Morgunblaðið - 17.04.1973, Blaðsíða 12
pí'Ot t * *'>«*»■ A. v r <iíf Th A f ‘n t » rír q ■ i <i(f rx A . 11
^2
MOHGUNHLAÐIÐ, ÞRJfXHJDAGUR 17. APRliL 1973
Hvöt íslandsmeistari
— taplaus í úrslitakeppninni
tKSLITALKIKIR Islandsmóts-
ins í blakl fóru fram á Akureyri,
langardaginn 14. april kl. 15.00.
Fjöldi áhorfenda fylgrdist með
leikjunum og sannkölluð úrslita
stemmning ríkti í Iþróttaskemm-
unni.
Fyrri leikurinn var á milli UM
SE og ÍS. Yfirburðir stúdenta
voru algerir 15:0, 15:3, en með
þeim úrslitum urðu möguleikar
Islandsmeistaranna IMA harla
litlir til að verja titil sinn á móti
Hvöt. Með því að vinna leikinn
við Hvöt myndu þeir færa ÍS Is-
landsmeistaratitilinn á silfur-
bakka. En liðsmenn Hvatar, nem
endur Menntaskólans að Laugar
vatni, voru ekki komnir til Akur
eyrar til að vera með neinn leik
araskap. Með yfirveguðum leik
og úthugsuðu spili í sókn og
vörn tryggðu þeir „Blakmannin-
um“, styttu þeirri, sem képpt er
um, dvöl að Laugarvatni næsta
ár og unnu leik sinni við ÍMA
2:1.
IS — IJMSE 2:0
Báðar hrinurnar voru ákaflega
lítið skemmlilegar á að horfa og
alveg sérstaklega tilþrifalitlar.
Lið Iþróttafélags stúdenta sýndi
þó það blak, sem áhorfendum
var gefinn kostur á að horfa.
Þegar fyrri hrinunni lauk með
sigri IS 15:0! fór að fara um liðs
menn IMA á áhorfendabekkjun-
um, því að mikið var í húfi fyrir
þá, að UMSE næði að skora sem
flest mörk móti IS.
1 síðari hrinunni upphófst
sama martröðin fyrir UMSE, en
þó þeim tækist að skora þrjú
mörk í hrinunni, var það frekar
fyrir klaufaskap ÍS heldur en
frammistöðu UMSE. Reyndar
vantaði UMSE tvo góða leikmenn
í lið sitt, en þeirra var vissulega
þörf.
Ef 15:0 og 15:3 geta gefið ein-
hverja lýsingu á leiknum, þá get
ur það sýnt getumun liðanna.
HVÖT — ÍMA 2:1
I þessum leik fengu áhorfend-
ur að sjá blak. Fyrsta hrinan er
æsispennandi. ÍMA byrjar með
boltann og Ómar Ingvarsson, og
Ólafur Thoroddsen eru framxni
við netið, báðir ágætis smassar-
ar, en Hjörtur Gíslason spilar
sem uppspilari.
Hjá Hvöt eru Páill Ólafsson,
Gestur Bárðarson og Torfi Rún-
ar Kristjánsson við netið, en Óii
Þór Jóhannsson, Bjarni Þorkels-
son og Már Tuliníus í vöm. Hvöt
vinnur boltann og tekst að skora
fyrsta markið en ÍMA jafnar
1:1. Leikurinn er ákaflega
skemmtilegur, mikið um fín upp
spil og smöss á báða bóga, en
styrkleiki Hvatar kemur samt
nokkuð skýrt í Ijós með skyn-
samlegum leik þeirra og laumum
meðfram hávörn iMA. Sýndi
Ólafur Þór alveg sérstaklega
fallegar laumur og er hann sér-
fræðingur i þeirri tækni að
Bjarna ólöstuðum. Hvöt leiðir
alla hrinuna, en iMA tekur þó
öðru hvoru fjörkippi og nær að
jafna 4:4, 11:11. Virtist liðið eink
um ná góðum tökum á leiknum,
þegar Júlíus Birgir Kristinsson,
Eiríkúr Stefánsson og Ólafur
eru frammi við netið, enda eru
þá hinir frábæru vamarleikmenn
iMA, þeir Hjörtur og Ingvar
Þóroddsson, sem hirða láumur
og smöss Hvatarmanna, þá bolta,
sem á annað borð eru möguleik
ar á að verja. Þegar leikar
standa 11:11 er spennan í há-
marki, en Hvöt nær að halda
jafnvægi sínu og iiðið skorar ör-
ugglega fjögur næstu mörk og
sigrar í fyrstu hrinunni 15:11.
Liðsmenn ÍMA taka nú á öiiu
sínu og árangurinn lætur ekki
á sér standa 4:0. Júlíus á frábær
smöss og lið Hvatar er í molum,
þeir hreinlega hætta að beita há-
vörn. Þessi leikkafli iMA-liðsins
er það bezta/ sem þeir hafa sýnt
í mótinu, og allt gengur eins og
vel smurð vél. Júlíus smassar á
þann veg, að manni dettur ósjálf
rátt í hug Þór Sigþórsson úr liði
ÍS, bezti smassari mótsins. Óm-
ari tekst líka vel upp í smössum
og Eiríkur og Ingvar spiia vel
upp. Staðan breytist úr 1:4 í 1:8
fyrir IMA. En loks virðast þeir
Gestur, Óli Þór og Bjami fara
að átta sig og byrja að beita
skipulegri hávöm og Már, Páll
og Torfi Rúnar fylgja vel undir
með lágvörn. Leikurinn jafnast
5:8, 6:9, en ÍMA á góðan kafla í
lok hrinunnar og slgrar 15:8.
Úrsli'tahrinain er einstefna af
hálfu Hvatar og sannkallaður
meistarabragur á spili þeirra.
Þegar ieikar standa 4:3 fyrir
Hvöt, er þætti Islandsmeistar-
anna 1972 lokið, en kafli Isiands-
meistaranna 1973 hafinn. ÖH
mörk, sem skoruð eru i viðbót I
hrinunni eru Hvatar, og íslands-
meistaramir 1973, UMF Hvöt
(nemendur Menntaskólans að
Laugarvatni), innsigla sigur sinn
í mótinu með glæsilegum sigri
í hrinunni 15:3. ^
Leikinn dæmdi Þórður R.
Magnússon og Páll Jónsson var
meðdómari. Þórður skilaði sínu
erfiða hlutverki vel, þrátt fyrir
mikil pú á dóma hans frá aðdá-
endum ÍMA á áhorfendabekkjun-
um, sem beittu öllum ráðum til
að hvetja lið sitt til dáða.
Er það blakíþróttínni vissu
iega mjö-g til framdráttar að eiga
þegar nokkra fyrirtaks dómara
og er Þórður þar framarlega í
flokki.
Að mótinu loknu flutti Guð-
mundur Arnaldsson, varaformað
ur Blaksambandsins stutt ávarp
og rakti gang mótsins, en síðan
fól hann Hermanni Sigtryggs-
syni að slíta mótinu. Lýsti Her-
mann úrslitum og afhenti siguT
vegurunum „Blakmanninn" —
verðlaunagrip Islandsmótsins.
Lokastaðan
Úrslit Islandsmeistaramótsins
í blaki 1973:
Stig Hrinur Mörk
1. UMF Hvöt 6:2 111:77 6
2. l.S. 4:2 82:51 5
3. t.M.A. 3:4 77:78 4
4. U..M.S.E. 1:6 39:103 3
Ingvar Þóroddsson og Júlíus Birgir Kristinsson horfa á eftir
frábæru „smassi“, frá Eiriki Stefánssyni í gólfið hjá Hvöt. Það
eru þeir Ólafur Þór og Páll Ólafsson sem eru í hávörn (til
vinstri).
íslandsmeistarar í blaki 1973. UMF Hvöt. Frá vinstri, efri röð, Páö Ólafsson, Finnur M. Finns-
son, Gestur Bárðarson, Bjarni Þorkelsson, Ólafur Þór Jóhannsson. Fremri röð: Már Tuliníus,
Torfi Itúnar Kristjánsson, fyrirliði, og Baidvin Kristjánsson. Á myndina vantar Rúnar Karlsson.
Stórsvigskeppni
Reykjavíkurmótsins
Blikarnir báru
sigurorð af í BK
Stórsvigskeppni Reykjavíkur-
mötsins á skiðum fór fram á
sunnudaginn í Bláfjöllum. Eins
og í svigkeppninni fékk Guðjón
Ingi Sverrisson beztan saman-
lagðan tíma, en hann keppir i
b-flokki. Binda Reykvíkingar
miklar vonir við Guðjón, ekki
aðeins á landsmótinu sem fram
Drengjahlaup
Ármanns
DRENGJAHLAUP Ármanns fer
fram fyrsta sunnudag í sumri,
að venju. Hefst hlaupið kl. 14.00.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast Jóhanni Jóhannessyni,
Blönduhlið 12 fyrir n.k. fimmtu-
dag.
fer á Siglufirði nú um páskana,
heldur einnig í framtíðinni.
Ails voru keppendur 22
í þessu móti, fleiri voru þó skráð
ir, en mæting var léleg. Hlið
voru 50, falihæð 190 metrar óg
brautina lagði Þorbergur Ey-
steinsson. Úrslit urðu þessi:
Kvennaflokkur:
Áslaug Sigurðardóttir, Á 125.5
Hrafnhildur Helgad., Á 134,3
Auður Harðardóttir, Á 135,9
B-flokkur karla
Guðjón Ingi Sverriss., Á 103.3
James Mayor, Á 104,7
Þorsteinn Geirharðss., Á 118.4
A-flokkur karla
Jóhann Vilbergsson, KR 104,9
Amór Guðbjartsson, Á 105,5
Sigurður Guðmundss., Á 111.4
Einn leikur fðr fram í Litlu
bikarkeppninni um síðustu helgi
leikur Breiðabliks og ÍBK og
fór hann fram í Keflavík. Lauk
leiknum með sigri Blikanna og
var þetta fyrsta tap Keflvík-
inga á hinu nýbyrjaða keppnis-
tímabili. Breiðabliksmenn
sýndu nú sinn bezta leik í vor
og náðu oft ágætum samleik,
Keflvíkingar sýndu aítur á móti
aldrei þá snerpu sem einkennt
hefur leiki þeirra í vor.
Breiðabliksmenn sóttu á móti
vindi í fyrri hálfeiknum, en áttu
þó lítið minna í hálfleiknum sem
var marklaus. I síðari hálfleik
skoraði Einar Þórhallsson strax
á sjöttu minútu ágætt skalla-
mark upp úr þvögu í vítateig
iBK. Stuttu síðar var Hinrik
bróðir Einars á ferðinni og kom
Blikunum í 2:0.
Steinar Jóhannsson hafði lít-
ið sézt í ieiknum, en síðasta
stundarfjórðunginn var hann
mjög ógnandi. Á 30. mínútu skor
aði Steinar mark, en það var
dæmt af vegna þess að dömar-
inn mun hafa verið búinn að
dæma aukaspymu. En 5 mínút-
um síðar fékk Steinar svo góða
stungusendingu inn fyrir vöm
Breiðabliks og skoraði örugg-
lega. Ekki voru fleiri mörk skor
uð í leiknum og lauk honum þvi
2:1 fyrir Breiðablik.
Staðan í Litlu bikarkeppninnl
er nú sú að Breiðablik og
Hafnarfjörður hafa hlotið þrjú
stig eftir þrjá leiki, en Akranes
og Keflavik tvö stig eftir tvo
leiki.
» Svend-Áke Lundback sigraði
í hinni árlegu skíðagrönBu, er nefn
ist Nordenskjölsloppet, og fram
fer í Svíþjöð. Tími hans var
/5:33,26 klst. Annar varð landi
hans Sören Burman á 2:36,09
klst., og þriðji varð Finninn Perti
Tenrajárvi á 2:37,58 klst.
m Noregnr sigraði Sviþ.iöð 4:3
í landskcppni f kraftlyftinffum
sem fram fór um helKina. Möre
met voru sett f Keppninni, en
einna mesta athyeli vöktn afrek
Olfs Morin frá Sviþjóð I þungra-
rigrt, en hann l.vfti samtals 730 ke.
m Staða efstn liðanna f ftölsku
1. deildar keppnlnni f knatt-
spyrnn er nú þessi: Milan 32,
Jnventns 30, Lazio 29, Inter 27,
Fiorentfna 24.