Morgunblaðið - 07.02.1971, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. BEBRÚAR 1971
7
DAGBÓK
1 dag er sunnudagrur 7. febrúar og er það 38. dagur ársins
1971. Eftir lifa 327 dagar. Níu vikna fasta. Ardegisháflæði kl.
4.52. (Úr Islands almanakinu).
Þetta er að þakka lijartgróinni miskunn Guðs vors, fyrir hana
mun ljós af hæðum vitja vor. — Lúkas, 1.78.
Ráðgjafaþjðnusta
Geðverndarféiagsins
þriðjudaga kl. 4—6 síðdegis að
Veltusundi 3, sími 12139. Þjón-
ustan er ókeypis og öllum heim-
IL
Næturlæknir í Kefiavík
2.2. og 3.2. Kjartan Ólafsson.
4.2. Ambjörn Ólafsson.
5., 6., og 7.2. Guðjón Klemenzs.
8.2. Kjartan Ólafsson.
Mænusóttarbólusetning fyrir
fullorðna fer fram í Heilsuvemd
arstöð Reykjavíkur á mánudög-
um frá kl. 5—6. (Inngangur frá
Barónsstíg yfir brúna).
AA-samtökin
Viðtalstími er í Tjarnargötu
3c frá kl. 6- 7 e.h. Sími 16373.
MESSUR I DAG
Sjá DAGBÓK í gær
Kirkjumyndir Jóns biskups
I»ar Iiefir verið helgihald frá fyrstu búsetu. Landnámskonan
Auður djúpúðga, sem fögur eftirmæii fær í elztu heimildum, var
kristin, hin göfugasta kona bæði að ætt og innræti. Nú situr
prestur ekki lengur í Hvammi, heldur í Búðardal. Árið 1880 var
ákveðið að leggja niður Hvammsprestakail, en varð ekki úr og
prestakallið endurreist með lögum 10 árum síðar. Er óliklegt
fremur að prestar sitji aftur þennan gamla stað, eitt elzta ör-
uggt heimkynni kristni á íslandi. Nýir tímar krefjast nýrra hátta.
Sá næst bezti
80 ára varð í gær Sigríður
Karitas Gísladóttir, fyrrum hús.
freyja í Ytra-Skógarnesi á Snæ-
íellsnesi, nú til heimilis að Hrísa
teig 12, Reykjavík. Myndin af
Sigríði barst blaðinu of seint til
þess að komast með afmælis.
fréttinni í gær.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Auðbjörg Guð
mundsdóttir Smáratúni 16 Sel-
fossi og Þórir M. Þórðarson,
Garði, Stokkseyri.
Nýlega hafa opinberað trúlof
un sína ungfrú Jóna Ingva-
dóttir Kópavogi og Sigurður
Grímsson Selfossi.
Nýlega hafa opinberað trúlof
un sina ungfrú Sigríður Guð-
jónsdóttir Álftamýri 53 Rvík
og Björn Brynjólfsson Ártúni
Selfossi.
Þann 12. sept. voru gefin sam-
an i hjónaband í Langholts-
kirkju af séra Sigurði Hauki
Guðjónssyni ungfrá Katrín
Finnbogadóttir og Oddur Eiríks
son. Heimili þeirra er að Aust-
urbrún 2, Rvík.
Studio Guðmundar,
Garðastræti 2.
Nýlega hafa opinberað trúlof
un sína ungfrú Áslaug Helga-
dóttir Hlaðavöllum 10 Selfossi
og Gunnar Guðmundsson Eyrar
vegi 12 Selfossi.
Nýlega hafa opinberað trúlof
un sina ungfrú Guðrún Guð-
mundsdóttir Smáratúni 16 Sel-
fossi og Hallgrimur Einarsson
Garði Hrunamannahrepp.
Laugardaginn 30.1. ’71 opin-
beruðu trúlofun sína Dagmar
Þóra Bergmann læknaritari Rán
argötu 26 og Björn Gunnarsson
tækninemi Álfheimum 29.
Þann 26. 9. voru gefin saman í
hjónaband af séra Gunnari
Árnasyni, ungfrú Margrét Sím-
onardóttir og Kristján Magnús-
son. Heimili þeirra verður að
Laufvangi 1, Hf.
Studio Guðmundar.
Garðastræti 2.
27. des. sl. voru gefin saman
í hjónaband, af sr. Þorsteini
Björnssyni, ungfrú Guðrún V.
Sigurðardóttir og Auðunn H.
Jónsson. Heimili þeirra er að
Granaskjóli 23.
Ljósm. Nýja Myndastofan,
Skólavörðustíg 12, R.
Þann 25. des. s.l. voru gefin
saman í hjónaband af séra
Ragnari Fjalar Lárussyni, ung-
frú Kristín Erla Stefánsdóttir,
sjúkraliði og Emil Jónsson,
stýrimaður. Heimili þeirra er að
Brekkustíg 4, Sandgerði.
Nýja Myndastofan,
Skólavörðustig 12.
VÍSUKORN
Knýtumst allir bræðrabandi
boðum kærleik skaparans
Flýjum ekki úr föðurlandi,
farsæld aukum sérhvers manns.
Gunnlaugur Gunnlaugsson.
BlLSKÚR ÓSKAST
til leigu í Reykjavík (æski-
'legt í Vesturbænum, en ekki
skilyrði). Upplýsingar í síma
26214 og 26388.
JÖRÐ
óskast tH kaups fyrir stórt
starfsmannafélag. — Uppl. i
síma 99-4290, Hveragerði.
NÝ KJÓLAEFNI
Tricel-jersey, breidd 1,30 á
kr. 191 metrinn.
Verzl. Anna Gunnlaugsson.
Laugavegi 37.
KEFLAVlK
Ungur regtusamur píltur ósk-
ar eftir herbergi, sem næst
Túngötu. Uppl. í símum 92-
1890 og 91-33864.
NANKIN
Nankin, breidd 1,40 á 136 kr.
m. Kakí, breidd 1,40 á 109
kr. m. Sængurveraléreft, gott
úrvel. Verzlunin Anna Gunn-
taugsson, Laugavegi 37.
HÚSEIGENDUR
Ung barnlaus hjón óska að
taka á íeigu 2ja herb. íbúð.
Góðri umgengni og öruggum
mánaðargr. heitið. Vinsam).
sendið tilb. til Mbf. f. 15.
þ. m., merkt „Ibúð 6846."
CADERPILLAR
mótor D. 4600, 4^ borvidd
6 syl. (í D.6 jarðýtu — raf-
stöð, bátavél, veghefilsvél)
til sölu sem varahfutir. Uppl.
simst. Rauðakollsstaðir, Snæ-
fellsnesi.
IÐNREKENDUR ATHUGIÐ
Ungur maður óskar eftir að
komast á námssamning í
bifreiðasprautun eða húsa-
málun, er vanur málningar-
vinnu. Uppl. eru veittar í s.
20108 frá 3 til 5 næstu daga.
TRÉSMIÐIR
Múrari óskar eftir að taka að
sér að múra ibúð i auka-
vinnu í skiptum fyrir innrétt-
ingar. Sími 18423.
VOLKSWAGEN
óskast, módel '61—'64 i góðu
fagi. Hehningur útb. Uppl. I
dag i síma 13120,
FfMM FERMETRA KETILL
Óska eftir notuðum og vel
með förnum katii ásamt
dælu og tilheyrancfi. Uppf. í
síma 34726.
2JA TIL 3JA HERB. IBÚÐ
óskast ti'I feigu. Góð um-
gengni, fyrirframgr. ef með
þarf, ekki börn. Uppl. í sima
42619.
SVEFNBEKKIR FRA 2950,00
Gullfallegir svefnsófar 5200,
00, hjónasvefnbekkir 4300,00.
Lægsta verkstæðisverð. Allt
nýtt. Sófaverkstæðið, Grett-
isgötu 69, simi 20676.
KEFLAVÍK — SUÐURNES
Stores efni með blúndu,
margar breiddir; damask,
gluggatjaldaefni í úrvali.
Borðdúkar nýkomnir.
Verzlun Sigríðar Skúladóttur
simi 2061.
VÖKVAKERFl
á jarðýtu óskast, ýmsar
stærðir og gerðir koma tíl
greina (t.d. Caterpillar Inter-
national, Cletrac, Allis Chalm
ers). Uppl. simst. Rauðkolls-
hæðir, Snæfellsnesi.
SJÓMENN
Vélstjóra, matsvein og há-
seta vantar á bát, sem hefja
mun netaveiðar upp úr 20.
febr. frá Suðurnesjum. Uppl.
i sima 26618 í dag og eftir
kl. 7 næstu kvöld.
VIST — AMERlKA
Tvær góðar heilbrigðar stúlk-
ur utan af tandi ceta fengið
atvrnnu á sama heimi'li í
Bandaríkjunum og afnot af
bfl. Húsmóðirin íslenzk. Uppl.
í sima 31365.
Til sölu
Vefnaðarvöru- og barnafataverzlun á bezta stað í borginni.
Miklir framtiðarmöguleikar.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni, ekki i sima.
KRISTINN EINARSSON hrl.,
Búnaðarbankahúsið við Hlemm.
Tvö einbýlishús
í Vesturbænum til sölu. Steinhús, 3 herbergi, eldhús og snyrti-
herbergi á hæðinni.
I kjallara 2 herbergi, snyrtiherbergi og geymsla.
Timburhús á 1. hæð, 3 stofur, eldhús, búr, þvottahús,
geymsla, og snyrtiherbergi.
Á 2. hæð 4 herbergi, bað. Geymsluris. Bilskúr. Stór lóð.
Upplýsingar eftir hádegi næstu daga.
Haukur Jónsson, hrl.,
Hafnarstræti 19, sími 17266.
Atvinna óskast
Rúmlega fertugur reglusamur maður óskar
eftir öruggri atvinnu.
Hef góða viðskiptamenntun og málakunn-
áttu, og víðtæka reynslu í almennu bókhaldi,
rekstrar- og framleiðslubókhaldi, áætlana-
gerð og uppgjörum.
Tilboð merkt: „Trúnaðarmál — 6585“,
sendist afgr. Mbl. fyrir nk. laugardag.