Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 287. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1968

Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup:

Hver ert þú?

SÍÐASTI sunnudagur fyrir jól.

Hann er of nærri hátíðinni til þess að

mönnum þyki taka því að halda nokkuð

til hans. Raunar fer svo fyrir fleiri

sunnudögum ársins, þótt af öðrum til-

efnum sé. En áreiðanlega var aldrei til

þess ætlazt, að jólin legðu fyrirfarandi

helgidaga undir sig, eins og nú er fairið

að gæta í vaxandi mæli. Jólin byrja

ekki fyrr en á aðfangadagskvöld. Þau

endast fram á þrefctánda. Það er gömul

og góð skipan. Hitt er nýlunda að

teygja úr þeim á hinn veginn. Ég á

ekki fyrst og fremst við þá miklu kaup

táð sem fer á undan jólunum. Þar er víð

heiðið af] að eiga sem vart mun undan

láta að sinni. Ég hef á huga þá tilhneig

ingu að setja jólablæ á allt kristnihald

aðventunnar eða jólaföstunnar. Ég kann

ekki við að syngja jólasálma löngu fyr-

ir jól. Aðventan á að undirbúa jólin,

ekki að taka þau út fyrirfram. Hún er

tími eftirvæntingar og andlegs viðbún-

oðar. Og sunnudagar hennar hafa hver

um sig sínu erindi að gegna í því til-

Hti, ef hlustað er á þann boðskap, sem

þeir flytja. Líka þessi dagur.

Það er Jóhannes skírari, sem talar í

dag, eins og á sunnudaginn var (sjá

Jóh. 1,19-28).

Menn voru sendir til hans til þess að

spyrja hann: Hver ert þú? Hann svar-

aði: Ég er rödd, sem hrópar í óbyggð-

inni: Gjörið beinan veg Drottins.

Þetta gerðist áður en Jesús var far-

inn að starfa. Jóhannes gerði þá grein

fyrir sér, að hann væri sendur til þess

sð ryðja honum braut. Jóhannes var

mikilmenni. Þá væri öðruvísi umhorfs í

heiminum ef mikilmennin hefðu skilið

hlutverk sitt á sama veg og hann. Ef

þeir hefðu eins og hann lotið Kristi í

auðmýkt og leitað þeirrar tignar einnar

að   vera   rödd,   sem   greiddi   honum   og

winda hans veg til áhrifa. Ef færri

hefðu beitt lipri tungu og skörpum

penna til þess að gera braut hans ógreið-

ari, hlaða upp hindrunum á þá vegu,

sem til hans liggja, eða róta þeim um.

Ef færri hefðu léð gáfur og atgervi

til þess að gera sjónhverfingar og lokka

út á andlegt auðnarhjarn.

Hver ert þú? Jóhannes gat svarað

þessari spurningu. Hann gat það vegna

þess, að hann hafði komið auga á Krist

og gefið honum trú sína. Um leið og

hann vissi, hver Kristur er, hafði hann

fundið tilgang lífs síns. Hann gat svar-

að af því að hann hafði fundið og þegið

íausn Guðs á gátu lífs síns, svar Guðs

við spurningu tilveru sinnar, Krist.

Hver ert þú? Getur þú svarað? Hvað

dylst á bak við drættina í andliti þínu?

Hvaðan ertu kominn inn í þennan heim?

Uvert ferðu, þegar leiðinni hér er lok-

ið? Hver er sú hönd, sem tendrar

neista lífs og hugsunar? Hver' er sú

hönd, sem slökkur hann aftur? Og

slokknar hann þá að fullu? Hver er sú

rödd, sem að síðustu spyr: Hver ertu?

Hvert er það auga, sem metur og dæmir

Jíi þitt við hinzta uppgjör?

Gagnvart þessum spurningum er hver

maður eins og ómálga barn. En Jesús

?^ristur kom til þess að leggja jarðnesk-

um   óvitum  orð   á  tungu,   sem   geyma

lausnina. Hann kom til þess að gefa

vanvita smælingjum þann anda, sem vís

ar hjartanu i rétta átt. Hann er hér

til þess að láta mig og þig nema staf-

róf lausnarinnar við fótskör sína. Hann

er hér til þess að gefa blindum sýn, svo

að tíminn og eilífðin varpi af sér nægi-

lega rniklu af hulunni til þess að vér geti

um lifað til gæfu og dáið í friðL

Ég er rödd, sagði Jóhannes, sem á

að greiða Kristi veg. Getur þú ekki ver-

ið slík rödd? Á vinnustaðnum? Gagn-

vart börnunum þínum? Röddin þín dreg

ur kannski ekki langt, nær ekki tHL

margra. En ef þú ert faðir eða móðir

þá hefur þú aðstöðu til að láta hana ná ^-

dýpra en öðrum er auðið. Ekki raunar

fyrst og fremst með því, sem þú talar,

heldur því, hvernig þú ert. Þú vilt

gleðja börnin þín. Þú vilt verða þeim

til blessunar. Þú veizt hvar er upp-

spretta jólagleðinnar? Þú veizt, hver

hefur lykilinn að sannri lífsgleði og var

anlegri lífsgæfu? Ef þú veizt það ekM

áttu hið mesta ólært. Þá hafa jólin far-

ið framhjá þér hingað til. Hlustaðu opn

um eyrum og heilu hjarta á boðskap

þeirra. Og þú sem veizt eða rennir

grun í að þér er frelsari gefinn, komdu

nær honum á þessum jólum og bið þess,

sð leið hans verði greiðari að hjarta

þeirra, sem standa þér næst.

Kveikt á fólafréi^u Irá

Asker í Garðahreppi

I DAG kl. 16.00 verður fcveikt á

jólaré því, eem vinabær Garða-

hrepps, Asker í Noregi, hefur

sent hreppsibúum að gjötf. Trénu

hef-ur vexið vaiinn staðoor við

Barnaskólainn og fer þar fram

athöfn, þegar kveikt verður á

jþvl

Fyrst leikur sikólalúðriasveit

Garðalhrepps en ^íðan flytutr ívar

Eskeland,         framkvæmdastjóri

Nonræna húisðins, ávaæp og af-

hendir tréð fyrir hönd Asiker.

Þá kveikir fxú Elín Jónsdóttir

á Vífidsistöðum á trénu, en hún

er uppalin í Noregi. Að Dokuan

veitir sveitairstjórinn , Olatfur G.

EinarEson, trénu móttökiu. Kynn-

ir við athöfnimia verður Árni

Gunnarsson ritari Norræna fé-

lagsins.

í fréttatilkynningu, sem boxizt

hefuir  frá   Norræna  félaginu   og

Fróöleg

vasabók

KOMIN er á markaðinn vasabók

1969,   útgefin af Steindórsprenti

hf. en Steindórsprent hefur ár-

lega gefið út slíka bók lengur

en nokkur annar.

Margvíslegur fróðleikur er í

þessari bók, eins og endranær.

Þar er m. a. landakort í litum

af íslandi og annað af Evrópu,

13 kort af gatnakerfi Reykja-

víkur og úthverfum hennar og

nú hefur bætzt við koTt af gatna

kerfi Kópavogs.

Þá er dagtal ársins 1969 með

reit fyrir hvern dag og heildar-

dagatal þriggja ára, 1968, 1969 og

1970.    Ennfremur er vaxtatafla,

töflur um flóð og fjöru, vega-

lengdir í km milli staða á land-

inu, dagbók veiðimannsins, hjálp

í viðlögum, heimsóknartími

sjúkrahúsa, opnunartími safna

og ýmissa opinberra stofnana.

vísitala byggingarkostnaðar, mál

og vog, bæðí innlent og brezkt,

tafla um hitamæla, þyngd miðuð

við hæð manna, bridgetafla, um-

ferðamerki í litum, gistihús á

landinu, stærð heimsálfa og

íbúafjöldi. Skemmtilegur fróð-

leikur um gæði víntegunda eftir

árgöngum og notkun þeirra við

ýmis tækifæri.

Öllum þessum fróðleik og

ýmsu fleiru er komið fyrir í hand

hæ<gri vasabók á rúmum 200 bls.

Bókin er í plastkápu og geta

fyrirtæki og einstaklingar látið

gylla firmamerki, nafn, símanúm

er o. fl. utan á bókina, ef keypt

er nokkurt upplag í einu. — Fé-

Íagsbókbandið hefur annazt band

á bókinni.

¦   Bókin fæst í bókaverzlunum.

srveitarstjóra Garðahrepps, eru

íbúar hreppsins hvattir til að

mæta við þessa athöfn og beðnir

að klæða sig veL

Þorlákur Jóns-

son, skrifstofu-

stjóri 80 óru

Á MORGUN verðux Þorlákui

Jónsison, skrifstofustjóri, Njáls-

götu 51, 80 ára. Vinir oig kunn-

ingjar Þorláks hugsa með hlýhug

tíl hains á þessum merkisdegi ævi

hans og árna honum aWxa heilla

í ti'lefni dagsins, óska honum og

fjöl'skyldu hans gJe®ilegra jóla.

Þorláikur   verður   að   heiman

á afmælisdaiginn.

? ? ?

Fjúrlugufrum-

vurpið sumþykkt

FJÁRLAGAFRUMVABPIB fyrir

árið 1969 var í gær afgreitt sem

lög frá Alþingi. Fór atkvæða-

greiffsla fram fyrir hádegi, en

margar breytingartillögur við

frumvarpið höfðu komið' fram.

Breytingartillögur meírihluta

fjárveitinganefndar voru allar

samþykktar, en að flestum þeirra

stóff einnig minnihluti nefndar-

innar. Breytingartillögur minni

hluta nefndarinnar og einstaka

þingmanna voru felldar. Fjárlaga

frumvarpið i heild var samþykkt

með 32 samhljóða atkvæðum.

Betro seint

en nldrei

LISTAFÓLK, konur og karl-

menn. Einnig þið, sem ef til vill

viljið ekki utna þeirrí nafnbót

sendi ég beztu jóla- og nýárs-

óskir. Kærar þakkir fyrir allar

ánægjustundirnar sem þið hatfið

veitt okkur vistfólki í Reykja-

lundi með komu ykkar hingað í

þeim tilganigi. Nöfn ykkar eru

geymd en ekki glötuð, gerðabók-

in sér um það. Alveg jafnt þeirra

sem boðizt hafa til að koma og

hinna sem ég hef kvabbað á. Eftir

6 ára starf bessum málum við-

víkjandi ber mér því sannar-

lega að þakka af alhug og geri

það hér með.

Lifið   heil.

F. h. vistenanna í Reykjalunda.

Þorleifur Eggerisson.

M'm

K jarval, Matthias

Um Kjarvalskver

„LÍFIÐ er terpentína", segir

Kjarval. „Lífið er músík", sagði

Jóhann Sigurjónsson. „Lífið er

ökonómía", sagði Einar Benedikts

son. Þessar og aðrar ekki síður

merkilegar lífsskoðanir koma

fram í Kjarvalskveri, sem Helga-

fell gaf út 18. desember og geym

ir 6 viðtöl Matthíasar Johannes-

sens við Jóhannes Sveinsson

Kjarval.

Mér f annst gaman að lesa þessa

bók. Yfir henni er léttur og hressi

legur blær skemmtilegrar og um

fram allt sannrar frásagnar.

Kjarval lætur það fjúka, sem hon

um dettur í hug, og Matthías skrif

ar það niður. Það er í rauninni

ótrúlegt hversu vel Matthíasi

tekst að varðveita hugmyndir og

málfar Kjarvals. Sérstaklega þótti

Mót Vottn

Jehóvu

Frá 23.—25. að báðum dögum

meðtöldum halda Vottar Jehóva

mót í Lindarbæ við Lindargötu

9. Á þessu ári hafa þeir nú þeg-

ar haldið tvö önnur mót, annað

á Akureyri og hitt í Reykjavík

og voru þau fjölsótt.

Stef mótsins er „framgöngum

í andanum", enda segja Vottar

Jehóva, að tilgangux þessa móts

eins og annarra er að veita bibl-

íufræðslu og benda á hvað hún

veitir gagnlegar leiðbeiningar. —

Hámark mótsins verður kl. 15

miðvikud. 25. desember, en þá

verður fluttur fyrirlesturinn:

„Mun Guð hafa afskipti af mál-

efnum manna?" Vottar Jehova

eru sannfærðir um að marga fýsi

að fá svar við þessari spurningu.

Vitað er að á mótinu munu

vera gestir frá öllum landshlut-

um, enda eru allir velkomnir,

að hlýða á alla dagskrána, sem

er sögð vera mjög fjölbreytt og

skemmtileg.

mér síðasti partur bókarinnar

hugðnæmur, þar sem segir frá

Kjarval og nánum vinum hans.

Þótt saga samtímans sé vand-

rituð og erfitt að greina, hviað

framtíðin telji honum til gildis,

efa ég ekki, að verk Kjarvals og

persónan Kjarval eiga eftir að lifa

um ókominn tíma. Öll vitneskja

um slíka andans menn er því kær

komin, og Matthías á þökk skildia

Burnuvísur

Omurs

RÉTT fyrir jól ko<m á markað-

inn bók, sem krökkum þykir

sjálfsagt fenigur að, en J>að eru

barnaivísur Ómars Ragnarssoniar.

Það er lömgu staðreynd, að

Ómar er landskunnux maður oig

vinsæll.

Vísnafcver Ómars er í háu

brotí, en mjóu, litmynd á kápu,

en fullt atf smrámyndum tiJheyr-

andi textunum á spásssiíu og

neðanmiáls, teiknaðar af Þor-

steini Eggeitssyni, 19 barnavísur

Ómars   eru   í   bókinni.

Það er bókaútgáfan Hrafnar,

sem gefur bókina út.

fyrir þarft verk og vel unnið

Guðmundur S. Alfreðsson.

6ta bekk Menntaskólans í

Reykjavík.

Helgisýning í

Hufnurfjurður-

kirkju

EINS OG UNDANFARIN ÁR,

verður haldin helgisýning barna

í Hatfnarfjarðarkirkju síðasta

sunnudaginn fyrir jól og að

þessu sinni í kirkjunni í dag

klukkan 5 síðdegis. Er það barna

kór kirkjunnax, sem sér um sýn-

inguna og jólasöngva undir

stjórn Páls Kr. Pálssonar. —

Fer athöfnin fram í kórnum, og

munu börnin sýna á táknrænan

hárt hvað gerðist hina he'lgu

nótt, og atburðirnir settir á svið.^

Þax verður María og Jósef við

jötu jólabarnsins, hjaxðmenan

englax og vitxingar.

Á undan athöfninni segir séra

Garðar Þorsteinsson börnunum

ævintýri jólanina og þjónar svo

á eftir fyrir altari. — Hafa börn

og fullorðnir jafnan fjölmennt

við heflgiathöfn þessa síðasta

sunnudag fyrir jól, en hún hefst

í Hafnarfjarðarkirkju í dag kL

5-                                                     í

Ailansöngrur í Árbæjar-

skóla d aðlangadag

Á ÞESSUM jólum verður í

fyrsta sinn flutt messa í Árbæj-

arskólanum nýja, en það er jafn

framt í fyrsta skipti, sem sóknar-

fólki Árbæjarsóknar gefst kost-

ur á að fjölmenna til messu. —

Kirkja er engin í sókninni sem

kunnugt er, nema hin litla Ár-

bæjarkirkja, sem tekur fáa í

sæti. Aðstaða til guðsþjónustu-

halds er því ekki góð, því að

stofur í nýja skólahúsinu verða

ekki sameinaðar nema með ail-

mikillj vinnu. Undirbúningur að

byggingu nýrrar kirkju er af eðli

legum ástæðum kominn skammt

á veg.

Við aftansönginn á aðfanga-

dagskvöld messar settur sóknar-

prestur i Mosfellsprestakalli, séra

Ingþór Indriðason. Sungnir verða

hátiðasöngvar séra Bjarna Þor-

steinssonar, sem formaður sókn-

arnefndar, Geirlaugur Árnason,

hefur æft með söngkór sóknar-

innar.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32