Morgunblaðið - 04.09.1971, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.09.1971, Blaðsíða 1
32 SlÐUR 198. tbl. 58. árg. LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1971 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Samkomulag um flóknasta alþjóða vandamál síðasta aldarf jórðungs Berlínarsátt- málinn undirritaöur í gær Frá undirritnn Berlínarsátt- ( málans í g'ær. Sendiherrar fjór j veldanna sitja við fundarborð . ið, og eru, talið frá vinstri:' Jean Sauvagnargues (Frakk-1 land), Sir Roger Jackling | (Bretland), Pyotr Abrassimov i (Sovétríkin) og Kenneth Rush ' (Bandaríkin). íslenzk frímerki týnd í Kaup- mannahöfn Kaupmannahafnarblaðið Berlingske Tidende skýrir frá því að danskur frímerkjasali, Jörgen Junior, hafi týnt á götu í Kaupmannahöfn nokkrum ísienzkum fnmerkjum, sem alls eru metin á 25 þúsund d. krónur, eða nærri 300 þúsund Framhald á bls. 23. Ky ákveðinn í að kné- setja Thieu — þótt þaö kosti hann lífið — Stefna Bandaríkjanna óbreytt segir Rogers Saigon og Washington, 3. sept. — AP-NTB. HEIMILDIR frá nánum sam- starfsmönnum Kys, varafor- seta S-Víetnam, hermdu í dag að Ky sé ákveðinn í að gera allt sem í hans valdi standi til að koma Thieu for- seta á kné. Heimildirnar segja að Ky hafi ekki hótað bylt- ingu, en sagt að ef Thieu vildi láta vopnin ráða, þá yrði ábyrgðin hans. 10 milljónir heimilislausra vegna flóða í Indlandi Kalkútta, 3. sept. — AP MEIRA en tíu milljónir íbúa Vestur-Bengals í Indiandi hafa nú misst heimili sin vegna flóða, sem aftur hafa færzt i aukana. Vitað er með vissu um 68 manns sem hafa beðið bana af völdum flóðanna, en dagblöð í Kalkútta telja, að tala látinna sé að minnsta kosti 200. F3ó5in hafa inú náð tiQ fleiri héraða en áður, en verst' er ástandið í Mursidabad, Howrah, Hoogly og Birbhum. Eru þess víða dæmi, að vatnsborð nái meira en tveggja metra hæð í bæjum og þorpum. Þúsundir manna hafa leitað skjóls I trjám — aðrir reyna að koma sér fyrir hvar sem finna má þurra smugu. Þá auka þessi flóð nú enn á vesöld milljóna flóttamanna frá Austur-Pakistan, sem hafast við í búðum, er flóðin hafa náð til. Rogers, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á fundi með fréttamönnum í Washing- ton í dag, að Bandaríkjamenn myndu halda áfram stefnu sinni í Víetnam, þrátt fyrir að Thieu yrði einn í framboði i forseta- kosningunum 3. október n.k. Rogers sagði: „Kosningarnar í Víetnam eru ekki flekklausar, en það eru nú okkar kosningar raunar heldur ekki.“ Rogers sagði að stefna Bandaríkjastjórn- ar hefði verið, væri og myndi áfram verða að gefa ibúum S- Víetnam tækifæri til að leysa sín eigin vandamál. Vitað er að Bandaríkjastjórn varð fyrir miklum vonbrigðum er ljóst varð að Thieu yrði einn í framboði og er Rogers var spurður að því, hvort þetta myndi hafa i för með sér að lagt yrði harðar að stjórninni að flýta brottflutningi banda- rískra hermanna frá Víetnam og minnka efnahagsaðstoð við stjórnina í Saigon, svaraði hann: „Ég vona ekki.“ Heimildirnar i Saigon segja að bersýnilegt sé að Ky hafi reiðzt mjög er honum varð ljóst að Thieu ætlaði einn í framboð. Segja heimildirnar að Ky hafi tekið mjög sterkt til orða á fundi með nánustu ráðgjöfum sínum og sagt að hann ætlaði að kné- setja Thieu og alla hans „klíku“, jafnvel þótt hann yrði að leggja lif sitt i sölurnar. Ky sagði að næstu tvær vikur yrðu þær verstu í sögu S-Víetnam, og að það væri Thieu að kenna. Ky sagði einnig að ef Thieu leysti ekki vandaimálin á þessum tíma, myndi koma til vopnaðra átaka. Segja heimildirnar að Ky trúi ekki að af kosningum verði. Þá er líka sagt að Ky telji spenn- una í stjórnmálum landsins miklu meirí en hún var 1963, þegar Diem forseta var velt úr sessi og að allt geti gerzt, því að mikils óróleika gæti meðal þjóðarinnar og einnig innan hers ins. Berlín, 3. sept. — AP—NTB • Sendiherrar Bandaríkjanna Bretlands og Frakklands í Vestur-Þýzkalandi, og sendiherra Sovétrikjanna í A u stu r-Þýzka- landi undirrituðu um hádegið í dag fjórveldasáttmála um fraim- tíðarstöðu Berlínar. Er imdirrit- un sáttmálans talin sögulegur áfangi á leið til bættrar sam- vinnu Austurs og Vesturs. 0 Áætlað hafði verið að undir- rita sáttmálann í gær, fimmtudag, en því var frestað vegna ágreinings um þýzka þýð- iingu isáttmálans. Oreindi fiill- trúa Austur- og Vestur-Þýzka- lands á um orðalag í þýzku þýð- ingunni. 0 Þótt sáttmálinn hafi nú ver- ið undirritaður, er enn eftir að ganga endanlega frá ýmsum franikvænidaratriðiini f sam- bandi við hann. Er það aðallega verkefni fiilltrúa Austur- og Vestur-Þýzkalands að semja um þau atriði. 0 Samkvæmt nýja sáttmálan- um fá íbúar Vestur-Beriín- ar nú að ferðast til Austur-Berl- ínar, sem hefur verið þeim lok- uð frá árinu 1966. Þá fá Vestur- Berlínarbúar S fyrsta skipti f 19 ár að ferðast um Austur- Þýzkaiand. Viðurkennd eru tengsl Vestur-Berlinar við Vest- ur-Þýzkaland, en þó tekið fram að Vestur-Berlín sé ekki blutf Sambandslýðveldisins, og að borgarhlutinn lúti ekki stjóm Vestur-Þýzkalands. Hins vegar annast sendiráð og ræðismanns- skrifstofur Vestur-Þýzkalands alla fyrirgreiðslu fyrir Vestur- Berlínarbúa erlendis. Sendiherrar fjórveldanna, þeitr Kenneth Rush frá Baindaríikáúin- um, Sir Roger Jaoklinig frá Bref- landi, Jean Sauvagnargues fxá Frakklandi og Pyotr Abra&simov frá Sovétríkjunum, komu saman í aðalstöðvum fjórveldanna i Vestur-Berlin skömmu fyrir klukkan 13 eftir staðartíma til að undirrita sáttmálann. Var þetta 34. fundur sendilherranna frá því umræður um Beriín hóí- ust 26. marz 1970, og stóð þann- ig á að í dag voru rétt 32 ár lið- in frá því síðari heimsstytrjöld- in hófst milli Breta og Þjóðverja. Undirrituðu sendiherrarnir sátt- málann í fjórum eintökum, tveim ur á ensku, einu á frönsku, og einu á rússnesku. Framhald á bls. 23. Gagnrýni Rússa í garð Kínveria fer vaxandi Moskvu, 3. sept. — AP í SÍÐASTA hefti sovézka tíma- ritsins Novoye Vremya ÍNýir tím ar), sem kom út í dag, er farið höí'ðum orðum um afstöðu Kín- verja til Sovétríkjanna og full- yrt, að þeir stefni að heimsyfir- ráðum og muni ekki hika við að heyja styrjöld til að ná því marki sínu. Segir þar, að kínverska þjóðin sé búin undir styrjöld og sé andsovézkur áróður og daður við heimsveldissinna liður í þess um styrjaldarundirbúningi. Höfundur greinarinnar, sem er hin afdráttariausasta gagnrýni á Kína í langan tima, er nefndi KrivtsoV. Hann segir, að M: Tze-tung og fylgismenn hai hafi komið inn hjá kínversl þjóðinni styrjaldardýrkun mi því m.a. að vísa til fornra hu mynda um hlutverk Kína Franihald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.