Morgunblaðið - 04.10.1968, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.10.1968, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 196« Halldóra B. Björnsson skáldkona — Minning Djúpur aöknuður eftir dýran vin brennur lengi í blóði. Hann er þér í heitu hjarta fólginn, þótt færi á veg með vindum. Engi má síðan auðan aeas fylla þó framur sé. Það þú finnur þá fjarri er syrgir þú annan sem áður. Halldóra B. Bjömsson er horf- in sjónum — farin á veg með vindum, eins og hún sjálf orðaði það fagurlega í saknaðarstefi litlu, er hún færði mér sumar- ið 1967 ásamt þýðingarkafla úr frægu fornensku kvæði. Það er hugfróun á upplausnartímum að lesa slíkan vitnisburð um sam- t Móðir okkar Ásdís Sigurgeirsdóttir, Lindargötu 2, Siglufirði, andaðist 2. október. Helga Torfadóttir, Ólafur Torfason. t Eiginmaður minn, Wilhelm Vedder Emilsson úrsmiður, lézt 2. október. Steinunn Kristinsdóttir. t Maðurinn minn og faðir okkar, Magnús Helgi Kristjánsson frá Isafirði, andaðist að heimili sínu, Þing hólsbraut 20, áðfaranótt 1. okt. Bergþóra Þorbergsdóttir og börn. t Konan mín, Rannveig í. Runólfsdóttir sem lézt 1. þ.m. verður jarð- sungin frá Fóssvogskirkju, þriðjudaginn 8. þ.m. kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkað, en þeim sem vildu minnast henn- ar er bent á Kristniboðið. Fyrir hönd aðstandenda. Sigurður Guðmundsson. t Útför mannsins míns og bróður Kristins Guðnasonar frá Hafranesi verður gerð frá Fossvogs- kirkju laugardaginn 5. okt. kl. 10.30 f.h. Una Guðmundsdóttir Guðný Guðnadóttir. hengið í óðlist og tungu vorri allra helzt frá hendi aðila, sem sjálfir hafa ekki hikað við að leggja inn á nýjar brautir. Hinn heiði blær Eddukvæðanna hef- ur ekki hopað fyrir, heldur orð- ið förunautur sólheitra vinda frá skógum og auðnum Afríku. Halldóra Beinteinsdóttir var fædd að Litla-Botni á Hvalfjarð- arströnd. Þar ólst hún upp í hópi gáfaðra, ljóðelskra systkina sem sum hver voru skáldmælt eins og hún. Um tvítugsaldur fór hún tvo vetur til náms á Hvítárvalla- skóla. Dvölin á þeim merka stað varð henni þroskvænleg og áhrifarík. Þar kynntist hún er- lendum skáldskap og ljóðlist og batt ævarandi tryggð við þýzka tungu. Árið 1936 giftist hún Karli Björnssyni frá Borgarnesi. Mann sinn missti hún 1941. Þau hjón eignuðust eina dóttur, Þóru Elfu, er ung að aldri fet- aði í fótspor móður sinnar og gaf út ljóðabók, þótt ljóðagerð- in hafi nú um sinn orðið að þoka fyrir önnum húsmóður og móð- t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ólafur Jónsson, Túngötu 47, verður jarðsettur laugardag- inn 5. okt. kl. 10.30 frá Dóm- kirkjunni. Jarþrúður Jónsdóttir Vandamenn. t Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir Sigurður Sölvason kaupmaður, Skagaströnd, verður jarðsunginn frá Skaga strandarkirkju laugardaginn 5. okt. kl. 2 e.h. Margrét Konráðsdóttir, börn og tengdaböm. t Faðir okkar og tengdafáðir Hallmann Sigurður Sigurðsson frá Lambhúsum í Garði verður jarðsettur frá Útskála kirkju laugardaginn 5. okt. kl. 1,30 Börn og tengdabörn. t Hjartanlega þökkum við öll- um þeim sem sýndu okkur samúð við andlát og jarðar- för Júlíusar Jónassonar fyrrum vegaverkstjóra frá Vífilsnesi. Sérstakar þakkir færum vfð séra Ágústi Sigurðssyni, Vallanesi, fyrir hans kær- leiksríku vinsemd. Guð blessi ykkur öll. Jónína Ásmnndsdóttir, börn, tengdasynir og barnabörn. ur. Ég hygg að Halldóra hafi talið það hina miklu gjöf lífs- ins sér til handa að hafa eign- azt og fóstrað upp þessa gáf- uðu og mannvænlegu dóttur. Kynni okkar Halldóru hófust fyrir rúmum áratug í utanlands ferð. Hún var þar eins konar fararstjóri, en jafnframt skemmti legur ferðafélagi, er átti til að bregða á gáska, jafnvel fara með glettnar haglega kveðnar borgfirzkar stökur, jafnvel rímur í hótelherbergi undir hlíð um fjallsins Ararat um óttu- skeið. Oft minntist hún dóttur sinnar, er hún sá eitthvað það er hugann hreif. Eina minn- ing ber ofar öðrum úr þessu ferðalagi: — fslenzk bóndadóttir, klædd búningi móður og formóð ur stendur fyrir gafli veizlu- borðs í salarkynnum aldraðra listamanna í borg Péturs mikla — og segir fram vögguljóð Ler- montoffs, með sinni grönnu fág uðu rödd. Og þegar kemur að öðru erindi kvæðisins hafa flest ir viðstaddra tekið undir með henni. — Svo vel hefur hún varð veitt form og hrynjandi kvæðis- ins að bilið milli fjarskyldra tungna hverfur um stund. Halldóra verður minnisstæð þeim, er höfðu af henni náin kynni. Hún var fjölþætt kona — og hún var sönn dóttir sinna borgfirzku heimahaga. Þar stóðu ræturnar djúpt og treystust að- eins við fjarvistir. Ógleymanleg verður mér og fleirum leiðsaga hennar um heimahéraðið fyrir t Innilegustu þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur vináttu og samúð við andlát og jarðarför föður okkar Einars Þorsteinssonar Hallskoti. Böm, tengdaböm og barnaböm. t Innilegar þakkir fyrir auð- sýnda vináttu og samú'ð við andlát og jarðarför Sigríðar Zoega, ljósmyndara. Sérstaklega þökkum við læknum og hjúkrunarliði Borgarspítalans fyrir frá- bæra umönnun og hjúkrun. Bryndís Jónsdóttir, Snæbjöm Jónasson og böm, Steinunn Thorsteinsson. tveimur vorum. Allt var þar lif- andi, Ijóst og hugumkært land- ið, sagan og fólkið — jafnvel á- lagablettirnir. Hún var vissulega fjölþætt kona í senn heimsborgari og þjóðleg í lífsviðhorfi. Þetta tvennt skóp henni heldur engan lífsvanda, að ég hygg. Henni var jafneðlilegt að fást við ljóðaþýðingar af- rískra skálda, kynna tékknesk ævintýr og spinna fínan þráð úr handkembdri ull af borgfirzk um ásauðum. Þrátt fyrir marg- þætt áhugasvið var einbeiting og þolgæði einkenni hennar sem listakonu. Og aldrei hygg ég þetta kæmi skýrar fram en á síðasta æviárinu þegar hún þrot- in heilsu glímdi við þrekvirki er margur fullhraustur hefði frá horfið. Að endingu vil ég votta minni látnu vinkonu þakkir fyrir lær- dómsrík kynni og vináttu og dóttur hennar og ættingjum hlut tekningu. Amheiður Sigurðardóttir. Valgerður Júlía Þórs Ingvadóttir - Minning Fædd 1. júlí 1951. Dáin 11. sept. 1968. ELSKU Vallý mín. Mig langar til að skrifa þér nokkrar fátæk- ar línur í kveðjuskyni. Ég átti því láni að fagna, að kynnast þér í sumar sem lefð, er við unnum saman í Bæjarútgerð- inni. Þú og Kristey voruð að safna fyrir Englandsförinni ykkar. Við vorum alltaf fjórar saman. Og betri kunningjahóp hefði ég ekki getað kosið mér, á meðan á heimsókn minni stóð. Þess vegna á ég mjög erfitt með að trúa því, að þú, þú sem allt- af varst glöð og ánægð, og hélzt uppi hópnum með gláðværð þinni, sért horfin okkur sjón- um. En þú munt lifa áfram, elsku Vallý mín, þú munt lifa í huga okkar allra, sem þekkt- um þig. Þá vinsemd, glaðværð og ánægjustundir sem þú gafst okkur, því gleymum við aldrei. Vil ég því þakka þér elsku Vallý mín, fyrir ógleymanlegt sumar og fyrir allar þær gleði- og ánægjustundir, sem við átt- um saman. Foreldrum þínum, systkinum og öllum ættingjum, vil ég votta mínar dýpstu sam- úðarkveðjur. Einnig okkar sam- eiginlegum vinum, Kristey Jóns- dóttur og Sævari Jóhannessyni. Guð blessi minningu þína, Vallý mín. Þín vinkona, Vilhelmína Ragnarsdóttir Svíþjóð. Stjórnarfundur Húseigendn- snmbnnds Norðurlnndn SUNNUDAGINN 29. september sl. var haldinn í Kaupmannahöfn fundur í stjórn Húseigendasam- bands Norðurlanda. Af íslands hálfu sóttu fundinn Páll S. Páls- son hæstaréttarlögmaður formað ur Húseigendasambands íslands og Jón Hjaltason hæstaréttarlög- maður frá Vestmannaeyjum. Höfuðverkefni fundarins var að skipuleggja þing, sem halda skal í Danmörku á vori komanda með fulltrúum frá húseigenda- samtoöndum allra fimm Norður- landanna. Samþykkt var að þing þetta skyldi haldið í Kaupmannahöfn 15. og 16. júní 1969 og skyldi fyrri daginn á lokuðum fundi fulltrúanna tekið fyrir umræðu- efnið: Réttarstaða fasteigna í nú- tíma þjóðfélagi. Danmörk mun l&ggja til málshefjanda en síðan er gert ráð fyrir 15 til 20 mín- útna erindi frá hverju hinna Norðurlandanna. Þarna verður rætt um réttarlega og fjárhags- lega stöðu fasteigna sem slíkra og aðstöðu húseigandans frá ýms um hliðum séð. Fyrirhugað er að 16. júní verði framhaldsumræður á opn- um fundi fyrir fréttamenn sjón- varps og blaða og þar muni hús- næðismálaráðherra Dana flytja ávarp og taka þátt í umræðum. Ákveðið var að næsta sameig- inlegt mót norrænu húseigenda- félaganna yrði háð í Reýkjavík árið 1971. í upphafi stjórnarfundar Hús- eigendasambands Norðurlanda hélt formaður danska sambands- ins E. Udsen ræðu, þar sem hann bauð velkomna gesti fundarins, sem voru auk hinna norrænu gesta, Aage Hastrup húsnæðis- málaráðherra, og sérfræðingax stjórnmálaflokkanna í húsnæðis- málum, en þrír þeirra voru þarna mættir. Að því loknu ræddi formaður ýtarlega um markmið og starf sambandsins, sem nú telur 65 þúsund félags- menn. Eftir ræðunni að dæma virðist danska sambandið mjög hafa breytt um starfshætti síðast liðin ár með því að áður voru fundir lokaðir og lítil upplýs- ingastarfsemi eða áróðurstarf- semi út á við en nú hefur þetta breytzt og dagblöð, útvarp og sjónvarp birta mikið fréttaefni sem varðar störf og stefmu danska húseigendasambandsins, sem einnig hefur í undirbúnimgi að gefa út blað. Dönsku húsa- leigulögin eru forystumönnum sambandsins mikill þyrnir í aug- um. Og að öðru leyti snerist ræða formannsins mjög um ým- is atriði í löggjöfinni sem breyta þyrfti. svo sem skattalöggjöf, svo að hag húseigenda yrði betur borgið. Fulltrúum íslands var á allan hátt sómi sýndur af forystu- mönnum danska sambandsins svo og hinna Norðurlandanna. Beztu kveðjur og þakkir til allra þeirra er sýndu mér vin semd á 80 ára afmæli mínu. Sigurjón Jónsson frá Djúpadal. Innilegar þakkir færi ég öll- um þeim, sem sýndu mér vin- arhug á níræðisafmæli mínu hinn 19. september sl. Oddrún Sigurðardóttir Miklubraut 50.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.