Morgunblaðið - 26.03.1972, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.03.1972, Blaðsíða 2
2 MORGUNBL,AÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MARZ 1972 Rannsóknir Geirfugladrangurinii horfni; — á seltubúskap laxfiska ÞEIR Sigurðtir St. Helgason, lífeðlisfræðing-ur, og dr. Jóliann Axelsson, prófessor, hafa fengið 6,000 dollara rannsóknarstyrk (S25 þús. ísl. króntir) frá Nato til rannsóknarverkefnis, sem nefnist „Hormónastjórn á seltu- búskap laxfiska". Rannsóknir þessar eru nýhafnar og munu líklega taka 2—3 ár, að sögn Sigurðar. „Uegar laxfiskar fara úr söltu vatni í ósalt, þ. e. ganga úr sjón- um upp í ámar, ætti að verða miikið salttap úr blóði þeirra og vofjum, en þeir tempra saltmiss- inn með ákveðnum hormónum," sagði Sigurður í viðtali við MM. „Rannsóknir okkar beinast aðal- lega að þessari hormónastarf- semi, og það er von okkar, að niðurstöður þeirra geti varpað ljósi á göngur laxfiska almennt og verið þáttur í mikllu umfangs- meiri rannsóknum á laxfiskum almennt, sem gætu orðið tdl að styrkja nýjan atvininuveg, Mf- rækt í sjó, ám og vötnum.“ Rannsóknarstyrkuriinn frá Nato er fyrir árið 1972, en Sig- urður kvað mögulegt að fram- lengja hann. Til þessara ranin- sokna þyrfti þó meiri styrki, m. a. tíl kaupa á tækjum. Mánudagsmyndin: Hernámsmörk Chabrols NÆSTA mánudagsmynd Háskóla biós verður La Ligne de Demar- cation eða Hernámsmörkin, eftir franska nýbylgju kvikmynda- gerðarmanninn Claude Chabrol. Er hún gerð eftir bók Remy majórs, einnar af hetjum frönsku mótspymuhreyfingarinnar. Myndin lýsir lífi fólks í smá- þorpi í Suðaustur-Frakklandi. — Blaðskák Akureyri — Reykjavík Svart: Taflfélag Reykjavíkur Magnús Ólafsson Ögmundur Kristinsson. Hvítt: Skákfélag Akureyrar Gylfi Þórhallsson Tryggvi Pálsson. 5. —, Bf8-e7 Þorpið stendur við litla fjallaá, sem skilur á milli hins her- numda hluta Frakklainds og þess hluta landsins, sem átti að heita frjáls eftir að Frakkar urðu að gefast upp fyrir Þjóðverjum 1940. Þorpsbúar berjast gegn Þjóðverjum með ýmsu móti, meðal amnars með því að skjóta skjólshúsi yfir þá, sem hemáms- liðið vill ná til, og koma þeim yfir landamæraána, þegar þess er kostur og hvað sem það kostar. Mjmd þessi hefur hvarvetna hlotið lofsamlega dóma. — Vígt vatn Framhald af bls. 1. hafði pílagrímsför til Mecca og Medina. Hann hafði haft heim með sér vígt vatn þaðan og aðrar gjafir til ættingja sinna — en fyrsta bólusóttartilfellið var lítil frænka hans, sem hafði drukkið af þessu vígða vatni. Maðurinn sjálfur hafði einnig dreypt á því en veiktist ekki, þar sem hann hafði verið bólusettur áður en hann fór í ferðina. Fyrirskipuð hefur verið bólu- setning nær tveggja milljóna mainina í Sloveniu. Að sögn tals- manns Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar er með vissu vit- að, að átta manns hafi tekið veik- ina og grunur um sex aðra. Tveir hafa látizt. Eitt hættulegasta blindsker við landið Hvarf drangsins breytir engu um landhelgina — segir forstjóri landhelgisgæzlunnar, Pétur Sigurðsson „GEIRFL'GLADRANGUR er orðinn eitt versta blindsker hér við land,“ sagði Guðmiind ur Kjærnested, skiplierra hjá Landhelgisgæzlunni i viðtali við Mbl. i gær, en eins og sagt hefur verið frá hér í blaðinu, er drangurinn horfinn i sæ, og hefur enn ekki reynzt unnt að kanna staðinn, sem hann stóð á. Er því ekki ljóst, hvort hafið hefur sorfið drang inn niður eða hvort jarðsig eða eitthvað annað hafi vald ið hvarfi hans. Guðmundur Kjærnested sagði, að Geirfugladrangur hefði verið fyrsti ratsjárpunkt ur sjófarenda, sem komu frá Ameríku á leið sinni til ís- lands. Drangurinn var 10 sjó mílur suðvestur af Eldey. Þó munu hafskip betur sett að þessu leyti, en t.d. fiskiskip og önnur smærri skip, því að ef til vill ná þau ekki í Eldey í ratsjá. Þannig er Geirfugladrangi lýst með útlitsteikningu í leiðabók sjófarenda. Fyrir báta, sem eru að veið- um á þessu svæði út af Reykjanesi alla vertíðina er málið mjög alvarlegt, en á svæðinu er stunduð tog-, línu- og netaveiði. Þar fara og um togarar, bæði innlendir og er- iendir. Eins og er brýtur sjaldan á dranginum, hann liggur niðri, sem kallað er og er hann því mjög varasamur. Hann sést ekki í ratsjá en neðansjávar er þetta strýta, sem stendur upp af hafsbotninum og umhverfis er allt að 130 metra dýpi. — Mun landhelgisgæzlan hafa i huga að senda niður kafara til þess að kanna verksum- merki á staðnum. Geirfugladrangur var yzti punktur, tíu metra hár, sem sást í ratsjá við Reykjanes. Sást hann í 8 til 10 sjómílna fjarlægð, en önn- ur kennileyti á þessum slóð- um eru öll svo lág, að aðeins Eldey kemur nú til greina sem kennileiti. Bátar að veið- um við yztu mörk landhelg- innar þar úti eiga nú í mikl um erfiðleikum með að stað- setja sig við mörkin. Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar sagði í viðtali við Mbl. í gær að við- horf Gæzlunnar til þessa máls væri það að allt væri óbreytt er varðar grunnlínupunkta. Geirfugladrangur er grurm- línupunktur, sem búið var að semja um og auk þess þyrfti enga samninga til þess að á- kveða, hvar hann skyldi vera. Pétur sagði að Laridhelgis- gæzlan áliti að nauðsynlegt væri að gera einhverjar ráð- stafanir til þess að vara sjó- farendur við þessum hættu- lega stað. Mætti þá nota dranginn neðansjávar sem und irstöðu fyrir steyptan vita á staðnum. Slíkt verk verður þó aðeins unnið með þyrlum, því erfitt er að koma að skipum, vegna ókyrrðar í sjónum. Listahátíö 1972: Kemur Antóníóní? ÍTALSKA kvikmyndafrömuð- inum Michelangelo Antonioní, sem kunnur er hérlendis fyrir myndir sínar Blow-up og Za- briskie point, hefur verið boð ið að koma hingað til lands á Listahátíðina í Reykjavík 4. til 15. júní í vor. Antoníóní hefur lýst yfir áhuga á að konia hingað, en liefiir ekki gefið ákveðið svar við boðinu. Ef af koirni Antoníónís verð ur, er ætlunin að sýna hér ein hverjar af kvikmyndum hans, og mun hann þá annað hvort flytja erindi, eða svara fyrirspurnum. Þá er verið að athnga mögu leikana á að fá hingað til lands bandarísku söngkonuna Joan Baez, eða brezku pop- hljómsveitina The Who. Að sögn framkvæmdastjóra Lista hátíðarinnar, Þorkels Sigur- björnssonar, hafa enn ekki borizt svör við þeim málaleit unnm, enda sjaldgæft, að pop- liljómiistarmenn bindi sig- með samningum langt fram í tim- ann. Nánar er skýrt frá Listahá- tiðinni annars staðar í blað- inu í dag. — Bridge Framhald af bls. 32 vetur, ými.s skemmtiatriði Vérða o. fl. Áhugamenn uim bridge eru hvattir til að koma og sjá þessa ágætu gesti Bridgefélags Reykja- víkur í keppni við okkar bezbu spilara í dag, á morgun og á miðvikudag og er bridgeunnend- um sérstaklega bent á sýningar- tjaldið, setm er mjög vinsælt, enda eru spilin sýnd og skýrð jafnóð- uim og þau eru spiluð. Er þetta nokkur t hlaup? Viðtal við Berg Þorsteinsson á Hofi Bergur á Hofi og Þorlákur sonur hans. DAGINN, sem Skeiðarár- hlaupið var að ná hámairki, hittum við að máli Berg Þor- sbeinsson, einn af fjórum bændum á Hofi í öræfum. Þar búa á þremur býlum bræður, Bergur, Gunnar og Magnús svo og Bjarni Sigurðsson á fjórða bænum. — Jú. Ég man eftir mörgum Skeiðarárhlaupum, sagði Bergur. Það fyrsta var 1913. Þá var ég á 10. árinu og man það vel. Það var svo mikíð að vatnið kom hér alveg að Hofs fjallinu, austan við Hof. Faðir minn var í kaupstað- arferð, í Homafirði, og þeir urðu að fara upp í fjallið, k»must ekki sandana, þó fór flóðið yfir allt Neslandið. Næst man ég eftir hlaupinu 1922. Þá kom minna vatn hér austureftir, en þá var ösku- fall. Ég var með fjárrekstur í Suðursveit og lenti í því. Hlaupin 1934 og 1938 voru líka stór. 1934 var geysimik- ið jakahlaup í ánni, jakar al- veg út á fjöru. — Ertu búinn að sjá hlaup- ið núna? — Nei, er þetta nokkurt hlaup? spurði Bergur að bragði. — En hvemig lízt þér á fyr irætlanir um að leggja hér veg, til að tengja vegakerfið hringinn? — Mér lízt vel á það, ef það tekst. Sennilega ganga þeir svo vel frá því að það stand- ist þessi síðustu hlaup. En ég er ekki triiaður á að vegur og brýr standist hlaup á borð við þessi gömlu. — Nú komist þið Öræfing- air í umferðina. Heldurðu að verði ekki mikill átroðningur af því? — Það verður auðvitað mik il umferð. En hún er nú þeg- ar orðin æði mikil á sumrin, þótt við hér verðum ekki svo mikið vör við hana. Hún fer beint í Skaftafeil í þjóðgarð- inn. En ekki þýðir að hugsa um það. Þetta er eins og önn- ur framvinda, sem hlýtur að koma. Og hlýtur að verða til góðs. — Þau voru ekki lengi að seljast happdrættisbréfin í veginn, bætir Bergur við. Ég keypti strax 10 þeirra. Nú ber að son Bergs, sem Þorlákur heitir. Dæturnar sex eru allar giftar og farnar burt og tveir synir eru til sjós. Við spyrjum Þorlák, hvort hann ætli að búa á Hofi og hvort tilkoma hring- vegarins muni breyta því. — Það getur verið, að ég verði um kyrrt. En eitthvað verður að breytast til þess, svarar hann. Kannski dugar það að brýrnar komi og sam- göngurnar. Þorlákur hefur verið með vömbil í vegavinnu öðru hverju á sumrín. — Það má búast við meiri vinnu af því tagi, þegar farið verður að brúa, segir hann. Ef verkið verður ekki boðið út. Þá koma verktakar að sunnan með öll sín tæki. Ég er núna að bíða. Við eigum að vera til tækir með bílana, ef garðarn- ir fara í hlaupinu, til að aka á þá. — Það er nýtt að sjá svona græna jörð á þessum tíma, segir faðir hans. Venjulega þykir gott ef það er í maí. Hér hefur verið þíð jörð í allan vetur. En það er búíð að rigna feikilega. Bergur segir að þeir Hofs- bræður beiti lítið. Veðurliaig er þannig að ekki er gott að eiga við það. Hann er sjálfúr með 220 fjár og kýr fyrir heimilið. En farið er að ræða um að selja mjólk úr sveit i Hornafjörð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.