Morgunblaðið - 27.02.1972, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.02.1972, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FERRUAR Frá búnaöarþingi; Búfræðslunámskeið á Skriðuklaustri Á BÚNAÐARÞINGI var á mið- vikudag gerð eftirfarandi álykt- uin í allsherjamefnd: „Búniaðarþing felur stjórn Búnaðarfélags íslan'ds að vinna að því í samráði við stjóm Bún- aðarsamibands Austurlands, að tekin verði upp á nk. vetri bú- fræðslunámskeið á Skriðu- klaustri.“ Vair þetta samþykkt samhljóða. í greinargerð segir að á Skriðu klaustri sé nú starfandi tilrauna- stöð í jarðrækt. f tengslum við harna sé rekið allstórt sauðfjárbú, sem notað er til raninsókna af Rannsóknastofnun landbúnaðar- inis. Þar séu til staðar allmiklar byggingar, sem henta vel bæði til heimavistar, bóklegrar kennslu og vélanámskeiða. Því sé fyrir hendi að verulegu leyti sú að- Staða, er með þarf til slíkra nám- skeiða og gert sé ráð fyrir í ályktuninni. Áríðandi sé að þessi starfsemi verði tekin upp eigi síðar en á nk. vetri, þar eð eng- inn bændaskóli starfar á Austur- landi. Ályktun þessi er í saimbandi við erindi Guttorms V. Þonmars og Snæþórs Sigurbjörnssonar um stofnun búnaðarskóla á Skriðu- klaustri. í gær, miðvikudag, var á bún- aðarþingi lagt fram erindi Sig- urðar J. Líndals og fleiri um at- hugun á eyðingu byggðar í sveit- um og smáþorpum. Á þinginu flutti erindi Ketill A. Hannesson, ráðunautur, og fjallaði það um kynmingu á búreikningum og niðurstöðum. Til síðari umræðu voru tvö mál. Tillaga til þinigsályktunar um landgræðslu og gróðurvernd og var þar gerð ályktun, þair sem segir, að þar sem stjóm- skipuð nefnd hafi mú með hönd- um sömu verkefni og tillagan, telji búnaðarþing ástæðulaust að komið verði á fót annianri nefnd Moskvu, 23. febrúar, AP. SOVÉZKA tunglfarið Luna 20, sem lenti á hafi frjóseminnar síðastiiðinn mánudag, liefur skot ið frá sér eldflaug sem er á leið til jarðar með tungivegssýnis- horn. Tass fréttastofan, segir að flaugin eigi að lenda i fallhlíf í Sovétríkjunum næstkomandi föstudag. Ef allt gengur samkvæmt áætl til að annast sömu verkefni. Hitt málið var erindi Guttorms V. Þormars og Snæþórs Sigurbjörns sonair um stofnun búnaðarskóla á Skriðuklaustri og er sagt frá afgreiðslu þess hér að ofan. Til fyrri umræðu voru þrjú mál, um ábyrgðar- og slysatrygg- ingar í landbúnaði, um breytingu á lögum um innflutning búfjár og um dreifingu menmtastofnana. un, verður þetta í annað skiptið sem sovézkir vísindamenn fá tunglgrjót til jarðar með sjálf- virkri flaug. 1 september 1970 lenti Lúna 16. um 130 kílómetra fyrir sunnan lendingarstað Lúnu 20., skóflaði þar upp 100 grömm- um af tunglvegi og flutti til jarð ar. Sovézkir vísindamenn hafa ekki skýrt frá þvi hve mikið magn Lúna 20. kemur með til jarðar, en það verður líklega mun meira en Lúna 16. flutti með sér. Visindamennirnir hafa hins vegar upplýst að Lúna 20. hafi borað eftir sýnishornunum, og er því óliklegt að hún hafi náð í grjótmulning fremur en stein- völur. Sovézka blaðið Izvestia, segir að Haf frjóseminnar sé með elztu svæðum tunglsins, og að sýnishornin sem Lúna 20. kemur með séu að öllum líkindum mun eldri en sýni Lúnu 16., sem reynd ust vera um 3,5 milljarða ára gömul. Það hefur ekki verið skýrt frá þvi hvort Lúna 20. skildi eft- ir einhver tæki, sem munu halda áfram rannsóknum, en vísinda- menn voru með getgátur um að annar sjálfvirkur tunglbíll hefði verið með í förinni. Frá vorkaupstefnu í Leipzig. Nú munu 9000 sýningaraðilar taka þátt í henni. Lúna 20 á leið til jarðar með tunglvegssýni Kristján innan um uppboðsmálverk. (Ljósm.: Sv. Þorm.) Málverkauppboð Krist- jáns Fr. á næstunni Sýning á málverkunum á Týsgötu 1 „ÉG held jafnvel, að málverk fari á iægra verði yfirleitt á upp- boðum, en á frjálsum markaði og mér finnst mikil nauðsyn að auka skilning meðal fólks á því, að það getur oft gert mjög góð kaup á uppboðum,“ sagði Krist- ján Fr. Guðmundsson, listaverka- sali og uppboðshaldari á Týsgöt- unni, þegar blaðamenn hittu hann að máli á miðvikudag í til- efni af því, að væntanlegt er mál- verkanppboð hjá honum á næst- unni. Hann hefur innréttað að nýju listaverkasal á Týsgötu 1, og er það vinalegur salur og mikil breyting til hins betra frá því sem áður var. Þama sýnir Krist- ján málverk eftir 20 listamenm, og opnar hann sýningu á þessum verkum í salnum á þriðjudag. — Kristján sagði, að öll þessi mál- verk yrðu á uppboðinu, en hann vonaðisf til að fólk kæmi með fleiri málverk til sín fyrir upp- boðið. „Nú getur fólkið skoðað þessi málverk í ró og næði hér, en ekki stopula dagstund á Hótel Sögu, eins og verið hefur á upp- boðum hingað til. Og það tel ég vera til mikilla bóta og þæginda fyrir fólkið.“ Sýningim á Týsgötu er opin frá kl. 1 á daginm, og eins lengi og verzlanir eru opnar. Uppboðið á Hótel Sögu verður svo auglýst síðar. Á uppboðinu verða mál- verk m. a. eftir Kristján Davíðs- son, Ólaf Túbals, Höskuld Björms- son, Helgu Weisshappel, Tryggva Magnússon, Jón Þorleifsson, Eyj- ólf Eyfells, Ástríði Anderaem, Guðmund frá Miðdal. Einair G. Baldvinsson, Veturliða, Jóhanmiea Geir, Jóhamnes Kjarval og Helga Bergmann, svo að einihverjir séu nefndir. Sjálfsagt verða margir til að leggja leið sína á Týsgöt- una, því að þetta er hin bezta sýning og aðgangur ókeypis. — Fr. S. Ólafur H. Guðmundsson form. Iðnráðs IÐNRÁÐ Reykjavíkur hélt aðal- fund laugardaginn 29. janúar sl. í framikvæmdastjórn voru kosm- ir: Formaður Ólafur H. Guð- mundsson, húsgagnasmiður. Vara formaður Ásgrímur P. Lúðvíks- son, húsg.bólstrari. Ritari Haf- steinm Guðmundsson, járnsmiðuir. Gj aldkeri Árni Guðmundsson, múrairi. Meðstjórnandi Þorsteinm B. Jónsson, málari. Samkvæmt nýrri reglugerð um kosningu og starfssvið iðn- ráða, var iðnráðið kosið til fjög- urra ára, en fram til þessa hefur iðniráð verið kosið til tveggja ára í senm. Sjávarafurðir héðan á vörusýningunni í Leipzig Kristinn Indriðason Skarði — Minning VORKAUPSTEFNAN í Leipzig verður dagana 12.—21. marz og eru sýningaraðilar að þessu sinni yfir 9000 frá meira en 60 lönd- um á um það bil 350 þúsund fer- metra sýningarsvæði. íslendingar taka þátt í sýningunni og sýna sjávarafurðir í sýningarhúsinu Messehof í innbænum. Að aðild ísland standa Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna, SÍS, Arctic á Akranesi og Mars Trading Co. Frá þessu skýrði Liehr, for- stjóri verzlunardeildar Austur- Þjóðverja í Kaupmannahöfn og Haukur Björnsson hjá Kaup- stefnunni á fundi með blaða- mönnum. En Liehr talar mjög góða íslenzku. Sýningarstjórn Leipzig-kaup- stefnunnar gerir ráð fyrir að gestir komi frá rúmlega 80 lönd- um, þar á meðal er búizt við vax amdi fjölda tæknimanna, verk- fræðinga og annarra sérfræðinga í iðnaði. En meðam á kaupstefn- unni stendur er einnig mikið um að vera í borginni, í leikhúsum og á listsýningum og stærstu flugfélög fljúga þangað daglega. Hópur íslendinga sækir jafnam kaupstefnuna, nú orðið um 20— 30 manms, em hefur farið upp í 100 manna hóp. Tækni- og fjárfestingarvörur verða sýndar á 250 þúsund ferm svæði, neyzluvarningur á 100 þúsund fermetra svæði. Stærsti sýningaraðilinn er ' gestgjafinn, Þýzka Alþýðulýðveldið, með vör- ur frá 4000 framleiðendum og út- flutningsmiðstöðvum. Önnur 12 sósíalistaríki sýna úrval fram- leiðslu sinnar. Munu Sovétmenn minnast þess sérstaklega að þeir hafa tekið þátt í kaupstefnunni í 50 ár. Lönd efn.ahagsbandalags- ins Comecon haga sýningum sin- um í samræmi við efnahagssam- vinnu þeirra, sem ákveðin var á 25. þingi bandalagsins. Fjöldi þróunarlanda tekur þátt í vor- sýningunni og verður mikil sam- sýning frá þeim, en þátttaka verð ur mest frá Indlandi. 2500 fram- leiðendur frá 27 iðnaðarríkjum Vestur-Evrópu og annarra heims álfa munu sýna í Leipzig. Mest verður þátttakan frá Austurríki, en miðað við sl. ár hafa Japanir aukið mest þátttöku sína. Meðan á kaupstefnunni stend- ur verður efnt til meira en 150 fyrirlestra sýningaraðiia á sviði vísinda og tækni. Daglega verða tízkusýningar og fjölbreytt dag- skrá er á hljómlistar- og lei.klist- arsviðinu. HINN 21. nóvember 1971 lézt að heimili sínu Skarði á Skarðs- strönd Kristinn Indriðason. Þau orð sem ég undirritaður segi um þennan mæta mann eru úr minni minnisbók um okkar kynni. Það var vorið 1916 á björtum vordegi, að ég sá Kristin fyrst svo ég vissi hver hann var. Það var í Arnarbæli hér í hreppi að menn fjölmenntu á uppboð. Þá hópuðu sig saman nokkrir ungir menn og sungu kvæði og ég varð svo hrifinn af söng Kristins að ég man það æ síðan. Mér fannst að hægt væri að segja um þessa rödd að hún væri mjúk sem blómstur og sterk sem stál. Þeg- ar þetta gerðist var Kristinn far- inn að búa á Skarði fyrir tveim- ur árum. Nökkrum árum síðar jókst svo kynning okkar. Ég fór að fara í réttir að Skarði og hef farið það síðan oftast tvisvar á hausti milli 40 og 50 ár. Lengst af þess- um tíma var Kristinn réttarstjóri og varð sú kynning til þess að skapa vinsemd okkar á milli sem aldrei skyggði neitt á. Það sem ég tel sérstakt við Kristin er, hvað lipur og góðgjarn hann var. Á löngum tíma kemur oft fyrir skoðanamunur um mál sem koma fyrir en Kristinn var alltaf kominn til að færa allt til betri vegar og lægja öldurnar og gera gott úr öllu. Við Kristinn unnum saman á sýslufundum í ellefu ár og á ég margar ánægjulegar minningar frá þeim samfundum. Hann hafði alltaf mikinn áhuga á velferðarmálum fyrir sveitina sína og héraðið í heild. Það er ekki ofmælt þó maður segi að hann var hrókur alls fagnaðar og lífgaði allt upp með gleði og gamanyrðum. Kristinn var búinn að búa á Skarði í 57 ár og tel ég að þeir sem hafa notið þess að lifa þetta tímabil samfara því að eiga gott heimili hafi notið sannrar gæfu að sjá sveitina sína og landið risa úr örbirgð til velmegunar þroska og sjálfstæðis. Fyrsta réttardag sl. haust sá ég Kristin á Skarði síðast. Þá kom hann í Skarðsrétt á sól- björtum haustdegi og er mér minnisstætt að hann horfði út yfir Breiðafjörð með gleðibros á vör. Þarna var hann umvafinn vinahöndum. Þann 14. nóvember sl. talaði Kristinn við mig í síma og var það síðasta kveðjan i þessu lífi. Kristinn Indriðason var jarðsett- ur á Skarði að viðstöddu fjöl- menni. að var gott veður, logn á Breiðafirði en vetrarhúm í lofti og ef til vill í hugum margra sem þarna voru staddir til að kveðja þennan vin sem prýtt hefur þennan sögufræga stað í nær 60 ár. Ég þakka þessum látna vini fyrir alla samfundi okkar, ánægju og hjartahlýju. Óska hans ættingjum og vin- um allrar blessunar og bið þess að óðalinu megi auðnast að fóstra marga slíka sveitinni og landinu okkar til gagns og sóma. Blessuð veri minning hans. Yztafelli, Dalasýslu í desember. Guðm. Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.