Morgunblaðið - 07.12.1968, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.12.1968, Blaðsíða 1
32 SÍOUR 274. tbl. 55. árg. LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Orðrómur um að Wilson fari frá Pundið verður fyrir nýjum árásum LONDON 6. desember, AP, NTB. Orðrómur var á kreiki um það 1 London í dag, að Harold Wil- son forsætisráðherra mundi segja áf sér um helgina, en talsmenn stjórnarinnar neituðu því harð- lega að nokkur fótur væri fyrir þessari frétt og öðrum sögusögn- um. Róttækum breytingum á stjórninni og jafnvel nýrri geng- isfellingu var spáð í kauphöllum og meðal kaupsýslumanna, en talsmenn stjórnarinnar neituðu 'að taka þessar hviksögur hátíð- lega. Sumir höfðu það eftir áreið- anlegum heimildum, að Roy Jenkins mundi segja af sér innan tíðar. Jenkins var í dag í norð- auistur-Englandi, en Wilson kom til London úr heimsókn til aldr- aðs föður síns í Oornwall og heldur ræðu á morgun í Brad- ford. Spenna á peningamarkaði Spákaupmenn létu mikið að sér kiveða í kauphöllum í Lond- on í dag og pundið féll svo í verði að Englandsbanki varð að skerast í leikinn og kaupa pund til þess að treysta gengi þess gagnvart dollar. Mikii eftirspurn varð eftir þýzkum mörkum vegna nýs fyrirhugaðs fundar aðalbankastjóra í Basel. Pundið var í dag selt fyrir 2,3826 dollara sem er lægsta verð sem fengizt hefur fyrir það síðan í gjaldeyr- iskreppunni í síðasta mánuði. Sérfræðingar í London segja að greinilegt sé að spákaupmenn hafi nú snúið sér að pundinu, sem nú verði aðalfórnarlamb nýrra árása þeirra. Spákaup- menn gera sér von um hækkun á gengi marksins, en aðrar á- stæður liggja til þess að nú er þrengt að pundinu, meðal annars hættuástand fyrir botni Miðjarð- arhafs er gerir að verkum að spákaupmenn skipta á pundum og gulli. Nýjasta hafrannsóknarskip Rússa, „Prófessor Deryugini“ í höfninni í Vladivostok. I skipinu eru meðal annars átta rannsóknarstofur og er skipið talið afar fullkomið til hvers konar haf- og fiskirannsókna. Bandarísk herskip á leið j CERNIK - _ I f inn í Bosporus-sund í fimm \ r| |s B™ n ____ daga siglingu um Svartahaf. i klilf Hj II ánÍM ■. B ™Fréttaritarinn heldur þvi fram, / I 111 I 1% rt ® ® ® ® qS VíQroVmini ooity* V»Q.r».r> Tiafn- T ■ ™ ® ® Rússar mótmœla og segja skipin vopnuð flugskeytum — Moskvu, 6. des. — AP-NTB „PRAVDA“, málgagn sovézka kommúnistaflokksins, hélt því fram í dag, að Bandaríkja menn hygðust senda tvö her- skip úr 6. flota sínum á Mið- jarðarhafi inn í Svartahaf á morgun. Blaðið gagnrýnir harðlega þessa fyrirætlun og Formannaráðstefna — Sjálfstæðisflokksins í DAG verður haldin í Sjálfstæðishúsinu í Reykjavík for- mannaráðstefna Sjálfstæðisflokksins. A ráðstefnu þessari eiga sæti formenn allra Sjálfstæðisfélaga og annarra sam- taka flokksins. Auk þess sitja fund þennan miðstjórn flokksins, þingflokkur, skipulagsnefnd, stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna, stjóm Landssambands Sjálfstæð- iskvenna og stjórn Verkalýðsráðs flokksins. Ráðstefnan hefst kl. 10. kallar hana ólöglega og ögr- andi. í frétt frá fréttaritara bláðsins í Ankara, I. Ugolkov, segir að kunnugt sé að tvö bandarísk herskip muni á morgun halda inn í Bosporus -su n d í fimm daga siglingu um Svartahaf. Fréttaritarinn heldur því fram, að herskipin, sem hann nafn- greinir ekki, séu vopnuð Asroc- flugskieíytuni, sem eru búin kjarnaoddum. I London var í dag tilkynnt í aðalstöðvum bandaríska flotans í Evrópu, að tundurspillamir „Tumer“ og „Dyess“ rnundu sigla inn í Svartahaf einhvem næstu daga í „venjulega æfinga- ferð“. Tilkynnt var, að tundur- Framhald á bls 31. Frelsi blaða í Prag enn skert Prag 6. des. AP:NTB: Tilkynnt var í Prag í dag, að tékkneska stjómin hefði ákveðið að Peter Colotka, aðstoðarforsæt isráðherra, láti af störfum sem formaður stjórnskipaðarar nefnd ar, sem fjallar um starfsemi blaða og annarra fjölmiðlunar- tækja. Við tekur J. Hovelka, kennslumálaráðherar. AP frétta- stofan segir að ástæðan fyrir þessari ráðabreytni muni vera deilurnar um útgáfu málgagns blaðamannasamtakanna, Report- er. Það var Colotka sem komst að samkomulagi við samtökin og fékk því til leiðar komið að út- Framhald á bls 31. Vopnasðlur fara fram bak við tjöldin og eru því ekki skráðar Það er ástœðan fyrir því að eftirlit með vopnasölu var ekki samþykkt — sagði Hannes Kjartansson sendiherra við Mbl. STÓRU þjóðirnar fram- leiða vopn fyrir sig og all- ar vopnasölur, sem fram fara, fara fram bak við tjöldin og vopn, sem seld eru þannig, koma aldrei til með að verða skráð- Þetta er það viðhorf, sem leitt hefur til þess, að tillaga Danmerkur um eftirlit með allri alþjóðavopnasölu sem Noregur, fsland og Malta stóðu einnig að, varð ekki samþykkt, sagði Hann es Kjartansson, sendiherra íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í símaviðtali við Morgunblaðið í gær. Sendi herrann sagði hins vegar, að þessi tillaga stæði áfram og líklegt væri, að hún yrði samþykkt að lokum. Þá skýrði senidherrann ennfremur frá gangi mála varðandi þær tvær tillög- ur um verndun auðlinda hafsins, og fsland væri að- ili að, en sú fyrri er um að koma í veg fyrir mengun í hafinu en sú síðari um verndun ungviðis. Þá rakti sendiherrann ennfremur afstöðu íslands til Kína, er það mál var til meðferðar og sagði, að það væri náttúrlega vafalaust ósk íslenzka ríkisins, að eins fljótt og hægt verður, Framhald á bls. 1«. Prag, 6. desember — NTB OLDRICH CERNIK, forsætis- ráðherra Tékkóslóvakíu, segir af sér 15. desember til að búa í haginn fyrir skipulagsbreyt- ingu á forystu landsins, að því er AFP-fréttastofan hafði eftir áreiðanlegum heimild- um í kvöld. Stjóm hans hef- ur verið við völd síðan 8. apríl. Ef stjórn Cerniks fer fná, verður öl.l æðsta forysta lands iins endurskipulögð. Fró og með 1. janúar koma í stað hennar tékknesk ríkisstjóm, slóvakísk ríkisistjórn og tékkó slóvakísk sambandsstjórn með aðsetri í Prag, ein hiún íer með utanríkis- og varnar- mál. Heimildarmenn AFP greina ekki raánar frá vænt- an'i egum breytingum. Lidsauki til V-Þýzkalands Washington 6. desember, AP. — Jm 16.500 bandarískir hermenn og fjórar sveitir orustuþotna verða sendar til Vestur-Þýzka- lands að taka þátt í heræfingun- um í janúar og febrúar, að því er bandaríska varnarmálaráðuneyt- ið tilkynnti í dag. Þessar hersveitir og flugsveit- ir voru fluttar frá Vestur-Þýzka- landi í sumar og átti með því að reyna að draga úr greiðsluhalla Bandaríkjanna. Þær eru nú fluttar aftur til Eivrópu sem lið- ur í noikkrum hernaðarlegum ráðstöfunum Bandaríkjamanna, sem miða að því að auka varnar- viðbúnað NATO vegna her- náms Tékkóslóvakíu og aukinn- ar spennu í Mið-Evrópu. Allar þessar siveitir verða fluttar aftur til Bandaríkjanna að æfingunum loknum. LAGOS, Nígeríu 6. des., AP. — Nígeríuher hefur rekið austur- rískan hjúkrunarflokk frá borg- inni Asaba og bannað þeim að starfa þar. Einnig voru nokkrir nígerskir Rauða kross starfs- menn, sem tala Ibo — en það er tungumál Biaframanna — reknir þaðan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.