Morgunblaðið - 03.10.1971, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.10.1971, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. ÖKTÓBER 1971 BIRGÐAVARZLA, bókfærsla, afgreiðsia. Kaup- krafa og aðrar upptýsingar, merktar Bl-11-11, sendist atf- greiðsiu Morgunblaðsins. ATVINNA Bifvéfavirki eða maður van- ur brfreiðaviðgerðum óskast. Brfreiðastöð Steindórs sf. sími 11588. IBÚÐ ÓSKAST Óskum eftir 2ja—3ja herb. íbúð, strax, í Reykjavík, Kópavogi eða Hafrtarfirði. Upplýskvgar í síma 13316. KONA ÓSKAST Flugfreyja óskar etftir konu tii 'að hafa 5 ára dreng 2—3 daga í viku í stuttan tíma. Helzt í Vesturbænum. Uppl. í smna 16117 frá ménudegi. RÝMINGARSALA Rýmirvgarsala í þrjá daga, betfst á mánudag. Góðar vör- ur. S.Ó.-búðin, Njálsgötu 23. KLfNIKDAMA óskast á tannlækningastof- una Kleifarvegi 6. Hálfan dag inn fyrir hádegi. Uppl. á staðnum mánudcfg 4. okt. kl. 6—7 e. h. Hallur Hallsson. BARNAGÆZLA Vil taka að mér barnagæzlu í Hafnarfirði. Sími 52160. 3JA HERB. IBÚÐ óskast á leigu sem allra fyrst, Keflavfk-Njarðvfk. Uppl. um KeflavíkurflugvöU, Sími 24324, samband 5114. Robert Bess. TH. SÖLU er Taunus 17 M, station, árg. 1962. Uppl. í síma 92-2793 etftir kl. 7 á kvöldin. KÓPAVOGUR Ung hjón með tvö börn óska etftir 2ja—3ja herbergja íbúð strax í eitt ár. Fyrirframgr. ef óskað er. Uppl. { sima 25291. KONA ÓSKAST sem næst Klapparstíg, til að saekja 4ra ára telpu á Laufás- borg kl. 5, gæta hennar titf 7 laugard. 12—1. Sími 14762. KEFLAVlK — SUÐURNES Kjólaefni — glugg atjaldaefni. Nýjar sendingar. Verzlun Sigríðar Skúladóttur sími 2061. ATVINNA Stúfka vön IBM götun og almiennum skritfstofustörfum óskar etftir starfi. Tilboð send ist afgr. Mbl., merkt 4357, fyrir 8. þ. m. ÞJÓNUSTA Tökum að okkur toliútreikn- rng, verðútreikmng, launaút- reíkning o. fl. Fl'jót og góð þjónusta. Upplýsingar í síma 12801 eftír kl. 17.00. KEFLAVlK — NÁGRENNI Vorum að taka upp glæsilegt úrval af samkvæmiskjólaefn- inm. Verzlunin Steina. BASENDAFLOÐIÐ Aðfararnótt 9. janúar 1799 g'ekk fárviðri af suðvestri yrfir Suðvesturland og fylgdi þvi hið mesta sjávarflóð er sögur fara af. Varð af þessu stórkostlegt tjón alla leið frá Þjórsárósum og vestur á Snæfellsnes. Þá fuku kirkjúmar á Hvalsnesi og á Nesi við Seltjöm, en kirkj- umar í Kirkjuvogi og Kálfa- tjöm stórúkemmdust Á Eyrar- bakka braut flóðið vöru- geymsluhús og flutu viðir og vörur úr því upp að Flóagafli og upp um alla Breiðamýri. Verzlunarhús fauk i Ólafsvik og verzlunarfiúsin á Búðum við Hraunhöfn brotnuðu. Flóðið gekk ytfir lægðina mffli Reykja- vikur og Seltjarnarness og var Valhúsahæð að sjá sem eyja úti í hafi. Mest varð þó tjónið á Básendum, tók alveg atf þann stað og hefir hann ekki byggzt síðan. Þess vegna er flóð þetta jafnan nefnt Básendaflóðið. Á Básendum var góð höfn, langt og djúpt lón, þar sem skip gátu legið svínbundin. Þama var lengi verzlun, Englending- ar verzluðu þar fyrst og síðan Þjóðverjar fram að einokun. Það er til marks um að staðurinn hafi þótt heppilegur, að árið 1640 fluttu Danir einokunar- verzlunina í Grindavik þangað. Og samkvæmt leigumála á höfn um hér á Skagannm 1706, er leiga af Básendum % hærri heldur en leiga á Hafnarfirði. Þarna hefir og lengi verið út- ræði þótt ekki fari sögur af því. Þegar kóngsverzlunin á Bás- endum var seld, keypti hana Hinrik Hansen, sem áður haiði verið verzlunarmaður í Örfiris- ey, og hefir skilið þar etftir nafn sitt klappað í stein. Hann fékk gott gjaforð, Sigriði yngri dótt- ur merkisbóndans Sigurðar Er- lendssonar í Götuhúsum. Þau eignuðust 9 böm og 5 þeirra náðu fullorðins aldri. Á Básendum var talsverð bygging. Þar var sölubúð, íbúðar hús, stórt vörugeymsluhús, ann- að minna, f jós, hlaða, skemma og enntfremur ísienzkur torfbær, fimm hús sarnan. Fyrir ofan þessi hús og umhverfis þau var hlaðinn voldugur grjótgarður í hálfhring. Innan hans munu og bátar kaupmanns hafa verið geymdir, en þeir voru sex: tein seringur, sexæringur, fimm manna far og þrír minni bátar. Hansen lýsti þvl svo sjáltfur hvemig ósköpin dundu á: — Etftir að við öll, ég, kona, 4 böm, og vinnukona vomm háttuð, varð ég þess var um nóttina (um kl. 2) hversu veðr- ið af suðri til vesturs magnað- ist svo iðudega tók að braka í húsunum. Þar að auki tfóru að heyrast skellir, hver eftir ann- an, eins og veggbrjótur væri að vinna á hlið hússins og undir- stöðu. Af þessu fór ég á fætur til þess að lita eftir veðrinu og vita hvað gengi á úti. Lauk ég upp dymm eldhúsmegin, og þá þegar brauzt sjórinn inn á mig, með svo miklu afli að fyllti öll herbergin á svipstundu. Flýðum við þá í skyndi upp á lotftið, hálfnakin upp úr rúmunum, því við óttuðumst að við myndum drukkna niðri. Og í myrkrinu þorðum við ekki út úr húsinu vegna æðandi brimaldanna og rjúkandi otfviðris. Þama stóðum við nú langan táma á loftinu í sifelldum dauðans ótta, að veður og sjór mundi þá og þegar moia húsið að grunni, það var farið að brotna, mótstöðuatfl þess rýmaði og sjórinn streymdi út og inn. Um kl. 7 þorðum við ekki að vera lengur á loftinu. Braut ég þá glugga á norðurhliðinná og þar smugum við út hálfnakin. Ég óð með yngsta bamið á handleggnum þar sem sjórinn íllæddi yfir og skolaði með sér plönkum, fjármunum og búshlut um. Náðum þó f jósinu með mestu erfiðismunum og hfshættu. Fjós ið stendur svolítið hærra og f jær sjónum en íbúðarhúsið. En tæp- lega höfðum við verið þar fjórð ung stundar, er mæniásinn brast i fjósinu. Við urðum því að flýja aftur og nú til hlöðunnar. Ann ar gaflinn var brotinn úr henni, en í staðinn var þar kominn hlaði af trjáviðardóti, er við urðum að skríða yfir með mik- illi hættu til að komast inn. Þama stóðum við skjálfandi með nokkuð af þakinu, en hinn hlutinn blakti fram og aftur eins og blaðsnepill. Nú gerðum við seinustu til- raun að bjarga lítfinu, yfirgáf um eyðilagða kaupstaðinn, héld um til byggða og leiddumst 811. Óðum við svo og skriðum í rok inu, unz við eftir miklar þraut- ir náðum næstu hjáleigu, sem nefnist Lodda, rétt hjá Stafnesi. Fátæki bóndinn þar, Jón Bjöms son og kona hans, tóku á móti okkur, — sem vorum nærri ör- magna af kulda, áreynslu og hugsýki, — með mestu alúð og hjartagæzku. 1 baðstofu þessa ráðvanda manns höfðum við að setur og aðbúnað í 14 daga. Voru þar alls 19 manns, þar af 10 böm og þó er baðstofan ekki meira en 3 stafgólf. Fólkið, sem var í bænum, bjargaði sér upp um þekjuna, og tókst því þann veg um nóttina að bjarga lifi sinu með guðs hjálp, nema aldraðri konu, sem veðrið lamdi niður svo að hún drukknaði i flóðinu. (Hún hét Rannveig Þorgilsdóttir, 79 ára niðursetningur, mjög lasburða). Þannig var frásögn Hansens af þessari óveðursnótt. Þegar farið var að athuga þau herrnd- airverk er flóðið hafði gert, voru öll húsin meira eða minna brotin og full af sandi og möl. Bærinn var alveg hortfinn og var þar etftir grjóthrúga, og tvö hús höfðu alveg sópazt burt, lýsisbúðin og skemman. Bátam- ir voru allir mölbrotnir, og garð urinn mikli umhvertfis staðinn að miklu leyti hruninn. A-llt svæðið var þakið möl og grjóti. Nú mótar aðeins fyrir nokkr- um rústum þar sem staðurinn var. Hansen fl-uttist tU Keflavikur og dó þar 1802, talinn 53 ára. Ekkjan og synir hennar fiutt- ust til Reykjavikur. Synirnir voru alltaf kallaðir Básenda- bræður og voru merkir borgar- ar hér. Frá horfnum tíma Og menn munu koma frá austri og vestri og frá norðri og suðri og sitja til borðs í Guðsríki. (I.úk 13. 29). 1 dag er sunnudagurinn 3. október. Er það 276. dagur ársins 1971. 17. s.e. trinitatis. Árdegisháflæði er i Reykjavík kl. 05.11. Eftir lifa 89 dagar. Næturlæknir í Keflavík 1., 2. og 3.10. Arnbjörn Ólafsson. 4.10. Guðjón Klemenzson. Asgrímssafn, Bergstaðastræti 74 er opið 9unnudaga, þriðjudaiga og fimmtudaga frá kl. 1.30. Að- ganigur ókeypis. Listasafn Einars Jónssonar (gengið inn frá Eiríksgötu) er opið frá kl. 13.30—16. Á sunnu- dögum frá 15.9.—15.12. Á virk- um dögum eftir samkomulagi. N&ttúrugripasafnið Hverfisgötu 116, Opið þriðjud., fimmtud., iaugard. og sunnud. kl. 13.30—16.00. Ráðgjafarþjónusta Geðverndarfélags- ins er opin þriðjudaga kl. 4.30—G.30 síðdegis að Veltusundi 3. slmi 12139. Wónusta er ókeypis og öllum heimil. Sýning Handritastnfunar IslantU 1971, Konungsbók eddukvæða og Flateyjarbók, er opin á sunnudögum kl. 1.30—4 e.h. i Árnagarði við Suður götu. Aðgangur og sýninearskrá ókeypis. VINDÁSHLÍÐARKAFFI 1 dag verður kaffisala til ágóða fyrir starfið í Vindáshlíð í húsi KFUM og K að Amt- mannsstíg. 1 tilefni af því átti dagbókin stutt spjall við Helgu Magnúsdóttur kennara við Æfingaskóla Kennaraskóla Islands. — Ég á að heita formaður í stjóm sumarstarfsins í Vindás- hlíð, þar erum við sjö konur. Á sunnudaginn (í dag) hellum við upp á könnuna frá klukkan 3— 6, og svo aftur í kvöld til ágóða fyrir fjárfrekar framkvæmdir í Vindáishlið og heitum við nú á alla vini og velunnara starfsins og leggja okkur lið. — Sumarstarfið hefur verið starfrækt síðan 1950. Stúlkna- skálinn okkar tekur tæpar sjö- tíu stúlkur, sem dvelja í flokk- um hjá okkur, viku hver flokk- ur, frá júníbyrjun til ágústloka. — Til dvalar koma stúlkur alls staðar að af landinu af Suð urnesjum, frá Vestfjörðum, Vest mannaeyjum og svo má lengi Gíll og Úlfur Guðmundur A. Finnbogason kom hér að máli við dagbókina um daginn og sagði okkur eftir farandi: Sunnudaginn 26. september sem var fagur haustdagur, mátti sjá á lofti þrjár sólir, er líða tók á daginn. Voru tvær sól ir sín hvorum megin sólarinnar sjálfrar. Gill var á undan og úlf ur á eftir. Var úlfurinn að þessu sinni mjög stór og bjart- ur og man ég ekki eftir að hafa áður séð hann jafn skæran. Samkvæmt gamalii kenningu um þess konar sólarfar á slíkt að vita á gott (góða tið). Gíllinn einn á undan sól er ekki talinn nægja til hins betra með veðráttuna jafnvel vita á hið verra. (Það forna segir: Sjaldan er gíll fyrir góðu nema úlfur á eftir renni). telja. Við skiptum niður í aldurs flokka, 9—12 ára, 12—14 ára og 14—17 ára, og eru allir flokk- ar vel sóttir. — Um verzlunarmannahelgina heimsækjum við herrana upp í Vatnaskóg, og er það mikill við burður. Allt sumarið höfum við kvöldvökur og andaktir (á morgnana). Starfsemin er eng- inn sértrúarflokkur, heldur að- eins kristilegt starf, algeriega innan ramma kirkjunnar. I Vindáshlíð eigum við kirkju, Hallgrímskirkju frá Hvalfjarð- arströnd sem flutt var til okk- ar og biskupinn vísiteraði á yfir reiðinni. Var það mjög ánægju legt, þótt ég sjálf hefði ekki tækifæri til að vera þar við- stödd. í lok sumarstarfsins okkar koma ungar stúlkur og konur til dvalar til að tína ber og borða góðan mat og njótá hvíldar. Er það gert á sama hátt og orlofin eru framkvæmd þóft það sé ekki í neinum tengslum við þau. Hefur þessi haustdvöl verið afar vinsæl hjá konum okkar og stúlkum. Mig langar svo að lokum til að óska eftir því, að við fáum á Amtmanns- stígnum að sjá eins margar af sumarstúlkunum okkar og kon- unum eins og komið geta. Við þurfum á fjárstyrknum að halda. Starf okkar er algert sjálfboðaliðsstarf, og nýtur ekki opinbers styrks. Þriggja minútna samtal úr hversdagslífinu Þessi áhrifamikla niynd birtist í stórblaðinu International Herald Tribune.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.