Alþýðublaðið - 29.08.1930, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 29.08.1930, Blaðsíða 4
4 ALÞ7ÐUBLAÐIÐ flojíírejfjnr ullar og silki. Smá- bamafatnaður all skonar Sokkar, húfur, slæður og margt fleira. Matthildnr Biörnsd. Laugavegi 23 Þurkaður saltfiskur 25 aura Va kg Ódýrt dilkakjöt. Kjötbúðin, Grettis^ götu 57, simi 875. gæti farið vel fram og orðið þátt- takendum til góðs, en sérstaklega vill það þakka bifreiðastjórum, sem bæði lánuðu bifreiðar og létu sér svo ant um börnin. Ósk- ar Pórðarson lánaði tvær bif- reiðar, Sigurður Jóhannsson eina og Meyvant eina. Vonandi tekst Aiþýðublaðinu að efna til annar- ar berjafarar innan skamms. Hæstráðandi í hálfa vikn. Lundúnum (UP.), 28. ágúst, FB Frá Lima í Perú er símað: Junta fór frá völdum á miðnætti á miðvikudagsnótt. Ortega hers- höfðingi hefir tekið við stjórn- inni, unz Sanchez Cerro kemur til höfuðborgarinnar. Cerro er að- alleiðtogi stjórnbyltingarmanna. [Junta tók við völdum um síð- ustu helg'i.j Siðar sama dag: Lima: Alt er nú aftur með kyrrum kjörum í borginni, eftur komu Sanchez Cerro, sem hefir myndað her- valdsstjóm. Mikill mannfjöldi, 80—100 þús- und, að því er áætlað er, fögnuðu Cerro, er hann kom í flugvél frá Arequipa. Athngasemd, í grein. í Alþýðublað- inu þann 27. þ. m. méð fyr- irsögninni „GLussi“ er þess getið, að Rósól-hárelixir sé seldur sem áfengistegund og sé notaður til drykkjar. En þar sem hér er um algerðan misskilning að ræða, viljum við leyfa okkur að taka fram: 1) AÖ Rósól-hárelixir inniheld- ur kemisk efni, sem eru óheilnæm hverjum þeím, sem drekkur hann, og auk þess efni, sem bragðsins vegna gera hann algerlega ó- hæfan til drykkjar. 2) Að okkur vitanlega hefir aldrei nokkur maður lagt sér Rósól-hárelixir til munns. 3) Að salan af Rósól-hárelixir er hverfandi litil hjá því sem vera myndi, ef hann væri drukk- inn. F. h. Efnagerð Reykjavikur, í fjarv. framkvstj. H. Magnússon. Um dagfnn og veginn. S.T. VERÐANDI hefir fara á berjamó aðI|Norðurgröf, ef veður ieyfir, næstkomandi sunnudag, 31. ágúst. Lagt verður á stað kl. 10 árdegis frá Templ- arahúsinu í Vonarstræti. Fargjald er í kassabilum 3 kr. báðar leiðir, en í fólksflutningab lum 6 kr. báðar leiðir, Þáttakendur eru beðnir að gefa sig fram og panta far í sima 978 og 1089 fyrir kl. 7 síðd. á Iaugardag, Næturlæknir er i nótt Halldór Stefánsron, Laugavegi 49, sími 2234, Fundarfréttir. í fréttum, sem „Morgunblaðið" flytur lesendum sinum af fundi Félags ungra jafnaðarmanna, segir blaðið, að alt hafi lent i uppnámi ræðustóllinn oltið um koll o. s. frv Það er kunnugt fyrir löngu hversu söguburður blaðsins um and- stæðinga er vanur að hafa gagnverkandi áhrif, því venju- lega er það svo, að þegar blaðið segir sögur í svipuðum anda og þessa, þá trúir enginn sögunni ekki einu sinni starfsmenn blaðs- ins. Það er því mikið gleðiefni fyrir okkur félaga F. U. J. ef „Mgbl.“ ætlar eftirleiðis að láta fé- lagsskapinn njóta þessara gagn- verkandi áhrifa sinna. Hafi þeir þökk fyrir, Valtýr og Jón, Félagi. Maria og Einar Markan syngja í K.R.-húsinu í kvöld kl. 9. Er þetta síðasta tækifœri að sinni til að heyra þau syngja sam- an, því að María Markan er bráð- lega á förum til Þýzkalands. Veðrið. KI. 8 í morgun var 9 stiga hiti í Reykjavík. Útlit á Suðvesturlandi vestur um Breiðafjörð: Sunnan- og suðvestan-gola. Skýjað loft og nokkrar skúrir. Sennilega úrkomu- laust á morgun. Dánarfregn. í fyrra kvöld lézt í farsöttahús- inu Sigurbjörg Ólafsdóttir, Þor- leifssonar, Grettisgötu 61. Sígur- björg heitin var mesta myndar- stúlka, mjög vel gefin og prýði- lega látin. Hún varð að eins 21 árs. Til berblaveika drengsins frá Flatey: Frá konu 5 kr. Þá samtals komið 690 kr. í Arnarhvol, hina nýju skrifstofubyggingu rikisins, eru flutt: Búnaðarbankinn » skrifstofur Skipaútgerðar rikisins, Brunabótafélags íslands (ásamt Vátryggingu sveitabæja) og Siysa- tryggingarinnar, fræðslumálastjóra, húsameistara ríkisins, toilstjóra, bifreiðaeftirlitsins, og lögmanns- skrifstofurnar er verið að flytja þangað. Á næstunni verða skrif- stofur lögreglunnar og varðstofa flutt þangað og skrifstofa ríkisfé- hirðis. Síðar koma þangað vega- málaskrifstofan og skrifstofa á- fengisverzlunarinnar og að lokum skrifstofa landlæknis. í sýningarkassa Aiþýðublaðsins má sjá úrklippu úr Berlingatiðindum 2. ágúst, þar sem sagt er frá því, að Stauning hafi neitað að búa til stöðu handa Helga Tómassyni. Morgunbiaðið og Berlingatíðindi eru hvorutveggja íhaldsblöð; annað hefur orð á sér fyrir að vera fremur sannort, hitt orð fyrir að vera Iygið. Skyldu margir frekar vilja trúa því lygna? Af sildveiðum komu ígær togararnir „Njörður" og „Draupnir“. Hafa þeir veitt fremur vel. Mun „Njörður" hafa veitt8000—8500 mál síldar í bræðslu auk þeirrar síldar, er söltuð var Engin sild sást í gær af „Veiðibjöllunni" Flaug hún þó víða fram með Norðurlandi. Hún er á síldarleit áfram. Ivíii f&p aH frétta? Þar sem lœkurínn rennur hjá melbarðinu austan megin við Elliðaárveg, vildi frý Anna Torfason (Hattaverzlunin) fá land undir sumarbústað, en fast- eignanefnd vill ekki láta stað þennan að svo komnu. Hannes Guðmundsson læknir sótti um þennan sama stað í vor til sum- arbústaðar, og var synjað um hann. Þremur synjad um lódjr. Fyrir síðasta fasteignanefndar- fundi lágu þrjár beiðnir um lóðir í iRauðarárholti. Voru þær frá Margrétu Jónsdóttur, Guðmundi Gíslasyni • og Guðmundi Krist- jánssyni. Vildu sumir nefndar- manna -láta lóðir þessar undir bráðabirgðarskúra, en meiri hluti nefndarinnar ^vildi ekki,. þar eð holtið >væri ætlað fyrir verk- smiðjubyggingar. , Þaó á aó hœkka kjallarann undir húsinu nr. 26 við Braga- götu. Tómas Vigfússon, Græn- landsfara, á hús þetta. Þríhjft hús úr steinsteypu er Karl Þ. Þorvaldsson að láta reisa á lóðinni nr. 61 við Bergstaða- stræti. Búðir verða á neðstu hæð. Togararnir. „Otur“ fór á veiðar í gær. Verið er að búa „Baldur“ einnig á ísfiskveiðar. „Geir“ kom af veiðum í mongun með rúm- lega 700 kassa ísfiiskjar. Skipafréttir. „Lyra“ fór utan í gærkveldi. „Vestri" kom í gær- kveldi með fiskfarm fyrir „Kveld- úlf“. Kmttspijrmn. I dag kl. 61/2 keppa „Fram“ og „Víkingur“. Timburhús, sem er 45V2 fenm. að grunnfleti, verður nú bygt á Laugarbletti III. Eigandi (bletts- ins og hússins): Guðbjörn Ás- mundsson. Nr. 10 vió Sjafnargötu. Þá lóð fengu þeir Tómas Ólason (Skó- búð Rvíkur) og Guðmundur Sæ- mundsson og ætla að byggja á henni tvílyft íbúðarhús úr stein- síeypu. Stærð hússins 120 ferm. Tvílyfta hifreióasmióju á að byggja á lóð nr. 1 við Rauðar- árstíg. Stærð 230 fermetrar. Það er Guðmundur Jónsson, Óðins- götu 14 B, sem lætur byggja hana. Trúlofanir og gif tingar meðal símafólks. Samkvæmt Símablaðinu hefir verið óvenjulega mikið af trú- lofunum og giftingum meðal símafólks á þessu vori. Er listi sá, er hér fer á eftir, tekinn eftir Símablaðinu. T rúlofanir: Ungfrú Guðmunda Jónsdóttir símamey og Guðmundur Einars- son. Ungfi'ú Lára J6 iannesdóttir símamey 0g Gunnar Stefánsson. Ungfrú Klara Helgadóttir síma- mey og Kristján Magnússon málari. Ungfrú Guðborg Guðmunds- dóttir og Baldvin Jónsson síma- maður. Ungfrú Laufey Lilliendahl símamey, Akureyri, og Einar Pálsson bankaritari. / hjónaband hafa gengió: Ungfrú Lilja Sölvadóttir síma- mey og Guðmundur Guðmunds- son, aðalgjaldkeri Landsbankans. Ungfrú Sigurlín Guðmundsdótt- ir símamey og Guðmundur Thor- oddsen prófessor. Ungfrú Ingibjörg Ölafsdóttir símamey og séra Jón Thoraren- sen, Hruna. Ungfrú Torfhildur Dalhoff og Bjarni Björnsson leikari. Ungfrú Lára Jóh. Hafstein og Þórarinn Björnsson, stýrimaður á „Óðni“. Ungfrú Valgerður Jóhannes- dóttir simamey í Hf. og Þórður Bjarnason verzlm. Ungfrú Hrefna Karlsdóttir og Gunnar Bachmann símr. Ungfrú Svanlaug Guðmunds- dóttir og Sæmundur Símonarson símr. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Haraldur Guðmundsson. Alþýðuprentsmiðjan.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.