Morgunblaðið - 15.03.1969, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.03.1969, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1009 Kardimomm'ubaerinn umflotinn — Ljósmyndari Mbl. Ó1.K.M. Elliöaárnar nær tvöfalt meiri en Ljösafoss Hross standa í vatni í Kardimommubœ, en tlóðið er í rénun var umllotón vatni og við Elliðaárstífluna skammt frá beljaði vatnið. Um fjögurloyt- ið í gær var ísinn á Elliða- vatni þegar farinn að brotna, enda þar hvasst mjög. hádegi Oig fram til kil. 16. í»ó gat verið um mælingar- skekkju að ræða, þar eð mæli stikan hafði losnað og flotið burtu. Flóð þetta kom rnjög s’kyndilega. Mikill vatns- filaumur var á Sandskeiði, klakastífla í Hólmsá, sem skyndilega brast og eirihig ALLMIKIÐ hlaup [rerði í Ell- iðaánum í gærmorgun og skemmdust nálægir vegir, vegurinn upp með norður- bakka ánna og einnig vegur- inn frá Rauðavatni að Elliða- vatnsstiflu, sem var umflot- inn vatni. í Kardimommubæ — hesthúsunum flæddi, en flestir hrossaeigendur höfðu fjarlægt hesta sína um miðj- an dag í gær. Þá stóðu enn nokkur hross í vatni, sem náði þeim í hófskegg. Vatna- vextimir náðu hámarki um hádegisbil í gær, en úr því tók að sjatna. Áætlað er að rennslið í ánum hafi verið um 120 til 130 teningsmetrar á sekúndu, sem ef tæplega tvöfalt vatnsmagn Ljósafoss við eðlil«|?ar aðstæður. Strax í gærmorgum tóku hestaeigendur að bjarga hross um sínum úr Kardimommu- bæ. Urðu þeir að sundríða sumir hverjir. Húsaþyrpingin Vatnið stóð hátt í Elliðaánum við efri brúna. Jón Ásgeirssom, stöðvar- vörðoir í Elliðaárrafstöðinni kvað mest rnæða á Elliðaár- stífluinni. Kvað hann hættu einkum fódgna í því að of hátt yrði í vatninu vegna iss, sem skemmt gætii giarðinn en hvassviðrið ykist. Vatn stóð þó ekki svo hátt þá að ástæða væri til þess að óttast mjög og hafði flóðið þá að því er talið var náð hámarki. Við Elliðaárstífluna voru mæl- ingamenn, sem sögðiu að vatn- ið hefði lækkað um 12 sm frá mun hiafa bilað uppistaða við Gvendarbrunna, að því er Jón Ásgeirsson tjáði Mbl. Jón taldi að rennslið í ánum hefði verið 120 til 130 teninigs- metrar á sekúndu og tiil sam- anburðar má geta þess að urxnt er að starfrækja Elliða- árstöðina með aðeins 9 ten- ingsmetra rennsli. Eðlilegt rennsli Ljósafoss er rúmlega 70 teningsmetrar. Vatnsmagn í Hólmsá — við brúna — hafði í gær um kl. 16 lækkað um hálfan metra. Svo sem menn rekur minni til, varð eitt mesta flóð í manna minnum í Elliðaánum í fyrra. Aðstæður þá voru töluvert aðrar — gífurleg úr- koma samfara miklum snjó í upphafi leysinganna. Hestamenn koma hestum sínum úr umflotnum hesthúsum. Ljósmyndari Mbl. Sv. I»orm. Norrœnu félögin 50 ára: Hátíðakvöldvaka í Norræna húsinu ÞRIÐJUDAGINN 18. marz n.k. verður haldið hátíðlegt 50 ára afmæli Norrænu félaganna. Raunar er íslenzka félagið að- eins 47 ára gamalt, stofnað árið 1922, en félögin í Noregi, Sví- þjóð og Danmörku voru stofnuð árið 1919, og hafa samtökin á- éveðið að halda formlega upp á afmælið á öllurri Norðurlöndum. Finnska félagið er yngra en það íslenzka, stofnað árið 1924. Fær- eyjar bættust í hópinn árið 1951. f tilefni af afmælinu var hald- in hátíð í Stokkhólmi þann 28. febr. sl. Var afmælisins einnig minnzt á fundum Norðurlanda- ráðs. Dagana 26.-29. júní n.k. verður svo haldinn hátíðafund- ur í Kaupmannahöfn. Eru allir meðlimir Norræna félagsins vel- komnir, og verður farin hópferð 'héðan þann 26. júní (heim aftur tveim vikum síðar). Er fargjaldið kr. 8.780.00 báðar leiðir (um helmings afsláttur). Geta meðlim ir Norræna félagsins pantað far- miða á Ferðaskriístofunni Sunnu. Afmælis Norræna félagsins verður minnzt með hátíða- kvöldvöku í Norræna hús- inu á þriðjudagskvöld, 18. þ.m., kl. 20.30. Flytur Wilhelm Paues, forstjóri Iðnaðarmálastofnunar Svíþjóðar, þar erindi um Efna- hagssamvinnu Norðurlanda. Aðr ir dagskrárliðir verða þessir: Kvartett Björns Ólafssonar leik- ur, formaður Norræna félagsins, Sigurður Bjarnason, flytur stutt ávarp, Guðrún Á. Símonar syng- ur við undirleik Guðrúnar Krist- insdóttur, og að iokum mun hinn frægi norski gamanleikari og píanóleikari, Per Asplin, skemmta gestum. Síðan er kaffidrykkja. Meðlimir Norræna félagsins eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Er aðgangur ókeypis, en gestir greiða veitingai sínar sjálfir. Verða miðar afhentir á skrif- stofu Norræna hússins kl. 1-7 e. h. næstu daga. Norrænu félögin hafa nú sam einazt um eitt málgagn, er nefn- ist „Vi i Norden“ Kemur tímarit- ið út í fyrsta sinn í tilefni af af- mælinu, en ætlunin er að það verði ársfjórðungsrit. Þá er einn ig fyrirhugað að senda meðlim- um Norræna fálagsins gjafabók um samvinnu Norðurlanda 1969. (Fréttatilkynning frá Norræna félaginu). Þref við inngang Playboy-klúbbsins Lögreglan í varðstöðu við ncetur- klúbbana — Veitingahúsin vilja breyttan lokunartíma LÖGREGLAN tók sér varðstöðu 'í fyrrinótt við næturklúbbana fjóra í borginni til að sjá um að farið yrði að settum reglum, og þeim lokað á réttum tíma. Ekkert bar til tíðinda við þrjá þessara klúbba — Appolio, Klub 7 og Startklúbbinn — en nokkurt þref varð við inngöngu- ’dyr Playboy-klúbbsins. Þar vörn uðu lögreglumenn fólki inn- göngu eftir kl. 61, en forstöðu- maður klúbbsins hrópaði þá að þeiim ókvæðisorð og hvatti fólk- ið til að sýna lögreglunni mót- Iþróa, Ekki kom þó til neiinna átaka. og engiinn var handtekinn. Lögreglan skipti sér ekikert af því fólki, sem komið var inn í klúbbinn. Lögreglum-ennirnir ,sáu, að við dyr klúbbsins hafði verið hengd upp tilkynning um að klúbburinin væri opinn félög- um og gestum þeirra frá kl. 01.15 til 5 að morgni, en það 'brýtur í bága við ákvæði lög- reglusamþykktar Reykjavíkur. Lögreglain huigðiist einnig hafa eftirlit með klúbbnum í nótt, o.g jafnvel fleiri nætur, ef þurfa þykir. Morgunblaðið sneri sér í gær til Koniráðs Guðmundssonar, hót- elstjóra, og spurði hvort veit- ingahúsaeigendur hefðu orðið varir við að næturklúbbamir hefðu dregið úr aðsókn að vín- veitingahúsunum. Hann kvað næturklúbbana hafa starfað of stuttan tímea til að þeir hefðu verið farnir að hafa áhrif í þá átt, en taldi að svo hefði farið þegar fram liðu stundir. Hefði þá aðstöðumunurinn átt stærst- an þátt í því, vínveitingahúsin þyrftu að fara eftir mjög ströng- um reglum og ákvæðum, sem næturklúbbarnir gátu haft að engu, og gátu þar af leiðandi boðið gestum sínum betri kjör á ýmsa.n hátt. Konráð gat þess, að forstöðu- menn vínveitingahúsanna hefðu í baust farið fram á breytingu á lokunartíma húsanna. Vildu þeir fá að hafa opið tiil kl. 1 á fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum en til kl. 2 á laug- ardögum, líkt og vínlausu skemimtistaðirnir, en þessari beiðni hefði verið neitað. „Þykir okkur það heldur skrítið, að full- orðna fólkið skuli þurfa að fara fyrr heim en börnin þeirra, sem stundia vínlausu skemmtistað- ina“, sagði Konráð. Hann var að því spurður, hvort forstöðumenn vinveiitinga- húsanna hefðu nokkuð rætt um það sín á milli, að veitingahúsin skiptust á að hafa opið enn lengur fram eftir nóttu. Hann svaraði því neitandi, enda teldi hamn heldur vafasamt, a.m.k. fyrir hótelin að leggja út á þá braut. U Mínar innilegustu þakkir færi ég yður öllum fyrir þá miklu sæmd og vináttu, sem fyrrverandi sjúklingar mínir, * * vinir og vandamenn sýndu mér á áttugasta afmælisdegi ■ I mínum og þegar ég hætti sjúkrasamlagsstörfum mínum um g I síðustu áramót. Allan þann hlýhug og vináttu, sem við hjónin höfum 1 orðið aðnjótandi um nær hálfrar aldar skeið, bið ég algóð- ■ I an guð að launa í nútíð og framtíð. | 1 BJARNI SNÆBJÖRNSSON, Hafnarfirði. 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.