Morgunblaðið - 15.09.1968, Blaðsíða 1
32 SÍDIIR OG LESBÓK
201. tbl. 55. árg. SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
en er vantrúaður á árangurinn
Salisbury, Rhodesíu 14. sept.
— NTB
Ian Smith, forsætisráðherra
Rohdesíu, ^agði í dag að hann
væri reiðubúinn til þess að taka
upp að nýju samningaviðræður
við Bretland um lausn á hinni
þriggja ára gömlu deilu varð-
andi sjálfstæði Rhodesíu. Smith
bætti því hinsvegar við að nú
væri leikurinn Breta, og að hann
væri ekki sérlega bjartsýnn á
að samkomulag næðist.
Smith, sem nú stendur and-
spænis verulegum stjórnmálaleg-
um vanda, þar eð alvarlegur
klofningur er innan stjórnar-
flokksins, Rhodesíufylkingarinn
ar, kvaðst vera reiuðbúinn að
hefja viðræður á hvaða grund-
velli, sem vera skyldi, svo fram-
arlega sem hann væri uppbyiggi
legur og heiðarlegur.
Engu að síður kvaðst hann
aldnei mundu semja um neitt,
sem kæmi í veg fyrir að mennt-
uð, hvít stjórn sæti í Rhodesáu.
Donir vantreysta
Aðskilin þróun kynþáttanna
væri einasta leiðin, sem fær
væri fyrir landið. Sú skipan
mála, sem ekki þjónar bezt hags
Framhald á bls. 31
Eisenhower
ó botnvegi
Washington, 14. sept. AP.
LÆKNAR segja að Dwight D.
Eisenhower, fyrrum Bandaríkja-
forseti, sé á stöðugum batavegi
eftir sjöunda hjartaáfallið. Eisen
hower er enn rúmfastur, en lækn
ar segja að ekkert nýtt hafi kom
ið fyrir hjarta hans. — Ekki er
enn vitað hvenær hinn 77 ára
gamli fyrrum forseti fær að fara
af sjúkrahúsinu.
Á íslandi er ótrúlegur fjöldi sérkennllegra náttúrufyrirbæra. Eru þau oft í senn stórskorin
og undurfögur. Mörg þessara náttúruundra koma aðeins fyrir fárra augu, eða þeirra, sem leggja
leið sína inn á öræfi og óbyggðir landsins. Þessi mynd er til dæmis af snjóbrú á Fúlukvísl við
Þjófadalafjöll. Björn Bergmann á Blönduósi tók myndina.
Ritskoðun enn hert í Tékkóslóvakíu
Smith kveöst reiðubú-
inn að semia við Breta
Sovétríkjunum
Kaupmannahöfn, 14. sept.
NTB.
72% Dana efast meira en áðutr
um friðarvilja Sovétríkjanna eft-
ir innrásiina í Tékkóslóvakíu og
34% eru vinveittari Bandaríkj-
unum en áður, að því er fram
kemur í niðurstöðum skoðana-
könnunar, sem birt var í blað-
inu ,,Aktuelt“ í dag.
Niðurstöðurnar gefa til kynna
að gífurleg breyting hefur átt
sér stað varðandi þá trú manna,
að Sovétríkin vilji halda heims-
friðinn.
Duong Van Mlnh, hershofBIngl.
Tékkneskir leiðtogar þinga um enn
frekari undirgefni við Kreml
Prag, og Moskvu, 14. sept.
AP, NTB.
★ Tékkneska þjóðþingið, sem
áður krafðist þess harðlega að
Sovéthermenn yrðu á brott úr
Tékkóslóvakíu, samþykkti ein-
róma á fundi í nótt að hægja
yrði förina í átt til aukins frjáls-
ræðis í landinu „vegna hins
nýja ástands".
★ í dag gengu í gildi nýjar og
enn strangari ritskoðunarreglur
í landinu. Sá, sem fyrstur varð
til þess að brjóta nýju ritskoð-
unarreglurnar var háttsettur em
bættismaður í kommúnistaflokkn
um!
Á I*á munu tékkneskir leiðtogar
hafa í dag hafið viðræður sín á
milli um enn frekari tilslakanir
fyrir kröfum Sovétmanna, til
þess að unnt verði að losna við
heri Varsjárbándalagsríkjanna
úr landinu.
í Prag er margt talið benda
til þess, að frekari tilslakanir
við Sovétmenn feli í sér, að Tékk
ar verði að losa sig við alla þá
leiðtoga, sem óánægja ríkir með
í Kreml.
Jafnframt því, sem ritskoðun-
in hefur verið hert, birti Pravda,
málgagn sovézka kommúnista-
flokksins, í dag mjög harðar árás
ir á ýmsa ónafngreinda tékkn-
eska leiðtoga.* Sagði blaðið að
embættismenn í Tékkóslóvakíu
margir hverjir „ynnu á laun“ að
því að spilla þeim gagnkvæma
skilningi, sem væri með Tékk-
um og Sovétmönnum.
f frétt frá Bratislava segir
að fyrirmæli frá tékkneskum em-
bættismönnum komi í veg fyrir
eðlileg samskipti sovézkra her-
manna og tékkneskra borgara.
Pravda og fleiri sovézk blöð
birtu einnig Tassfrétt, þar sem
segir að þeir aðilar, sem andvíg
ir séu stefnu tékknesku stjórn-
arinnar, fái sjónarmið sín enn
prentuð í blöðum úti á lands-
byggðinni. Segir í Tass-frétrtinni,
að sum þessara blaða „ráðist op-
inberlega á Moskvusamkomulag
ið, og rægi þá, sem styðja þá
stefnu, að ástandinu í landinu
verði komið í eðlilegt horf“.
í dag gengu í gildi nýjar rit-
skoðunarreglur fyrir tékknesk
dagblöð og fréttastofnanir, og
eru þær mun strangari en áður.
Góðar heimildir segja, að í regl-
um þessum sé lagt blátt bann
við því, að birtar séu nokkrar
fregnir um tölu þeirra, sem biðu
bana í innrásinni í landið, og um
eignatjón af völdum innrásar-
liðsins.
Hinar nýju reglur bárust frétta
stofnunum landsins alllöngu áð-
ur en Zdnek Mlynar, háttsettur
embættismaður kommúnista-
flokks landsins, flutti sjónvarps-
Framhald á bls. 31
Heildarfiskveiði heimsins
jókst árið 1967
FAO spáir að fjörkippur komi í fisk-
verzlunina vegna Kennedy-viðrœðnanna
Róm 14. sept. — AP.
FISKAFLI Norðmanna og
Japana stórjókst á sl. ári, að
því er segir í ársskýrslu Mat-
væla- og landbúnaðarstofnun
ar Sameinuðu þjóðanna um
fiskveiðar heimsins 1967. Á
hinn bóginn fluttu Banda-
ríkjamenn minni afla að landi
en dæmi eru til í aldarfjórð-
ung, og afli íslendinga dróst
saman eftir hina stórkostlegu
aflaaukningu 1966, segir í
skýrslunni.
Thieu biður Stóra-Minh að koma til Saigon
— Keith L. Ware, hershöfðingi
fórst í þyrluslysi
Saigon 14. septemiber AP—NTB.
NGUEN Van Thieu, forseti,
sagði í dag að hann hyggðist
biðja Duong Van Minh, hers-
höfðingja, að hverfa heim úr út-
legðinni í Bangkok og gerast sér-
legur ráðgjafi sinn. I öðrum frétt
um frá Saigon segir að bandaríski
hershöfðinginn Keith L. Ware
hafi farizt ásamt sjö hermönn-
um þegar þyrla hans hrapaði.
Sú áikvöniðun Nguyetn Van
Thiouis, forseita, aið biiðja Vain
Mimih (Stóra Miinih) hershöfð-
ingja, að komia aftutr tifl Saigon
mun hafa mikil áhiritf stjórn-
miálalega og leiða til hairðra
deilna. Jafnfram't miun hún afla
forsetanium mikiLs stuiðnirngs í
Suður-Vietnam, sem hainn hetfur
vissulagia þörf fyriir.
Stóri Minh vair fjöig'Uinra
stjörnu hershöfðingi og það vair
hann sem stjómaði aðgerðuim
þegar Ngo Dirnih Diern, forseta
var stfeypt af stóli 34. nóvemibetr
1963. Stóri Minh stjórnaðd land-
inu í mmt ár áður en harrn var
rekiinn í útlegð. Hann var á leið
frá Banglkok en fliugstjórinn
fékik sikipun um að snúa atftuir,
við landamæri Vietnam, og
setja hershöfðingjann atf i Bamig-
kok á nýjan leik. Þar hetfur
hann verilð síðan.
Framhald á hls. 31
Noregur, Perú, Japan, Rauða-
Kína og Sovétríkin, en fjögur
hin síðasttöldu eru einu lönd
veraldar, sem afla meira en
fimm milijón tonn á ári, veiddu
meiri fisk ári'ð 1967 en árið á
undan.
Þessi fimm lönd að viðbætt-
um S-Afríku og SV-Afríku eiga
stærsta þáttinn í því, að heild-
araflinn í heiminum jókst árið
1967, en hann nam þá 59,4 millj-
ónum tonna, 2,3 milljónum meira
en 1966.
Noregur, Perú, S-Afríka og SV-
Afríka juku fiskútflutning sinn
verulega á árinu, segir í skýrslu
FAO.
Gagnstætt því, sem var um
fiskveiðar framangreindra þjóða,
dró úr afla ýmissa annarra mik-
illa fiskveiðiþjóða, m.a. Banda-
ríkjanna, Chile, Kanada, íslands
og Bretlands. I Bandaríkjunum
var á árinu landað 2,4 milljónum
tonna af fiski og skelfiski 1967,
en það er minnsta aflamagn þar
í 25 ár.
Heimsframleiðslan á fiski í
heild hélt áfram að vaxa á árinu
eins og hún hefur gert allar göt-
ur frá lokum heimsstyrjaldar.
Perú er enn langmesti fisk-
framleiðandi heims. Á sl. ári öfl-
uðu Perúmenn 10,1 millj. tonna,
eða 15,1% af heimsaflanum. Perú
Framhald á bls. 31