Morgunblaðið - 05.10.1968, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.10.1968, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1968 S.Í.B.S. 30 ara: Stórvirki unnið í endurhæfingu ðryrkja — Berklavarnardagurinn n.k. sunnudag — Berklasjúklingum hefur fœkkað, en verksvið sambandsins hefur verið fœrt út BERKLAVARNARDAGURINN — hínn árlegi merkjasöludagur S.Í.B.S. verður n.k. sunnudag og þá verður einnig selt rit sam- bandsins, Reykjalundur. I til- efnl þessa, og ennfremur að í þessum mánuði eru liðin 30 ár frá stofnun sambandsins, buðu forráðamenn þess fréttamönnum blaða og útvarps í stutta kynnis ferð að Reykjalundi i gær og gafst þá kostur á að skoða hinar mikiu framkvæmdir sambands- ins á staðnum og þann rekstur er þar fer fram. Sennilega verða fiestir þeir sem til Reykjalundar koma undr andi á að sjá það stórvirki sem S.Í.B.S. hefur komiðþar í fram- kvæmd á 30 ára starfsferli sín- um. Auk sjúkrahússins og þjálf- unarstöðvar eru nú reknar á Reykjalundi saumastofa, plast- verksmiðja, trésmíðastofa og járnsmíðastofa. Allar eru þessar stofnanir í tengslum við endur- hæfingarstarf öryrkja, en að sögn forráðamanna sambandsins hefur reksturinn gengið nokkuð vel og yfirleitt staðið undir sér. Sögðu þeir að sum árin væri reyndar halli á rekstrinum, en önnur árin hinsvegar nokkur hagnaður. Þá rekur S.í.B.S. einn ig vinnustofuna Múlalund, að Ár múla 16 í Reykjavík og starfa þar að jafnaðí 40-50 öryrkjar. Síldarstúlkur óskast Síldarvinnslan h.f. Neskaupstað, óskar eftir að ráða strax vanar síldarstúlkur til Neskaupstaðar. Fríar ferðir, frítt fæði og húsnæði. Kauptrygging. Upplýsingar eftir hádegi í dag í síma 83289. SÍLDARVINNSLAN, Neskaupstað. TIL SÖLU - notaÖar bifreiðar Höfum til sölu eftirtaldar Skodabifreiðar: SKODA 1202 1965 — Verð kr. 90.000.—, útb. 45.000.— SKODA 1202 1964 — Verð kr. 85.000.—, útb. 35.000.— SKODA 1202 1965 (SENDIBIFREIÐ) — Tilboð óskast. SKODA OCT. SUPER 1964 — Verð kr. 70.000.—, útb. 30.000,— SKODA OCTAVIA 1962 — Verð kr. 55.00.—, útb. 20.000.— Bifreiðarnar eru allar nýskoðaðar af Bifreiðaeftirliti ríkisins, og eru til sýnis að Elliðaárvogi 117. Tékkneska bifreiðaumboðið á íslandi h.f. símar 19345 og 82723. Kennsla hefst 7. okt. n.k. Síðasti innritunardagur Sími 84842. Skírteini afhent á morgun kl. 4—6 í Lindarbæ (uppi). alletískólí Katrínar Guðjóusdóttur Lindarbæ. DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS BERKLASJÚKLINGAR HÖFÐU SJAFLIR FRUMKVÆÐ IÐ Þórður Benediktsson, sem ver- ið hefur forseti S.Í.B.S. um ára- bil, sagði, að það hefði verið mik ið og vandasamt verkefni sem orðið hefði að leysa á Reykja- lundi, og það hefði því aeins verið hægt, að alþjóð hefði sýnt málinu mikinn áhuga og skilning frá fyrstu tíð. Það hefðu verið berklasjúklingar sjálfir sem á sínum tíma áttu frumkvæðið að srtofnun Reykjalundar og þeir hefðu sýnt svo ekki væri um villzt, að þrátt fyrir hinn skæða og erfiða sjúkdóm, væri það dug mikið og ákveðið fólk, sem hefði hlutverki að gegna í þjóðfélag- inu. Þórður sagði ennfremur, að tekjur af merkjasölu berkla- varnardagsins vseru í sjálfu sér ekki stórvægilegur liður í rekstri sambandsins, en eigi að síður hefði hann mibla þýðingu. Nauðsynlegt væri fyrir þá, sem að þessum málum störfuðu, að vita um hug þjóðarinnar og góð- ar undirtektir fólks undanfarna Þórður Benediktsson forseti S.Í.B.S. berklavarnardaga hefði nánast verkað sem traustyfirfýsing þjóðarinnar á það starf sem ver- ið er að vinna. BERKLASJÚKLINGUM FÆKKAR STÖDUGT Oddur Ólafsson yfirlæknir á Reykjalundi svaraði spurningum fréttamanna um starfsemi endur- hæfingarinnar og um berklaveik ina. Sagði hann að 1938 hefði hér lendis verið orðið mjög alvar- legt ástand. Dánartala þeirra er sýkst höfðu af berklum var há og sýkingartilfelli tíð. Flestir þeirra sem náðu bata við lækn- isaðgerðir urðu að fara strax út í atvinnulífið, og 'lítið var um að ræða annað en erfiðisvinnu. Þetta hefu sjúklingarnir þolað mjög illa. Reykjalundur hefði því verið stofnaður til að æfa upp orku þeirra Nú væri ástandið mjög breytt. Berkla- veikin væri ekki lengur þjóðfé- lagsvandamál. Lyf og skurðað- gerðir kæmu í veg fyrir mjög alvariega sýkingu, en ætíð væri samt um mörg berklatilfélli að ræða áriega. Oddur sagði að sjúklingar á Reykjalundi væru nú 133 og væru þeir flestir þar til endur hæfingar. Um 30prs. þessara lungnasjúklingar, um 50prs væri fatlað fólk og um 20prs. væru geð- og taugasjúklingar. Flestir sjúklingar, sem til Reykjalundar kæmu, væru þar frá 6 vikum til 1-2 ára og kæmu um 200 sjúkl- ingar inn á hælið árlega. ENDURHÆFINGARSTÖð OG VERKSMIÐJUR Endurhæfingarmeðferð sjúkl- inganna er mjög mismunandi. Nið ri í kjallara aðalbyggingarinn- ar eru maTgvísleg áhöld og tæki, þar sem sjúklingar eru þjálfaðir. Þar er einnig lítil innisundlaug, sem Oddur sagði að væri mjög mikið notuð og hefði mikla þýð- ingu. Sem fyrr segir eru verksmiðj- ur sambandsins í beinum tengsl- um við endurhæfingu sjúkling- anna. Rekin er saumastofa og eru þar aðallega saumaðir slopp ar. Flestir vinna hins vegar í plastverksmiðjunni og er f ram- ieiðsla þar fjö.lþætt. Mikið er Tilkynningj Hér með tilkynnist, að ég undirritaður hef selt hr. hljóðfærasmið Guðmundi Stefánssyni hljóðfæraverk- stæði mitt að Þingholtssrtræti 27. Vona ég, að hinn nýi eígandi megi njóta þess góða trausts, er ég alla tíð hef notið. Framvegis mun ég eingöngu stunda píanóstillingar. Pálmar ísólfsson, sími 13214. Samkvæmt framansögðu hefi ég undirritaður tekið við rekstri hljóðfæraverkstæðis Páhnars ísólfssonar að Þingholtsstræti 27 og mun framvegis reka það á eigin ábyrgð. Mun ég annast hljóðfæraviðgerðir og hljóðfærastill- ingar og reka verkstæðið með svipuðu sniði og verið hefur. Símanúmer verkstæðisins verður áfram 14926. Guðmundur Stefánsson, hljóðfærasmíðameistari Þingholtsstræti 27. framleitt af plastleikföngum og einnig hverskonar umbúðum. Þá eru framleidd vatnrfeiðslurör af ýmsum stærðum. Veigamikill þáttur í plastframleiðslunni er svo framleiðsla á hinu svoköJl- uðu polyfilm plasti, sem er þunnt umbúðaplast. Við þá framleiðslu er notaður kæliitunninn, sem verk smiðjustjóri Reykjalundar, Jón Þórðarson, hefur fundið upp og ryður sér nú mjög til rúms í plastframleiðslu í heiminum. Á trésmíðaverkstæði Reykjalundar eru framleiddir leikfangabílar og einnig smíðuð húsgögn fyrir stofnunina, en í jámsmíðadeild inni eru hinsvegar aðalverkefn- in smíði á mótum fyrir plastvél- arnar. UPPBYGGING S.f.B.S. Félagsdeildir S.f.B.S. eru nú 13 og eru meðlimir sambandsins um 1700. Félagsdeildirnar eru i Reykjavík, Akureyri, Siglufirði, Vestmannaeyjum, Sandgerði, Hafnarfirði, Neskaupstað, ísa- firði, Húsavík, Reykjalundi, Kristnesi og Vífilstöðum. Sam- bandsstjórnina skipa nú eftir- taldir menn: Þórður Benedikts- son, Reykjavík, Oddur ólafsson, Reykjalundi, Júlíus Ba'ldvinsson Reykjavík, Árni Einarsson, Rsykjavík, Kjartan Guðnason Reykjavík, Hjörieifur Gunnars- son, Hafnarfirði og Guðmundur Svavar Jónsson, Reykjavík. Aðaltekjustofn S.f.B.S er vöru happdrættið, sem rekin er sem sérstök stofnun. Sögðu forráða- menn sambandsins að framlag S.Í.B.S. til Reykjalundar í þessi 30 ár næmu um 100 milljótnum króna. MERKJASALAN N.K. SUNNUDAG Sem fyrr segir fer merkjasala S.f.B.S. fram n.k. sunnudag og er vonandi að hún gangi eins vel og undanfarin ár, og hið dugmikla S.Í.B.S. fólk fái verð- uga „traustsyfirlýsfingu“ Þjóð- arinnar. Merkiin munu kosta 35 krónur og verða númeruð og gilda jafnframt sem happdrætt- ismiðar. Vinningar verða 30. 10 B'laupunkt sjónvarpstæki og 20. Blaupunkt ferðaútvarpstæki. Árs ritið Reykjalundur, sem nú kem- ur út í 22. sinn, er fjölbreytt að venju. Meðal efnis er grein eftir Guðmund M. Þorláksson ernefn ist Brautin rudd. Oddur ólafs- son ritar um Læknamiðstöð á Reykjalundi. Haukur Þórðarson ritar um Nýtingu starfsaðferða og tækni í endurhæfingum. Þórð ur Benediktsson ritar um komu Cirkus Zoo til Reykjavíkur á sínum tíma. í ritinu eru einnig ljóð eftir Unni Eiríksidóttur og Þórunni Benedikitsdóttur og þýdd smásaga eftir Alphonse Daudet.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.