Morgunblaðið - 20.12.1968, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.12.1968, Blaðsíða 8
MORGUNBLA£>IÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESFMBFR 1968 Æskan þarf að kynnast sjómennsku og s jósókn Sigurður Bjarnason flytur þingsályktunar- till. um sumarvinnu unglinga á varðskipum A MIÐVTKUDAGINN mælti Sig- urSnr Bjarnason fyrir tillögu til þingsályfctunar er hann flytur um störf unglinga á varöskipum. Er tillaga þingsmannsins svo- hljóðandi: Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að gefa allt að 30 unglingum á aldrin- um 15-17 ára tækifæri til þess að vinna um borð í skipum land- helgisgæziunnar um þriggja mán aða skeið á hverju sumri. Skal tilgangurinn með þessari þjón- ustu vera sá að þjálfa unglinga í sjómennsku og kenna þeim jafn- framt þau störf, sem unnin eru á HENTUGT TIL JOLAGJAFA o; ■ tf’js EIGUM ENNÞA FYRIRLIGGJANDI NOKKUR PIFCO RAFMAGNSNUDDTÆKI - ÍURVALS VARA VERÐ AÐEINS KR. 695.- SÖLUVERÐ NÆST VERÐUR UM 1260 KRÖNUR Fálkinn hf. Laugavegi 24 SIMI 1-86-70 vegum landhelgisgæzlu og slysa- varna við strendur landsins. Þess skal gætt við val umsækj- enda um þessi störf, að þeir séu úr hinum ýmsu landshlutum. í ræðu sinni sagði Sigurður Bjarnason m.a.: íslenzk æska þarf að kynnast, sem flestum þjóðnýtum störfum, sem unnin eru í þjóðfélagi henn- ar. Æskiiegt er eirrnig að hún •taki þátt í þeim, etftir þ>ví sem að- staða leyfir. Milli skólaæskunn- ar og atíhafnalífsins má aldrei myndast tómarúm vanþekkíng- ar og áhugaleysis. Unga fólkið verður að skilja þýðingu hinna ýmsu starfsgreina sem ií'fsaf- koma landsmanna byggist á. í tiilögu þeirri sem 'hér liggur fyr- ir til umræðu er lagt til að Al- þingi skori á ríkisstjórnina að nokkrum unglingum skuli ár- lega gefínn kostur á að vinna að sumarlagi um borð í skipum ladhelgisgæzlunnar í því skyni að þjáltfa þá í sjómennsku. Jafn- framt eigi þeir að læra þau storf sem unnin eru á vegum land- helgisgæzlu og slysavarna við strendur landsins. Um það ríkir ekki ágreiningur, að gagnlegt er, að slík kennsla og þjálfun fari fram. í öllum landáhlu'tujn er þörf á, að sem flestir kunni til björgunarstarfa. I>að er einnig hollt ungum mönnum og kunna nokkur skil á hinum þýðingar- miklu störfum, sem unnin eru á Sigurffur Bjamason skipum hinnar íslenzku landihelg isgæzlu. Dvölin á sjónum og kynni af sjómennsku mumdu einnig verða ungligum heilsu- samleg og herðandi. Eðlilegt væri, að þeim yrðu greidd nokk tir laun fyrir störf sín t.d. allt að hálfum launum, auk tfæðis og einlbverra vinnu- og hlííðarfata. Það er skoðun mín að hér sé um tilraun að ræða, sem vel sé CÓÐ JÓLACJOF ER REKAVIÐAR- MYND EFTIR SÓLVEICU Húsgagnaverzlun Árna Jónssonar, Laugavegi 70, simi 16468 þess verð, að íhún sé gerð. Is- lendingar eru fiskveiða- og sigl- ingaþjóð. Stefna ber að því, að siglingar verði í framtíðinni at- vinnugrein, sem dregur drýgri gjaldeyristekjur í þjóðarbúið en okkar litli tfarákipafloti gerir nú. Þess vegna er nauðsiynlegt að örva áhuga ungra íslendinga á siglingum og farmennsku. Dvöl- in um borð í varðskipunum gæti einnig hatft holl uppeldisáhrif á unglinga. Kynni atf löggzlustörf- um varðskipaáhafanna gætu glætt þegnlegan þroska og átoyrgð artilfinningu hina ungu pilta. Það er skoðun mín að æskilegt sé, að þeir sem til þessarra starfa ráðist séu úr hinum ýmsu lands- hlutum og ég vil ennfremur geta þess að ég hef rætt þessa hug- mynd við forstjóra Landhelgia- gæzlunnar, sem telur hana vel framkvæmanlega og athyglis- verða. Pétur Sigurffsson sagði að til- lagan sem slík væri mjög athygl- isverð og hefði hann síður en svo á móti samþykkt hennar. Hins vegar væru þarna á viss vandkvæði. Sú nefnd sem um til- löguna fjallaði þyrfti að kanna hvort samþykkt tillögunnar mundi væntanlega hafa þau áhrif að fastamönnum á skipum Landlhelgisgæzlunnar yrði tfæ&k- að, en slíkt væri miður heppi- legt. Þá sagði Pétur að verulegur hluti af lágum tekjum varðskips manna væri fenginn með yfir- vinnu, og þá væri einnig spurn- ingin hvort ráðning ungling- anna til starfa á skipunum gæti ékki orðið til þess að laun fasta- mannanna lækkuðu. Hitt væri svo annað mál að fáir aðilar væru eins vel færir um að veita unglingum leiðsögn og kennslu í sjávarútívegsmálum og Land- helgisgæzlan. Þá gerði Pétur einn ig að umtaísefni sjóvinnuskóla og sagði að tfyrir nokkrum árum hefði hann flutt þingsályktunar- tillögu um að það mál væri rann sákað og væri sér kunnugt um að sú nefnd er um það fjallaði væri nú toúin að skila áliti. Mikil þörf væri á að koma slíkum skóla mundi væntanlega hafa þau á fót og væri vonandi að það drægist ekki úr hömlu. Jóhann Hafstein dómsmálaráff- herra, sagði að tillaga þessi væri vissulega góðra gjalda verð, en tó'k undir orð Péturs að kanna þyrtfti gaumgæfilega, með hivaða hætti væri hægt að koma slíkri sumarvinnu unglinga á og hvaða áhrif það miundi haifa etf tillagan yrði samþykkt. Sigurffur Bjamason sagði að aldrei hefði vakað tfyrir sér að slík sumarvinna unglinga yrði til þess að fækika fastamönnum á skipum Landhelgisgæzlunnar, né heldur að rýra kjör þeirra. Sér væri það ljóst, að samþykkt tillögunar mundi hafa nokfcurn kostnaðarauka í för með sér, en sitt álit væri að þeim fjármun- um yrði vel varið, etf hópur ungl- inga kæmiist árlega í snertingu við einn mikilvægasta þátt ís- lenzks atvinnulífs og kynntist einnig þýðingarmiklium störfum Landhelgisgæzlunnar. John leCarré: LAUNRÁÐ um LA6NÆTTI JOHN LE CARRÉ sýnir enn einu sinni í þessari bók, að hann er snillingur, og George Smiley mun sannfœra lesendur um það enn einu sinni, að hann er með slyngustu soguhetjum, sem unnt er að kynnast. JOHN LE CARRÉ er höfundur metsölubókanna: NJÓSNARINN, SEM KOM INN ÚR KULDANUM og NJÓSNARINN í ÞOKUNNI. Bókaútgáfan VÖRÐUFELL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.