Morgunblaðið - 01.11.1968, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 01.11.1968, Blaðsíða 13
MORGU'NBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1963 13 Sigurður Þórðarson Eins og ég hefi áður komizt að orði um Sigurð Þórðarson, þá má með nokkrum sanni segja að við höfum setið saman á skóla bekk alla okkar ævi, frá því við komum til Leipzig, nemend- ur tónlistarskólans þar og framá þetta ár, og samstarf okkar hef ur a'lla tíð verið svo náið og hnökralaust, að fá dæmi munu um svo langt, óslitið samstarf og nánast bræðralag. Það þarf því enginn að láta sér koma það á óvart, og sízt ég sjálfur, að hér hafa orðið snögg og mikil umskifti í lífi mínu. Að kveðja slíkan samferðamann gerist ekki án djúps og skerandi sársauka. Um tíma dvöldumst við þrír saman í Leipzig við tónlistar- nám, Sigurður Þórðarson, Jón Leifs og ég. Jón hvarf fyrstur úr hópnum, þó yngstur væri, en ég elztur okkar þriggja varð eftir. Sit ég nú einn og nýt minn inganna frá þessum samvistar- mönnum, rifja upp brot úr stund um samfagnaðar og baráttu og þakka forsjóninni það veganesti sem dvölin þar veitti okkur sam eiginlega. Um Jón Leifs hafa margir úr hans mikla vinahópi skrifað, enda notið stórhugar hans, gáfna og kjarks, og er ég ekki maður til að bæta þar um, en Jón var einn af hinum ó- gleymdu mönnum okkar samtíð- ar. Sigurður Þórðarson fæddist 8. apríl 1895, að Gerðhömrum í Dýrafyrði. Foreldrar hans voru Þórður ólafsson, prestur þar, og María fsaksdóttir, kona hans. Hann lauk burtfararprófi úr Verzlunarskólanum 1915 og fór skömmu síðar til Leipzig til tón- listarnáms. Árið 1926 stofnaði Sigurður Karlakór Reykjavíkur, er hann stjórnaði af framúrskar andi dugnaði og farsæld um lang an aldur, en áður hafði hann stjórnað karlakórnum „Þrestir" í Hafnarfirði. Störf Sigurðar Þórðarsonar hafa ávaflt verið margþætt: Tón skáldskapur, en eftir hann liggja fjölmörg tónverk, stór og smá, sem gert hafa hann að ástsælu tónskáldi. Söngstjórn og skrif- Stofustörf. Hann var ótrúlegur afkastamaður að hverju sem hann snéri sér. Hann gerði Kanla kór Reykjavíkur að voldugri rödd í samfélaginu og bar hljóma íslands vítt um lönd með söng- ferðum sínum. óþarft er að geta þess að Sigurður var skrifstofu- stjóri ríkisútvarpsins og oft út- varpsstjóri, tímum saman í for- föllum, og bar aldrei skugga á störf hans af neinu tagi. Þvert á móti naut hann trausts og virðingar yfirmanna sem undir- manna. Hugur Sigurðar hneigðist snemma að tónlistinni. Hann lærði ungur á fiðlu, og hafði mikla hæfileika sem hljóðfæra- leikari, en hann hafði meiri á- huga á tónskáldskap og ej;ddi öllum frístundum við tónsrtííðar, með árangri sem öllum er kunn- ur. Ég á Sigurði Þórðarsyni margt og mikið að þakka. Eru þá jafnt í huga örfandi gófur hans og fódæma drengskapar’lund, sem aldrei brást. Eins og hér að framan er sagt vorum við Sigurður Þórðarson í reyndinni skólafélagar allt okk ar líf, og alla tíð nánir samstarfs menn, og unnum stöðugt meira og minna sameiginlega að við- gangi tónlistar í landi okkar. Sigurður Þórðarson var mjög fjölgáfaður maður, listamaður, atorkumaður og hugsjónamaður. Traustleiki hans var með ein- dæmum. Allt á sínum stað, ekki aðeins persónulega í stólnum sín um, með tónsprotann í höndum eða nótnapenna. Andi hans sveif yfir vötnum þeirra stofnana er hann starfaði fyrir. Hann var alltaf reiðubúinn að rétta góð- um málstað hjálparhönd, alltaf jafn hreinn og beinn, alltaf á- kveðinn og viss í sinni sök. Ekk ert hik, ekkert kák, engin un/d- anbrögð. Er ég nú lít yfir hina löngu samferð okkar Sigurðar Þórðar sonar, sem ég vona að hafi átt nokkurn þátt í að auðga þjóð- líf okkar, stendur mér ávallt fyr ir sjónum mikill og farsæll gæfu maður, fjölgáfaður höfðingi, fá- gætur vinur og dáðríkur dreng- ur, og ekki sízt hamhleypa að lífsorku. Eti hann stóð aldrei einn, og það gerði ef til vill æfumuninn. Hin mikilhæfa kona hans, Áslaug Sveinsdóttir, var honum náinn samstarfsmaður hvert fótmál hans, og leit aldrei af honum, því hún skildi hvers virði listamanni er slík nærgætni og ti'llitssemi. Fyrir mína hönd, íslenzkra tón skálda og Tónskáldafélags Is- lands kveð ég þig, góði vinur og starfsbróðir. Þökkum þér drengskap þinn og traust, nær- gætni þína og frjálslyndi og per sónulega vináttu í meira en hálfa öld. Páll ísólfsson. SIGURÐUR Þórðarson tónskáld, lézt í Landakotsspítala sunnu- daginn 27. þ.m., 73 ára að aldri. Sigurður fæddist að Gerð- hömrum við Dýrafjörð 8. apríl 1895. Foreldrar hans voru þau Þórður Guðlaugur Ólafsson, pró- fastur að Söndum og kona harv María ísaksdóttir. Sem drenigur varð Sigurður heillaður af söng og tónlist. A því sviði aflaði hann sér þeirrai menntunar sem föng vöru á, samhliða skólanámi, fyrst í Núpsskóla og síðan Verzlunar- skóla íslands. Árin 1916 til 1918 stundaði hann tónlistarnám við konunglega tónlistarskólann í Leipzig. Eins og tímarnir voru þá, fannst houum ógerningur að halda lengur áfram námi. Farar- eyrir var þrotinn. í þessari stuttu minningar- grein, rek ég ekki starfsferil Sigurðar. Það munu aðrir gera. Einnig er hann flestum kunnur, því Sigurður er þjóðkunnur af störfum sínum, sem skrifstofu- stjóri Ríkisútvarpsins í 36 ár, sem tónskáld og söngstjóri Karlakórs Reykjavíkur frá stofn un til 1962. Starfsorka Sigurðar var með fádæmum. Það hefi ég fyrir satt, að við störf hjá Ríkisútvarpinu hafi hann verið fleiri manna maki og allir sem til þekkja róma snyrtilegan frágang á öliu úr hans hendi, ljúfmennsku hans og háttprýði við alla menn, kunna og ókunna. Það eru tóm?tundastörf Sig- urðar, einkum söngstjórnin og önnur verk í þágu Karlakórs Reykjavíkur sem ág þekki flest- um öðrum betur og get borið vitni um að unnin voru af fá- dæma áhuga, þrautseigju og skyldurækni svo undrun sætti. Við Sigurður urðum fyrst mál kunnugir árið 1915, er hann starf aði um tíma við verzlunarstörf á Akureyri. Þar varð hann óðara þátttakandi í tónlistarlífi bæjar- ins. Vera ’hans á Akureyri varð allt of stutt að dæmi bæjarbúa en nægilega löng til þess ,að hann eignaðist hlýhug og vináttu allra sinna félaga. Ég held að þeir séu nú allir fallnir í valinn, en ætíð er ég kom til Akureyrar oig hitti þá að máli, spurðu þeir mig um Sigurð og báðu mig fyrir kveðj- ur til ’hans. Svona hafa vinsæld- ir Sigurðar verið alla tíð. Síðan áttum við stundum tal saman eftir að við báðir sett- umst að í Reykjavík 1918. — Það er þó fyrst haustið 1925, að kuningsskapur okkar varð traust ari Eit't sin þetta haust kom Sig- urður til mín; sagðist hafa áhuga á stofnun karlakórs og bað mig ásamt fleirum um aðstoð við að hrinda því í framkvæmd. Ég var þá bundinn við söng á tveimur stöðum, tómstundir af skornum en þegar ég fann áhuga Sigurð- ar og bjartsýni á að þetta mætti takast, gat ég ekki annað en lof- að minni liðveizlu, væri hún að nokkru nýt. Karlakór Reykjavíkur var svo stofnaður 3. janúar 1926. Síðan höfum við verið samverkamenn og félagar í kórnum og oft glímt við úrlausnir vandamála sem öll leystust giftusamlega, eink- um fyrir áræði, bjartsýni og dugnað Sigurðar Þórðarsonar. Því hefur fölskvalaus viná'tta okkar Sigurðar staðið á fimmta stormum lífsins. Hennar harmur er sár. — En hún er hetja. 1965 stofnuðu eldri félagar Karlakórs Reykjavíkur félag ásamt Sigurði Þórðarsyni. Auk annarra félagsstarfa hafa þeir æft söng uridir stjórn hans eins og mörgum mun kunnugt af sjónvarpsþætti sem tekinn var upp í sambandi við tónskálda- mánuð Sigurðar á síðastliðnum vetri. Við aillir eldri félagarnir höf- um starfað með Sigurði Þórð- arsyni lengur eða skemur í Karlakór ,Reykjavíkur og notið þar vináttu hans og 'handleiðslu. Nú kveðjum við með sárum söknuði okkar ágæta og ás'tsæla söngstjóra. Við sendum frú Áslaugu og áratug, hún hefur eins og sönig- urinn verið mér ómetanleg and- legð og líkamleg heilsulind. Karlakor Reykjavíkur skaut undrafljótt upp á stjörnuhimin- inn í 'tónlistarlífi landsins. Hann fór í víking að fornum hætti og hafði sigur í hverri orustu. — Foringinn var öruggur. Siigurður var heiðraður á marg an hátt, bæði innanlands og ut- an, fyrir söngstjórn og tónsmíð- ar. Ég lýsi því ekki nánar, því það 'hefur áður verið gert og yf- irlit um það, æviatriði Sigurðar og störf kórsins er að finna í bókum, t.d. í bókinni „Harpa minninganna“, Minningar Árna Thorsteinssonar er Ingólfur Kristjánsson skráði, „Saga Karlakórs Reykjavíkur í mynd- um“, er gefin var ú't í tilefni 70 ára afmæiis Sigurðar Þórðar- sonar og einnig víðar. Sigurður var kátur og skemmti legur í samræðum. Fyrir utan sameiginleg viðfangsefni áttum við oft tal saman um önnur mál, dægurmál, stjórnmál, en oftast um dulræn efni oig fram'haldslíf- ið. Hann var hófsamur í dómum og ful'lyrðingum, en ég held að hann hafi talið vafalaust, að við dauðann hefðu menn aðeins vistaskipti. Því vil ég nú á kvenðjustund taka mér í munn þessar ljóðlínur Jónasar Hall- grímssonar úr eftirmælum um Tómas Sæmundsson: „Fast ég trúi: Frá oss leið vinur minn til vænna funda og verka frægra, sæll að skundr fullkomnunar fram á leið.“ Sigurður Þórðarson og eftirlif- andi kona hans, Áslaug Sveins- dóttir frá Hvilft í Önundarfirði, gengu í hjónaband 28. maí 1927. Þau eignuðust dreng og stúlku er bæði dóu á barnsaldri. Þá var mikill harmur kveðinn að foreldrunum. Frú Áslaug hefur verið manni sínum ómetanlegur lífsförunaut- ur, búið 'honum fagurt og ynd- islegt heimili, stutt hann með öðrum vandamönnum innilegar samúðar k veðj ur. Hallgrímur Sigtryggsson. Kveðja frá Karlakór Reykja- víkur Sennilega hefur nafn Sigurð- ar Þórðarsonar tónskálds, ver- ið nefnt oftar í Ríkisútvarpinu, en nokkurs annars manns, og þá helzt í sambandi við tónsmíðar hans og Karlakór Reykjavíkur. Hann var einn af frumherjum íslenzkrar tónlistar, trúr köl'lun sinni og afreksmaður. Samhliða sínu erilssama starfi samdi hann fjölda laga og heil tónverk, auk þess, sem hann æfði og stjórnaði Karlakór Reykjavíkur í nær 36 ár, eða allt frá því að hann stofnaði hann árið 1926 og fil ársins 1962. Sigurður var lífið og sálin í starfi kórsins og þekkja flestir þá sögu, enda fór það ekki fram hjá neinum er hann leiddi Karla kór Reykjavíkur um lönd og álf ur ásamt færustu einsöngvurum landsins. Undir hans stjórn söng kórinn talsvért á annað hundrað sinnum erlendis við gífurleg fagnaðarlæti og var þá íslenzk músík jafnan höfð í fyrirrúmi. Landi sínu og þjóð unni hann og það var alltaf viðkvæðið í - utanlandsferðum, sem urðu sex talsins, að túlkun og framkoma kórsins yrði slík, a'ð íslandi væri sómi að. Þannig var Sig- urður sjá'lfur í hátterni og líf- erni: Samvizkusamur, duglegur og prúðmenni hið mesta. Hon- um var hollt að kynnast. Það verður fjölmennur Karla kór Reykjavíkur, sem syngur við útför hans í dag og kveður með söknuði sómamann. Eiginkonu hans, frú Áslaugu Sveinsdóttur, sendir kórinn dýpstu samúðar- kveðjur, um leið og þeim báð- úm er þakkað fórnfúst og gott starf, sem veitti okkur öllum svo mikla gleði og ánægju. Ragnar Ingólfsson. VIÐ andlát Sigurðar Þórðarson- ar verður mér fyrst og fremst hugsað til þess þáttar í fari hans, sem ég kynntist bezt og lýsir honum hvað helzt. Þegar ég var lítill drengur úti á landi þótti mér mikili viðburð- ur að fara suður til Reykjavík- ur, þá gisti ég oft hjá Ásu og Sigurði. Ég leit allt frá fyrstu tíð á Sigurð Þórðarson sem mikinn höfðingja. Ekki fyrir þáð að hann væri skrifstofustjóri hjá Útvarpinu en þangað fékk ég stundum að fara með honum, ekki fyrir það að hann væri söngstjóri Karlakórs Reykjavík- ur, ekki fyrir það að hann gerði svo falleg lög, sem ég heyrði oft í útvarpinu — heldur fyrir það að hann var mér, litlum dreng utan af landi svo einstaklega góður. Barnbetri mann held ég að ég muni vart. Þessi ljúflyndi mað- ur með sitt stórbrotna skap haf*ði þau áhrif á barnssálina sem aldrei gleymast mér. Síðan full- orðnaðist ég og hafði minni sam- skipti við Sigurð Þórðarson en álit mitt á honum hefur alla tíð verið hið sama — hann var mik- ill höfðingi. Þessara góðu eigin- leika hefur dóttir mín, Drífa einnig notið. Fyrir þetta allt og miklu fleira vil ég nú þakka honum. Frænku minni Áslaugu sendi ég innilegar samúðar- kve'ðjur mínar pg fjölskyldu minnar. H. S. H. FEiíDAFÉi.AG ÍSI.ANDS úFF.ROAFÉLAG tSl ANDS skammti, svo ég færðist undan, ráðum og dáð í störfum og ARBOK 1934 Arhækur Ferlafélagsins TVÆR af torfengustu Árbókum Ferðafélagsins hafa nú verið ljós prentaðar^ og fást hjá félaginu. Eru það Árbók 1934, sem fjallar um Þingeyjarsýslur (Mývatn) og Árbók 1935, sem fjallar um Vest ur-Skaftafellssýslu. Séra Óskar J Þorlóksson skrif ar Árbókina um Vestur-Skafta- fellssýslu, en Pálmi Hannesson, sem þá var ritstjóri Árbókarinn- ar skrifar formála. Árbókin um Þingeyjarsýslur er eftir þá dr. Þorkel Jóhannesson og Steindór Steindórsson, skólameistara, en formála skrifar Skúli Skúlason, þáverandi ritstjóri bókarinnar. Ljósprentun þessara bóka og Árbókarinnar 1933, sem fjallar um leiðir að Fjallabaki, hefur tekizt mjög vel. Af ljósprentun- um fyrstu Árbókanna eru nú aðeins til fá eintök af þremur fyrstu árunum 1928, 1930, en 1931 og 1932 eru alveg þrotnar hjá félaginu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.