Morgunblaðið - 18.01.1969, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.01.1969, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1969 Íslandsmótið í körfuknatt- leik hefst í kvöld ÍSLANDSMÓT í körfuknattleik 1969 hefst í kivöld laugardag 18. Góð aðsókn að leikjum Manchester U. ÞRÁTT fyrir það að Manchester United séu aðeins í sextánda sæti í fyrstu deild er aðsóknin að leikum félagsins þó langmest, eða að meðaltali 54890. Liverpool er næstefst að áhorfendafjölda á heimavelli með 48149 og hitt Liverpool-félagið Everton er þriðja í röðinni með 47.240. Arsenal hefur að meðaltali 40.795, sem er nokkuð lágt miðað við gengi félagsins í keppninni í ár. Chelsea, Tottenham, Leeds, Manchester City, Coventry og Newcastle koma næst í upptal- innd röð. jan. kl. 20 í fþróttahúsinu á Sel- tjarnarnesi. Mótið verður sett af form. KKÍ Boga Þorsteinssyni. Er þetta fjölmennasta körfu- knattleiksmót, sem hér hefur farið fram. Taka þátt í því 560 ungir íþróttamenn og konur úr 15 íþróttafélö^um um land allt. Þessir leikir fara fram í dag og á morgun. 1. leikur 2. deild Breiðablik — ÍKF. 2. leikur 4. fl. KR — Á. 3. leiikur 2 fl. ÍR — KFR. Umsjón Ármann. Sunnudagiur 19. jan. kl. 14 Hálogaland. 4. fl. C-riðill Á — KFR. 4. fl. C-riðill KR — ÍR. 3. fl. D-riðill Á — ÍR 2. fl. B-riðill ÍKF — KR. 2. fl. A-riðill Á — Breiðablik. 1. fl. ÍR — KR. Umsjón KR. Sunnudagur 19. jan. íþróttahús Seltjarnarnesi kl. 20. Mfl. 1. deild Á — KR. Mfl. 1. deild ÍR — KFR. Umsjón ÍS. HG tekur forystuna BFTIR fremur slæma byrjun í Danmerkurmeistaramótinu í handknattleik hefur HG nú tek- ið forustuna, að 11 leikjum loiknum, og hafa hlotið 17 stig. Stjernen hefur einnig 17 stig eft- ir 11 leiki, en óhagstæðara marka hlutfall og Árh.Us KFUM er í þriðja sæti með 15 stig effir 10 leiki. í fjórða sæti er Skovbakk- en með 12 stig, en önnur lið sem íslendingar hafa haft samskipti við Stadion ag Ajax eru í 7. og 8. sætL Tommie Smith og John Carlos mótmæla á verðlaunapalllnum í Mexíkó. Hrá egg og tómatar voru vi&tökur OL-meistarans — Tommie Smith hœttur keppni TOMMIE Smith, gullverð- launahafi í 200 metra hlaupi á Olympíuleikunum í Mexí- kó og einnig þekktur sem þátttakandi í baráttu svert- ingja, er nú í senn vonsvikinn og hræddur. Hann er vonsvik inn yfir viðtökunum sem hann fékk er hann snéri heim frá leikunum, og hræddur um framtíð sína í Bandaríkjun- um. Smith fékk ekkert gullúr er hann kom heim frá sigur- för sinni, heldur dembu af hráum eggjum og tómötum. Smith hefur sagt, að með framferði sínu á Olympíuleik- unum, hafi hann vænzt þess að komast í innsta hring „Blackpower". — Móttökurnar í heimaborg minni voru mér mikið áfall, sagði Tommie SmitJh í viðtali við sænska blaðið „Se“, sem er eina blaðið sem hann hef- ur viljað eiga viðtal við, — Þegar ég kom til Los Angeles tóku fréttamenn blaða og sjón varps vinsamlega á móti mér, en það voru fremur vinir mín ir í Lemoore, sem mig hlakk- aði til að hitta. Það voru við- brögð þeirra sem ég var spenntur fyrir. „Negri“, hróp aði evo fólkið, sem ég vonaði að heilsaði mér hjartanlega. Sumir báðu mig að fara til Afríku, svo fljótt sem unnt væri. Þessi orð voru mér meira mótlæti og sársauki en bráu eggin og tómatarnir sem rigndu yfir mig. En þrátt fyrir að Tommie Smitih viti, að mótmælaað- gerðir hans í Mexíkó, hafi eyðilagt framtíð hans í Banda ríkjunum, er hann ákveðinn: — Við urðum að sýna heim ínum við hvaða vandamál svertingjarnir í Bandarikjun- um eiga að etja. Þe.gar við lyftum hanskaklæddum hönd um okkar til himins, fannst mér að við töluðum máli allra svertingja í Bandaríkjunum. Ég er stoltur af því sem ég gerði. Engum hafði dottið það í hug að svertingi vogaði sér að mótmæla. Gullverðlaunapeningurinn sem Tommie Smitlh hafði með sér frá Mexíkó, og hann sýndi áður með stolti, hefur nú verið lagður til hliðar inn í skáp. I heiðurssessi á heimili hans og hinnar hlédrægu konu hans, 'hangir þess í stað innrömmuð litmynd frá verð- launaafhendingunni í Mexíkó, tekin á því augnabliki er þeir Tommie Smitih og John Carlos reiddu kreppta hnefa sína á loft. Þetta verður jafnframt síð asta íþróttamyndin af Tommie Smith. Hann hefur ekkert æft síðan leikunum lauk. Þjálfar- inn vill ekki einu sinni tala við hann lengur og fótbolta- félagið í Los Angeles, sem búið var að lofa honum samn- ingi, hugsa ekki meira um hann. Prague. Tii vinstri er bezti miðherjinn í Tékkóslóvakíu 1959— 1964 Bohumil Tomasek, en til hægri er einn hávaxnasti liðsmaff- ur Sparta, Zdenek Dou.sa (nr. 14). Sparta Prag leikur hér á miövikudag — og blaðamenn leika við tyrsta landsliðið í körtuknattleik TÉKKNESKA körfuknattleiks- liðið Sparta Prag, er kom við hérlendis á leið sinni til Banda- rikjanna, í desember og lék þá við íslendinga, mun einnig koma Við á heimleiðinni og leika við íslenzka landslðið. Fer leikurinn fram Laugardalshöllinni á mið- vikudagskvöldið. Leifcur Sparta Prag og lands- liðsins, er fram fór í desember þótti mjög skemmitilegur, en hon um lyktaði með sigri Tékkanma 76:62 stigum. Sparta Prag er tal- ið eitt af fremstu félagsliðum í Evrópu í körfuknattleik, og því kærkomið fyrir íslenzka unn- Danir sigruðu Norðmenn 19-18 „Bezta handiknattleiksþjóð Norð- urlanda" er ekkj lengur óisigruð. Norðmenn töpuðu fyrir Dönum í landsleik er fór fram í Kaup- mannahöfn í fyrrakvöld með 18:19, eftir mjög jafnan og harð- an leik. í hálfleik var staðan 9:6 fyrir Dani. Norðmenn hafa verið mjög sigursælir í 'handknattleik að undanfornu og sigrað t. d. bæði Svía og Dani. Töldu þeir að dómarar leiksins, sem voru finnskir, hefðu dæmt mjög illa, og raunverulega fært Dönum sig- urinn. Flest mörk skoruðu fyrir Dani Jören Graversen 6, og fyrir Norðmenn Per Graver 5. Sigurinn í fyrrakvöld var Döruum mjög kærkominn, þar sem þeir hafa ekkí unnið Norð- menn í landsleiik sl. 3 ár. endur íþróttarinnar að fá þá hingað. í hálfleik mun svo fram fara kappleikur í körfuknattleik milli fyrsta íslenzka landsliðsins í körfuknattleik og blaðamanna. Ætti að einnig að igeta orðið skemmtilegur leikur, þar sem blaðamennirnir h'afa áður unnið hin „frækdleg.ustu" afrek m. a. í knattspyrnu. Landsliðsnefnd K.K.Í. hefur valið ldðið sem leika á við Sparta Prag á miðvikudaginn og verður það þannig skipað: Kolbeinn Pálsson (KR) Kristinn Stefánsson (KR) Gunnar Gunnarsson (KR) Hjöntur Hansson (KR) Brynjólfur Markússon (KR) Þorsteinn Hallgrímsson (KR) Sigmar Karlsson (ÍR) Birgir Jakobsson (ÍR) Jón Sigurðsson (Á) Birgir Öm Birgis (Á) Sigurður Heligason (KFR) Þórir Magnússon (KFR) Danmörk ísra- el 19-8 FYRIR nokkrum dögum léku Danir og ísraelsmenn landsleik í handknattleik. Fór leikurinn fram í Esbjerg og unnu Danir auðveldan sigur 19:8. Leikurinn þótti heldur lélegur og að sögn tóku dönsku handknattleiksmenn irnir hann ekki hátíðlega. Flest mörk skoruðu Hans Jöngen 6 og Verner Gaard og Arne Andersen 3 hvor.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.