÐA Rauði krossinn í Genf tilkynnti í dag að opnuð yrði loft brú til flutninga á matvælum og vistum til bágstaddra í Biafra þrátt fyrir hótanir Nígeríustjóra ar um að skjóta niður flugvélar samtakanna. Flogið verður frá Santa ísabel, höfuðborg spænsku eyjunnar Fernando Po, þar sem nú hafa safnazit saman um 3.500 tonn af matvæilum. Verða matvælin flutt með fjórum fluigvélum af gerðinni DC-6, sem Rauði kross- inn í Danmörku, Noregi, Sví- þjóð og Finnlandi hafa útvegað, og flutningavél af gerðinni C- 130 Hercules. Sjötta vélin er væntanleg, og er hún á vegum Rauða krossins hollenzka. Stjóm Nígeríu var tilkynnt um þessa ákvörðun Aliþjóða Rauða krossins, og svaraði hún þá með nýrri aðvörun. Segir Nígeríuistjórn að flugvöllurinn í Biafra, þar sem flugvélarnar eiga að lenda, sé í beinni s'kotlínu stórskotaliðs stjórnarhersins. Vísar stjórnin frá sér allri á'byrgð á því, sem koma kann fyrir flug vélarnar, og segir að flutningur- inn til Biafra sé algerlega óiög- legur. Ef flugvélar Rauða krossins fljúga yfir landsvæði Nigeríu og herbúðir stjórnarhersins án heimildar, segir í tilkynningu Lagosstjórnairinnar, geti þær að- gerðir haft alvarlegar afleiðing- ar, sem Nigerustjórn vill ekki bera ábyrgð á. Skorar hún á öll þau ríki, sem ítök hafa í Al- þjóða Rauða krosisinum, að fá samtökin til að hætta við þessar aðgerðir, er hvergi eigi sinn líka í ;sögu Rauða krossins. Þrátt fyrir þessa yfirlýsingu stjórnar Nígeríu eiga matvæla- flutningarnir að hefjast fljótlega, sennilega strax á morgun. Hef- ur fulltrúi Rauða kiross'ins, Aug- ust Lindt frá Sviss, sem hefur stjórnað aðgerðum samtakanna til að koma visitum til Biafra, tilkynnt að hann muni sjálfur fara með fyrstu flugvélinni. Íausaruag wg suiuiuuug. oyuu nun muour reyna ao nugga oarn siu enir Oll oSKOpin. I— r~ r- I— 1— 0- ^ Gífurlegir jarðskjálftar í íran; — óstaðfestar fréttir herma áð 20 þús. manns hafi farizt Tehelan, 2. sept. NTB, AP. GÍF U RLE GIR jarðskjálftar urðu á viðáttumiklum svæð- um í norðausturhluta frans á laugardag og sunnudag. Meira en eitt hundrað bæir og þorp jöfnuðust algerlega við jörðu og samkvæmt óstaðfestum heimildum munu tuttugu þús und manns hafa beðið bana. Þá er óttazt að þúsundir liggi enn grafnir undir rústunum. Björgunarsveitir hafa unnið að því alla helgina að leita að fólki og víða heyrast örvænt- ingaróp frá börnum og full- orðnum, sem liggja slösuð eða í andarslitrunum undir rústum. Hjálpargögn og tjöld hafa verið send á staðina, sem harð ast urðu úti, en álitið er að yfir eitt hundrað þúsund manns séu heimilislausir. For sætisráðherra írans, Amir Abbas, fór strax frá Teheran, hann fékk fréttir af jarð- skjálftunum og hefur ferðast milli þeirra staða, þar Frh. á bls. 27 Kongó: Foisetinn fongi? Kinshasa, 1. sept. NTB. ÁREIÐANLEGAR heimildir í Kinshasa greina frá því að senni- lega hafi forseti Kongó, Mass- emba Debat, verið sviptur völd- um og allt bendi til, að hann 'hafi verið handtekinn ásamt nokkrum öðrum stjórnmálamönm um landsins. Þetta hefur þó ekki verið staðfest af opinberri hálfu. Tilkynningair, sem gefnar hafa verið út um ástandið í Kongó lýðveldinu síðan á föstudag í út- varpinu i Brazzaville hafa verið gefnar út í nafni yfirstjórnar hersins og hvergi vikið að því að forsetinn, Massemba Debat hafi verið sviptur völdum við bylt ingu hersins í fyrra mánuði, en fengið síðar að gegna embætti áfram, eftir að völd hans höfðu verið skert verulega. NTB-fréttastofan segir, að kyrrð sé nú að mestu komim á í landinu og hvergi ‘hafi verið bar zit undanfannia tvo daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.