Morgunblaðið - 07.12.1968, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 07.12.1968, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. DES. 1968 17 Frumvörp ríkisst jórnarinnar um öruggari rekstr- argrundvöll útvegsins tilraun aðtryggja atvinnu sagði sjávarútvegsmálaráðherra á aðalfundi LIÚ í gær EGGERT G. Þorsteinsson, sjáv- arútvegsmálaráðherra, flutti á aðalfundi LÍÚ í gær yfirgrips- mikla ræðu um þróun mála inn- an sjávarútvegsins frá síðasta aðalfundi samtakanna. Ráðherr- ann sagði m.a., að með þeim laga frumvörpum, sem ríkisstjómin hefur nú lagt fyrir Alþingi um öruggari rekstrargrundvöll ís- lenzks sjávarútvegs, sé gerð til- raun til að tryggja sem mesta atvinnu. í uphpafi ræðu sinnar ræddi Eggert G. Þorsteihsson m.a. þró- un útgerðar og verðlags og afla brögð. Vék hann að veiðum imn- an landhelginncir og verkefna- efnaskorti síldveiðiflotans, sem skapazt hefur vegna þess að síld veiðin hef ur brugðist. Síðan sagði ráðherrann orðrétt: „Mér virðist, að leita verði a'Llra tiltækra leiða til að finna þessum flota arðbær viðfangs- efni. Ég minni hér aðeins á eftir- farandi atriði til umhugsunar: 1. Aukin rannisókn á loðnu, sandsíld og spærlingi hér við land. Lítið hefur t.d. verið fylgzt með loðnunni. Er það trú mín, að lengja mætti veiðitímann og auka aflann. 2. Athuganir hafa farið fram hjá Fiskifélaginu á útbúnaði fyr ir útilegubáta. Gæti þorskveiði í útilegu hér við land og Græn- land trúlega lengt úthaldstíma ýmissa stærðarflokka báta. Sæmi leg reynsla virðist komin á þess ar veiðar, en ýmsir bátar þyrftu nokkurrar lagfæringar við og e. t.v. liðkunar í sambandi við ' rekstrarlán. 3. Athuganir hafa farið fram á vegum Fiskifélagsins í sam- ráði við Sjávarútvegsmálaráðu- neytið um löndunarréttindi ísl. síldveiðiskipa í Kanada og Banda ríkjunum. Hafa þessar athuganir ekki borið mikinn ávöxt enn. Samt er málið ennþá enganveg- inn vonlaust. in veitt leyfi til umskipunar afla handa ísl. skipum á eyjumni St. Pierre við Nýfundnaland. Bað Fiskifélagið utanríkisráðu neytið að kanna þetta má'l á sínum tíma. Einnig er rétt að halda áfram athugunum, sem leitt gætu til auðveldunar löndunum ísl. skipa í ýmsum löndum V.-Evrópu, svo sem gert hefur verið. 4. Fiskifélagið lét á sínum tíma athuga veiðarfæramál síld- veiðiflotans f.h. ráðuneytisins, og vonandi fæst lausn á þeim málum áður en langur tími líð- ur. 5. Fyrir smábátaflotann og ým is byggðarlög væri aukin rækju 'leit mikilvæg. Þarf væntanlega meira fé í þessu skyni, en einn ig breytt fyrirkomulag á stjórn un leitarinnar. Er nú mikil á- -sókn frá mörgum byggðarlögum um rækjuleit. 6. Fiskifélagið er nú að kanna nýjar gerðir báta til rækjuveiða o.fl. veiðiaðferða, með það fyrir augum að smíðaðir væru all- margir samskonar bátar. Mun sjávarútvegsmálaráðuneytið fylgj ast vel með niðurstöðum þess- arar könnunar. 7. Jafnframt fer líka fram at hugun hjá Tæknideildinni á skip skrúfum, skrúfubúnaði, vökva- kerfi o.fl. þess háttar. Alvar- legir ga'llar hafa komið fram á skrúfum, vökvadrifum vindum o.fl. Allar þessar athuganir geta leitt til betri tækja og lægri stofn- og viðhaldskostnaðar. 8. Aflatryggingasjóður: Um endurskoðun laganna um afla- tryggingasjóð er því miður ekki ennþá mikið að segja. Búið er að vinna mikla undirbúningsvinnu. Um ýmis atriði til breytingar á Alþingislögum eru nefndarmenn sammála. Um veigameiri atriði í sambandi við grundvöll bótaút- reikninga o.fl. er hinsvegar enn þá ekki sú samstaða, sem nauð- synleg er.“ Þá ræddi sjávarútvegsmálaráð herra ítarlega vandamál þau, sem steðjað hafa að sjávarútveginum og rakti þær ráðstafanir, sem ríkisvaldið hefur gert til lausnar þeim vandamálum. Síðasti kafli ræðu ráðherrans hljóðaði svo: Ráðherra flytur ræðu sína á aðalfundi L.Í.Ú. ÚTFLUTNIN GSMÁL. „Svo sem kunnugt er, urðu alger umskipti í þróun útflutn- ingsframleiðslu og afurðaverða á erlendum mörkuðum á árinu 1966 þegar útfl.afurðir tóku að lækka verulega í verði og síðan bættist við aflabregstur. Þessi þróun hélt síðan áfram á árinu 1967 og varð útflutnings- framleiðsla þá um 30 prs. minni en árið á undan. Verzlunarskýrsl ur sýna, að fyrstu tíu mánuði yfirstandandi árs var útflutning urinn að verðmæti 3.600 milílj. kr. á móti 3.327 millj. kr. á sama tíma í fyrra. Sé verðimiæti út- fllutningsins í fyrra 'Umneikinað á það gengi, sem gilti á umrædd um tíma í ár, nemur lækkun útflutningsins 653 millj. kr., sem er 'lækkun um rösklega 15 prs. Það sem • einkum hefur valdið þessari þróun í ár, er aflabregst ur síldveiðar, sölutregða síldar- lýsis og skreiðar og verðlækk- un freðfisks. Fyrstu níu mánuði ársins hef- ur mjölframleiðslan í heild orð- ið 47.750 lestir á móti 92.500 lest um á sama tíma í fyrra, en lýsis- framleiðslan 13.025 lestir á móti 55.500 lestum í fyrra. Útflutningur á mjöli hefur orð ið 54.000 lestir á rnóti 106.449 lestum á sama tíma í fyrra, en lýsisútflutningurinn 19.600 lest- ir á móti 67.412 lestum á sama tíma í fyrra. Hinn 1. október s.l. voru mjöl birgðir í landinu 5.559 lestir á móti 27.960 lestum á sama tíma í fyrra og lýsisbirgðir 30.626 lest ir, mest frá árinu 1967, á móti 34.153 lestum í fyrra. Enn ríkir óvissa um sölu 6 til 7000 lesta af skreið fyrir Afríkumarkað, vegna styrjaldar innar í Nígeríu. Erfitt er að spá um hvernig úr rætist, með sö'lu á þessu magni, en helzt binda menn nú vonir við, að góðgerðastofnanir, sem vinna að hjálparstörfum í Nígeríu mini auka skreiðarkaup til hjálpar hinu bágstadda fólki á ófriðar- svæðum Nígeríu. Á hinni bóginn hefur sala á íslenzkri skreið, sem hæf er fyrir Ítalíumarkað, gengið vel undan farna mánuði. Útflutningsverð á freðfiiski hef ur enn lækkað á þessu ári. Or- sök þessara verðlækkana er aðal lega mjög aukinn blokkainnflutn ingur til Bandaríkjanma undan- farið frá ýmsum löndum. f byrj un júnímánaðar s.l. var þorsk- blokkarverð um 24 cent pundið eða aðeins lægra en um s.l. ára- mót en hefur lækkað síðan í um 20 cent pundið, eða svipað verð og það var lægst árið 1967. Ég hefi hér nú drepið á ýmis þau atriði, sem fastast herða að í sjávarútvegsmálum íslenzku þjóðarinnar. — Mikið lengra mál mætti um þennan málaflokk að sjálfsögðu flytja og mun ítar- lengra um einstök atriði. Þið þekkið eins vel og ég og margir betur, hver almannaróm- ur er. Hann er sá að fiski- skipaflotinn sé ekki rekinm með nógu mikilli hagkvæmni og að þið takið of mikið í eigin þarfir og berist of mikið á, til þess að almenningur geti sannfærzt um erfiðleikana, sem við er að etja í sj á varútveginum. Hér skal ég ekki setjast í dóm arasæti, enda málið of skylt, — og mundi sennilega vikið úr því dómarasæti í venjulegum dóm- stól fyrir skyldleikasakir, vegna minna núverandi starfa. Þegar fyrrgreind rök þrýtur, þá eru allir erfiðleikar í ís- lenzkum sjávarútvegi, þeim ráð- herra eða ríkisstjórn er hverju sinni fer með þau mál, állir erf- iðleikar að kenna. — Um þessa niðurstöðu eru jafnvel mun fleiri sammála, en þá, er fyrr var greint. Við vitum að sjálfsögðu bet- ur, og látum þá, sem þessa iðju vilja stunda, um hana. Um hitt greinir fáa á um, að það er að tryggja öllum vinnu- fúsum höndum atvinnu. — Með þeim lagafrumvörpum, sem rík- isstjórnin hefur nú lagt fyrir A1 þingi, um öruggari rekstrargrund völl íslenzks sjávarútvegs, er gerð tilraun til að tryggja, sem mesta atvinnu. Takist þetta ekki, mun verða nauðsynlegt að efna til nýrra A1 þingiskosninga og láta á það reyna, hvort fyrir hendi er, með þjóðinni þingræðislegur meiri- hluti fyrir þeirri stefnu, sem haldið hefur verið, eða nýrri stefnu, sem enn ekki liggur ljós fyrir. Um þessi atriði munu næstu vikur og mánuðir skera úr um. Núverandi ríkisstjóm hefur lagt fram sínar tillögur, svo sem henni ber skylda til um — eftir er að sjá þær í raunihæfri fram- kvæmd. Ég vænti þess nú, svo sem ég hefi þrisvar sinnum áður, haflt tækifæri til að segja hér, að ís- lenzka þjóðin megi bera gæfu til að halda höfðu-atvinmuvegum sínum í fullum og eðlflegum gangi. Því það er enn trú mín, þótt í móti hafi blásið um sinn, að á þeirri þróun muni veita nú, sem fyrr um heildar framþróun þjóðfélagsins“. Kanna til hlítar hvaö ieyfilegt er á prenti Frá fyrirlestri 01e Torvalds FINNSKA skáldið og rithöfund urinn Ole Torvalds flutti síðari fyrirlestur sinn í Norræna hús- inu í fyrrakvöld. Fjallaði hann um rökræður og fráhvarf frá hefðum í nýjustu bókmenntum Finna. Hóf fyrirlesarinn mál sitt með því að ræða um Váinö Linna og verk hans. Kvað hann Linna hafa valdið miklum um- ræðum allt frá því að hann kom fyrst fram. Ýmist hefðu menn viljað gera minna úr verkum hans en efni stæðu til eða hefja þau til skýjanna. Alténd færi ekki á milli mála, að Linna væri í allra fremstu röð finnskra rit- höfunda. Hann væri eðlisgreind ur en sjálfmenntaður og fag urfræðilegir lærdómssnobbar hefðu talið.að maður, sem ekki stæði traustari fótum í mennta jarðvegi, gæti ekki skrifað vel. Á hinn bóginn hefðu ýmis rót- tæk og vinstri sinnuð öfl í þjóð- félaginu einmitt hafið Linna til skýjanna fyrir það hve lítillar menntunar hann hefði aflað sér. Torvalds sagði, að Linna hefði byggt á þeirri sagnhefð, sem ríkt hefði í Finnlandi í hundr- að ár, eða allt fná Alexis Kivi, en einkum hefði hann lært af rússnesku rithöfundunum, Dosto jevsky og Tolstoy. Bezt sagði hann að Linna léti að koma á framfæri raunsönnum, alþýðleg- um samræðum. Næsti rithöfundur, sem Tor- valds tók til meðferðar, var Hannu Salama. Sagði hann, að Salama hefði gegnt mjög þýð- ingarmiklu h’lutverki sem nokk- urskonar snjóplógur, þar sem um væri að ræða hvað segja mætti á prenti. Fór fyrirlesari nokkrum orðum um bók Salama, Midsommardansen, sem höfund- urinn hlaut ákæru fyrir vegna guðlasts. f bókinni væri kafli, þar sem drukkinn maður gagn- rýndi allan heiminn og léti í því sambandi nokkur miður vel val- in orð falla um guðdóminn. En bókin væri annars innihaldsrík og lýsingar lifandi og vel gerð- Hannu Salama ar. Henni lyki með slysi, sem mætti túlka sem örlagadóm yfir þeim, sem tekið hefðu þátt í mið- sumarsdansinum. Þessi endalok hefðu átt að róa siðapostulana, en þeir hefðu ekki látið sér það nægja. Torvalds sagði, að sér hefði fundizt orð prests eins í Finnlandi hitta í mark, er hann hefði sagt við sig: „Þessi bók hefði átt að vökja okbur til vit- undar um það, að við þurfum að hugsa um ólánsama meðbræð ur vora í stað þess að ofsækja höfundimn“. Næst fór Torvalds nokkrum orðum um bók Salama, Jag, Olle och Vikkonen, er út kom 1967. Sagði hanin það vera fremstu bók hans til þessa. í þeirri bók er ekki guðlast, en höfundur hefur fundið hvöt hjá sér til að kanna til hlítar, hvað leyfilegt er á prenti. Hann hefur því tínt saman í bókina öll ljótustu orð finnskunnar. Hann hefur ekki hlotið neina ákæru fyrir þessa bók, og nú sagði Torvalds, að útgáfufyrirtæki í Svíþjóð væru ginnkeypt fyrir að gefa bókina út. Þá vék fyrirlesarinn að síð- ustu bók Salama, Den 6. decem ber, sem út kom í haust. Hún fjallar um nokkrar persónur af lægstu stigum samfélagsins, sem standa fyrir utan forsetahöllina á þjóðhátíðardaginn og fylgjast SOVZKI stórmeistarinn Viktor Kortsnoi er efstur á Allþjóða- skákmótinu í Palma á Mallorca eftir 8 umferðir með 7 vinninga. Annar er dan^ki stórmeistarinn Bent Larsen með 6% vinning. Boris Spassky frá Soevétríkjun- um er í þriðja sætf með 6 vinn- inga og heimsmeistarinn Tigran Petrosjan Sovétríkjunum fjórði með 5% vinning. Röð annarra keppenda í mótinu er þessi: Gligoric, Júgóslavíu 5 vinn.; með kjólklæddum höfðingjum, sem streyma til forsetans. Aðrir höfundar, sem Torvalds tók til meðferðar og umræðum hafa valdið að undanförnu, voru Pennti Saarikoski, ung- ur höfundur, sem sópar að og hefur endaskipti á hlutunum hvartvietna, Paavo Rintala, sean einikum hefur orðið frægur fyr- ir skáldsöguna: Mormor och mar skalken, Christer Kihlman, sem er harður gagnrýnandi eldri kynslóðarinnar, og Jörn Donn- er, sem hefur ritað bók, er ber heitið: Nya boken om várt land. I niðurlagi máls síns fór Tor- valds nokkrum orðum um umræð ur, sem fram hafa farið um ljóð- list í Finnlandi. Hefur þar verið deilt um e'ldri ljóðlist og ljóð, sem höfða til samtímaviðburða. Ivkov, Júgóslvaíu 4Ms; Pomar, Spáni; Matanovic, Júgóslavíu; Benkö, Bandaríkjunum og Ghe- orghiu, Rúmeníu 4 vinninga hver. Del Corral, Spáni; dr. Leh- mann, V-Þýzkalandi; Calvo, Spáni og Byrne, Bandaríkjunum 3 vinninga hver. Westerinen, Finnlandi; Medina, Spáni og Toran, Spáni 2 Vás vimning hver. Lestina rékur svo Spánverjinn Visier með 2 vinninga. Skákmótið á Mallorca Kortsnoi 7 vinn. og Lnrsen 6V2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.