Morgunblaðið - 28.03.1973, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 28.03.1973, Blaðsíða 31
MORGUtNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28: MARZ 1973 31 Fram þoldi ekki taugaspennuna Á sunnudag'skvöldið léku Breiðaiilik og Fram i íþrótta- húsinu í Hafnarfirði og svo fóru leikar að Breiðablik sigraði með einu marki, leiknum lauk 12:11. Breiðablik átti nú einn sinn bezta leik á keppnistima- bilinu og kom það Framliðinu illa, þvi Framstúlkurnar voru ekki i essinu sínu. Fram hafði forystu 11:10 er um 10 mínútur voru tii leiksloka, en siðustu mínúturnar virtist sem liðið kiknaði undan taugaálaginu og Blikastúlkurnar skoruðu tvö sið ystu 5:4 og liðið leiddi lengst áf. Fram hefði ekki þurft að missa bæði stigin í þessum leik, því Amþrúður, sem annars var bezt í liði Fram misnotaði víti á síðustu minútunum. Mikil bar átta var í leiknum, enda áttust þarna við lið sem heyr harðvít- uga baráttu fyrir lifi sínu í deildinni og hins vegar lið sem á stóra möguleika á Islands- meistaratitli. Ekki er ósennilegt að ætla að Framstúlkurnar hafi ætlað sér of mikið og því hafi farið sem fór. Myndin er úr leik Breiðabliks ogFram i fyrri umferðinni og þá vann Fram stórt, 17:11. Á sunnudaginn snerist dæmið við og þá vann Breiðablik 12:11. ustu mörkin. Það er þó varla rétt að segja að Breiðabliksstúlkurnar hafi skorað tvö síðustu mörkin, Alda Helgadóttir sá um að gera þau og var hún sem fyrr potturinn og pannan í leik liðsins og mark hæst með 5 mörk. Fram reyndi í upphafi að taka Öldu úr um- ferð en þá losnaði um Arndísi sem skoraði nokkur mörk í byrj uninni. 1 hálfleik hafði Breiðablik for Víkingur gaf Valannaðstigið Víkingsstúlkurnar hafa gert íslandsmeisturum Vals lifið leitt í vetur, en Víkingur vann fyrri leik liðanna 10:9 og á simnudag- inn gerðu liðin jafntefli 6:6 og mega Valsstúlkurnar prísa sig sælar með þau úrslit. Valur á þó enn ntikla niöguleika á sigri í mótinu, en til þess verða þær líka að vinna alla þá leiki sem þær eiga eftir að leika betur en móti Víkingi, — miklu betur. Víkingur skoraði fjögur fyrstu mörk leiksins á sunnu- daginn og það var ekki fyrr en á 23. mínútu leiksins að Jóna E)óra skoraði fyrsta mark Vals. Á þessum tima var Valsliðið mjög óheppið með skot, en óheppni segir ekki allt, því leik ur liðsins var einnig mjög léleg- ur á þessum kafla. 1 seinni hálfleiknum tóku Vals stúlkumar við sér og með Björgu Jónsdóttur í fylkingar- brjósti tókst þeim að jafna 4:4, þegar 8 minútur voru af hálfleiknum. Víkingur náði tveggja marka forystu 6:4 en þá tók Björg Jónsdóttir aftur til sinna ráða og skoraði tvö síð- ustu mörk leiksins og bjargaði þar með öðru stiginu fyrir lið sitt. Vikingur var með boltann þeg ar tæp mínúta var til leiksloka, staðan 6:5 og sigurinn virtist blasa við liðinu, en misheppnað skot úr vonlitlu færi kom í veg fyrir Vikingssiigur. Þórdis Magn- úsdóttir lék srtórt hlutverk í marki Víkings i þessum leik og varði mjög vel. Halldóra og Guð rún Helgadóttir eru kjölfestan I vamarleik Vikingsstúlknanna, en í sóknarleiknum voru Guðrún Hauksdóttir og Jónina atkvæða- mestar. Valsliðið átti ekki góðan dag á móti Víkingi og t.d. sáust þær Svala og Björg Guðmundsdóttir ekki allan leikinn. Björg Jóns- dóttir er sú eina í liði Vals sem á hrós skilið fyrir frammistöðu sina í leiknum. Mörk Vals: Björg J. 4, Jóna Dóra 1 og Svala 1. Mörk Víkings: Jónina 2, Guð- rún Hauksdóttir, Guðrún Helga- dóttir, Agnes og Jónína 1 hver. áij. Erla tekin úr umferð og- KR hlaut að sigra í fyrri leik Víkings og Vals skorafti .lóna Dóra lagle.gt mark úr liorninu. A siinnudaginn skoraði hún fyrsta tuark Vals á móti Víkingi, en leiknum lauk meft jafntefli, 6:6 Fyrsta landsliðið — í körfuknattleik kvenna SNEMMA i næsta mánuði leikur ísland sina fyrstu landsleiki í kvennakörfubolta. Þá fer fram í Osló Norðurlandamót i körfu- knattleik fyrr konur (Polar Cup) og í fyrsta skipti er Is- land meðal þáttakenda. Fyrsta landslið Islands í körf ubolta kvenna hefur verið valiið, og skipa það eftirtaldar stúlkur: Friðný Jóhannesdóttir, Þór Guðný Jónsdóttir, Þór Anna Gréta Halldórsdóttir, Þór Þóra Þóroddsdóttir, Þór Guðrún Ólafsdóttir, ÍR Ásta Garðarsdóttir, Ir Oíiga Bjamadóttir, iR Lína Gunnarsdóttir, ÍR Þóra Ragnarsdóttir, ÍR María Erla Geirsdóttir, UMFS Linda Jónsdóttir, KR Emilía Sigurðardóttir, KR Liðið hefur æft vel að undan- förnu undir stjórn hins kunna þjáJfara, E nars Ólafssonar, en hann va.'di liðið ásamt Guttormi Óiaíssyni, sem mun fara með lið inu út og stjórna því þar. Það er bezt að gera sér það ijóst strax, að búast má við þvi að liðið fái slæma útreið í ieikj- um sínum í þessari keppni. Vit- að er, að Danir a.m.k. eru mjög sterkir í kvennakörfubolta, og einnig Svíar. — En einhvern tíma hlýtur að koma að þvi að við sendum lið ti'l keppni í kvennaflokki, og þær stúlkur sem skipa þetta lið hafa allar unnið til þess að skipa okkar fyrsta landslið. Þótt þær sæki ekki sigra i þessari ferð, þá læra þær sjátf- sagt eitt og annað af því að sjá hin liðin og reyna sig í keppni gegn þeim. Mbl. mun skýra nán- ar frá ferð stúliknanna síðar. — ffk. Það er ýmist of eða van í leik [ Ármannsliðsins i 1. deild kvenna. I.iðið leiknr annan dag inn eins og íslenzk kvennalið gera bezt, en hinn daginn er leik ur þess svo skrykkjóttur að von um sigur er tæpast fyrir hendi. Sunniidagurinn siðasti var einn af þessum slæmu dögum hjá Ár- ! manni og því fór sem fór, liðið hlaut að tapa fyrir KR. Það var þó ekki mikill munur á liðunum í þessum leik og það var jafnt á hverri einustu tölu nema á þeim síðustu. KR skor-' aði tvö síðustu mörk leiksins og þær Hjördís og Jónína tryggðu liði sinu sigur 12:10. 1 hálfleik var staðan 5:5. Það sem fyrst og fremst færði KR ingum þennan sigur var viljinn sem bar KR-stúlk- urnar hálfa leið og svo það að Erla Sverrisdóttir, sem verið hef ur sannkölluð prímadonna i leik Ármanns í vetur, var tekin úr umferð frá upphafi. Emilia hafði hlutverk fylgdarmannsins með höndum og stóð mjög vel í • stykkimu. Hjördis Sigur- jónsdóttir hefur verið aðal- manneskjan hjá KR í vetur, en að þessu sinni var hún meidd og var litið inn á. Sigþrúður Helga tók þá hlutverk hennar og stóð sig vel, og svo virðist sem Hjördís og Helga geti ekki báðar verið inn á í einu, báðar þurfa þær mikið athafnasvæði og hefur Helga fallið i skugga Hjör disar seinni part vetrar. I Ármannsliðinu var engin til að taka við aðalhlutverkinu og allar virtust stúlkurnar bíða eft ir að Erla tæki á ný við stjórn- inni. Mörk KR: Helga 4, Hjördís 4 (3 víti), Soffía, Emilía, Jónína og Hansína 1 hver. Mörk Ármanns: Erla 4 (3 víti), Guðrún 4, Auður og Katrín 1 hvor. • A SpAni skipa eftirtalin lið l'fstu sætin í 1. deildar keppn- inni: Barcelona 36, Espanol 34, Real Madrid 32, At Madrid 32, Malasra 26, Zaragrozza 26, Real Sociedad 24. • I Aufitturriki haia eftirtalin lift forystu í 1. dcildar kepiminni: Rapil Wien 22, ASK, VVacker, [nnsbruck og Admira Wacker hafa öll 21 stigr. • Í Grikklandi eru eftirtalin li<V í forystu í 1. deildar keppninni i knattspyrnu: Paok or Pirius 62 4tigr, Panathinaikos 56, Panahaiki V4, AEK 51. • Tékkóslóvakia sigrraói Pólland 8:1 í landsleik i ísliokki sem frám fór í Warszawa um holg- ina. AÐALFUNDUR handkniatrtJeiks- deildar ÍR verður haldinn á Hót- el Esju í kvöld og hefsit M. 20:30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundar störf. Víkingur AÐALFUNDUR knattspyrmi- félagsins Vikings verður haldinn á Hórtel Esju í kvöld Og hefsrt: kl. 20. Fundairefni: Venjuleg aðal- fundarstönf. Margur maðurinn segir við sjálfan sig og jafnvel aðra: það kemur alðrei eeitt fyrir mig Þetta eru staðlausir stafir, því áföllin geta hent hvern sem er,hvar sem er. Það er raunsæi að tryggja. Hikið ekki — Hringið strau ALMENNAR TRYGGINGARS Pósthússtræti 9, sími 17700

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.