Morgunblaðið - 20.04.1971, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.04.1971, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞfttÐJUDAGUR 20. APRÍL 1071 23 Guðný Petra Guð- mundsdóttir-Minning Hvort nokkurt samhengi er þar á milli verður ekki sagt um aí okkur. Hann var einn af þeim gömlu skátum, sem tóku höndum sam- an um þau samtök, að reyna hvað hœgt væri að gera fyrir þá af félögunum, sem snögglega og óvænt var kippt til hliðar, eða jafnvel í burtu frá framfærslu sinni og fjölskyldunnar. Margir höfðu sára reynslu af því að horfa upp á gamla og góða æskufélaga í leik og starfi bogna fyrir hamförum mannlifsins eða börn þeirra drúpa höfði við gröf foreldris sins með spurn I aug- um til framtíðarinnar, þegar tár- in voru þornuð. 1 tæp 14 ár hafa þessi sam- tök nú verið að matast. Við lát- um aðra um að dæma árangur- inn af þeim. En eitt er víst, að þegar dauðinn afhendir hverjum einum örlög sín, þá erum við máttvana. Við fléttum ekki aftur saman þá strengi, sem þá bresta. Við hnýtum ekki aftur þá hnúta, sem þá rakna. — En við, eins og aðrir, eigum jafnan minning- ar. um fallinn félaga. Þær flétt- um við saman við það bezta, sem við finnum i okkur sjálfum og reynum enn að þerra tár þeirra, sem tilheyra framtíðinni og græða þá, sem særzt hafa á með- an við erum ennþá við lýði. — Þannig teljum við okkur minn- ast bezt og starfa mest í anda hins fallna manns. Ef til vill mætum við honum næst sem smásveinar og þiggj- um af honum yl, eins og vinir okkar á varðeldinum. Og ef til vill lætur hann okkur þá líka gera aðrar álíka varúðarráðstaf- anir með bros á vör, svo við truflum ekki dagskrána. Honum væri trúandi til þess. Hvað sem því líður þá drögum við ekki í efa, að hann var hinn mannlegi maður eins og við hin- ir, þar sem strengirnir hljómuðu misjafnlega eftir því sem slegið var á þá. En hann var þess umkominn að færa birtu þangað, sem að- eins var skuggi, og yl i dapurt sinni. Þess er ljúft að minnast á kveðjustund. Og þótt okkur sé ennþá í nöp við dauðann, þá minnumst við þess, að hann gleymir okkur ekki. Við reynum og reynum aftur að vera við honum búnir, eftir því sem áræðið leyfir. — Konu hans og börnum biðjum við um fegurð mannlífsins til handa. Þess þurfa allir með, sem í raun standa. Hinum fallna félaga þökkum við af alhug glaðværð og starf. — Það hlýtur hver og einn laun sín að loknu dagsverki. — Við biðjum að lokum að vegferð hans nú verði í anda þess guðs, sem hann var vígður til. Það var 3. apríl; daginn bar upp á páskadag, að móðir- in heyrir um leið og hún hefur alið son sinn, kirkjuklukkurnar hringja inn hátíð hins upprisna meistara. Vitur maður hefur sagt, að fæðing barns sé dauðadómur þess, spurningin sé aðeins hve- nær dómnum verði fullnægt. Og enn komu páskar og dómnum var fullnægt, Edward Frederiksen er dáinn. En líf er eftir þetta líf og sönnunar þess minnumst við á hverjum páskum einmitt á þeim tima, er stundir umbreytinganna urðu í lífi þessa látna vinar. Ebbi, eins og við vinir hans kölluðum hann, fluttist með for- eldrum sinum til Vestmanna- eyja skömmu eftir að hann fæddist og þar veiktist hann svo, að honum var ekki hugað líf, en þá lá þar í höfninni skip á leið til útlanda og einn af farþegunum var æskulýðsleiðtoginn og prest- urinn séra Friðrik Friðriksson. Hann skýrði sveininn, blessaði hann og bað fyrir honum og sjálfur trúði Ebbi því, að þær bænir hefðu fylgt honum alla tíð. Oft skiptust á skin og skúrir á ævi Ebba eins og annarra manna, en þó örar hjá honum en flestum öðrum að ég hygg. Dimmir skuggar hvíldu oft yfir, áhyggjur og andstreymi, en Ebbi var gæddur þeim eigin- leika, sem er því miður svo ákaf- lega sjaldgæfur, honum tókst til hinzta dags að varðveita dreng- inn í sjálfum sér og Ebbi var góður drengur. Hann var kát- ur og glaður, einlægur og við- kvæmur. Nokkrar línur hafa verið dregnar í mynd þessa mikilhæfa manns, en myndin verður ekki fullkomin án þess að bakgrunns- ins sé gætt og þar ber að geta Theodóru konu hans og barna, sem gáfu honum einhug heimilis og ánægju lifs. Ég vildi að ég gæti gefið þeim huggun, sem harmi eru slegnir, en: „Dýpsta sæla og sorgin þunga svífa hljóðlaust yfir storð þeirra mál ei talar tunga tárin eru beggja orð.“ Hilmar Biering. KVEÐJA VIÐ skyndilegt fráfall vinar og starfsfélaga setur alla hljóða. Okkur, sem undanfarið höfum unnið með Edward Frederiksen, þótti vænt um hann fyrir glað- værð og greiðvikni, en jafnframt fyrir ákveðni og styrk hins reynda manns, sem hann var. Þessir kostir hans ásamt drenglyndi og göfugmennsku voru okkur samstarfsmönnum hans sifellt til gleði og gagns. Við munum því ávallt minnast hans sem hins glaða og trausta félaga og biðjum þess, að Guð veiti þeim dána ró og hinum líkn sem lifa. Starfsfélagar. Minning; Þegar ég ýti úr vör með þessu litla skrifi til minningar um Gísla Bergsveinsson, þá er það að visu síðbúið far; en skip- um seinkar og koma þó fram. Þegar ég kynntist Gísla fyrst, var hann orðinn aldraður að ár- um, aðeins einum vetri fátt í sjö- tugt. Þvi fór þó fjarri, að hann bæri merki aldurs og því síður ellihrumleika. Glaður og reifur var hinn sístarfandi eljumaður sem aldrei gekk verk hendi firr. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar hann rifjaði eitt sinn upp frásögur af fólki og atburðum frá yngri árum sínum í Mjóa- firði eystra og því mannlífi, sem þá var þar um sveitir. Gísli Bergsveinsson var fædd ur að Rima í Mjóafirði eystra 11. júní 1894 og var því 76 ára að aldri er hann andaðist á sjúkrahúsi í Reykjavik hinn 20. marz s.l. Gísli hóf ungur að ár- um að sækja sjó, og útgerð og sjómennska varð hans ævistarf. Fyrst mun hann hafa stundað sjó með föður sinum og síðan útgerð i félagi við hann. Síðar gerði hann út með bróður sín- um, Sigurbergi, sem lifir bróður sinn, aldraður maður í Neskaup- stað. Og hin síðustu árin starf- aði Gisli í félagi við son sinn GMa, skipstjóra í Neskaupstað. Gísli Bergsveinsson leitaði Viða fanga, úr Mjóafirði, frá Fædd 15. október 1902. Dáin 12. april 1971. Góð og gegn sambýliskona er látin. Að áliðnum öðrum degi páskahátíðarinnar, mánudaginn 12. þ.m., barst okkur hjónunum óvænt sú harmafregn, að Guðný Petrína Guðmundsdóttir hefði, þann sama dag, látizt af hjartaslagi. Oft fer svo, þegar maður fréttir lát góðs vinar, að líkast er sem einhver römm taug bresti innra með manni. Okkur hjónunum fannst, sem traustur strengur í hjarta okkar hefði brostið, strengur, sem ekki yrði bættur né endumýjaður. Við vissum, að Guðný hafði átt við vanheilsu að stríða und- anfarið, legið á sjúkrahúsum, þess á milli dvöl heima, en rétt fyrir bænadagana kom hún heim til að halda páskahátíðina með fjölskyldunni. 1 dag er út- för hennar gerð'frá Fossvogs- kirkju. Með henni er horfin af sjónarsviðinu mikilhæf kona, sem margir munu sakna. Guðný var fædd að Brekku í Dýrafirði 15. október 1902 og var því á 69. aldursári er hún lézt. Foreldrar hennar voru merkishjónin Guðmundur Jens- son bóndi þar og kona hans Jónína Jónsdóttir. Samhliða bú- skap að Brekku stundaði hann sjómennsku á seglskipum, eins og titt var á þeim tíma. Eigi kann ég frekari deili á hennar vestfirzku ættartengslum, og verða þar aðrir um að bæta, sem betur vita. Þau hjón eignuðust 10 böm og bomust öll þeirra til fullorðinsára. Systkinin voru 5 bræður og 5 systur og var Guðný yngst systranna. Er Guðný heitin sú þriðja af systkinunum, sem látin er. Var æskuheimili hennar að Brekku jafnan með myndarbrag og efni dágóð, þrátt fyrir ómegðina. Börnin voru snemma vanin á vinnusemi, enda dugleg og ósér hlífin. Þann 6. ágúst 1927 giftist Guðný eftirlifandi eiginmanni Neskaupstað, Höfn í Hornafirði á vetrum og einnig síðar marg ar vertíðir frá Vestmannaeyjum. Farsæll var hann í öllu sínu ldfi og starfi. Gísli var kvæntur Eyleifu Jónsdóttur, ættaðri frá Homa- firði og lifir hún mann sinn. Börn þeirra eru: Ólöf gift Gunnari Guðmundssyni, vélsmið í Reykjavík, Jóna, gift Ivari Hannessyni, lögregluþjóni í Reykjavík, Bergsveina, gift Geir Sigurjónssyni, útgm. í Hafnarfirði, Solveig, gift Her- manni Skúlasyni, skipstjóra á Isafirði og Gísli, skipstjóri i Neskaupstað, kvæntur Guðrúnu Jóhannsdóttur. Heimili þeirra hjóna, Gísla og Eyfleifar, var lengstum mjög mannmargt, og gestkvæmt var þar, enda gestrisni viðbrugðið. Eigi alls fyrir löngu var Gísli sæmdur riddarakrossi hinnar ís- lenzku fálkaorðu fyrir stöxf sín að útgerð og sjómennsku, og hlaut þar sá sæmd, sem helzt skyldi. Hinn aldraði sæfari hefir nú leyst landfestar í síðasta sinn og lagt út á djúpið ókunna. Hon- um fylgja beztu óskir, innilegt þakklæti og heitar fyrirbænir. Ættmennum hans mun styrk- asta stoðin minningin um þenn- an Ijúfa heiðursmann, nú þeg- ar leiðir skiljast um hríð. Sverrir Hermannsson. sSnum, Óskari Jóhannssyni, fisk- kaupmanni hér I borg, en hann er einnig Dýrfirðingur að ætt. Þau eignuðust einn son, Guð- mund, er starfar við fyrirtæki föður sins, Fiskverzlunina Sæ björgu. Er hann kvæntur Sjöfn Kjartansdóttur og eiga þau 4 börn. Guðný Petrína Guðmundsdótt ir verður áreiðanlega flestum minnisstæð, sem henni kynnt- ust, enda var hún engin hvers- dagsmanneskja. Hún var að ytra útliti glæsileg kona og sköruleg, bauð af sér gerðar- þokka og var traustvekjandi. Kona var hún skapstór, hrein- skiptin og hreinlynd og hikaði ekki við að segja hug sinn all- an, ef því var að skipta, enda var hún ekki allra í umgengni. 1 þau nær 17 ár, sem hún var sambýliskona okkar hjónanna, bar ekki þann skugga á, sem ekki hvarf sem dögg fyrir sólu, þegar málin voru brotin til mergjar. Enda var hún að sama skapi sáttfús, og hjartahlýja hennar og góðgimi auðfundin. Einn fegursti þáttur í fari hennar var hjálpsemi við aðra, bæði skylda og vandalausa, þar sem hún vissi, að hjálpar var þörf. Óumbeðin og orðfá var hún þá vís að koma og leggja fram vinnu sína og fjármuni, unz úr var bætt. I þessu, sem mörgu öðru sýndi hún, að hún var dregnur góður, eins og sagt var um Bergþóru forðum. Guðný kunni vel að meta hinar björtu hliðar lifsins. Sjaldan var hún glaðari, en þeg ar hún átti gestum að mæta á heimili þeirra hjóna. Rausn hennar og höfðingsskapur nutu sín þá í fullum mæli, ekkert þótti hæfa nema það bezta. Að leiðarlokum eiga eigin- maður, sonur, tengdadóttir og bamaböm um sárt að binda, þau sakna ömmu sinnar á Lyng haga, sem ávallt lét sér annt um þau sem umhyggjusöm móðir. Ég og kona min, ásamt bömum okkar, sem Guðný heitin leit sem meið af sinum stofni, send um þeim öllum einlægar samúð- aikveðjur. Með þakklátum huga minn- umst við hinnar látnu merkis- konu. Gunnar Magnússon. Hún var fædd að Brekku í Brekkudal I Dýrafirði. Dóttir hjónanna Jónínu Jónsdóttur og Guðmundar Jenssonar er þar bjuggu, allan sinn búskap. Hún var 6. barn þeirra hjóna, yngst af 5 systrum, sú fyrsta af þeim er kveður. Bræðumir voru líka fimm. Tveir þeirra eru látnir, báðir yngri en hún. Gisll fórst á I.v. Fróða 1041. Jens dó fyrir stuttu hér í Reykjavík. Mjög sterkt ættarmót var með öllum þessum systkinum, svo að af var látið, bæði fyrr og síðar. Það var og mál manna, að þetta ættarmót bæri Guðný aí mikilli reisn, og oft til henn ar vitnað þegar talað var um Brekkufólkið, sem nú er orðinn ærið stór hópur. Þegar l'ífssviði hennar var lok að, af hinni ósýnilegu hönd, sem svo oft tekur harkalega í þráð inn, var hún enn keik og bein í baki. I sparifötunum með skóna á fótunum, bros í augum og gleðital á vörum, lagði hún höfuð sitt að barmi tengdadótt ur sinnar og var dáin. Hljómar upprisusálmanna voru ekki þagnaðir, páskahátiðin, sigur lífsins yfir dauðanum, varði enn. Hinn kaldi sviptivindur tjaldsins, þá það aðskilur líf og likama, nísti kalt heimili einka- sonarins. Fjölskylda hennar öll var á sama stað, við- stödd þau þáttaskil er svo und arlega fjarræn eru hinu skilvit lega í vorum heimi. En svið viðskilnaðarins er undursam lega fagurt, allir ástvinir henn- ar vöfðu það sýnilega tákn, er eftir var skilið, kærleiksörmum. Það sem hvarf fylgdi upprisu söngnum og fyrirbænum áfram. Þangað sem hið óskilvitlega tek ur við. Þau tæp 70 ár er Guðný lifði, spanna þann tíma, er íslenzkt þjóðlíf hefur tekið hinum stór- kostlegustu breytingum er sag- an getur. Hún fæddist í torfbæ, ekki til fátæktar og umkomu- leyisis eins og margur á þeim tíma, heldur til ástríkis og um hyggju, því Brekkuheimilið stóð alla tíð vel fyrir sinu, það var mannmargt, og fólkið atorku- samt og hraust. Hún var fjör- kálfurinn í hinni stóru fjöl- skyldu, hún naut lifsins í rík- um mæli og gekk þá jafnan á vit blóma og dýra. Það voru henni gleðigjafar alla ævi. Lík- lega hefur hún ekkert vor lif- að sem hún ekki fór á fund við lítið nýfætt lamb, átti hún lengi vissan samanstað þar sem lambadrottning eða kóngur biðu þess að hún faðmaði þau að sér. Hún sagði líka einu sinni við mig þegar tekið var til við að fjarlægja kindur úr borg arlandi Reykjavikur: Hefði mað- ur nokkurn tíma getað trúað þvi að heimurinn yrði svona, að blessuðum kindunum væri ekki vært í námunda við mann.“ Hennar kynslóð hefur orðið að velta fyrir sér ærið mörgum spurningum af þessu tagi. Þeim er mörgum ósvarað og verður lengi ennþá. En svar Guðnýjar við umróti þessa tíma var alltaf það sama. Hún vann öll sín verk vel, og varðveitti það sem henni var trúað fyrir. Hvort heldur hún þvoði baðstofugólfið á Brekku eða gljáfægði kristal og silfur á fagurbúnu heimili sinu, hinn seinni tíma. Hún dvaldi að mestu í for- eldrahúsum þar til hún giftist eftirlifandi manni sínum Óskart Jóhannssyni kaupmanni 6. ágúst 1927 hér í Reykjavík. Þau stofn uðu heimili sitt að KlapparstSg 13 og bjuggu þar rúman aldar- f jórðung unz þau eignuðust sína eigin ibúð að Lynghaga 26 hér í borg. Þar var heimilið svo tii dauðadags hennar. Á giftingar- daginn þeirra 1936 fæddist þeim Minkabam; sonur, Guðmunduir Jóhann. Hann er kvæntur Sjöfn Kjartansdóttur og eiga þau fjög ur böm, og búa að Bjarmalandi 12 hér í Reykjavík. Fjölskyldan í þrengsta hring var þvi ekki stór. En þá er kom ið að þeim kafla ævi hennar þar sem geta má þeirra, er nutu athvarfs á heimili hennar, hvort heldur var um nætur eða dága. Framh. á bls. 24 Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu mér hlýhug og vináttu á sjötugsafmæli mínu 9. þ.m. Guðm. Kristjánsson, Hörðabóli. -----------------------1 Gísli Bergsveinsson útgerðarmaður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.