Morgunblaðið - 07.05.1971, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.05.1971, Blaðsíða 1
32 SIÐUR 101. tbl. 58. árg. FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1971 Prentsniiðja Morgunblaðsins 44 hús St. Jean Vianney, Quebec, 6. maí — AP—NTB. FPLLVIST er nú talið að 30 manns hafi farizt í jarðhruni, sem varð í bænum St. Jean Vianney í Quebecríki í Kanada á þriðjudagskvöld. Aðeins tvö lík hafa fundizt og vafasamt að fleiri komi í leitimar. Jarðhrunið varð á bökkum árinmar Riviere aux Vases ököarumu fyrir miðmætti að Btaðartíma. Hefur neðanjarðar- vatruselgur grafið undan bökk- unum, og féllu 44 hús sikyndi- lega og fyrirvaralaust niður mikla gryfju, sem þar myndað- ist. Hurfu húsin flest í leðju á botnd gryfjuninar, og sást þar aðeins spýtnabrak eftir. Einnig suklku þar nokkrar einkabif- reiðir og einm strætisvagn. Dagblaðið Star í Montreal skýrir frá því að fyrfr réttu ári Framh. á bls. 14 * Rogers í Israel — eftir árangurslitlar viðræður Forseti íslands, herra Kristján Eldjárn, á Bjarkey í gær með Gustav Adolf Svíakonungi og Sibyllu prinsessu. Sjá frétt um heimsókn forsetahjónanna til Svíþ.jóðar á bls. 3. Kaíró og Jerúsalem, 6. maí AP — NTB WILLIAM P. Rogers utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna kom í dag flugleiðis til Tel Aviv í ísra el að loknum viðræðum í Kaíró við Anwar Sadat Egyptalands- forseta. í Israel ræðir Rogers við Goldu Meir forsætisráð- herra. Tilgangur ferðar ráðherr ans er að kanna hvort nokkur grundvöllur er fyrir friði milli Araba og Gyðinga. Eftir brottför Rogers frá Kairó sagði Mohammed Riad, talsmaður egypzka utanríkisráðu neytisins, að þótt viðræður þeirra Rogers og Sadats hefðu verið mjög hagstæðar væri ljóst að skoðanaágreiningur ríkti milli Bandaríkjamanna og Egypta varðandi lausn deilu Araba og Gyðinga. Riad gaf ekki nánari skýring ar á skoðanaágreiningnum, en sagði aðeins að viðræðurnar hefðu verið hagsrtæðar „að þvi leyti að þær gáfu bandaríska ut anríkisráðherranum tækifæri til að heyra skoðanir Egypta beint frá æðstu embættismönnum landsins. En eitt er að eiga hagsitæðar viðræður, og ainnað að ná viðunandi árangri," sagði Riad. Þótt árangur virðist ekki hafa verið mikill af viðræðum Rog- ers við leiðtoga í Egyptalandi er ráðherrann þó aðeims bjait- sýnni á friðarhorfur en hann var fyrir heimsóknina að flögn talsmanna hans. Skýrðu þeir fréttamönnum frá því í flugyél inni á leið til Tel Aviv að Rog- ers hefði í sjálfu sér engar nýj- ar friðartillögur fram að færa, Framh. á bls. 14 Gautaborg: Ákvörðun um gengi marksins ekki tekin f yrr en um helgina Fjármálaráðherrar EBE- ríkjanna þinga á laugardag Bonm, Brússel og London, 6. maí — AP—NTB. + Kaup og sala á dolluriim hafa verið stöðvuð í mörg- um Evrópulöndiim eftir að vestur-þýzki seðlabankinn hætti öllum viðskiptuni með dollara á miðvikudag. ♦ Talið er, að áður en dollara- viðskipti voru stöðvuð í Vest ur-Þýzkalandi hafi milljarðar dollara streymt inn í landið á vegum spákaupmanna, sem trúa því að annað hvort verði gengi dollarans lækkað cða gengi marksins hækkað. Vestur-þýzka s tjórnin hefur ekki tekið neina ákvörðun um framtíðargengi marksins, en ekki er talið ólíklegt að það verði gefið frjálst um skeið þannig að framboð og eftirspurn ráði genginu gagn- vart dollara. Fyrrv. brezkur þingmaður: Bolsjevikkar drápu ekki keisarann BREZKUR þingmaður, Teter valdatöku kommúnista, að Bessell, fyrrverandi þingmað- halda þessu vandiega leyndu, ur Frjálslynda flokksins, læt en það ætti ekki að vera þörf ur hafa það eftir sér í blað- á slíkri leynd lengur og hann inu Times, að bolsjevikkar kveðst vonast til að geta hafi ekki drepið rússnesku bráðlega lagt fram ýmis keisarafjölskylduna árið 1918 skjöl og sannanir fyrir þessu. og hafi fjölskyldan komizt úr Hann segir, að ýmsir aðstoð- landi fyrir milligöngu ríkis- armenn sínir hafi fengið tæki stjórna tveggja vinveittra færi til að skoða skjöl með landa og með þegjandi sam- sérstökum leynistimplum og ♦ Fjármálaráðherrar ríkja Efna- liagsbandalags Evrópu koma saman til fundar í Brússel á laugardag til að fjalla um gjaldeyrismálin í heild, og bíður vestur-þýzka stjórnin með að taka ákvörðun um markið þar til þeim fundi er lokið. Þótt vestur-þýzkir bainkar hafi hætt verzlun með dollara, hafa dollarar gengið kaupum og sölum á opnum mörkuðum landsins. Þannig var talsvert um dollaraviðskipti á opna matkaðnum í Frankfurt í morg- un. Við opnun markaðsiiras var verð á dollara 3,56 mörk eða tíu pfeningum fyrir neðan skráð gengi. Hækkaði verðið fljótlega og var lengst af 3,59 til 3,61 mörk. I London hækkaði verð á dollurum nokkuð í dag þegar ýmsir spákaupmenn — sem und anfarna viku hafa verið að selja dollara án þess að eiga þá í von um skjóttekinn gróða — reyndu að kaupa ódýrt til að uppfylla skuldbindingar sínar. Hafa spákaupmenn selt vestur- þýzkum bönkum ávísanir á doll arasjóði, sem þeir ekki áttu, og nú krefjast þýzku bankarnir þess að dollararnir verði greidd ir inn. Eiga spákaupmenn erfitt um vik, því öll opinber verzlun með dollara hefur verið stöðv- uð í Vestur-Þýzkalandi eins og fyrr segir, og einnig í fjölda annarra Evrópuríkja. Willy Brandt kanslari Vestur- Þýzkalands kom heim til Bonn Framh. á bls. 14 Barn yfirgefið Fannst látið Gautaborg, 6. maí. NTB. ÞRIGGJA ára gamall drengur fannst i gær látinn á heimili sínu í Gautaborg og bendir allt til að allt að mánuður sé liðinn, síðan barnið dó. Móð- ir drengsins hefur ekki sézt á heimilinu siðan einhvern tíma í marz, en hún var hand tekin í morgun í Fredriks- havn. Þar kvaðst hún haía dvalið siðan í marzlok og hefði hún ákveðið að snúa ekki aftur heim til barnsins, sem hún skildi eftir yfirgefið og umhirðulaust. Hún g£if þáj skýrinigu, að hún hefði tekið þessa ákvörðun, vegna þe«s að borgaryfirvöld í Gautaborg hefðu ekki viljað rétta henni hjálparhönd og hefðu kært sig kollótt um bágar aðstæð- ur hennar. Áskorun Indverja: verði A-Pakistönum veitt aðstoð — til að flytjast heim aftur Nýju Delhi, 6. maí — NTB INDVERJAR skoruðu í dag á þjóðir lieims og alþjóðastofnan- ir að veita aðstoð til að koma aftur á eðlilegu ástandi í Austur-Pakistan svo að Bengal arnir geti snúið aftur til síns heima. Það var flóttamálaráð- herra Indlands, Khadillar, sem sagði að brýn þörf væri á slíkri hjálp enda hefðu Indverjar ekki bolmagn til að annast þá hálfu aðra milljón Austur-Pak- istana, sem hefðu flúið Bangla Desh siðustu vikurnar. Hefur flóttainannastraumurinn vaxið dag frá degi og hefur komizt í allt að 60 þúsund manns marga undanfarna daga. Ráðherrarm ssgði að stjórn sín hefði þegar lagt fram 100 millj Framh. á bls. 14 komulagi stjórnvalda. kommúnískra Ýmsar harla ævintýralegar kenningar hafa verið settar fram upp á síðkastið um af- drif keisarafjölskyldunnar, en þetta er í fyrsta skipti, sem slíkri fullyrðingu er haldið fram umbúðalaust. Teter Bessell segir í viðtal inu við Times, að það hafi verið nauðsynlegt árið 1918 og á fyrstu árunum eftir hafi þessi athugun sannfært þá um að keisaranum og fjöl skyldu hans hafi verið kom- ið úr landi með mikilli leynd en Bessel segir að hann viti nákvæmlega, hvaða leið keis arafjölskyldan fór og hann viti einnig, hvar hún settist að eftir flóttann. Keisaraynj an lézt skömmu síðar, en keisarinn lifði í áratugi. Tvær dætranna eru enn á lífi, en ekkert barna keisarahjónanna hefur gengið í hjónaband. Vopnahlé í Vietnam Deiluaðilar leggja niður vopn á afmæli Búdda SAIGON 6. maí — AP. Útvarpsstöð Viet Cong skæru- liða í Suður-Víetnam skýrði frá því í dag að yfirstjórn hersveita skæruliða hefði fyrirskipað 48 klukkustunda vopnahlé frá laug- ardagsmorgni að telja vegna af- mælis Búdda. Áður liafðl stjórn Suður-Víetnams lýst yfir sólar- hrings vopnahléi i tilefni afniæl- isins, og reiknast það frá hádegi á laugardag til liádegis á sunnu- dag. 1 fyma hafði stjóm Suður- Víetnams eininig lýsit yfir sóiar- hjrinigs vopnahléi á aiftnæli Búdda, og notuðu skæruliðar sér þá tækifærið til harðra árása á borgir og bæi. Vopmahiéið nú um helgina verður það 20., sem gert hefur verið í Víetnam. Hafa þau flest verið gerð í sambandi við ýmisa hátíðisdaga, svo sema jól, áramót ofl, og yfirleitt staðið í einm tffl tvo sólarhringa. Her- sivedltir Bandarí'kjamna og ann- arra erlendra ríkja í Suður-Ví- etnam íyigja yfirleitt ákvörðun- um stjórnarhersins um vopma- hlé, og hefur bandarisika her- stjómim tfflkynmit að svo muni verða að þessu sinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.