Morgunblaðið - 29.01.1969, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.01.1969, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1969 Sigríður Þórisdóttir afgreiðslustúlka Fædd 29. marz 1935. Dáin 20. janúar 1969. í dag kL 3 verður gerð írá Foss vogskirkju útför Sigrfðar Þóris- dóttur afgr.stúlku á Bæjarleið- um, til heimilis að Hjallaveg 52. Sigríður var fædd í Reykjavík, en ólst upp á Akureyri til 6 ára aldurs, en þá fluttu foreldrar hennar til Reykjavíkur, þau hjón in Þórunn Rögnvaldsdóttir og Þórir Ólafsson stýrimaður. Hann fórst með Goðafossi í því hörmu lega slysi 10. nóv. 1944, og var Agga þá, (eins og hún var oftast kölluð) aðeins 9 ára gömul. Agga var eina bam þeirra hjóna, en faðir hennar átti eina dóttur fyrir hjónaband, er Guðbjörg heitir, og er hún gift og búsett á Akureyri. Þær hálfsysitur voru mjög samrýmdar. Eftir að Þórir faðir öggu féll frá bjuggu þær mæðgur alla tíð saman og nú síðustu árin að Hjallavegi 52, þar sem þær höfðu sameiginlega byggt upp sitt litla hlýlega heimili fyrir sig og böm in tvö, sem Agga átti og var að ala upp með aðstoð móður sinn- ar, drenginn Þóri, 10 ára og stúlk t Konan mín Halldóra Jónsdóttir, verður jarðlsungin frá Dóm- kirkjunni fimmtudaginn 30. þ.m. kl. 3. síðdegis. Þeir sem vildu minnast hinnar látnu vinsamlegast láti líknarstofn- anir njóta þess. Fyrir hönd vandamanna. Steinn KrLstjánsson. t Eiginma'ður minn og faðir okkar Jóhannes S. Michelsen Hoffelli, Fáskrúðsfirði, sem lézt 18 þ.m. verður jarð- settur frá Fáskrúðsfjarðar- kirkju í dag miðvikudag 29. jan. og hefst athöfnin kl. 2 síðdegis. Guðfinna Árnadóttir og börn. Konan mín, Elín Guðmundsdóttir verður jarðsett frá Kirkju- vogskirkju, í Höfnum, mið- vikudaginn 29. þ.m. kl. 2 e.h. Bílferð verður frá Umferðar- miðstöðinni kl. 12.30 sama dag. Ketill Ólafsson. t Útför móður okkar og tengda- móður, ömmu og langömmu Jóhönnu Jóhannsdóttur frá Bíldudal, verður gerð frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 30. jan. kL 10.30 f.h. Guðríður Júlíusdóttir, Valur KrLstjánsson, Guðlaug Júlíusdóttir, Guðmundur Jónsson, Sigríður Júliusdóttir, Jósef Finnbjarnarson, barnaböm og bamabarna- böm. una Þórunni, 14 ára, sem n/ú verða að sjá á bak móður sinni svo ungri að árum og svo óvænt. Agga naut Gagnfræðaskóla- náms eftir barnaskólagöngu og gekk henni mjög vel námið í skóla, enda vei gefin og skörp í hugsun. En Agga þurfti eins og svo margir aðrir að hætta námi og snúa sér að brauðstriti dag- legs lifs sér og sdnum til fram- dráttar. Vann hún þá að ýmsu, svo sem verzlunar- og þjónustu- störf. Var hún me'ðal annars um skeið við afgreiðslustarf lang- ferðabifreiða á vegum B.S.Í., en síðustu 6 árin vann hún við afgreiðslustörf hjá Bifr.st. Bæjar leiðum. Rækti hún það starf með svo miklum ágætum að vart verður á betra kosið, enda aflaði hún stöðinni slíkra vinsælda í hópi vi'ðskiptavina og sér í hópi starfsfélaga, að um langan aldur mun hún lifa meðal vor í minn- ingum liðins tíma og eigi gleym- ast. Við starfssystkin öggu þekkt- um hana vel og fundum vissu- lega að hún skapaði okkur fyrir- mynd í starfi sínu, en afgreiðslu- störf á bifreiðastöð eru bæði erfið og vandaaöm, þar sem þau eru tvíþætt þjónustustörf, annars vegar þjónusta við viðskiptavin- ina og hinsvegar við bifreiða- stjórana. Reynir þá oft mikið á a'ð gera öllum til hæfis, en þá þraut reyndist Öggu létt að leysa, og eins og af Guðs náð var hún sköpuð fyrir þetta starf svo vel fórst henni það úr hendL Og lengi verður rómuð hennar ljúfa lund samfara lipurð, kurteisi og skarpskyggni svo af bar í þessu vandasama og oft vanþakkláta starfL Agga mín, aldrei verður þér t Jarðarför Daghjartar Bjamadóttur Efstasundi 32, fer fram frá Fossvógskirkju fimmtudaginn 30. þ.m. kl. 1.30 e.h. Kristján Jóhannesson, böm, barnaböm og barnabamaböm. Konan min Elín Guðmundsdóttir verður jarðsett frá Kirkju- vogskirkju, í Höfnum í dag miðvikudag kl. 2 e.h. Bílferð verður frá Umferðarmiðstöð- inni kl. 12.30 sarna dag. Ketill Ólafsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi Helgi Jónsson fulltrúi, verður jarðsunginn föstudag- inn 31. janúar kl. 14 frá Garða kirkju á Álftanesi. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélagið. Lára Valdadóttir, böra, tengdabörn og baraabörn. fullþakkað þinn stóri hlutur á Bæjarleiðum og sárt er að sjá skarðið í hópi okkar starfssyst- kina, sem seint verður bætt. Vina mín, ég vil nú að lefðar- lokum þakka þér með hrærðu hjarta fyrir allar þær hugljúfu samverustundir bæði í starfi og leik. Ennfremur vil ég bera hug- heilar þakkir til þín £rá öllum starfsfélögum þínum og vinum og við munum öll geyma minn- ingarnar í hugum okkar þar til við hittumst öll aftur á ný hand- an við hafið. Þú hefur nú verið leyst frá öllurn þrautum þessa lífs og þín bíður eilífð framtíðar- innar. Ég bið þér allrar blessun- ar í Guðs friði. Börnunum þínum og móður þinni aldra'ðri, sem hefur verið réttur þessi beiski bikar, bið ég Guð að styrkja í þeirra dimmu sorg og senda þeim sinn verm- andi sólargeisla inná heimilið þeim til huggunar. Ég votta þeim fyrir mína hönd og starfsfélag- anna allra á Bæjarleiðum okkar innilegustu samúð. Þorkell Þorkelsson. Sigrfður Þórisdóttir (Agga), eins og hún var alltaf kölluð af vinum sínum og ég held öllum, sem kynntust henni, hefir nú lokið vegferð sinni hér í heimi. Þessi tápmikla, hrausta og lífs- glaða stúlka er horfin, kölluð burt í blóma lífsins frá hálfvöxn- um bömum sínum, aldraðri og lifsþreyttri móður og frá hug- þekku starfi, þar sem hún naut trausts og óvenju almennrar við- urkenningar vegna hæfni og ríkr t Þökkum auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og jarðar- för Valgerðar Vigfúsdóttur Bræðraborgarstíg 53. Vandamenn. t Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og út- för eiginmanns míns og föður okkar Kristjáns Bjarnasonar Austurvegi 15, tsafirði. Guðbjörg Gestsdóttir og dætur. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Sigurðar Sv. Sveinssonar Borgarfirði-eystra. Einnig viljum vi'ð þakka starfs fólki Sólvangs og þeim sem sýndu honum hlýhug í veik- indum hans. Vandamenn. ar viðleitni til að gera alltaf sitt bezta. Henni tókst öll þau ár, sem hún vann fyrir okkur á Bæjar- leiðum að leysa störf sín þannig af hendi að vart var á betra kosið og er þó ekki vandalausf að vinna fyrir okkar stétt, svo ekki sé meira sagt, en þetta gerði hún þannig að hún ávann sér vináttu og bróðurhug okkar allra, sem kynntust henni í gegnum starf hennar á stöðinni. í argi og þrasgjömu hversdags starfi okkar daglega lífs, virkaði röddin hennar eins og ferskur blær, þegar hún hljómaði gegn- um talstöðvamar, þróttmikil, ró- leg og alltaf full af hlýju og vin- semd að hverjum sem hún beindi orðum sinum. Þar var hún sannarlega fyrixmynd ekki aðeins starfssystkinum sínum við afgreiðsluborðið, heldur og ekki síður var hún fyrirmynd okkar bifreiðastjóranna um háttvísi og prúða framkomu í daglegu starfL Fyrir þetta og ótal margt ann- að viljum við allir þakka kæra „Agga“. Og þakkir okkar, óskir og heitar fyribænir fylgja þér nú yfir móðuna miklu, þar sem við trúum, að þú sért kölluð til nýrra starfa og við biðjum góðan Guð að rétta nú út sína styrku föðurhönd, vernda og styðja blessuð börnin þín og gtefa móð- ur þinni þrek til að bera þær þungu byrðar, sem nú eru lag’ðar á hennar lúnu herðar, láta ekki þennan mikla missi verða henni ofurefli. Far þú í friðL Friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allL L.S. EFTIR BILLY GRAHAM HVAR í Bibliunni er postullega trúarjátningin? Er gert ráð fyrir, að við notum hana í guðsþjónustum? Ég hef tekiö eftir því, að sumir söfnuðir nota hana og aðrir ekki. Postullega trúarjátninin er ekki í Biblíunni. En hún styðst við kenningar Biblíunnar, og þannig má segja, að hún sé biblíuleg. Ýmsar játningar eru notaðar í kirkjum kristn- innar. Allar eru þær grundvallaðar á Ritningun- um og greina í stuttu máli frá trúaratriðum hinna mörgu kirkjudeilda. Postullega trúarjáningin er þeirra elzt, og hefur hún verið notuð síðan á ann- arri öld, aðeins með óverulegum breytinum. Meþó- distar nota hana, einnig fullorðinsskírendur og öld- ungakirkjumenn og margar aðrar kirkjudeildir mót- mselenda. Níkeujátningin og Aþanasíusarjátningin tíðkast í helgihaldi kaþólsku kirkjunnar. Lútherska kirkjan notar Ágsborgarjátninguna og minna kver Lúthers. Öldunakirkjumenn nota bæði Westminst- erjátninguna og postullegu játninguna, og sumar aðr- ar kirkjur nota Heidelburgkverið. Játningar þessar eru allar greinargerðir á undirstöðuatriðum trúar- innar. Þær voru reistar á Ritningunum, og menn hafa þær yfir, þegar ætlazt er til, að trúin sé játuð. Helzta hættan í sambandi við allar trúartjáningar er sú, að þær verði þulur, sem hafst enga merkingu. Á hinn bóginn geta einlægir, helgaðir menn hlotið mikla uppbyggingu og styrk við það að játa í heyr- anda hljóði, hverju þeir trúa. Engin þessara játn- inga eru í Biblíunni, eins og áður segir. En þær eru allar grundvallaðar á Biblíunni. Gunnlaugur Pétur Sigurbjörnsson Fæddur 18. febrúar 1893. Dáinn 16. janúar 1969. KVEÐJA frá Guðrúnu Benediktsdóttur. Ég hef svo margs að minnast já, margs er yljar lund þeim góðu er gott að kynnast, það gleður marga stund, þú áttir hönd svo heita að hjartað ylinn fann. Þú vildir öðrum veita að vona á kærleikann. t Innilegt þakklæti fyrir auð- sýnda samúð við andlát og jarðarför systur okkar Maríu Eiríksdóttur Krosseyraveg 3, Hafnarfirði. Guðrún Eiríksdóttir, Eiríkur Bjömsson, Margrét Bjömsdóttir, Jón Bjömsson. Og hún er sárt þín saknar þér samhent ætíð var. Og mörg nú minning vaknar um margt er gjörðist þar sem er mín ævisaga skein ungum vonarsól þið áttuð unaðsdaga og öðrum veittuð skjól. Minn dreyminn huga dreymir nú dags og nætur skil. Ég veit að guð allt geymir sem gott og bjart er til. Oft blómailm þú breiddir á bernsku minnar s-tíg þú litla bamið leiddir nú leiðir engill þig. (G. G.) Góði vinur! Er ég kveð þig nú hinztu kveðju er efst í huga mér þakklæti fyrir falslausa vináttu og tryggð ykkar hjónanna, allt frá æskudögum mínum. Og ekki síður hin síðari ár. Hjartans þakk ir fyrir þá fómarlund og aðstoð sem þið voruð ætíð reiðubúin a'ð veita mér og mínu fólkL Megi algóður Guð gefa þér frið og blessun og ástvinum þín- um öllum huggun og styrk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.