Morgunblaðið - 29.09.1971, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.09.1971, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MtÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1971 17 Orn Benediktsson á Islandi Viðtal við son Einars Benediktssonar Öm Benediktisson, eini sonur ELnar Benediktssonar sem nú er á l'ífi, og dvalið 'heifur erlendis mestan Wuta asvi sinnar, er nú staddur hér á landi ásamt konu sinni. Hann heitir fullu nafni Benedikt Örn, fæddist í Reykja vík 1904, skömmu áður en faðir hans gerðist sýsiumaður á Rang árvöllum, en íluttist 1907 með foreldrum sinum til útlanda og kom eftir það ekki til íslands nema í stuttar heimsöknir — þangað til nú, eftir 43 ára sam- 'fellda fjarveru. Uau hjén komu til landsins í vor, hafa tekið á teigu fallega íbúð í Kópavogi, með útsýn yfir aila Reyflcjavik, og hyggjast dvelja þar fram til sumars. Öm Benediktsson hringdi til mín, spurði hvort ég myndi eft- ir sér, og vildi heimsækja sig. Mér var hann mjög minnisstæð ur, eins og ég hatfði kynnst hon um á heimili foreldra hans i Kaupmannahöfn þegar hann var 16—17 ára unglingur, óvenjulega fallegur, líkastur tföður sínum af sonum hans. Nú er hann 67 ára, sem er auðvit- að enginn aldur á okkar tim- um, enda unigur og hress í bragði og hið göfuga ættarmót enn hið sarna. Islenzkuna talar hann með lítið eitt útlendum málhreim og furðuvefl, þótt eitt og eitt orð komi ekki fyrr en við umhuigsun. Þar kom tali okkar að ég sagði honum að Matthías Jo- hannessen hefði beðið mig að tfara þess á leit, að hann leyfði að eitthvað yrði eftir sér hatft um liðna ævi hans. Hann tók því vel. Ég spurði hvar hann myndi fyrst eftir sér. — í Edinborg — og svo í London, þar sem ég var látinn í skóla átta ára gamalil, en þá læs og skrifandi á ensku. Við börnin byrjuðum snemma að tala saman á ensku, en pabbi heimtaði að við borðið heyirðist aldrei orð neima á ís- flenzku — og varð reiður ef út af var brugðið. Við bjuggum lengst af fyrir utan London, á landsetrinu The Hermitage í Heston í Middflesex. Þaðan var hálftíma keyrsla frá London í járnbrauitarlest. Robert Brown ing hafði átt þetta hús og búið þar áður en hann brottnam ungu sflcáldkonuna Elisabeth Barring, eins og þú kannast við, fór með hana til Ítalíu þar sem þau giftust. Nokkur hluti atf húsinu var ævagamall, með stráþaki, sem pabbi lét gera við é hverju ári svo að höldist. Þarna höfðum við þrjá islenzka hesta. Ég man hve Bretuim þótti furðulegt að sjá þessa litflu fót- fimu hesta, til dæmis á morgn- ana þegar einum þeirra var beitt fyrir litla kerru sem við krakkarnir fórum í í skólann. Þrettán ára komst ég inn í St. Paúls Sdhool í London, en 1916 eöa 1917 flytjum við til Kaup- mannahafnar, þar sem þú manst eftir oikkur, á 5. Juni Plads á Friðriksbergi. Og næstu árin er ég við nám í Bendix Studenterkurs, rétt hjá Sivalatumi Ég er enn ágæt ur í dönsku! Eftir stríðið fór ég aftur til Englands, var næstu tvö árin í Cambridge, sflöku við nám, sem var þo.1- að vegma þess að ég þótti llð- tækur kappróðramaður. En þaðan fór ég i London Sehool of Economios, sem var strangur góður skóli — þar lærði ég. Tuttugu og tveggja ára gamall byrjaði ég svo að vinna fyrir mér. — 1 Engflandi? — Hjá ýmsum fyrirtækjuim í London, og ferðaðist fyrir þau Viða um Evrópu. — • Komstu til Islands á þess- um árum? —■ Snöggvast 1922 og aftur 1928. Þá sá ég föður minn I síð- asta skipti. Og þá voru foreldr ar mínir að slíta sambúð sinni. Næsta haust fór óg til New York, þar sem Svala systir mín var gift, og mest til að hitta hana. Hún var tveim og háltfu ári eldri en ég, og við höfðum alltaf verið innilega samrýnd. En meðan ég var á ieið ylfir hatfið dó hún. Mér féll það þungt. Ég var lengi að jafna mig eftir það áfall. Ég ákvað að verða áfram í Amer- íku — og gerðist enskukennari í skólum, fyrst I New York, svo í Washington. Það kom sér nú vel að ég hatfði lært ensku eins og aðeins er hægt að læra hana í Englandi. Eftir Washing ton flutti ég atftur til New York, og þá var kreppan mikla í algleymingi, mikið atvinnu- leysi, og yfirleitt lágar tekjur, en ég hafði alltaf atvinnu og komst sæmilega aif. Nú var ég giftur. Ég kynntist Phyllis konu rninni i Washington, var 28 ára þegar við gitftuimst, en hún tíu árum yngri. — Og bandarísk? —- Af ensk-frönsk-þýzkum ættum, og hafði alist upp á gömlu, stóru ættaróðali í Virg- inia. Hún er Dauighter of the Revolution — það er að segja sannamlegur afkomandi manna sem börðust fyrir sjálfstæði Bandarikjanna gegn Bretum á átjándu öld — sem þyfldr afar tfínt þar vestra -— þú getur nærri! — Upp úr kreppunni kom svo stríðið. — Og þá vann ég um tíma hjá Bretum í Washington, i sam bandi við aðstoð þeirra til út- legðaifliers Frakka. En 1944 keyipti ég búgarð. — Þá hefur íslenzka bænda- blóðið saigt til sín? — Ef tifl vill. En við hjónin vorum sammála um að dreng- irnir olkkar ættu að íá að al- ast upp í sveit, ekki á borgar- strætum. Og þama vorum við í tíu ár. Jörðin lá svo til miðja vegu milli New York og landa mæra Kanada, var 100 ekrur, þar af 60 graslendi og 40 skóg- ur. Við höfðurn 60 kýr og tekj- ur af viðarhöggi. Þarna var bróðursonur minn Einar Bene diktsson, sem nú er fulltrúi ís- lamds í Genf, mikið hjá okkur þau fjögur ár sem hann stund- aði hagfræðinám í Boston. Hann átti heimili sitt hjá okík- ur. — Hvers vegna hættuð þið við búskapinn? — Okkur fannst vetrarkuld- inn þarna norður frá leiðinleg- ur, og heiisa mín var ekki eins góð og áður. Ég hafði jafn- tframt búskapnum unnið mikið fyrir firma í Ohicago, ferðast fyrir það í viðskiptaerindum, haft góðar tekjur af þeim stönf um. Þegar við flluttum 1954 til bæjarins Oorpus Christi í Tex- as, í hið hlýja loftslag Suður- ríkjanna, gat ég umnið þar á vegum háskólans í Chicago, en konan mín starfaði að fasteigna sölu. Þar vorum við í tvö ár, bjuggum svo um tíma i öðrum bæ í Texas, San Antonio, en settumst svo að í Seattle á Kyrrahatfsströnd, þar sem við höfum búið síðan. 1 bænum og umhverfi eru nær milljón íbú- ar, mikið af morrænu fólki og víst um tvö þúsund af íslenzk- um ættum — líka námsfólk frá Islandi, prýðileg æska og dug- leg. Ég starfa dállítið fyrir Is- lenzka félagið og hef yndi af að hitta þetta fóflk. Surmt er þriðji ættliður í Ameríku og tal ar þó hreina failega islenzku. Tvisvar á ári, á jólum og pásk um, er íslenzk guðsþjónusta. Mér finnst gaman að sjá gaml- ar konur koma þangað með ftNlMlbHK. » - irtxökw&i -- w . .... - J Börn Einars Benediktssonar. Frá vinstri til hægri: Bcncdikt Örn, Ragnheiður Erla, Stefán Már, Margrét Svala og Katrín Hrefna. Á myndina vantar elzta barnið, Einar Val. Myndin var tekin i Engiandi 1917. gamfla íslenzka sálmabóflc I hendi. j — Og nú eru böm ykkar hjónanna uppkomin? — Við eigum fjóra drengi. Philip, 37 ára, er sjóliðsforin/gt í bandaríska flotanuim. Jón (svo skrifar hann sig, en nafn ið er borið fram Jo*vi á enska visu) er 34 ára og sjónvarps- verkfræðingur. Thomas Einar er 24 ára og er að skrifa dokt- orsritgerð um enska skáldið John Sterling. Christopher Már — oftast kallaður Chriss — er 21 árs og við háskólanám í læfcnisfræði. — Hafði faðir þinn mikil af skipti af uppeldi ykkar barna? — Ekki dagsdaglega. Bn stundum tók hann öklcur inn til sín, eitt eða fleiri, og ræddi við okkur oft lengi. Ég elskaði pabba minn, hann var svo góð- ur við okkur, ljúfur og ástúö- llegur. Hann var mjög trúað ur og áminnti okkur um að lesa bænirnar okkar en ekki þó svo að hann reyndi að beita okkur neinni þvingun. En hann sagði að okkur væri styrkur í að varðveita trúna. Og Svala tóik að sér að fara með faðirvorið þegar við vorum komin í rúm- ið á kvöldin og minna oklcur á að huigsa til guðs. — Heflur skáldskapur föður þíns haft mikið gildi fyrir þig? — Ég vildi að ég gæti sagt að svo væri, þvi eins og ég sagði, ég elskaði hann pabba minn. En máiið á kvæðum hans er yfirleitt of þungt fyrir mig. Ég hef aldrei gen-gið í skóla á Islamdi, og ekki lært aðra ís- lenzku en daglégit mál. En nú skal ég nefna þér no'kkur fcvæði sem ég hef átt hægast með að skilja og mam bezt: Messan á Mosfeflli, Móðir mín, Stjarna, Fákar, Hvarf séra Odds frá Miklabæ, Einræður Starfcaðar. — Manstu eftir því að faðir þinn væri að yrkja? — Við vissum ti'l þess, og að hann var oft lemgi með kvæði, orti upp aftur og afltur. Og þeg ar ég var með honum í járn- braiutarvagni eða í neðanjarðar lestum i Lundúnum tók hann stundum upp litla vasabók, sem hann alltaf bar í ytra brjóst- vasanum, og skrifaði i hana Hnu og línu. Þá vissi ég að hann var að yrkja, lagfæra eða bæta við línum i ljóð eða ef til vill byrja á kvæði. Hann átti hægt með að láta ekki trutfllast af hávaða. — Hvernig lízt þér á ísland eftir 511 þessi ár? — Þegar ég kom til Kefla- víkur sagði maðurinn sem leit á miitt bandaríska vegabréf, og sá að ég var fæddur í Reykja- vík: Velkominn heim! Ég hatfði ekki í yfir fjörutíu ár átt önin- ur heimkynni en Bandaríkin svo mér fannst þetta snöggvast skrítið — en þó um leið, að ég væri kominn heim. Og það heif- ur mér fundist hvern dag síð- an. Ég hef verið heppinn með það fólk sem ég hef kynnst, meðal annars frændfólk sem ég hafði ekki þekkt áður. — Gætirðu hugsað þér að setjast hér að? — Ef ég væri einhleypingur myndi ég gera það. En sonuim mínuim þykir svo vænt um móð ur sína, að það væri ekki hægt. Þeim myndi finnast þeir vera sviptir henni ef við settumst að svona langt í burtu. — Langar þá til að sjá land feðra sinna? — Sá elzti, Phillip, ætlar að reyna að komast hingað i vor, og með konu sína og dóttur. Frú Fhyllis Benediktsson er fyrirmannleg, hæglát og hlýfleg kona, og þegar hún sezt með okkur við kaffiborðið geflst kostur á að spyrja hana hvemig henni hafi fallið að vera á íslandi. — Afskaplega vel, segir frú- in. Alflt fólk sem við höfum hitt, eða þurft á að halda -— hver og einn — allt hefur þetta ver- ið elskuflegt og viðfcunnantegt Framhald á bls. 23»

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.